Alþýðublaðið - 07.12.1994, Side 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1994
Trúi því að ekki verði lengi vík milli vina
- segir Mörður Árnason, fyrrum ritstjóri Þjóðviljans, einn af oddvitum Birtingar og miðstjórnarmaður í Alþýðubandalaginu sem
genginn er til liðs við Jóhönnu Sigurðardóttur.
„Ég tel að komnar séu þær að-
stæður í íslenskum stjómmálum, frá
miðju og til vinstri, að mínir kraftar
nýtist betur annarsstaðar en í Al-
þýðubandalaginu. Ég hef lýst yfir
stuðningi við samtök Jóhönnu en er
þó ekki genginn til Jiðs við þau enn-
þá,“ sagði Mörður Ámason í samtali
við Alþýðublaðið í gær um úrsögn
sína úr Álþýðubandalaginu. Mörður
var á sínunt tíma ritstjóri Þjóðviljans
og hefur um langt skeið verið einn
helslur áhrifamaður Birtingar, mið-
stjómarmaður í flokknum og náinn
samherji Olafs Ragnars Grímssonar.
á mig sem samherja hans. A-mynd
Mörður sagði mikilsvert að hin
nýja hreyfing Jóhönnu mistækist
ekki í fæðingu. „Flokksbönd em að
rofna á þessum helmingi stjórnmál-
anna. Ég hef þá von að ég eigi eftir
að hitta samherja mfna og vini í Al-
þýðubandalaginu aftur í samstarfi -
og þá vonandi í betri, sterkari og
heilbrigðari samtökum en nú fyrir-
fmnast á vinstri kantinum."
Alþýðubandalagið hefur verið að
þrengjast á síðustu ámm, segir
Mörður, og þar er ekki lengur sama
pláss og áður fyrir skoðanaskipti.
„Því bandalagi sem ég hef tilheyrt
innan flokksins hefur tekist margt
og náð árangri í ýmsum málum. Síð-
ustu misseri hefur flokkurinn hins-
vegar þrengst, hann er hættur að
vera umræðuvett-
vangur þarsem
menn gátu fleygt
fram nýjum hug-
myndum í pólitík.
Alþýðubandalagið
hefur tekið á sig
þann svip að vera
bara gamall flokk-
ur, bandalag þing-
manna um völd og
áframhaldandi
valdastöðu. Það
kemur meðal ann-
ars fram í við-
brögðum við sam-
fylkingarhugmynd-
um undanfama
mánuði sem nokkr-
ir forystumenn
vildu í orði, og for-
maðurinn af ein-
lægni að mínu áliti,
en þeir reyndust
síðan ekki nógu
hugrakkir og opnir
til að leggja sitt af
mörkum svo sam-
starf gæti tekist."
Aðspurður hvort
tími Alþýðubanda-
lagsins væri liðinn
sagði Mörður: „Ég
lít svo á, að tími
hinna fornu flokks-
banda sé liðinn,
vinstra megin í pól-
itfkinni. Þessir
fjötrar herða því
miður alltof illa að
alþýðubandalags-
fólki, og það á
reyndar við um flesta flokka. Hér í
Reykjavík höfum við búið við leið-
toga sem Morgunblaðið hefur kallað
„handhafa hinnar sögulegu arfleifð-
: E.ÓI.
ALÞÝÐUFLOKKURINN
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands:
Flokksstjórnarfundur
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands - boðar
til flokksstjórnarfundar laugardaginn 10. desember. Fund-
urinn verður haldínn í Borgartúni 6, Reykjavík, og hefst
klukkan 10:30.
Dagskrá:
1. Tekjujöfnun og kjarasamningar:
Jón Baldvin Hannibalsson.
2. Önnur mál.
Að venju er fundurinn opinn öllum flokksmönnum. Ef til at-
kvæðagreiðslu kemur hafa einungis kjörnir fulltrúar í
flokksstjórn atkvæðisrétt.
- Formaður.
Alþýðuflokkurinn á Norðurlandi vestra:
Kjördæmisráð fundar
Fundur verður haldinn í Kjördæmisráði Alþýðuflokksins á
Norðurlandi Vestra sunnudaginn 11. desember, kl.13.00.
Fundurinn verður haldinn í sal Verkalýðsfélagsins Fram,
Sæmundargötu 7a, Sauðárkróki.
Dagskrá:
1. Undirbúningur Alþingiskosninga.
2. Önnur mál.
