Alþýðublaðið - 17.11.1994, Side 5
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
ísland og Evrópa
Umhverfismál
Rússland:
Norðurlöndin munu setja
mark sitt á Evrópusambandið
Hinn nýi forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins telur hið norræna
Hroðalegt olíuslys í norðri
samfélag þá fyrirmynd sem Evrópusambandið muni hafa að leiðarljósi.
Umfang gífurlegs olíuleka á sjálfsstjórnarsvæðinu Komi gæti verið átta sinnum meira
en Exxon Valdez slysið árið 1989.
meðan almenninguríFinnlandi, Sví-
þjóð og Noregi hefur haft ýmsar
áhyggjur af því að verið sé að fóma
fullveldi fyrir markaði og áhrif.
Það er ef til vill gleggsta dæmið
um áhrifamátt smáríkja, að hinn nýi
forseti kemur frá minnsta og fá-
mennasta aðildarríki sambandsins.
Lúxemborg hefur verið með í sam-
starfinu í 40 ár, allt frá stofnun Kola-
og stálbandalagsins, síðar Efnahags-
bandalags Evrópu, þá Evrópubanda-
laginu og nú Evrópusambandinu eft-
ir síðustu breytingar sem gerðar hafa
verið og nýjustu fjölgun aðildarríkja.
„Við höfum verið með í 40 ár,“
segir Santer í viðtali við Dagens Ny-
heter í Svíþjóð," og pólitískt hlut-
verk okkar og þjóðemisvitund og
menningarleg kennd hefur aldrei
verið sterkari. Þótt við búum milli
tveggja stórra nágranna, Frakka og
Þjóðverja, höfum við aldrei haft það
á tilfinnirigunni að við værunt að
týnast." Hann segir félagsleg kjör
hat’a verið með því besta í Evrópu-
sambandinu og menn hafi aldrei lát-
ið sér til hugar koma að fóma því eða
slaka á, rétt eins og Norðurlanda-
þjóðimar þurfi í engu að gefa eftir
varðandi hugmyndir sínar um vel-
ferðarþjóðfélag.
Santer er reyndar í hópi þeirra for-
ystumanna Evrópusambandsins,
sem teljast sambandssinnar og vilja
styrkja hið yfirþjóðlega vald, en
hann leggur það þó ekki að jöfnu við
miðstýringu valdsins. Hann vill
valddreifingu stofnananna og hann
segir að sem forystumaður smæsta
ríkis sambandsins geri hann sérbetur
grein fyrir því en flestir aðrir, að
sambandskenningin sé andstaða
Rússar hafa aldrei verið þekktir
fyrir skjót viðbrögð við stórslysum.
Arið 1986 tók það yfirvöld í
Moskvu heila viku að viðurkenna
það sem vestræn höfðu þá í marga
daga vitað: Alvarlegt slys hafði
gjöreyðilagt kjarnakljúf í Tsjern-
óbýl. Það var því lítið undrunarefni
þegar bandarískir embættismenn -
en ekki rússneskir kollegar þeirra -
tilkynntu um það sem gæti reynst
versta olíuslys sögunnar í freðnum
auðnum heimskautasvæða Rúss-
lands; nánar tiltekið á sjálfsstjóm-
arsvæðinu Komi.
Rússneskur embættismaður kall-
aði atvikið „minniháttar slys sem
heimamenn hafa fulla stjórn á“.
Umhverfisvemdarsinnar í Banda-
ríkjunum og Rússlandi hafa hins-
vegar getið sér þess til, að þessi
hafsjór olíu sem lekið hefur útá og
niðrí rússnesku túndruna gæti verið
átta sinnum umfangsmeiri en hið
hrikalega Exxon Valdez slys árið
1989.
Lekar olíuleidslur
uppá 75 þúsund km.
Um það bil 75 þúsund kílómetrar
af lekum og hrömandi olíuleiðslum
skera Rússland þvers og kruss.
