Alþýðublaðið - 18.11.1994, Side 7
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
ínum: King, Kennedy, Lincoln, Hitler, Patton, Churchill, Solzhenitsyn, Thatcher, Roosevelt,
; Nehru, Castro, Mandela - allt snilldarræðumenn; hvað svo sem okkur kann að finnast um
tað blóðugum átökum sem verða milljónum að fjörtjóni, en þeir hafa líka gáfu sem getur stuðlað
llinga eigum við íslendingar? Stefán Hrafn Hagalín fór á stjá í gær og spurði sex valinkunna
Hinsvegar, hverjir eru fimm bestu ræðumenn sem þú hefur hlustað á?
d góðri ræðu:
Pétur.
Tryggvi Þórhallson: Ég varð sér-
staklega hrifinn af honum árið 1931
þegar þingrofið var og ræðum var í
fyrsta skipti útvarpað.
Eysteinn Jónsson.
Sigurbjörn Einarsson.
Kristján Eldjárn.
Gunnar Thoroddsen.
Pétur Tyrfingsson:
Pétur Tyrfingsson, ráðgjafi hjá
SÁÁ, starfaði innan hinnar fámennu
en kraftmiklu Fylkingar á áttunda
áratugnum og beitti sér einnig innan
Dagsbrúnar. Pétur er einn um þann
frama, að hafa talað Guðmund Jaka
í kaf - og gerði það margsinnis.
Hann kvað okkur í kútinn hvenær
sem honum datt það í hug, stynja
gamlir Dagsbrúnarmenn sem enn
halda uppá daginn þegar Pétur hætti
að skipta sér af Dagsbrún. Hann
þótti helsta goð æskufólksins sem
skipaði leyfar þess hóps er kallaður
var Villta vinstrið. Maðurinn er
þrunginn sannfæringu og eldmóði í
ræðustól og ófáir alkamir hafa snúið
af SÁÁ-fundi með brennivfnsó-
bragð í munni eftir að hafa hlýtt á
eldklerkinn Pétur Tyrfingsson. Al-
þýðublaðið spurði þennan ræðu-
snilling hver galdurinn væri á bak-
við góða ræðu:
„Eg vil meina að galdurinn á bak
við góða ræðu sé í fyrsta lagi, að
meina það sem maður segir, hugsa
það sem maður segir og finna það
sama og maður er að hugsa. Það sem
einkennir slæma ræðumenn er ein-
mitt að þeir meina ekki það sem þeir
segja, hugsa ekki það sem þeir segja
og ftnna ekki það sem þeir hugsa.
Þessvegna er það staðreynd, að
bestu ræðumennimir alla tíð hafa
verið byltingarmenn - og reyndar
oft á tíðum geðsjúklingar. Þetta hef-
ur svo mikið með sannfæringuna að
gera. Að geta verið lljótur að hugsa
um leið og maður talar er svo gífur-
lega mikilvægt fyrir góðan ræðu-
mann. Ég er einnig með þá kenn-
ingu, að ætli ræðumenn sér að verða
góðir þá þurfi þeir að hafa umgeng-
ist gamalt fólk í æsku. Gamla fólkið
nennir að hlusta á mann; það leyfir
manni að tala að vild og spyrja allra
þeirra spuminga sem manni dettur í
hug. Yngra liðið nennir þessu ekki;
hefur ekki tíma til þess. í minni
menntaskólatíð þekktust ekki ræðu-
keppnir á borð við þessar sem við-
gangast í dag. Við horfðum á marga
góða ræðumenn koma frarn í sviðs-
ljósið á þessum árum, en þeir töluðu
allir um sín hjartans mál; hugsjónir
og sannfæring. I þá tíð þekktist ekki
þessi bjánaskapur, lágkúra og til-
Helgi.