- Stjórnin.
ar“. Sú sögulega arfleifð byggist nú
einkum á því að halda saman tiltölu-
lega þröngum hópi utanum Flokk-
inn með stórum staf, og þó einkum
persónuleg völd og áhrif þeirra sem
telja sig hafa einkaréttinn á sögulegu
artleifðinni. Svipuð sjónarmið
komu vel fram hjá varaformanni Al-
þýðubandalagsins, þegar hann sagði
í sjónvarpi, aðspurður um hug-
ntyndir urn samfylkingu á vinstri
væng, að samfylking væri ágæt - en
með því skilyrði að Alþýðubanda-
lagið væri stofninn í slíkri hreyf-
ingu. Þetta er afstaða sem tilheyrir
öðrum áratugum 20. aldar en þeim
sem við lifum á.“
En athverju gengur Mörður til
liðs við Jóhönnu - í Ijósi þess að
hann hefur einatt gagnrýnt hana sem
stjómmálamann, meðal annars fyrir
hlutdeild hennar í stjóm landsins
síðustu tvö kjörtímabil?
„Ég held að Jóhanna sé ákatlega
hæfur stjómmálamaður. Það sem
hefur hinsvegar gerst, er að í þeirri
fylkingu sent er að myndast kring-
um hana er að skapast sögulegt
tækifæri. Ég ætla ekki að spá hvort
það tækifæri nýtist eða ekki, en ég
tel það skyldu mfna við sjálfan mig
og mína eigin sögulegu arfleifð að
gera mitt til að það heppnist."
Mörður hefur verið náinn sam-
herji og stuðningsmaður Olafs
Ragnars innan Alþýðubandalagsins
síðustu ár. Hvert er hans mat á stöðu
Olafs Ragnars núna?
„Ég vil fyrst segja, að ég ber virð-
ingu fyrir Ólafi Ragnari og lít enn á
mig sem samherja hans. Ég hef ver-
ið bandamaður hans í flokknum
undanfarinn áratug og studdi hann í
formannskosningunum 1987. Nú er
kjörtímabili hans hinsvegar lokið og
aðrir taka við á næsta ári. Ég vona að
Ólafi Ragnari og öðrum banda-
mönnum mínum í Alþýðubandalag-
inu gangi sem best, og hef reyndar
þá trú að ekki verði lengi vík milli
vina,“ sagði Mörður Ámason að
lokum.
Alþýðublaðið rœddi ígœr við bóksala um land allt:
Vigdís og Ólafur seljast best
- en Fríða Á. Sigurðardóttir og Einar Kárason fylgja fast á eftir í kjölfarið. Þorgrímur
Þráinsson stefnir sem fyrr að metsölu í flokki barnabóka og margir berjast um toppsœtið
í flokki œvisagna. Frœðibœkur hreyfast lítt.
Vigdís Grímsdóttir og Ólafur Jóhann Ólafsdóttir verða sölukóngar ársins ef eitthvað er að marka þær tölur sem
eru teknar að berast frá bóksölum. A-myndir: E.ÓI.
Nú er jólabókaflóðið óðum að
sækja í sig veðrið og hvolfist vænt-
anlega af fullum þunga yfir bóksala
og aðra landsntenn um næstu helgi
sem telst „fyrsta stóra helgin" þessa
vertíðina. Alþýðublaðið hafði sam-
band við sjö bókabúðir um land allt í
gær og spurði hvemig línur lægju.
Bóksalar em yfirleitt frekar bjartsýn-
ir á söluna í ár og kvarta lítið undan
samdrætti frá fyrra ári. Af máli
manna að dæma em það Vigdís
Grímsdóttir, Ólafur Jóhann Ólafs-
son, Fríða Á. Sigurðardóttir og Einar
Kárason er enn sem komið er seljast
best íslenskra skáldsagnahöfunda.
Aðrir sem nefndir eru em Guðberg-
ur Bergsson, Pétur Gunnarsson og
Thor Vilhjálmsson. Af ævisögunum
standa nokkuð jafnar bækurnar um
Halldóm Briem, Guðmund Böðv-
arsson, Óskar Halldórsson, Óla í Ol-
ís, Gunnar Dal, Brynju & Erling og
Karl Kortsson. Kmmmi þykir hreyf-
ast frekar lítið og ekki mikið spurt
um Guðmund Áma - nema f Hag-
kaup. Lítið er enn tekið að hreyfast
af erlendum bókum fyrir utan met-
sölubókina Villta svani og fræði-
bækur setja lítið mark á söluna,
nema ef vera skyldi Orðastaður. Sala
úti á landsbyggðinni er sama og ekk-
ert farin af stað og er sem fyrr nokk-
uð bundin við „heimamenn“. Svör
bóksalanna fara annars hér á eftir:
Mál og menning,
Laugavegi:
, Jólasalan er ekki enn farin af stað
svo heitið geti. Fólk er enn mikið að
skoða og velta bókunum fyrir sér.
