Alþýðublaðið - 18.11.1994, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
Kúveit við Kaspíahaf
Túrkmenistan er land mikilla náttúruauðæfa. Eitt sinn var því haldið fram að það gæti orðið
nýtt Kúveit. En Rússar gera Túrkmenum lífið leitt og leiðtogi landsins Saparmurad Nyiazov lætur
reisa glæsihallir í mikilmennskuæði.
Þegar Sovétríkin liðuðust í sund-
ur fyrir rúmum þremur árum fékk
Túrkmenistan, ríki sem liggur við
austanvert Kaspfahaf, á sig orð fyr-
ir að geta orðið nýtt Kúveit. íbúar
landsins eru ekki nema tæpar fjórar
milljónir og þeir sitja á forða af
jarðgasi sem talinn er nema 8,1 tril-
ljón kúbikmetrum og er sá fjórði
stærsti í heimi. Það mætti ætla að af
þessum sökum væru Túrkmenar
moldrikir; í gegnum leiðslur sem
liggja um Rússland hafa þeir selt til
Evrópu gas fyrir ríflega 100 rnillj-
arða íslenskra króna á ári.
Hængurinn er bara sá að yfir
þessu öllu drottnar Saparmurad
Niyazov, fyrrum foringi kommún-
istaflokkins og einvaldur allsherjar.
Niyazov hegðar sér eins og ntaður
sem hefur fengið stóran vinning í
happdrætti; hann eyðir peningum á
báða bóga í alls kyns mannvirki og
framkvæmdir sem hljóta að teljast
vondar fjárfestingar, en eiga vænt-
anlega að sanna fyrir umheiminum
hvað allt sé með miklum glæsibrag
í Túrkmenistan.
Rússar hafa að undanfömu verið
að þjarma mjög að Túrkmenistan,
rétt eins og nágrannaríkjunum við
Kaspíahaf, Kazakhstan, Azerbaij-
an. Frá því í nóvember í fyrra hafa
Rússar neitað að greiða Túrkmen-
um gjaldeyrinn sem fæst fyrir gass-
ölu. Stjómin í Moskvu staðhæfir að
allt gasið frá Túrkmenistan fari til
gömlu Sovétlýðveldanna í Kákasus
sem em öll á hvínandi kúpunni og
eiga ekkert fé til að greiða Túrk-
menum. Því skuldi Rússar Túrk-
menum ekki krónu fyrir viðskiptin
við Evrópu.
Staðreyndin er sú að gas frá
Túrkmenistan fer eftir sömu leiðslu
og gas frá Rússlandi, svo þeir geta
lítið annað en mótmælt frekjunni í
Rússum. Á meðan er ríkissjóður
kominn í þrot og hefur þurft að
stunda fmmstæða vömskiptaversl-
un með bómull til að útvega helstu
nauðsynjar. Eilítið rétti hann þó við
þegar Ukrainumenn féllust á að
greiða skuldir sínar við Túrkmen-
istan á næstu sjö ámm en þær em
um 50 milljarðar íslenskra króna.
Niyazov heldur hins vegar áfram
að berast á og þykir núorðið minna
allmikið á annan einræðisherra sem
þótti ærið dyntóttur, Nicolai Ce-
ausescu heitinn Rúmeníuforseta.
Niyazov má þó eiga það að hann er
ekki næstum eins grimmlyndur og
þessi mótingi hans.
Leikid á Rússa
Niyazov hefur uppi stórar áætl-
anir um að leika á Rússa. Hann
hyggst ráðast í byggingu nýrrar
leiðslu sem á að verða um ijögur
þúsund kflómetrar á lengd og liggur
um íran og til Miðjarðarhals. Fyrr í
þessum mánuði hélt Niyazov mikla
veislu til að fagna upphafi þessara
framkvæmda sem áætlað er að
muni kosta milli 400 og 500 millj-
arða íslenskra króna. í veisluna
komu leiðtogar frá íran, Tyrklandi,
Pakistan og Azerbaijan og í sam-
einingu logsuðu þeir saman tvo
tröllaukna hluta leiðslunnar sem
hafði verið komið fyrir lengst úti í
Kara Kum eyðimörkinni.
Það bendir hins vegar ekkert til
þess að takist að ljúka smíði leiðsl-
unnar í bráð, ef þá nokkum tíma.
