Alþýðublaðið - 18.11.1994, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
MÞWBLMB
20825. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
Sigurður Tómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Alþýðuflokkurinn og
stj ór nmálaumr æðan
Það er staðreynd að helstu deilumál í íslenskum stjómmálum
ganga þvert á flokka. í Morgunblaðinu í gær gaf að líta greinar-
góða fréttaskýringu á ástandinu innan Kvennalistans, en gæti
þó allt eins hafa verið um hina flokkana. í þeim þrengingum
sem Alþýðuflokkurinn gengur í gegnum þessa dagana er
flokksmönnum hollt að minnast þess að einn íslenskra flokka
hefur Alþýðuflokkurinn skýra stefnu í grundvallarmálum. Mál-
efnalega er því staða flokksins sterk, þó ímynd flokksins sé
veik. Það sama verður ekki sagt um risana tvo í íslenskum
stjómmálum, Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn.
Sjálfstæðisflokkurinn er margklofínn og stefnulaus um flest
mál. Á þessu kjörtímabili hafa þeir Halldór Blöndal og Egill
Jónsson unnið sér sess sem andlegir leiðtogar flokksins og
bundið og keflað þingmenn Reykjavíkur. Nýjasta dæmið um
undirlægjuháttinn er kjördæmamálið, en þar virðist í uppsigl-
ingu lending að skapi framsóknararms flokksins. I Evrópumál-
um er umræða kæfð á þeirri forsendu að málið sé ekki á dag-
skrá! Upp úr þeim potti sýður fyrr en síðar hvað sem líður boð-
um og bönnum formannsins. í atvinnumálum er kraumandi
óánægja, enda er flokkurinn bundinn á klafa hagsmunasam-
taka. Uppstokkun í landbúnaði og sjávarútvegi kemur ekki til
greina, enda er óbreytt ástand í þessum efnum mottó flokksins.
Um þetta frekar en annað er engin samstaða, þó hinir óánægðu
þegi niðurlútir undir hugmyndafræðilegu ofríki Egils sterka.
Neytendamál fá lítið sem ekkert rými í stefnumörkun, fyrir ut-
an almennt tal um viðskiptafrelsi. Þegar á hefur reynt hefur
flokkurinn alltaf tekið hagsmuni framleiðenda fram yfir hags-
muni neytenda.
Ekki er ástandið betra í Framsóknarflokknum. Þar fæddist mús
við valdatöku Halldórs Ásgrímssonar. Nýja formanninn langar
greinilega í nýjar áherslur, en þorir ekki að tala hreint út. Merki-
leg var sú játning Halldórs að Framsóknarflokkurinn hefði lík-
lega greitt samningunum um hið Evrópska efnahagssvæði at-
kvæði sitt hefði hann verið í ríkisstjóm. Ber þetta vott um
stefnufestu og ábyrgð? Kjósendur munu hér eftir líta hinn
brúnaþunga formann tortryggnum augum og spyrja: Er þetta
stefnan sem fylgt verður utan ríkisstjómar eða innan ríkisstjóm-
ar? Staðreyndin er auðvitað sú að EES-málið er táknrænt fyrir
málefnastöðu flokksins og staðfestir djúpan klofning milli
þeirra sem vilja frjálslynt markaðskerfí og hinna sem vilja aft-
urhvarf til gósentíma framsóknaráranna. Einangmnarstefna og
afturhald verða kjörorð framsóknar í næstu kosningum af þeirri
ástæðu að formaðurinn nýi hvorki þorir né getur endumýjað
stefnu flokksins.
Við þessar aðstæður hefur Alþýðuflokkurinn málefnalega yfir-
burði og er í stakk búinn til að setja dagskrá stjómmálaumræð-
unnar. Það gerist hins vegar ekki nema flokkurinn taki sér tak.
Imynd flokksins þarf að bæta. Andstæðingunum hefur tekist að
koma því svo rækilega á dagskrá að Alþýðuflokkurinn sé spillt-
ur bitlingaflokkur að málefni flokksins hafa átt erfitt uppdráttar.