Samkvæmt upplýsingum frá Alex-
ei Yablokov, yftrmanni umhverfis-
Ut litiö og ot seint: l veir verKamenn reyna nvao peir gexa m ao nreinsa
olíuleðjuna uppúr fljóti á rússneska heimskautasvæðinu.
nefndar Rússneska öryggisráðsins,
þá þarf að endurnýja að minnsta
kosti 55 þúsund kílómetra af þessu
leiðslum. Að jafnaði verða tvo al-
varleg umhverfisslys á dag tengd
olíuleiðslunum. Yablokov segir að
leynd hvíli á 95 prósentum slys-
anna; aldrei sé fjallað um þau á op-
inberum vettvangi.
Fyrstu merki þess að hroðalegt
olíuslys hefði átt sér stað á sjálfs-
stjórnarsvæðinu Komi sáust í ág-
ústmánuði síðastliðnum. Þá fann
Umhverfisvemdarnefnd Rússlands
14 leka á olíuleiðslum í Komi á
hefðbundnu eftirlitsfiugi sínu. í
september lokaði Komineft, ríkis-
olíufélagið, síðan olíuleiðslunni í
viku og tilkynnti forvitnum emb-
ættismönnum, að ástæðan væri ein-
ungis alvanalegt viðhald. Viku
seinna var olíuleiðslan aftur gang-
sett. Þá gerðist það að gffurlegt
vatnsveður - og hugsanlega áfram-
haldandi leki leiðslunnar - mfu stór
skörð í stíflur sem stjómvöld höfðu
reist til að halda aftur af olíustöðu-
vatninu. Afleiðingarnar reyndust
skelfilegar: Svarta leðjan lagði á
stuttum tíma undir sig 68 kílómetra
lands.
Mun olíumengunin
ná til Pechora fljóts?
Það svæði sem verst fór útúr ol-
íulekanum er eyðilegur olfuútnári,
bærinn Kolva með 2 þúsund íbúa
og ekkert nema timburbragga og
skuggalega kaffiteríu til að státa sig
af. Yfirráðasvæði bæjarins nær yfir
190 ekra svæði og af þeim eru 109
illa farnar af olíumengun, sam-
kvæmt fullyrðingum umhverfis-
verndarsinna.
Fyrsta snjódrífa vetrarins á
svæðinu kom fyrir stuttu. Snjórinn
gæti hugsanlega hjálpað til við að
hemja skaðann að einhverju leyti
og hindra að olíuleðjan brjóti sér
leið að Pechora fljótinu sem rennur
í Barentshaf.
Þrátt fyrir að embættismenn
haldi því staðfastlega fram að olían
hafi enn ekki náð til Pechora fljóts-
ins, þá berast aðrar fregnir frá
Moskvu. Umhverfísverndarsinnar
þar í borg segja að fiskimenn stadd-
ir allt að 450 kílómetra frá olíuslys-
staðnum í Komi, hafi dregið upp
kolsvarta og olíumengaða sand-
hauga með netum sínum.
Heimild: Newsweek.
Jacques Santer, forsætisráðherra
Lúxemborgar og verðandi forseti
framkvæmdastjómar Evrópusam-
bandsins, fagnar því að fá Norður-
löndin í hóp Evrópusambandsríkj-
anna og telur að áhrif þeirra á mótun
sambandsins verði mikil og til góðs.
Viðbót hinna nýju ríkja munu gera
það að verkum, segir hann, að stjóm-
kerfið mun verða opnara, jafnrétti
mun aukast í álfunni og umhverfís-
sjónarmiða gæta í mun ríkara mæli.
Jacques Santer fagnar því að fá
Norðurlöndin í hóp ESB-rikjanna
og telur að áhrif þeirra verði mikil
Saga og lífshættir Norðurlanda-
búa munu setja mark sitt á hið evr-
ópska samfélag segir hinn nýi forseti
framkvæmdastjórnarinnar um leið
og hann fullvissar Norðurlandaþjóð-
imar um að þær rnuni ekki týnast í
fjöldanum. Þvert á móti.
Santer hefur tjáð sig um þróun
Evrópusambandsins í viðtölum við
norræna fjölmiðla að undanförnu
miðstjómarkenningarinnar.