Fyrirtæki á Vesturlöndum hafa ekki
viljað leggja fé í þessar fram-
kvæmdir; í fyrsta lagi vegna þess að
þær eru taldar í óraunhæfari kantin-
unt, í öðru lagi vegna þess að
Bandaríkjastjórn er andsnúin þvf að
vestræn fyrirtæki og tjármálastofn-
anir hatl samskipti við Iran.
Af þessum sökum svipar Túrk-
menistan meira til Rúmeníu en Kú-
veit þessa dagana. Niyazov hefur
þaggað niður f öllum gagnrýnis-
röddum og dagblöð birta lofgreinar
um hann. Þing landsins sem er að
mestu til málamynda hefur sam-
þykkt að hann sitji sem forseti til
2002. Persónudýrkun er landlæg og
kemur þeim kunnuglega fyrir sjónir
sem þekktu til mála í gömlu komm-
únistaríkjunum.
Niyazov er að mestu hættur að
nota sitt eigið nafn. í staðinn kallar
hann sig Turkmenbashi sem út-
leggst „foringi Túrkmenanna".
Helsta höfn landsins við Kaspfahaf
hét áður Krasnovodsk, en hefur nú
verið skírð upp á nýtt og heitir
Turkmenbashi. I hverjum bæ er
hverfi helgað leiðtoganum og heitir
Turkmenbashi. Þrátt fyrir þetta
framferði nýtur Niyazov mikilla
vinsælda, þótt úrslitin í kosningum
sem haldnar voru 1992 hafi máski
verið aðeins við efri mörkin. Þar
fékk hann 99,9 af hundraði at-
kvæða.
Gull og grænir skógar
Mikilmennskudraumar Niyazovs
hafa hrundið af stað miklu bygg-
ingaæði í Túrkmenistan. Alls staðar
spretta upp hallir úr marmara.
Niyazov ráðgerir að byggja fimm
forsetahallir víðs vegar um landið. í
höfuðborginni Ashkhabad er verið
að reisa tuttugu og tjögur fimm
stjörnu hótel fyrir ríkisfé.
Önnur stórframkvæmd er nýr al-
þjóðaflugvöllur í Ashkhabad. Hann
er sniðinn tii að taka á móti 4.5
milljón farþegum á ári þótt varla sé
von á nema broti af þeirri tölu.
Flugvöllurinn kostaði jafnvirði 5
milljarða íslenskra króna og þykir
einn sá glæsilegasti í gervallri aust-
urálfu. Það er aðeins einn galli á
þessari miklu smíð: Flugstjómar-
tuminn var reistur öfugu megin við
flugvöllinn og þaðan er ómögulegt
að sjá út á flugbrautimar.
Yfirstéttin lifir í vellystingum
praktuglega og virðist ekki skorta
fé. En fyrir utan lúxusvillur hennar
og glæsihallir forsetans er flest í
niðumíðslu. Vatn er skammtað og
skrúfað fyrir það í nokkra tíma á
dag. Kjör almennings hafa ekkert
batnað frá tíma sovétskipulagsins.
Þótt Niyazov lofi gulli og grænum
skógum bólar ekkert á því enn að
Túrkmenistan verði annað Kúveit.
Endursagt úr Newsweek.
Saparmurad Niyazov: Persónudýrkunin er slík að hann er hættur að
nota sitt eigið nafn heldur kallar hann sig Turkmenbashi sem út-
leggst „foringi Túrkmenanna".
Hversu stór verður "ann?
Tvöfaldur fyrsti vinningur á laugardag!
LfTTi
Vinningstöiur
miövikudaginn:!
16. nóv. 1994
J VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
lH 63,6 2 23.480.000
C1 5 af 6 !LS+bónus 1 2.862.855
R1 5 af 6 2 126.147
10 4 af 6 223 1.799
[n| 3 af 6*1 ifj+hónus 807 213
Aðaltölur:
n)©@
íl)Í32)Í3^
BONUSTOLUR
2 10 44
Heildarupphæð þessa viku:
50.648.217
á Isl.:
3.688.217
UPPLÝSiNGAR. SÍMSVARI 91- 68 15 11
LUKKUUNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTViLLUR
Uinningur fór til: Danmerkur og Noregs
Rússland:
Útlendingar skikkaðir í eyðnipróf
Neðri deild rússneska þingsins, svokallaðrar dúmu, samþykkti fyrir fáeinum dögum
lög sem heimila yfirvöldum að láta alla útlendinga sem til Rússlands koma undirgang-
ast eyðnipróf. Þessar fyrirætlanir hafa vakið andúð á Vesturlöndum og telja margir
þetta enn eitt dæmið um tilhneigingu Rússa til þjóðernisofstopa og einangrunar.