gerð sem einkennir ræðukeppnir
framhaldsskólanna í dag. Þetta er
beinlínis léleg ræðumennska frá a til
ö. Að búa sér til ágreiningsefni og
kasta uppá með teningi hvor er með
og hvor er á móti. Hvíiík della. Hug-
sjónaleysi ungu kynslóðarinnar er
algjört. Stórkostlegustu ræðumenn
sem mér dettur í hug að nefna em til
að ntynda Malcolm X sem var
feykigóður ræðumaður. Fidel Ca-
stro Kúbuleiðtogi er mikill ræðu-
ntaður og sömuleiðis var Hugo
Blanco, bændaleiðtogi og trotskyisti
í Perú, frábær. Þessir tveir - sem og
flestir aðrir leiðtogar í Rómönsku
Ameriku og Austur-Evrópu - eiga
sameiginlegt að þeir töluðu allir yfir
illa læsu fólki; þeir þurftu að koma
brýnum skilaboðum og jafnvel lær-
dómi til skila f ræðum sínum. Vest-
urlandabúar gera oft grín að löngum
ræðum þessara manna, en hafa ber í
huga að þetta var gert af nauðsyn.
Þeir fá Ifka ósanngjarna umljöllun
fjölmiðla; sjáið bara í sjónvarpinu
þegar Clinton heldur ræðu þá er
hann textaður og hið talaða mál fær
að njóta sín en þegar Castro heldur
ræðu tala frétlamenn alltaf ofan í
hann. Svona er nú það og til gamans
má geta að ég hlustaði í gamla daga
mikið á ræður á plötum. Mig langar
einnig að nefna tvo bandaríska sósí-
alista sem ég dái rnikið fyrir snilld-
arræðumennsku. Þessir menn heita
Mac Warren og Mel Mason. Báðir
þessir Bandaríkjamenn eru ættaðir
neðan úr Georgíufylki; blökkumenn
og tala með afar lifandi predikara-
stíl. Ég fylgdist líka með Olav
Palme þegar ég bjó útí Svíþjóð á sín-
um tíma. Palme var helvíti góður í
stjómarandstöðu. Svona sérstakur
og braut allar reglur í ræðustól.
Hann hallaði sér einhvemveginn
utaní ræðustólinn á svipaðan hátt og
maður hallar sér utaní barborð. Svo
hékk hann þama og ræddi málin;
hæddi stjórnina og spottaði. Palme
var góður í stjómarandstöðu en þeg-
ar hann komst í ríkisstjórn: Jaa, allir
vita hvernig kratar verða þegar þeir
komast í stjóm. Einar Olgeirsson var
frábær ræðumaður. Af innlendum
ræðumönnum er helst að nefna Jón
Baldvin Hannibalsson sem er ágæt-
lega máli farinn, talar skipulega og
allt það vantar fílinginn. Olafur
Ragnar Grímsson er betri ræðumað-
ur tæknilega en Jón Baldvin, en
hann vantar einnig tilfinninguna.
Svavar Gestsson nálgast það að vera
góður ræðumaður pg er í raun betri
en Jón Baldvin og Ólafur Ragnar, en
bara þegar honum er ofboðið. Hann-
es Hólmsteinn Gissurarson á sína
spretti. Ég er líka hrifinn af Davíð
Oddssyni; hann er oftast að
hugsa það sem hann segir. Ég
veit svosem ekki um tilfinn-
ingalíf hans en ég er einfaldlega
hrifnari af mönnum sem tala
það sem þeir hugsa. Steingrím-
ur Herntannsson er síðan bestur
af þeim öllum; svona granda-
laus og einlægur."
Helgi Hjörvar:
Helgi Hjörvar, framkvæmda-
stjóri Blindrafélagsins og heim-
spekinemi, þykir besti ræðu-
maður sem Morfís-keppni
framhaldsskólanna hefur alið.
Leikrænir tilburðir í ræðustól
gerðu Helga frægan og það
þótti sérstaklega áhrifaríkt þeg-
ar hann þreif gleraugu sín með
miklum tilþrifum í angist yfir
heimsku andstæðinganna.
Helgi á ekki langt að sækja
þessa hæfileika því móðir hans
er Helga Hjörvar hefur verið
skólastjóri Leiklistarskólans til
um árabil. Frá unglingsaldri
hefur Helgi látið til sín taka í
stjórnmálum og starfað mikið
innan Alþýðubandalagsins.