Santer er nýbúinn að koma saman
nýrri framkvæmdastjórn og skipta
með henni verkum. Hann leggur
áherslu á að í hana veljist þungavigt-
armenn, helst fyrrum ráðherrar,
menn með mikla reynslu og pólitíska
þekkingu og sérstaklega í málefnum
Evrópu. Það styrkir Evrópu út á við
að hafa sterka og hæfa framkvæmda-
stjóm, en er nú líkust ríkisstjóm,
nema hvað ekki er um að ræða
Bandaríki Evrópu í líkingu við
Bandaríki Norður- Ameríku. Santer
telur slíkt óraunhæla framtíðarsýn.
En er verið að reyna að steypa
Evrópuþjóðum saman í eina ein-
sleita heild?
- Nei, síður en svo, telur Jacques
Santer. Menn verða að varðveita
þjóðernisvitund sína og menningu.
Það er hægt að samræma hagkerfi en
það verður aldrei hægt að samræma
fólk né þjóðmenningu með sama
hætti. Hann hefur látið hafa það eftir
sér að heiti Evrópusambandsins sé
ekki nógu heppilegt. „Samband" eða
„bandalag“ virkar stofnanalegt og
lögfræðilegt. Gamla heitið, sem á ís-
lensku hefði átt að vera „Evrópu-
samfélagið" - The European Comm-
unity - er best að mati hans, og lýsir
þeirri hugsjón að fólk í allri Evrópu
eigi að líta á sig sem eitt samfélag að
mörgu leyti ólfkra þjóða með mis-
jafnan menningararf en sameigin-
lega drauma. I sambandi eða banda-
lagi hlíta menn reglum, segir hann,
en í samfélagi sýna menn öðrum
samkennd þegar á reynir.
Jacques Santer, forsætisráðherra Lúxemborgar og verðandi forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambandsins: Er verið að reyna að steypa Evr-
ópuþjóðum saman í eina einsleita heild? Nei, síður en svo, telur Santer.
Menn verða að varðveita þjóðernisvitund sína og menningu. Það er hægt
að samræma hagkerfi en það verður aldrei hægt að samræma fólk né
þjóðmenningu með sama hætti.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra skrifar um Island og
Evrópusambandið í sænska blaðið Nerikes Allehanda:
ísland áhrifalaust fyrir utan
Fjölmiðlar á hinum Norðurlönd-
unum hafa haft nokkum augastað á
íslandi í tengslum við umræðuna um
stækkun Evrópusambandsins til
norðurs. Þeir hafa þó sérstakan áhuga
á íslenska utanríkisráðhenanum, Jóni
Baldvin Hannibalssyni. Hann hefur
verið eftirsóttur í viðtöl og skrifað
Ijölmargar greinar í dagblöð og tíma-
rit á Norðurlöndunum og víðar í Evr-
ópu. Eina slíka var að finna í sænska
blaðinu Nerikes Allehanda á dögun-
um.
Utanríkisráðherra segir að íslensk
utanríkisstefna hafi grundvallast á
þremur meginþáttum frá síðari
heimsstyrjöldinni. I fyrsta lagi aðild-
inni að NATO og varnarsamningn-
um við Bandaríkin. I öðm lagi nor-
rænu samstarfi innan Norðurlanda-
ráðs og í þriðja lagi aðildinni að
EFTA og samningum þess við Evr-
ópusambandið.
Hann telur að NATO muni áfram
gegna mikilvægu hlutverki í öryggis-
og vamamiálum, en verði þó fyrst og
fremst tvíhliða samband milli Evrópu
og Norður-Ameríku. A sama tíma
muni mikilvægi Vestur-Evrópusam-
bandsins (VES) aukast vemlega á
þessu sviði. Þannig hafi margir af
þjóðarleiðtogum Vestur- Evrópu
áhyggjur af því að síðustu bandarísku
hermennimir séu að hverfa frá Evr-
ópu, og því muni Bandaríkjamenn
hætta að tryggja öryggi álfunnar.
I kjölfarið telur ráðherra að hem-
aðarlegt mikilvægi Islands muni
minnka og minnir á, að eftir tvö ár
verði vamarsamningurinn milli ís-
lands og Bandaríkjanna endurskoð-
aður.
