Alþýðublaðið - 29.11.1994, Qupperneq 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1994
MÞBUBLMB
20830. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.'
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Jóhanna og
peysufatasósíalisminn
Jóhanna Sigurðardóttir og stuðningsmenn hennar héldu veg-
legan fund á Hótel Islandi á sunnudaginn til þess að kynna
þann stjómmálaflokk sem ríflega fimmtungur þjóðarinnar
styður um þessar mundir, ef marka má skoðanakannanir. Hin-
um nýja stjómmálaflokki var valið nafnið Þjóðvaki, og er það
vissulega athyglisvert nýyrði í málinu. Á hinn bóginn em það
talsverð vonbrigði, þótt vissulega hafi þau ekki komið allsend-
is á óvart, að engin pólitísk nýmæli var að finna í málflutningi
liðsmanna Þjóðvaka.
í dreifibréfi, sem ennþá er eina skriflega heimildin um stefnu
Þjóðvaka, er komist svo að orði: „Markmið hreyfingarinnar er
að mynda breiðan samstarfsvettvang á landsvísu fyrir alla þá,
sem aðhyllast framsækna jafnaðarstefnu á gmndvelli Iýðræðis,
valddreifmgar, félagshyggju, jafnréttis, mannúðar og mannrétt-
inda.“ Þá er og sagt að Þjóðvaki muni vinna „markvisst að efl-
ingu atvinnulífsins, varanlegri velferð og jöfnun lífskjara.“
Þjóðvaki ætlar hinsvegar að vinna gegn „spillingu, forréttind-
um og söfnun auðs og valds á fárra manna hendur.“ Þá er
klykkt út með þeim orðum að byggt sé á „hugsjónum jafnaðar-
stefnunnar og nútímalegum, frjálslyndum viðhorfum.“
Fjallið tók jóðsótt og fæddist lítil mús. Framkomnar tillögur og
stefnumál Þjóðvaka em því miður lítið annað en safn af klisjum
og innantómum orðum. Það em vissulega vonbrigði fyrir þá,
sem eygðu í hinni nýju hreyfingu farveg fyrir nýsköpun í
pólitík. Jóhanna Sigurðardóttir hefur í fjölmiðlum útlistað
stefnu Þjóðvaka með þeim hætti, að ekki fer á milli mála, að
um er að ræða gamaldags kerfísflokk sem flaggar úreltum hug-
myndum forsjárhyggju og miðstýringar. Pólitík Þjóðvaka er
ekkert svar við kalli tímans um nýjar hugmyndir, heldur þvert
á móti endurómur og bergmál þeirra kennisetninga sem búið er
að aka á öskuhauga sögunnar.
Hinn sterki hljómgmnnur sem stjómmálaflokkur Jóhönnu Sig-
urðardóttur nýtur er einkum til marks um tvennt: Annarsvegar
miklar og óumdeildar persónuvinsældir hennar, hins vegar
ákveðna gerjun í íslenskum stjómmálum, einkum á vinstri
væng. Uppstokkun flokkakerfisins kann að vera bæði tímabær
og óumflýjanleg. Það er hinsvegar umhugsunarefni að Jóhanna
gerðist ekki áhugamaður um slíka uppstokkun fyrren hún tap-
aði formannskosningum í Alþýðuflokknum fyrir sex mánuð-
um. Fram að þeim tíma hafði hún aldrei beitt sér í þá vem - og
barðist til að mynda af alefli gegn Vilmundi Gylfasyni á sínum
tíma. Það er því ekki að ófyrirsynju að ýmsir fréttamenn, sem
heyra af hinum nýju áhugamáium Jóhönnu, spyrji hana: Af-
hverju núna? Jóhanna hefur verið alþingismaður í 16 ár og ráð-
herra í sjö ár. Hvenær hafði hún áhuga á uppstokkun flokka-
kerfisins, siðvæðingu í stjómmálum eða jöfnun atkvæðisréttar,
svo aðeins séu nefnd þrjú mál sem Þjóðvaki setur nú á oddinn?
En uppúr stendur, að það pólitíska fagnaðarerindi sem boðað
var á Hótel íslandi á sunnudaginn fól í sér engin ný tíðindi, ný
svör eða nýja stefnu. Það var bara á boðstólum sá velkti peysu-
fatasósíalismi sem jafnvel Alþýðubandalagið er búið að losa
sig við.
Ýmislegt bendir til þess að varanlegustu áhrif Þjóðvaka felist í
því að koma Framsóknarflokknum aftur í oddaaðstöðu í ís-
lenskum stjómmálum. Skoðanakönnun DV í gær gefur ótví-
rætt til kynna að Framsókn sé nú eini gamalgróni flokkurinn
sem heldur sjó. Jákvæð umfjöllun fjölmiðla um nýafstaðið
flokksþing á vitanlega þátt í því, en ekki er fráleitt að ætla að
Framsókn geti eftir kosningar í vor valið hvort mynduð verði
hægristjóm eða vinstristjóm. Þá er viðbúið að Halldór Ás-
grímsson setji upp hægra brosið - og hið nýja afl, hreyfing
fólksins, verði skilin eftir úti í kuldanum ásamt öðmm smá-
flokkum og flokksbrotum á vinstri vængnum.