Margir bíða einnig eftir næst Vísa-
tímabili. Mér sýnist þetta vera svip-
að og í fyrra og ég á von á því að
fyrstu stóm söludagamir verði um
næstu helgi. Sú helgi verður ömgg-
lega stór. Okkur líst ekki illa á jóla-
vertíðina í ár og emm nokkuð bjart-
sýnir. Munurinn á vertíðinni í ár og í
fyrra er helst sá, að það em færri
bækur sem koma út núna, en á móti
kemur að það em margar góðar ís-
lenskar skáldsögur á ntarkaðnum.
Fólk er náttúrlega ekki ánægt með
verðlagið en skilur þetta mjög vel og
veit afhverju þetta er; til að mynda í
tengslum við virðisaukaskattinn. Af
söluhæstu íslensku skáldsögunum er
að nefna Kvikasilfur Einars Kára-
sonar, í luktum heimi eftir Fríðu Á.
Sigurðardóttur og Sniglaveisla Ólafs
Jóhanns fór einnig vel af stað - þrátt
fyrir að aðeins hafi hægt á sölunni
eftir að dró úr mestu umfjölluninni
um hana. í ævisögunum þá hefur
saga Óskars Halldórssonar selst vel
og líka saga Guðmundur Böðvars-
sonar, sömuleiðis bók Brynju og Er-
lings. Ég geri og ráð fyrir því, að
Hvíti risinn, sagan um göngu þre-
menninganna yfir Grænlandsjökul
eigi eftir að seljast vel. Villtir svanir
hafa selst gi'furlega enda bók nóv-
embermánaðar hjá okkur. Lesið í
snjóinn eftir Peter Hoeg hefur fengið
góða sölu og síðan fer alltaf töluvert
mikið af spennubókunum sem
ákveðinn hópur kaupir. Af öðmm
bókum er það að frétta, að við höfum
verið mjög ánægðir með viðtökur á
Orðastað en Stflfræðin hefur enn lít-
ið hreyfst. Þessi síðastnefnda er
reyndar nýkomin út. En það er sem
ég segi, að varla fyrr en eftir næstu
helgi fara að koma skýrar línur í söl-
una,“ segir Erling Erlingsson, að-
stoðarverslunarstjóri Máls og menn-
ingar við Laugaveg.
Hagkaup, Kringlunni:
„Af íslensku höfundunum hefur
Ólafur Jóhann selst langbest og Vig-
dís Grímsdóttir er síðan að rjúka af
stað. Þar á eftir koma Einar Kárason
og Fríða Á. Sigurðardóttir. Aðrir ís-
lenskir hafa selst mun minna. I ævi-
sögunum em Brynja og Erlingur
sterkust ásamt ævisögum Péturs H.
Ólafssonar, Karls Kortssonar og
Halldóm Briem. Af erlendum bók-
um er það að frétta að aðdáendur
Sidney Sheldon kaupa grimmt, einn-
ig hafa Stjömuhrap og bók Stephen
King selst vel. Dean Koontz selst
líka ágætlega. Við emm ekki búin að
fá allar bækurnar ennþá og það er til
að mynda mikið spurt um Guðmund
Áma og Gunnar Dal. Það var stórfín
sala um síðustu helgi og verður án
vafa allt brjálað um næstu helgi. Það
getur vel verið að það sé búist við
minni bókasölu í ár en í fyrra, en mér
finnst þetta ósköp svipað - allavega
enn sem komið er,“ segir Auður Ein-
arsdóttir, deildarstjóri bókasölu í
Hagkaup Kringlunni.
Eymundsson,
Austurstræti:
„Sniglaveislan eftir Ólaf Jóhann, I
luktum heimi eftir Fríðu og Granda-
vegur 7 eftir Vigdísi hafa selst best
hjá okkur af íslenskum skáldsögum
það sem af er. I ævisögunum hafa
bækumar um Gunnar Dal og Guð-
mund Böðvarsson fengið mesta sölu
og þar á eftir koma Óli í Olís og
Kmmmi. Af erlendum bókuni er að
nefna Villta svani sem selst hefur
gífurlega og sömuleiðis Lesið í snjó-
inn eftir Peter Hocg og Söngur Sal-
ómons eftir Toni Morrison. Mér
sýnist salan í ár vera síst minni en í
fyrra og bækurnar hafa borist til
okkar fyrr. Hinsvegar verður erfitt
að segja til um það fyrren eftir næstu
helgi. Þá fer þetta allt að koma í
ljós,“ segir Dísa Sigurðardóttir,
deildarstjóri íslenskra bóka í Ey-
mundsson við Austurstræti.
