Alþýðublaðið - 13.12.1994, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 13.12.1994, Qupperneq 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER Siguijón Birgir Sigurðsson - alias Sjón - hefur sent frá sér skáldsöguna „Augu þín sáu mig“. Stefán Hrafn Hagalín hitti rithöfundinn á bar síðastliðinn sunnudag og átti við hann samtal - frekar en viðtal - um allt sem tveimur mönnum dettur í hug að tala um á tveimur klukkutímum. Alþýðublaðið færir ykkur Sigurjón Birgi Sigurðsson rithöfund; óklipptan og óritskoðaðan, óinnpakkaðan og órafmagnaðan...: „Ætli ég sé ekki loksins að verða fullorðinn“ Sigurjón Birgir Sigurðsson - alias Sjón - hefur á vegum Máls og menn- ingar sent frá sér skáldsöguna Augu þín sáu mig. Það var því kominn tími á að Alþýðublaðið tæki viðtal við manninn. Seinnipartinn síðastliðinn sunnudag sat ég þannig alvopnaður hefðbundnum tækjum blaðamanns- ins (stór bjór og diktafónn sam- kvæmt handbókinni) á barnum Katll List við Klapparstíg og beið eftir höfðingjanum. Korteri of seinn snaraðist Sigurjón Birgir innúr dyr- unum, kastaði kveðju á kunningja (Tómas Stuðmann og Asgeir Bara- flokksforingja) og settist niður við borðið: „Komdu sæll. Situr þú hér bara með öl einsog danskur blaða- maður í skáldsögu frá því um 1950...?“ Var þetta spurning? Ég hálfvandræöalegur líktog ferming- ardrengur þegar presturinn spurði hvort allir hafi ekki verið duglegir við að biðja bænirnar og fór að muldra eitthvað um þýska spennu- sögu sem heitir Meiri bjór og við urð- um sammála um að væri gífurlega vont nafn á bók. (Skrýtið, að manni skuli aldrei detta neitt sniðugt og andstyggilegt í hug þegar mest á reynir: Fyrirgefðu, ertu Birgitta, Johnny Triumph eða Sjón núna? eða: Konan mín man eftir þér fyrir tíu árum að lesa ljóð þín í Stundinni okkar, hún hefur enn ekki jafnað sig á upplifuninni. Nei, nei, ekkert snið- ugt. Einungis muldur.) Sigurjón Birgir stóð upp, fór að barnum og pantaði sér pilsner. Settist aftur. Lagaði skrýtna peysuna í hálsinn og slétti úr teinóttum buxunum. Sett- legur. Tók að keðjureykja rótsterka Bagatello-smávindla. (Hvatur í hreyfingum, alltaf einsog ögn utun- við sig, samt skarpur og með á nót- * HP»»” Nú er tækifæriö Þú færð 500 g stk. á 122 kr. Gerðu gott betra með jólasmjöri. unum ef honum lciðist ekki. Pírir augun, snýr uppá sig. Eru til góðleg- ir ránfuglar? Mikið af sko, svona, ha, hérna, eiginlega, hmmm, svoleið- is og aftur ha... Fínn fír, sumpart venjulegur í viðkynningu, en eigi að síður skrýtinn á úthugsaðan hátt. Samanber fötin, gleraugun og skegghýjunginn. Atvinnumaður í sjálfum sér? Skilgreiningahull.) Sek- úndum síðar hófst samtalið sem hér fer á eftir: -Um hvað jjcillar nýja bókin þín, Augu þín sóu mig? „Þetta er ástarsaga, gerist á stríðsámnum og segir frá ungri stúlku sem sörverar á gistiheimil- inu Gasthof Vrieslander, í Norð- ur-Þýskalandi, nánar tiltekið í Neðra- Saxlandi. Þangað er einn daginn komið með mannhræ sem er að því kominn að gefa upp öndina; mann að nafni Löwe sem er allur liinn aumingjalegasti. Hann er semsagt gyðingur frá Prag sem er verið að koma úr landi og er geymdur þarna á gisti- heimilinu, milli þilja; í svona klefa á milli herbergja sem er kallaður prestaklefi á íslensku. Þetta er gamalt gleðihús og þar skal gamli gyðingurinn dvelja þangað til honum er komið á skip. I rauninni er þetta saga stúlkunnar og gamla gyðingsins og segir frá því sem gengur þeirra á milli - þessa tvo, þrjá daga sem hún þarf að annast þennan vesaling.