Alþýðublaðið - 07.12.1994, Side 1
Gífurleg ólga í Alþýðubandalaginu:
Guðrún Helgadóttir
knúin til afsagnar
Tveir nánustu stuðningsmenn Ólafs Ragnars, Mörður Árnason og Kjartan
Valgarðsson, ganga úr Alþýðubandalaginu. Hætt við prófkjör í Reykjavík.
„Guðrún Helgadóttir gerði sér
grein fyrir því að staða hennar var
vonlaus. Hún hefði verið kolfelid í
prófkjöri,“ sagði áhrifamaður í Al-
þýðubandalaginu í samtali við Al-
þýðublaðið í gær. Guðrún efndi til
blaðamannafundar laust fyrir klukk-
an fjögur í gær og tilkynnti þar, að
hún hefði ákveðið að bjóða Bryndísi
Hlöðversdóttur 2. sætið - en ætlaði
sjálf að vera í því fjórða og freista
þess að ná kjöri.
Alþýðubandalagið hefur nú tvo
þingmenn í Reykjavík.
Allir viðmælendur Alþýðublaðs-
ins voru á einu máli um að Guðrúnu
hefði verið nauðugur einn kostur að
draga sig í hlé.
Nú er Ijóst að ekkert verður úr
opnu prófkjöri hjá Alþýðubandalag-
inu í Reykjavík. Svavar Gestsson
verður í fyrsta sæti, þá Bryndís og
Ögmundur Jónasson í 3. sæti. Bryn-
dís og Ögmundur settu bæði sem
skilyrði fyrir framboði að hætt yrði
við prófkjör.
Þá hafa tveir af máttarstólpum
Birtingar sagt sig úr Alþýðubanda-
laginu: Kjartan Valgarðsson formað-
ur félagsins frá upphafi og Mörður
Árnason fyrrum ritstjóri Þjóðviljans,
aðstoðarmaður Ólafs Ragnars í fjár-
málaráðherratíð hans og miðstjóm-
armaður. Þeir ætla báðir að ganga til
liðs við Þjóðvaka Jóhönnu Sigurðar-
dóttur.
I samtali við Alþýðublaðið sagði
Mörður Ámason að Alþýðubanda-
lagið hefði verið að þrengjast á síð-
ustu ámm, og þar væri ekki sama
pláss og áður fyrir skoðanaskipti.
Sögulegt tækifæri hefði skapast fyrir
samfylkingu á vinstri væng, og hann
vildi leggja sitt af mörkum til þess að
það nýttist.
- Sjá leiðara á blaðsíðu 2,
viðtal við Mörð á blaðsíðu 6
og fréttaskýringu á baksíðu.
Ýtt út í kuldann: Guðrún Helgadóttir tilkynnir blaðamönnum í gær að hún
ætli að færa sig niður um tvö sæti á G-listanum í Reykjavik.
Opið prófkjör Alþýðuflokksins:
Tíu frambjódendur
eru í umrædunni í
Reykjaneskjördæmi
Alþýðuflokkurinn í Reykja-
neskjördæmi efnir til prófkjörs
dagana 21. og 22. janúar 1995.
Prófkjörið verður opið ölluni
stuðningsmönnum Alþýðu-
flokksins í komandi Alþingis-
kosningum og þeim úr ungliða-
hreyfingu flokksins sem náð hafa
sextán ára aldri á kjördag, 8.
aprfl.
Framboðsfrestur rennur út 30.
desember og framboði þurfa að
fylgja meðmæli 30 til 50 alþýðu-
flokksmanna. Þetta var ákveðið
á fundi kjördæmisráðs Alþýðu-
flokksins í Reykjaneskjördæmi í
fyrrakvöld.
Tíu nöfn eru í umræðunni um
framboð: Árni Hjörleifsson bæj-
arfulltrúi (Hafnarfirði), Elín
Harðardóttir matreiðslumaður
(Hafnarfirði), Eyjólfur Sæ-
mundsson formaður fulltrúa-
ráðsins á Reykjanesi (Hafnar-
firði), Gizur Gottskálksson bæj-
arfulltrúi (Garðabæ), Guðfinnur
Sigurvinsson deildarstjóri
(Keflavík), Guðmundur Odds-
son bæjarfulltrúi (Kópavogi),
Guðmundur Árni Stefánsson al-
þingismaður (Hafnaifirði),
Hrafnkell Oskarsson læknir
(Keflavík), Petrína Baldursdóttir
alþingismaður (Grindavík),
Rannveig Guðmundsdóttir fé-
lagsmálaráðherra (Kópavogi) og
Tryggvi Harðarson bæjarfulltrúi
(Hafnarfirði).
Alþýðublaðið fjallar nánar um
framboðið á morgun, spáir í lík-
lega niðurröðun í efstu sæti og
ræðir við frambjóðendur.
Fregnir af sérframboði
Eggerts Haukdals:
Hvað kemur
þér það við?
efna til í Suðurlandskjördæmi. Al-
þýðublaðið hefur traustar heimildir
fyrir því að hann hafi boðið Magnúsi
Karel Hannessyni oddvita á Eyrar-
bakka 2. sæti listans. Þegar blaðið
hafði samband við Magnús Karel og
spurði hvort honum hefði verið boð-
ið sætið svaraði hann spurningu
blaðamanns af bragði: „Hvað kemur
þér það við?“ Magnús Karel var ófá-
anlegur til að ræða nokkuð varðandi
framboðsmál Eggerts og sinn þátt í
þeim.