Samkvæmt níundu grein lag-
anna áskilja stjómvöld sér rétt til að
láta alla þegna Rússlands undir-
gangast eyðnipróf þegar þeir sækja
um ákveðin störf. Hið sama gildir
um erlenda rfkisborgara sem
hyggja á dvöl í Rússlandi, í at-
vinnuskyni, til að stunda nám eða í
öðrum tilgangi. Lögin gefa yfir-
völdurn semsagt færi á mjög rúmri
túlkun sem jafnvel gæti þýtt að er-
lendir ferðamenn þyritu að fara í
eyðnipróf.
Þeim sem þekkja til í Rússlandi
er hins vegar ljóst að nær ómögu-
legt er að frantfylgja þessurn lög-
um. Þingmenn gera sér líka grein
fyrir þessu, enda hafa yfirmenn
heilbrigðismála ekki legið á þeirri
skoðun sinni að þeir hafi enga að-
stöðu eða fé til að láta framkvæma
svo yfirgripsmikil eyðnipróf,
hvorki á flugvöllum né sjúkrahús-
um. Þrátt fyrir þetta samþykkti
neðri deild þingsins lögin með yfir-
gnæfandi meirihluta, 281 þing-
maður greiddi atkvæði með en að-
eins 3 voru á móti. Hins vegar er
það kannski til marks um hversu
vantrúaðir menn eru á þessa laga-
setningu að þetta var samþykkt á
aðeins fimm mínútum, án allra um-
ræðna.
Það er þó alls ekki til marks unt
almennt áhugaleysi, því í þinginu
vantar ekki fulltnía sem vilja að
lögin nái líka til rússneskra vændis-
kvenna og homma.
Rússar kæra sig kollótta
Nú kernur til kasta efri deildar
þingsins að samþykkja lögin en
sfðan þurfa þau að fá undirskrift
Boris Jeltsín forseta. Ef til vill
gæti staðið á henni, enda hafa heil-
brigðisyfirvöld á Vesturlönd lýst
yfir vanþóknun sinni á þessum fyr-
irætlunum. Þau telja að slík þving-
unarpróf geri baráttunni gegn
eyðni ógagn, enda leiði þessháttar
aðgerðir til þess að menn fari að
læðupokast með sjúkdóminn.
Útlendingar sem búsettir eru í
Rússlandi eða þurfa að ferðast
þangað hafa líka brugðist ókvæða
við. Stjórnvöld hafa síst efni á að
móðga Vesturlandabúa sem koma
til Rússlands, enda koma þeir fær-
andi hendi með fjármágn sem
Rússar geta ekki verið án. Því telja
margir að þessi lagasetning muni
fyrst og fremst beinast að fólki sem
kemur frá þriðja heiminum eða frá
fyrrum lýðveldum Sovétríkjanna,
fólki sem á lítið undir sér.
Almenningur í Rússlandi virðist
hins vegar kæra sig kollóttann um
þetta mál. í rússneskum fjölmiðl-
um hefur verið algjör þögn um
þessa samþykkt þingsins. Þeir
sögðu ekki einu siiini frá hópi fólks
sern stóð við þinghúsið þennan dag
og dreifði smokkum til þingmanna
sem tóku við þeim, vandræðalegir
á svip. - byggt á Le Monde.
Boris Jeltsín á eftir að skrifa undir
lögin sem gefa færi á svo rúmri
túlkun að hugsanlegt er að skylda
ferðamenn til að fara í eyðnipróf.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Halldóra Anna Sigurbjörnsdóttir
frá Grímsey,
Dalbraut 18, Reykjavík,
lést á Landsspítalanum 13. nóvember. Útförin verður gerð
frá Langholtskirkju, föstudaginn 18. nóvember, klukkan 15:00.
Björn Friðfinnsson, iðunn Steinsdóttir,
Guðríður Sólveig Friðfinnsdóttir, Hermann Árnason,
Ólafur Friðfinnsson, Unnur Aðalsteinsdóttir,
Stefán Friðfinnsson, Ragnheiður Ebenezerdóttir,
Sigrún Bára Friðfinnsdóttir,
Steingrímur Friðfinnsson,
Elín Þóra Friðfinnsdóttir, Styrmir Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.