Hann er nú formaður Verðandi
- samtaka ungs alþýðubanda-
lagsfólks og óháðra. Helgi hef-
ur - að hætti margra byltingar-
manna - hægt á sér með árun-
um og færst bak við tjöldin; var
til að mynda einn af þeim sem
komu Reykjavíkurlistanum á
koppinn:
„Hvað er ræðusnilld...?
Meirihluti þjóðarinnar er strax
útilokaður því góður ræðumað-
ur verður að kunna tslensku.
Eftir íslenskunni skiptir mestu
máli, að hver ræðumaður sé
samkvæmur sjálfum sér og sín-
um persónuleika. Einlægni og
einurð gætu þvf verið lykilorð-
in. Það verður enginn sannfær-
andi nema með því, að vera
sannur í því sem hann er að
gera. Það sem hefur oft skilað
mér miklum árangri fyrir utan
það að hafa þessi sannindi ofar-
lega í huga, er að vera meðvit-
aður um að þetta er ákveðið
form. Stundum hef ég hugsað
að það. að flytja ræðu sé ekki
ósvipað þvi' að vera hljómsveit-
arstjóri. Þú ert að tala við fólk
og spila á það einsog píanó; ert
að vekja hjá því tilfinninga og
veita andsvör við hugmyndum
þeiiTa. Annað sem ræðumenn
oft gleyma er þögnin. Formið...
Þögnin... Ef rifjað er á augna-
bliki upp eftirminnileg ræða þá
mun ég aldrei gleyma ræðu sem
Þór heitinn Sandholt fiutti. Þór
var í ræðuliði Menntaskólans
við Hamrahlíð á sínum tfma
með Eiriki Hjálmarssyni og
fleiri góðum mönnum. Það var
Þór sem lét mig í fyrsta sinn
upplifa formið; að það séu
áheyrendur. Hann sagði ein-
faldlega: „Þeir sem eru fylgj-
andi málflutningi andstæðing-
anna rétti upp hönd," og heim-
ingur áheyrenda rétti upp hönd.
Síðan sagði Þór: „Bibh'an segir:
Ef hægri höndin hneykslar þig
þá sníð hana af, því betra er að
missa einn útlim en að allur lík-
aminn sýkist." Þetta var snilld;
atvik sent kemur strax upp í
hugann. Þama hafði ræðumað-
urinn gert áheyrendur hluta af
viðburðinum."
Evrópusambands-
umrædan er á dagskrá
Opin ráðstefna um ísland og Evrópusambandið verður
haldin í Átthagasal Hótel Sögu, sunnudaginn
20. nóvember, klukkan 14:30.
Samrunaferlið í Evrópu er staðreynd. Hlutirnir gerast hratt og nú horfum við á eftir
frændþjóðum okkar inn í Evrópusambandið. Eru Islendingar að einangrast frá norrænu
og evrópsku samstarfi? Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands - hefur boðað
opna og markvissa umræðu um kosti og galla ESB-aðildar. Aðrir flokkar vilja ekki ræða
málið. Almenningur og fjölmiðlar eru hins vegar sammála um að Evrópusambandsum-
ræðan sé á dagskrá. Allir áhugamenn um Evrópumál eru hvattir til þess að mæta á
ráðstefnuna.
Guðmundur Jón Baldvin Sighvatur
Haukur
Dagskrá:
1. Niðurstöður rannsókna Háskóla íslands
á kostum og göllum Evrópusambandsaðildar
íslands kynntar:
- Örn D. Jónsson - Sjávarútvegsstofnun
- Gústaf Adolf Skúlason - Alþjóðamálastofnun
- Guðmundur Magnússon - Hagfræðistofnun
Kaffihlé.
2. Pallborðsumræður:
- Jón Baldvin Hannibalsson - utanríkisráðherra
- Sighvatur Bjarnason - formaður SÍF
- Haukur Halldórsson - form. Stéttasamb. bænda
- Ari Skúlason - alþjóðafulltrúi ASÍ
3. Umræður og fyrirspurnir.
Allir velkomnir
Fundarstjóri;
Ingólfur Margeirsson
Alþýðuflokkurinn
Jafnaðarmannaflokkur íslands
ísland í Evrópu - Málið er á dagskrá