“ -Hver segir söguna ? „Sá sem segir söguna er af- komandi þeirra. Þetta er ástarsaga og endar með því að þau ná sam- an. Sögumaðurinn hefur svona ákveðnar hugmyndir um lífið og tilveruna og sjálfan sig og þær koma einmitt mjög vel í ljós í sög- unni.“ -Hvemig kviknaði þessi saga í kollinn ú þér? „Þessi saga varð eiginlega óvart til vegna þess, að. sá sem segir söguna er persóna sem ég ætlaði að skrifa um heila skáld- sögu. Sú bók átti að gerast í ís- lenskum samtfma og fjalla um mann á mínum aldri - unt 32 ára gamlan - sem býr í Reykjavík og lendir svolítið útúr samfélaginu vegna áfalls sem hann fær þegar faðir hans deyr. Við það byrjar hann að reyna rekja ættir sínar og sögu. Þráðurinn frá unga mannin- um liggur aftur til Þýskalands og hann fær þá hugmynd, að faðir hans hafi verið tékkneskur gyð- ingur. Þaðan sprettur bókin sem nú er að koma út, Augu þín sáu mig, og ég þurfti eitthvað að Ijalla 'v-;'; um þessa sögu þrátt fyrir að hafa ekki ætlað að gera það í upphafi. Málið er, að ég - einsog kannski fleiri - er búinn að fá uppí kok af þessu Hólókóst-dæmi og hinum endalausu sögunt sem er ver- ið að segja úr Seinni heimsstyijöldinni; sögur sem em allar eins: Annaðhvort em þær kombattblandaðar stríðssögur eða fjalla um misþyrmingar á gyðing- um og það ljóta mál allt sarnan. Ég tók semsagt þá ákvörðun, að skrifa ekki um þennan tíma. En þá gerðist það, að þessi persóna, móðir unga mannsins, Míuie-Sophie, fær mál. Hennar sögu var ég að vinna í svona litlum kafla og ætlaði að hafa hann sem örstuttan for- leik að samtímaskáldsögunni. Sá for- leikur lengdist til muna þegar Marie- Sophie fékk málið og Augu þín sáu ntig varð til. I rauninni þróaðist bara samband þessara tveggja manneskja þama; sambandið á milli sjúklings og sjúkraliða. Sagan fer í þessa átt og þau verða mjög ástfangin. Ég var allsekki búinn að ákveða þessa þróun niála. Ég vissi að mér þætti vænt unt Marie Sop- hie en allsekki að hún myndi ganga svona langt. Þetta bara gerðist og ég leyfði mér algjörlega að fylgja sög- unni. Þetta er í fyrsta skipti sem ég geri það. Hingað til hefur þetta verið þann- ig með skáldsögur mínar - sern eru í eiginlega prósaverk - að ég var búinn að negla niður hvert einasta atvik áður en ég byrjaði að skrifa. Þá bjó ég í rauninni beinagrindina til og hlóð utaná hana kjöti. Nú tók ég sögunni al- veg frá fyrsta stigi og leyfði henni að vaxa og flæða. Sagan sagði sig bara sjálf.“ -Sú staðreynd, að mí ert þii Medúsu- skœruliðinn úr Breiðholtiiui, orðinn settlegur menningarviti og jjölskyldu- maður íblokk í Vesturbœnum..., hafði hún engin áhrif á að þú skulir núna setjast niður og skrifa tiltölulega heim- ilislega skáldsögu - ástarsögu í ofaná- lag? „Nei, ég held ekki. Hmmm... Ég var byrjaður á þessari sögu áður en það kom allt saman til: Það er frekar, að staða mtn í dag sé afleiðing af sögunni heldur en hitt.