Bókabúd Jónasar,
Akureyri:
„Fríða Á. Sigurðardóttir, Vigdfs
Grímsdóttir og Ólafur Jóhann hafa
selst best hjá okkur. Þar á eftir kem-
ur Einar Kárason, en aðrir hafa selst
minna. Ævisaga Halldóm Briem
hefur selst best í þeini flokki og
einnig hefur Gunnar Dal selst vel
ásamt Óla í Olís. Krummi hefur lítið
farið hér. Af erlendu bókunum hafa
Villtir svanir, Maclean og Hamm-
ond Innes selst best. I barnabókun-
um er Þorgrímur Þráinsson söluhár
að vanda og einnig hala farið marg-
ar bækur eftir Iðunni Steinsdóttur,
Blautir kossar eftir Smára og Gunn-
ar og fleiri unglingabækur. Annars
er það svolítið hér að menn fylgjast
með heimamönnum og þeim bókum
sem koma inná þetta svæði. En salan
hefur farið rólega af stað og erfitt að
segja til um hverjir munu standa
uppúr,“ sagði afgreiðslustúlka í
Bókabúð Jónasar á Akureyri,
sem vildi alls ekki láta nafns síns
getið.
Bókaverslun Jónasar
Tómassonar, ísafirdi:
„Þær em nú varla byrjaðar að
hreyfast bækurnar hjá okkur. Það
var aðeins sem fór að flnna fyrir
þessu á laugardaginn var, en næsta
helgi verður stór. Enda er það þessi
vika og næsta sem ráða öllu um
hvernig fer. Það var svolítið sérstakt
ástandið hjá okkur í fyrra þegar
margar bækur tengdar þessu land-
svæði komu út. Slíkar cru færri nú
og þessvegna þykir mér ekki ólfk-
legt að salan verði jafnari og dreifist
meira. Þess gætir hinsvegar ekki að
einhver samdráttur sé í bóksölunni,
allavega ekki enn. Skáldsögurnar ís-
lensku er lítið farnar í gang, en þar
em margar góðar og allir þessir
helstu rithöfundar em með bók um
þessi jólin. Ef ég renni dálítið blint í
sjóinn þá myndi ég veðja á að Ólaf-
ur Jóhann, Vigdís Gríms, Guðberg-
ur, Fríða Á. og Einar Kára seldust
best héma. í barndómi eftir Jakobínu
Sigurðardóttur hefur einnig selst vel,
sömuleiðis Óskars saga Halldórs-
sonar, TF-SIF og Óli í Olís. Aðrir
minna,“ segir Gunnlaugur Jónasson,
verslunarstjóri í Bókaverslun Jónas-
ar Tómassonar á Isafirði.
Bókaverslun Brynjars,
Neskaupstad:
„Það er bara engin bóksala. Hér
seljast engar bækur og ekki neitt.
Menn em bara í heimssiglingum og
verslunarferðum til útlanda. Það
hafa nokkrar bækur selst af Ólafi Jó-
hanni og Vigdísi, en annars ekkert.
Við seljum engar bækur hér fyrr en
síðustu fimm dagana fyrir jól. Þetta
er kannski dapurlegt en svona er
þetla nú orðið, vinur minn.“ sagði
Brynjar Júlíusson í samnefndri
bókaverslun á Neskaupstað.
Bókabúdin,
Vestmannaeyjum:
„Það er afskaplega lítið byrjað
ennþá að seljast af bókum. Hrein-
lega ekki neitt. Það hefur yfirleitt
ekki farið í gang mjög snemma en
ástandið er óvanalegt slæmt núna.
Ég held ég geti fullyrt að það hefur
ekki verið verra í tíu ár. Fólk fer nátl-
úrlega mikið út og til Reykjavíkur að
versla og ekki bætir það ástandið í
verslun. Það er kannski helst að
barnabækurnar hafi hreyfst hjá okk-
ur og svona þessar ódýrari bækur,“
segir Fríða Éinarsdóttur, aðstoðar-
verslunarstjóri Bókabúðarinnar í
Vestmannaeyjum.