Flokksmenn verða að horfast í augu við þetta og grípa til rót-
tækra aðgerða ef ekki á illa að fara. Ekki þýðir að barma sér yf-
ir ranglæti heimsins eða illsku fjölmiðla, framtíð flokksins
byggist á honum einum. Fyrsta skrefíð er að viðurkenna stað-
reyndir og hefja síðan uppbygginguna.
Vonin og
veruleikinn
efnum og málsástæðum. Annars er
það bara frekja.
Það má til sanns vegar færa að
„hatur og heimska" hafi verið undir-
rótin að klofningi Alþýðuflokksins,
tlokks tslenskra jafnaðarmanna, hvað
eftir annað. „Hatur og heimska" var
upphaf og endir Kommúnistaflokks
íslands. „Hatur og heimska" réði
mestu um viðskilnað Héðins við Al-
þýðuflokkinn 1938. „Hatur og
heimska" réðu fór, illu heilli, þegar
Hannibal varð viðskila við Alþýðu-
flokkinn 1954. „Hatur og heimska"
eru vondir ráðgjafar í pólitík. Sagan
sýnir okkur að árangurinn er eftir því.
Menn uppskera eins og þeir hafa til
sáð.
Sameinumst
- en um hvað?
Um hvað eiga þeir sem aðhyllast
nútíma jafnaðarstefnu þá að samein-
ast? Lítum stuttlega á nokkra mála-
flokka, sem munu skipta sköpum um
þróun okkar þjóðfélags í fyrirsjáan-
legri framtíð. Og spyrjum í leiðinni
um afstöðu flokka og flokksbrota til
þeima megin mála, sem sameinast ber
um.
I. ALÞJÓÐAHYGGJA. Heimur-
inn er orðinn að „alþjóðlegu þorpi“.
Heimshreyfing jafnaðarmanna er al-
þjóðleg í eðli sínu. Við emm alþjóða-
hreyfing sem byggjunt á gildum
mannréttinda, lýðræðis og siðferði-
legrar samábyrgðar. Þetta þýðir í okk-
ar heimshluta, að við viljum tilheyra
samtökum evrópskra lýðræðisrikja en
forðumst þjóðemissinnaða einangr-
unarstefnu. Þess vegna hafa íslenskir
jafnaðarmenn stutt aðild fslands að
NATO, Norðurlandasamvinnu,
EFTA, EES. Og nú viljum við láta á
það reyna, hvort við getum séð brýn-
ustu þjóðarhagsmunum borgið innan
stefnunnar verði lág verðbólga og
stöðugleiki til þess að tryggja sam-
keppnishæfhi íslensks atvinnulífs, af
því að við lifum á útflutningi.
Alþýðubandalagið hefur sögulega
séð verið flokkur ríkisforsjár, þjóð-
emislegrar einangmnarhyggju og
vemdarstefnu. Það kann að breytast -
en hingað til hefur flokkurinn ekki
haft burði til að gera upp við fortíðina.
Kvennalistinn segir pass. Skynsam-
leg hugsun um efnahags- og atvinnu-
mál virðist flestum forystukonum
Kvennalistans framandi. Yfirleitt
hafa þær þó álpast til að styðja óbreytt
ástand. Framsóknarflokkurinn er tví-
átta í þessu sem öðm.
3. VELFERÐIN. Við viljum að
velferðin sé fyrir fólk, sem þarf á
henni að halda, tímabundið, til dæmis
vegna veikinda eða atvinnuleysis eða
á vissum aldursskeiðum. Við viljum
hins vegar ekki sjálfvirkar skatta-
hækkanir á almenning til þess að
borga reikninga fyrir bjargálna fólk,
sem ekki þarf á stuðningi að haida.
Við viljum ekki að meirihluti þjóðfé-
lagsþegnanna eigi afkomu sína undir
opinbemm styrkjum, eins og nú er
komið í Svíþjóð og Danmörku. í Svt-
þjóð hafa slíkir styrkir tvöfaldast á
síðastliðnum 20 ámm. Enda er vel-
ferðarríkið sænska komið í skulda-
fangelsi. Velferðarkerfið á að verafé-
lagslegt öryggisnet og tekjujöjhunar-
tœki. Það má aldrei verða sérlutgs-
munakerfi í þágu þeirra sem við það
starfa.