Því næst víkur utanríkisráðhenann
að samrunaferlinu í Evrópu og þeirri
staðreynd að Finnland og Svíþjóð
hafa þegar samþykkt inngöngu í Evr-
ópusambandið og Noregur ætli sér
þangað inn líka. Þessi þróun mun
veikja vemlega þátttöku og áhrif Is-
land í norrænu samstarfi, að mati
hans.
Þegar ísland verði eitt Norðurland-
anna eftir fyrir utan Evrópusamband-
ið muni hin löndin fjögur yfirgnæfa
alla norræna samvinnu innan sam-
bandsins. Þá á hann ekki aðeins við á
viðskiptasviðinu, heldur líka hvað
varðar utanríkis- og vamarmál, vís-
indi og menningu.
Utanríkisráðherra telur að Island
muni því fljótt einangrast í norrænu
samstarfi. Norðurlandasamstarfið
mun þvf fara fram milli þessara Ijög-
urra ríkja innan ramma Evrópusam-
bandsins, án þess að Island hafi þar
nokkur áhrif. Þá muni samstarf ís-
lands við Evrópusambandið einnig
minnka vemlega og samningurinn
um Evrópska efnahagssvæðið ein-
ungis verða tvíhliða samningur milli
Islands og Evrópusambandsins, í
stað fjölþjóðasamnings sem hann er í
dag.
Þannig verði EES-samningurinn
ekki sá vettvangur áhrifa og breyt-
inga sem honum var ætlað í upphafi
og því verði íslendingar nánast
valdalausir fyrir utan Evrópusam-
bandið. íslendingar missi því bæði
tengslin við Norðurlöndin og Evr-
ópulöndin sem þeir höfðu meðal ann-
ars í gegnum samstarfið innan
EFTA. Breytingamar á hinum Norð-
urlöndunum hefðu því ekki í för með
sér óbreytt ástand fyrir Island, heldur
minni áhrif og meiri einangmn.
Þá telur ráðherra að þetta geti haft
Jón Baldvin Hannibalsson:
Einangrun á vettvangi Norðurlanda
ýmis keðjuverkandi áhrif, þar sem Is-
land hafi geta haft meiri áhrif í ýms-
um alþjóðastofnunum vegna hins
nána samstarf Norðurlandanna. Þetta
eigi til dæmis við um Sameinuðu
þjóðimar, OECD, GATT og RÖSE.
Hann vill ekki gera lítið úr EES, en
segir að smámsaman muni samning-
urinn fjara út og því verði Islendingar
fyrr eða síðar að gera það upp við sig
hvort þeir geti varið þjóðarhagsmuni
sína með því að standa einir fyrir ut-
an Evrópusambandið? Það sé reynd-
ar skorturinn á þessum pólitísku
áhrifum sem hafi sannfært aðrar
EFTA-þjóðir um að EES-samningur-
inn væri ekki fullnægjandi eftir þær
umbreytingar sem hafa átt sér stað í
Evrópu. Ríkisstjómir þessara landa
að ákvarðanir Evrópusambandsins
muni, framtíðinni, hafa mikil áhrif á
þróunina heima fyrir, hvort sem
löndin em utan eða innan sambands-
ins.Með inngöngu í Evrópusamband-
ið fá hin Norðurlöndin tækifæri á að
hafa áhrif á ákvarðanir og framtíðar-
þróun sambandsins. Utanríkisráð-
herra bendir einnig á að reynslan sýni
að smáþjóðir hafi haft töluverð áhrif
innan Evrópusambandsins og vísar í
því sambandi á Danmörk og Luxem-
borg. Hann telur að Norðurlöndin
muni til dæmis hafa áhrif á þróunin á
sviði sjávarútvegsmála, orkumála,
velferðar- og atvinnumála. En án að-
ildar að sambandinu hafi þau engin
áhrif á þessa málaflokka, sem em
hvað mikilvægastir heima fyrir.
Niðurstaða Jóns Baldvins Hanni-
balssonar utanríkisráðherra í þessari
grein er því sú, að með því að gefa
hluta af hinu þjóðlega fullveldi eftir
til yfirþjóðlegra stofnana, geti þessar
sömu þjóðir endurheimt þau áhrif
sem þau hafi tapað á síðustu ámm.