Rökstólar
Kenning Marx
Kennisetningar Karls gamla
Marx eiga talsvert undir högg að
sækja í seinni tíð. Mönnum er til að
mynda í fersku minni að sjálfur
Hannes Hólmsteinn óskaði form-
lega eftir því við skattayfirvöld að
fá að afskrifa rit hins mikla meist-
ara hagfræðinnar. En nokkrir gull-
molar Karls eru enn í fullu gildi, og
kom það síðast í ljós norður í
Skagaftrði um helgina. Karl Marx
lét semsagt einhverntíma svo um
mælt að sagan endurtæki sig jafn-
an, munurinn væri aðeins sá, að
það sem í upphafi hefði verið
harmsaga endurtæki sig sem farsi.
Og nú hefur þetta sannast á sóknar-
prestinum á Sauðárkróki, síra
Hjálmari .Jónssyni sem kominn er
í beinan karllegg af harmsöguleg-
asta skáldi 19. aldar, Bólu- Hjálm-
ari.
Klerkurinn og
lobbíistinn
Síra Hjálmar vann sér til frægðar
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins að
valtra yfir Vilhjálm Egilsson í
keppni þeirra um efsta sætið, sem
héraðshöfðinginn Pálmi á Akri
stóð uppúr. Vilhjálmur, sem sálað
vikublað var einu sinni svo ósvífið
að kalla „eina alvöru nördinn á Al-
þingi“, tók úrslitunum illa og þyk-
ist einkar grátt leikinn. Hann segist
ætla að funda með stuðningsmönn-
um sínum, áðuren hann ákveður
hvort hann taki annað sæti listans.
Nú ber bara að taka fram að „stuðn-
ingsmenn" Vilhjálms eru ekki gild-
ir bændur í Skagafirði eða Húna-
þingum, enda hefur hann aldrei lit-
ið svo á, að hann væri fulltrúi þeirra
á þingi. Ónei, þeir sem Vilhjálmur
þarf að ráðfæra sig við, eru félagar
hans í Verslunarráði. Vilhjálmur
var upphaflega lobbíisti þeirra
gagnvart alþingismönnum og heij-
aði á menn á kaffistofunni - en
varð síðan einn um þann frama
slfkra pótintáta að láta kjósa sig á
sjálfa löggjafarsamkunduna. Og
þar hefur Vilhjálmur unnið í hluta-
starfi síðustu ár, en gleymdi víst al-
veg kjósendum sínum fyrir norðan.
Ríki Framsóknar
Það getur ekki flokkast undir
mikla afreksdáð í pólitík að hafa
sigur gegn ljúfmenninu Vilhjálmi,
en eigi að síður virðist síra Hjálmar
á hraðri leið upp metorðastiga
Sjálfstæðisflokksins. Mörgum kom
reyndar á óvart að guðsmaðurinn
skyldi fyrir fáum árum dúkka upp í
Sjálfstæðisflokknum, enda vissu
menn ekki betur en hann væri inn-
anbúðar í Framsókn þegar hann
sálusorgaði í Bólstaðarhlfð. En í
rfki Framsóknar eru mörg herbergi,
sem kunnugt er, og landsbyggðar-
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
hafa flestir hverjir verið dyggir
málsvarar framsóknarstefnunnar.
Allir nema aumingja Vilhjálmur.
En þetta skýrir hversvegna prestin-
um veittist auðvelt að hafa ham-
skipti án þess að þurfa að ráðgast
verulega við pólitíska sannfæringu
sína.
Síra Hjálmar hefur nokkrum
„Síra Hjálmar hefur nokkrum sinnum tekið sæti á Alþingi sem
varamaður og jafnan vakið athygli fyrir kúnstugt orðfæri og
málflutning sem einatt er nokkur ljósár í burtu frá allri venju-
legri röksemdafærslu. Menn hafa hinsvegar ekki kippt sér upp
að ráði við það, þótt þeir skilji ekki klerkinn. Guðsmenn dvelja
oft í öðrum andlegum félagsskap en sauðsvartur almúginn og
því er ekkert sjálfsagðara en þeir tali framandi tungum, þótt
þeir noti að mestu leyti íslensk orð.“
sinnum tekið sæti á Alþingi sem
varamaður og jafnan vakið athygli
fyrir kúnstugt orðfæri og málflutn-
ing sem einatt er nokkur ljósár í
burtu frá allri venjulegri röksemda-
færslu. Menn hafa hinsvegar ekki
kippt sér upp að ráði við það, þótt
þeir skilji ekki klerkinn. Guðsmenn
dvelja oft í öðrum andlegum fé-
lagsskap en sauðsvartur almúginn
og því er ekkert sjálfsagðara en þeir
tali framandi tungum, þótt þeir noti
að mestu leyti íslensk orð.