Vandi velferðarkerfisins virðist
yfirleitt vera feimnismál, sem fæst
ekki rætt í öðmm flokkum en Al-
þýðuflokknum. Kvennalistinn segir
pass. Alþýðubandalagið brúkar slag-
orðavaðal til að breiða yfir hug-
myndafátæktina. Framsókn stendur
vörð um velferðarkerfi sauðkindar-
ESB. Ungir jafnaðarmenn em í farar- innar. Er hægt að koma af stað viti-
„Og það er ekki nóg að kenna „hatri og
heimsku“ forystumanna um óbreytt
ástand. Væri það viðhlítandi skýring,
hefði hinum „hatursfullu og heimsku“
forystusauðum fyrir löngu verið vikið til
hliðar. Markmiðið með sameiningu
jafnaðarmanna í einum flokki hlýtur að
vera að hrinda umbótamálum jafnaðar-
manna í framkvæmd. Leiðirnar eru áreið-
anlega ekki þær að fjölga þeim flokkum
eða flokksbrotum, sem þykjast vilja vinna
að sameiginlegu markmiði.“
Smáflokkstilveran er mörgum ung-
um hugsjónamanninum þymir í
holdi. Draumurinn um „sameiningu
jafnaðarmanna" í stómm og öflugum
flokki lifir í vitund okkar. Sú stað-
reynd að hann hefur ekki ræst veldur
vonbrigðum. Vonbrigðin em kveikj-
an að greinum tveggja ungra Pall-
borðsgesta Alþýðublaðsins að undan-
Pallborðið
fömu, þeirra Ingvars Sverrissonar og
Magnúsar A. Magnússonar.
Vonbrigðin em skiljanleg. Við-
miðunin er ljöldaflokkar jafnaðar-
manna annars staðar á Norðurlöndum
og í Evrópu. Nýleg reynsla, þegar
andstæðingar Sjálfstæðisflokksins
sameinuðust um Reykjavíkurlistann,
var hvort tveggja í senn upplifun og
dæmi urn það sem koma skal. Hug-
sjónamenn vilja hreinar línur - ekkert
miðjumoð.
Vonbrígdi
En greiningu hinna ungu hugsjóna-
manna á hinu óbreytta ástandi er
ábótavant. Það á við um hvort
tveggja: Markmiðið og leiðirnar. Það
er ekki markmið í sjálfu sér að sam-
einast gegn Sjálfstæðisflokknum.
Sameina hveija? Um hvað? Það er
ekki nóg að sameinast um fleiri dag-
vistarheimili t Reykjavík. Flokkar
hafa sameinast um tímabundin verk-
efni af því tagi í sveitarstjómum um
land allt fyrr og sfðar, án þess að það
sæti tíðindum.
Og það er ekki nóg að kenna „hatri
og heimsku" forystunranna um
óbreytt ástand. Væri það viðhlítandi
skýring, hefði hinum ,Jiatursfullu og
heimsku" forystusauðum fyrir löngu
verið vikið til hliðar. Markmiðið með
sameiningu jafnaðarmanna í einum
flokki hlýtur að vera að hrinda um-
bótamálum jafnaðannanna í fram-
kvæmd. Leiðimar eru áreiðanlega
ekki þær að fjölga þeim flokkum eða
flokksbrotum, sem þykjast vilja vinna
að sameiginlegu markmiði.
Mistök
Samtök frjálslyndra og vinstri-
manna reyndust vera mistök. Banda-
lag jafnaðarmanna náði engum ár-
angri sem slíkt. Stuðningsmenn þeirra
hugmynda, sem bandalagið stóð fyrir,
hafa hins vegar náð umtalsverðum ár-
angri, eftir að þeir snem aftur heim til
fóðurhúsa - til Alþýðuflokksins. Jó-
hanna Sigurðardóttir er sams konar
tímaskekkja. Samtök kringum hana
munu veikja getu jafnaðarmanna til
að konta fram vilja sfnum um aukinn
jöfnuð í þjóðfélaginu - jafnvel hugs-
anlega útiloka áhrif jafnaðarmanna á
stjóm landsins á næsta kjörtímabili.