“ -Og þú hafirþá svona þroskast uppí fjölskyldumanninn uiii leið og sagan þroskaðist og vatt uppá sig? ,Já, ætli það ekki bara. Ætli ég sé ekki loksins að veröa fullorðinn, ha... Og það er ágætt um þrítugsaldurinn, að hafa þá náð einhverjunt þroska. Ég er að komast í tölu fullorðinna. Þessi bók er þá eiginlega mín ferming og ferm- ingarveisla." -Yfir t tengda sálma. Nú liafið þið rithöfiindar og Ijóðskáld verið sendir útá land af útgefendum ykkar í upp- lestra og annað... ,Já, einmitt." -Hvernig hefur það gengið? Aðaltölur: Vinningstölur laugardaginn: 10.des. 1994 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING E95af5 5 5.416.660 g+4af5 9 225.530 04315 444 7.880 03afS 16.384 490 BONUSTALA: Heildarupphaeð þessa viku: kr. 40.639.950 UPPLVSINGAB. SlMSVABI 91- SB 1511 LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 ,Ja, ég fór á Egilsstaði með Einari Kárasyni, Magnúsi Þór Jónssyni - Megasi, ísak Harðarsyni, Jóhönnu Sveinsdóttur og Friðrik Rafnssyni sem var kynnir, fararstjóri og nuddari. Og þetta tókst mjög vel. Ég hefði að vísu viljað sjá aðeins fleira fólk þama á Eg- ilsstöðum; fleiri áhorfendur og áheyr- endur. En mér fannst þetta mjög gam- an og ég held að þetta sé eitthvað sem við ættum að gera meira af. Ég hef það á tilfinningunni, að fólki sem býr úti á landi finnist menningin í Reykjavík vera hálfgert prívatmál höfuðborgar- búa. Það sýndi sig þama til dæmis á hótelinu, að þegar við sátum saman og vorum að borða, að eini maðurinn sem fólk þekkti almennilega og hafði nokk- um áhuga á var Megas atþví hann hef- ur túrað um landið og sinnt lands- byggðinni. Og þetta fólk kann að meta það. Ég held því, að frá sjónarhomi menningarlegrar byggðastefnu - og líka markaðslega séð - þá skipti þetta rniklu máli. Ég meina, það eru hundr- aðogeitthvað jrúsund manns sem búa úti á landsbyggðinni. Þetta fólk hefði örugglega meira gaman af þessum bókum ef því þætti þær koma sér við.“ -Hljóinsveitirncir gera þetta - cif- hverju ekki þið? „Já, einmitt. -Voruð þið ekki eitthvað að rœðu menningájframboðsmál þarna á Eg- ilsstöðum? „Ég vil nú ekkert um það mál segja að svo stöddu. Þetta er nú svolítið skrýtið á sinn hátt. Ég er nú hinsvegar eiginlega svo mikill egóisti, að ef ég færi í framboð, þá færi ég í framboð fyrir sjálfan mig.“ -Séiframboð Sigurjóns Birgis Sig- urðssonar? ,Já. Prívat á mínu heimili þar sem væri einn kjörkassi. Þar myndi ég svo kjósa sjálfan mig.“ -Aftur að skáldsögunni. Nú las ég í Mannlífsviðtali við þig, að þegar þú byrjaðir á sögimni liafi Balkanskaga- stríðið ekki verið byrjað og þú hefðir heldur ekki átt bani á þeim tíma. Síðan eftir því sem stríðið og þjóðemis- hreinsanir koma í bókina þína þá liafi slíkt ógeð byrjað á Balkanskaga og þegar bameignir mœttu til leiks í bók- inni þá hafir þú eignast bam - og svo framvegis. Erþetta ekki hœttulegt? , Jú, þetta er stórhætluleg saga og ég þekki rithöfunda sem hafa lent í þvf að atburðir sem þeir eru nýbúnir að skrifa um endurtaka sig í þeirra -Þetta hljómar nú einsog eitthvað sem gerist bara í lélegum Ray Brad- bury-þáttum... „Akkúrat. Svona glæsileg sæjens- fiksjön. Mér flnnst í rauninni, að ég beri mikla ábyrgð á þessu stríði á Balk- anskaganum. Ég þarf eiginlega að setj- ast niður og skrifa aðra bók og ljúka stríðinu; leysa málin þannig." -Passarþað ekki, aðferða- lag þitt til Prag árið 1990 tengist skrifum bókarinnar? „Ég kom til Prag árið 1990 og fór að gröf rabbí Loew sem var eitt sinn talsmaður og leið- togi gyðingasamfélagsins þar um slóðir; á sautjándu öld. Hann var í góðu sambandi við Rúdolf keisara II. og hafði einhver tök á honum. Keisar- inn var mjög sérstakur maður. Hann sólundaði til dæmis fé ríkisins í allskonar vafasamt fóik einsog gullgerðarmenn, stjömuspekinga, listamenn, rithöfunda og héma...“ -Sinfóníuhljómsveit... „Ég veit nú ekki hvort hann var með sinfóníuhljómsveit;

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.