Eggert Haukdal vinnur nú að þvf í
hljóði að fá fólk á framboðslista við
sérframboð það sem hann ætlar að
Eggert Haukdai: Reyndi við Magn-
ús Karel.
Hvað myndi gerast við aðskilnað ríkis og kirkju?
Dollarastreymi frá
amerískum öfgahópum
- segir herra Ólafur Skúlason biskup og telur þjóðkirkjuskipu-
lagið nauðsynlegt.
„Ef íslenska þjóðkirkjan hverfur
eða verður veikburða munum við
finna fyrir dollarastreymi öfgahópa í
Bandaríkjunum sem ætla að fylla
það tóm sem þjóðkirkjan hefur skilið
eftir. Það held ég að væri engum til
góðs með fullri virðingu fyrir
Bandaríkjamönnum. Þarerofsinn og
ofstækið í trúmálum með ólíkind-
um,“ sagði herra Ólafur Skúlason
biskup f samtali við blaðið.
Vaxandi umræða er hér á landi um
það hvort skilja beri á milli ríkis og
kirkju.
Þeir sem eru fylgjandi aðskilnaði
segja meðal annars að núverandi fyr-
irkomulag geri upp á milli trúar-
bragða og kirkjan hefði gott af þvf að
standa á eigin fótum. Biskupinn seg-
ir að hér ríki algjört trúfrelsi og eng-
inn sé neyddur til að vera í þjóðkirkj-
unni en 93 prósent landsmanna til-
heyri henni.
- Sjá blaðsídu 7.
Hreinar línur á mettíma í gær var dreift í búðir bókinni Hreinar línur - lífssaga Guð-
mundar Árna, sem Kristján Þorvaldsson skráði. I bókinni segir Guðmundur Árni frá pólitískum ferli sínum, lífs-
hlaupi og þeim hörðu deilum sem leiddu um síðir til afsagnar hans úr embætti félagsmálaráðherra. Vart hefur
nokkur bók verið unnin á öllu skemmri tíma á íslandi - Guðmundur Árni sagði af sér embætti 11. nóvember.
Kristján og Guðmundur Árni voru mættir í Kringluna í gær þarsem þeir árituðu fyrstu eintökin. A-mynd: E.ÓI.
Vigdís: Grandavegur 7; vinsælt
heimilisfang.
Jólabókaflóðið að
bæta í sig:
Vígdís Gríms og
Ólaf ur Jóhann
seljast best
- og þar á eftir koma
Fríða Á. og Einar Kára.
Flestir bóksalar eru á því að sal-
an í jólabókaflóðinu í ár verði síst
minni en í fyrra þrátt fyrir hrak-
spár útgefenda. Misjafnt er þó
hljóðið í mönnum á smærri stöð-
um úti á landsbyggðinni. Vest-
mannaeyingar og Norðfirðingar
segja ástandið til að mynda
hörmulegt. Einhugur er þó um
meðal bóksala, að skáldsögur
Vigdísar Grímsdóttur, Ólafs Jó-
hanns Ólafssonar, Fríðu Á. Sig-
urðardóttur og Einars Kárasonar
hverfa í mestu magni af lagerum
bókabúða um þessar mundir. Sér-
ílagi þau tvö fyrstnefndu. Þar í
kjölfarið koma bækur Péturs
Gunnarssonar, Thors Vilhjálms-
sonar og Guðbergs Bergssonar.
Þetta kemur meðal annars fram í
viðtölum sem Alþýðublaðið átti
við sjö bóksala um land allt í gær.
Ævisögur Gunnars Dal, Hall-
dóru Briem, Brynju & Erlings,
Karls Kortssonar, Guðmundar
Böðvarssonar, Óskars Halldórs-
sonar og Óla í Olís eru vinsælast-
ar í þeim flokki bóka - enn sem
komið er; h'tið hreyfist af
Krumma en Guðmundur Ámi er
að minnsta kosti kominn í eftir-
spum í Kringlunni. Villtir svanir
hafa fengið feikna góðar viðtökur
af erlendum bókum og Lesið í
snjóinn eftir Peter Hoeg hefur
einnig selst vel. Orðastaður hefur
sömuleiðis hreyfst ágætlega, en
Stílfræðin lítið. Að vanda trónir
Þorgrímur Þráinsson hæst á
barnabókamarkaðnum.
Hinsvegar ber að hafa það í
huga að fyrsta stóra söluhelgi
jólavertíðarinnar er framundan og
það verður ekki fyrr en að henni
lokinni sem línur taka að skýrast í
sölu.
- Sjá blaðsíðu 6.
Fundur flokksstjórnar
Alþýðuflokksins:
Tekjujöfnun og
kjarasamningar
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðar-
mannaflokkur íslands - hefur boðað
til flokksstjómarfundar næstkomandi
laugardag, 10. desember. Fundurinn
verður haldinn í Borgartúni 6 í
Reykjavík og eina mál á dagskrá er
liðurinn „Tekjujöfnun og kjarasamn-
ingar“. Framsögu þar hefur Jón Bald-
vin Hannibalsson, formaður flokks-
ins. Að venju er fundurinn opinn öll-
um flokksmönnum, en ef til atkvæða-
greiðslu kemur hafa einungis kjömir
fulltrúar í flokksstjóm atkvæðisrétt.