Jóhanna hefur engan sjálfstæðan hug-
myndagrundvöll til að standa á. Skil-
yrðislaus krafa um að „skaffa“ meira
til félagsmála er ekki hugmynda-
grundvöllur jafnaðarmannaflokks,
heldur verkefni, sem við leysum eftir
broddi í þessari baráttu.
En hver er afstaða annarra flokka
og flokksbrota, sem kenna sig við
vinstrið, til þessara lykilntála? Al-
þýðubandalagið var og er á móti.
Kvennalistinn er á móti, þótt hinar
yngri konur gangi þar gegn samvisku
sinni. Framsóknarflokkurinn er á
móti, en að vísu klofinn. Stór hluti al-
mennra kjósenda er hins vegar sam-
ntála okkur jafnaðarmönnum.
2. ATVINNULMÐ. Viðjafnaðar-
menn viljum að það lúti lögmálum
samkeppni á opnum markaði, en
verði ekki hneppt í fjötra ríkisforsjár,
einangrunar eða vemdarstefnu. Við
viljum að meginmarkmið efnahags-
borinni umræðu til vinstri um skyn-
samlegar Iausnir á vanda velferðar-
kerfisins? Væntanlega ættum við öll
að geta sameinast um að tryggja
framtíð þess á varanlegum grunnil
4. VIRKT LÝÐRÆÐI. Það er sið-
ferðilega óverjandi að gera grundvall-
ar- mannréttindi einstaklingsins í lýð-
ræðisþjóðfélagi, sem er einn mað-
ur/eitt atkvæði, að pólitískri verslun-
arvöm. Ungir jafnaðarmenn em hér í
fararbroddi. Þeir hafa sett frant heild-
stæðar og rökréttar tillögur um jöfnun
atkvæðisréttar með landið sem eitt
kjördæmi.
Framsókn segist vera á móti, eins
og hún hefur alltaf verið. Kvennalist-
Dagatal 18. nóvember
Atburðir dagsins
1910 Kvenréttindakonur ráðast á
breska þinghúsið, 119 handteknar.
1922 Marcel Proust deyr, einn merk-
asti höfundur Frakklands á öldinni.
1977 Sadat heimsækir ísrael, fyrstur
leiðtoga Egypta. 1988 Ein milljón
Serba gengur um götur Belgrad og
heimtar sjálfstæði. 1991 Bretinn
Terry Waite og Bandaríkjamaðurinn
Thomas Sutherland látnir lausir, eft-
ir að hafa verið í gíslingu í Líbanon í
mörg ár.
Afmælisbörn dagsins
Carl von Weber þýskt tónskáld,
1786. Ignacy Paderewsky pólskur
píanóleikari og tónskáld, forsætis-
ráðherra um tíu mánaða skeið, 1860.
Linda Evans bandarísk stjarna úr
sápuóperum, 1944.
Málsháttur dagsins
Lokaord dagsins
Eg er Heinrich Himmler.
Hinstu orð nasistaforingjans
Heinrichs Himmlers (1900- 45).
Ljós dagsins
Hann var fyrsti og eini maðurinn,
sem mér fannst uppljómaður af feg-
urð.
Amý Filippusdóttir um
Einar skáld Benediktsson.
Annálsbrot dagsins
Hlutir bjarglegir eystra og miðl-
ungi í Vestmannaeyjum, góðir í Þor-
lákshöfn og Grindavík, en mjög litlir
á Nesjum. Lítið unt fisk og harðindi
undir Jökli; var greint þar hefðu dáið
af sulti 70 manns.
Vallaannáll, 1699.
Ord dagsins
Enginn lái öðrum frekt,
einn þó nái falla.
Hver einn gái að sinni sekt,
syndin þjáiralla.
Vatnsenda-Rósa.
Skák dagsins
Kolvitlaus stöðumynd birtist með
skákinni í gær og því glæsiflétta af
rómantfska skólanum enn til skoð-
unar. Zarovnjtov hefur hvftt en
Pankratov hefur svart og á leikinn.
Hvíti kóngurinn er býsna umkomu-
laus í horninu enda eru liðsmenn
hans illa settir og tjarri því góða
inn veit ekki. Alþýðubandalagið er
klofið. Spumingin er: Geta lýðræðis-
jafnaðarmenn, sem vilja rísa undir
nafni, virkilega verið ósammála um
að tryggja öllum þegnum þjóðfélags-
ins sjálfsögðustu mannréttindi, án til-
lits til búsetu, efnahags, þjóðfélags-
stöðu?