Prestahatur
Hjálmars Jónssonar
Eitt hefur mönnum þó skilist af
síra Hjálmari: Honum þykir tals-
vert merkilegt að vera afkomandi
skáldsins sem kenndi sig við bæinn
Bólu. Og vitanlega hefur margur
hreykt sér af minna tilefni, enda var
Hjálmar Jónsson í Bólu ótvírætt í
hópi bestu og mögnuðustu skálda
síðustu alda. Það er hinsvegar fróð-
legt athugunarefni fyrir sálfræð-
inga að kanna til hlítar áhrif ljóða
Hjálmars Jónssonar í Bólu á
Hjálmar Jónsson sóknarprest. Ein-
sog allir vita hafði Bólu-Hjálmar
aðeins ímugust á einni stétt manna
- nefnilega sóknarprestum.
Fram í daudann
dyggdaþur
Viðkvæmt fólk sundlar enn í dag
yfir prestavísum Bólu-Hjálmars
enda ekki margt til níðangurslega í
íslenskum skáldskap:
A kostum gnauðar kappsamur,
hversdagsbrauði stelur,
fram í dauðann dyggðaþur
drottins sauða bitvargur.
Þannig komst Bólu-Hjálmar að
orði í einni af sakleysislegri presta-
vísum sínum. Hið alkunna erFiljóð
hans um prest hefst á þessum hend-
ingum:
Þarna liggur letragrér,
lýðir engir sýta.
Komi nú allir hrafnar hér
hans á leiði að skíta.
Eða þessi hér:
Eg fer þá að yrkja um prest,
um sem náði beiða.
Vakrari aldrei vissi eg hest
vítis traðir skeiða.
Hirdskáld Geirmundar
En það var þetta með Kalla
gamla. Nú hefur saga harmskálds-
ins frá Bólu semsagt endurtekið sig
í síra Hjálmari Jónsson, afkomanda
hans og alnafna, með svo óvenju-
lega skrípaleiksiegum hætti, að þar
er komin endanleg sönnun á kenn-
ingu Marx. Síra Hjálmar hefur
semsagt um langt skeið reynt að
feta í slóð forföður síns - og náð
þeim hátindi að verða hirðskáld
Geirmundar Valtýssonar mega-
poppara á Króknum.
Afkomandi skáldsins sem alla
sína tíð stóð í heilögu og miskunn-
arlitlu stríð við valdamenn, skálds-
ins sem fyrirleit klerka meiren önn-
ur dauðleg kvikindi, skáldsins sem
setti saman dýrari kvæði en aðrir
menn - afkomandi þessa skálds
hefur semsagt rutt sér leið að kjöt-
kötlum valdsins, skrýddur prests-
hempu og með dægurlagavísur á
vör.
Ef þeir sitja einhversstaðar sam-
an á astralplaninu, félagarnir Karl
Marx og Bólu-Hjálmar, er trúlegt
að þeir haft yfir hið fornkveðna: O,
tímar-ó, siðir!
Dagatal 29. nóvember
Atburdir dagsins
1641 Fyrsta enska fréttablaðið geftð
út. 1924 ítalska tónskáldið Puccini
deyr; hann samdi meðal annars
Toscu og Lu Boheme. 1943 Leiðtog-
ar Bandamanna í seinna stríði, Sta-
lín, Churchill og Roosevelt, hittast í
fyrsta skipti á leiðtogafundi í Teher-
an. 1978 900 lik finnast í bækistöðv-
um sértrúarklerksins Jim Jones í
Guyana: safnaðarmeðlimir höfðu
allir framið sjálfsmorð. 1986 Kvik-
myndastjaman og hjartaknúsarinn
Cary Grant deyr.
Afmælisbörn dagsins
Gaetano Donizetti ítalskur tón-
smiður, samdi meira en 75 óperur,
1797. Louisa May Alcott bandarísk
skáldkona, 1832. C.S. Lewis írskur
fræðimaður og höfundur vísinda-
skáldsagna: kunnastur fyrir Lísu í
Undralandi.
Málsháttur dagsins
Allir bera eitthvert mein til grafar.
Annálsbrot dagsins
Deildu tvær húskonur á Rauðasandi.
Fékk önnur vitfirring, en dó degin-
um eftir. Það hafði komið til af ein-
um kvensokkum.
Setbergsannáll, 1584.
Skilabod dagsins
Aukist hafa heldur vandræðin, kerl-
ing.
Bjöm Kaðalsson í Mörk við konu sína; Njála.
Lokaord dagsins
Sólin er guð.
Hinstu orð enska stórmálarans J.M.W. Tumers
(1775-1851).
Ord dagsins
Sá er háttur hetjuliindar,
hvað semféll ískaut,
veiklast ei í velgengninni,
vaxa í hverri þraut.
Öm Arnarson.
Skák dagsins
Hebden er slyngur meistari þótt
ekki sé hann í allra fremstu röð.
Hann er með hvítt í skák dagsins, og
á leik gegn Pichon. Hebden efnir nú
til sannkallaðrar flugeldasýningar.
1. Hb8! Dxb8 2. Rxf6+ Kh8 3.
Rg5!! Hf8 4. Dh5 h6 5. DxF7! Rc5
Þetta eru dauðateygjur. Hebden inn-
siglar nú sigurinn með snotru loka-
stefi: 6. Dg8+! og mát í næsta leik.