5. AUÐLINDASTEFNA. Eftir að
aðgangur að sameiginlegri auðlind
þjóðarinnar, fiskimiðunum, varð
skammtaður með lögum, er það að
mati okkar jafnaðannanna hvort
tveggja hagfræðilega og siðferðilega
óréttlætanlegt að úthluta auðlindinni
ókeypis til forréttindaaðila, án þess að
þeir greiði fyrir leigugjald til eigand-
ans, sem er fslenska þjóðin.
Alþýðuflokkurinn hefur hingað til
verið einn meðal stjómmálaflokka í
sókn og vöm fyrir þessa framtíðar-
stefnu. Framsókn er á móti. Kvenna-
listinn veiti ekki. Alþýðubandalagið
er klofið. Spumingin er: Getur sam-
einaður jafnaðarmannafiokkur kom-
ist að niðurstöðu um svo sjálfsagt
mál? Að auðlindir þjóðarinnar skuli
vera sameign hennar, eins og Alþýðu-
flokkurinn hefur lengi barist fyrir,
bæði varðandi fiskimiðin og þjóðar-
eign á almenningum og orkulindum?
Ef jafnaðarmenn geta ekki sameinast
um þetta - um h vað geta þeir þá sam-
einast?
Félagshyggja fortídar
Andstæðingar Alþýðuflokksins
hafa áratugum saman kytjað þann
söng að Alþýðuflokkurinn sé með „-
hægri slagsíðu“. Astæðan er sú að Al-
þýðullokkurinn hefur fyrir löngu sagt
skilið við þá félagshyggju fortíðar-
innar, sem einkennist af þjóðemis-
sinnaðri einangmnarhyggju, vemdar-
stefnu og ríkisforsjá. Sannleikurinn er
sá að þessi félagshyggja fortíðarinnar
er ómenguð íhaldsstefna. Hún á sér
talsmenn í mörgum flokkunt. Hana er
ekki bara að finna á Höllustöðum,
Seljavöllum og Bergþórshvoli, heldur
líka í dyngju kvennalistans og í kosn-
ingarútu allaballanna.
Boðberi breytinga
Okkur vantar ekki fleiri flokka lil
að slá skjaldborg um óbreytt áistand.
Hin sameinaði jafnaðarmannaflokkur
hlýtur að vera róttækur umbótaflokk-
ur, sem hh'tir kalli tfmans. Stefna Al-
þýðuflokksins er nútímaleg jafnaðar-
stefna. Hún er ekki hægristefna. Hún
er róttæk umbótastefna. Þess vegna er
Alþýðuflokkurinn frumkvöðull og
boðberi breytinga. Hann er ekki varð-
hundur óbreytts ástands. Hann hefur á
undanfömum ámm og áratugum ver-
ið gerandinn í íslenskum stjómmál-
unt. Þess vegna er hann líka umdeild-
ur. Þess vegna beina andstæðingamir
spjótum sínunt að honum.
Heiftrækni andstæðinganna í garð
Alþýðuflokksins einkennist oft af
„hatri og heimsku“ þeirra, sem eiga
forréttindi að veija. En er það ekki
sjálfur kjami jafnaðarstefnunnar: Að
beijast fyrir almennum réttindum
hinna mörgu á kostnað forréttinda
hinna fáu? Um hvað eiga
lýðræðissinnaðir jafnaðarmenn að
sameinast - ef ekki um það?
Höfundur er formaöur Alþýöuflokksins
Jafnaðarmannaflokks íslands
og utanríkisráöherra.
gamni sem Pankratov hristir framúr
erminni. Fómir og ljör - hvað gerir
svartur?
1. ... Hxa4H 2. bxa4 Dxb2+!!
Drottningu og hrók fómað í tveimur
leikjum, afgangurinn er formsatriði.
3. Kxb2 Rc4++ Tvískák, með ridd-
ara og biskup. 4. Kb3 Ra5+ 5. Kxb4
Hb8+ og mát í næsta leik, 6. Ka5
Bc3 mát. Nett.