Alþýðublaðið - 13.12.1994, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
11
Þýskir gefa tré
Félag blaðamanna í Hamborg,
Wikingerrunde, hefur gefið Reykja-
víkurhöfn jólatré og er það í 28.
skipti sem þeir félagar gefa jólatré.
Kveikt var á trénu á Miðbakkanum á
föstudaginn að viðstöddum þýskum
og íslenskum gestum. Það var hinn
aldni formaður Wikingerrunde,
Hans Hermann Schlunz sem afhenti
tréð en Sigrún Magnúsdóttir borgar-
fulltrúi tók við trénu og þakkaði
gjöfma fyrir hönd Reykjavfkurborg-
ar. Eimskip og Flugleiðir lögðu sitt
af mörkurn með flutning á tré og
mannskap.
Jólajatan í
Gardhúsinu
Nú á jólaföstu hefur Garðskáli
Grasagarðsins verið skreyttur með
ljósum. í litla garðhúsinu er jólajatan
komin upp, þar sem hægt er að riíja
upp jólaguðspjallið. Fyrir utan er
Ijósum prýtt jólatré sem unnt er að
ganga í kringum og syngja jólalögin.
Opið er alla virka daga frá klukkan 8
til I5 og um helgar frá I0 til I8.
Vegna framkvæmda við vatnslista-
verkið við aðalinngang er nú gengið
inn í garðinn um gamla innganginn
af Engjavegi í átt að aðalhliði Fjöl-
skyldugarðsins.
Sálmar þeldökkra
ogjólalög
Háskólatónleikar verða í Norræna
húsinu í hádeginu á morgun þar sem
karlakvintettinn Acapella syngur.
Tónleikamir heljast klukkan 12:30
og standa í hálftíma. Acapella syng-
ur alla tónlist án undirleiks. Megin
áhersla hefur verið á sálmasöng og
þá einkum sálma þeldökkra. A tón-
leikunum á morgun verður fjölbreytt
efnisskrá og auk sálma kyrjar kvin-
tettinn popplög og íslensk jólalög.
Evrópusamvinna
íslands
Út er komin bók þar sem upphaf
Evrópusamvinnu íslands er rakin á
fróðlegan og glöggan hátt. Aðalhöf-
undur bókarinnar er Einar Bene-
diktsson sendiherra en Alþjóðamála-
stofnun Háskólans gefur bókina út.
Upphaf Evrópusamvinnu Islands
Ijallar um haftatímann frá 1945 til
1960. Fyrsti hlutinn byggir að vem-
legu leyti á reynslu Einars Bene-
diktssonar sem fulltrúi hjá OEEC í
París þessi ár. Einar rekur framvindu
samvinnunnar sem leiddi til afnáms
þeirra viðskiptagirðinga er einangr-
uðu öll ríki Evrópu eftir heimsstyrj-
öldina síðari. I skrifum Einars má
glöggt sjá, að upphaf Evrópusam-
starfsins á áðumefndu tímabili er
mun tengdara síðari tímum en marg-
ur myndi ætla. Islendingar vom eftir-
bátar annarra þjóða við afnám hafta
og bám meðal annars fyrir sig fisk-
veiðideiluna við Breta og löndunar-
bannið sem fylgdi í kjölfar hennar. í
öðmm hluta bókarinnar, Skjölin í
Flórens, rekur Ketill Siguijónsson
lögfræðingur, mikilvægi OEEC við
lausn fiskveiðideilna Breta og ís-
lendinga. Ketill dregur fram í dags-
Ijósið ýmis skjöl sem ekki hafa áður
komið fyrir sjónir almennings. I
þriðja og síðasta hluta bókarinnar
fjallar Sturla Pálsson hagfræðingur
um eðli viðskiptahafta og afleiðingar
þeirra.
Skáldsaga
á tölvudiskum
Láms Hinriksson rithöfundur á
Akureyri hefur gefið út skáldsöguna
Lúpínu. Sagan er gefin út á tveimur
tölvudisklingum og geta lesendur
því lesið bókina í tölvu eða prentað
hana út til lestrar. Disklingunum er
komið fyrir í plasthulstri á stærð við
bók og fylgja með leiðbeiningar um
notkun. Höfundur segir í samtali við
Dag að með því að hafa þennan hátt-
inn á sé útgáfan mun ódýrari. Lúpína
fjallar um eyðni og gerist á einum
sólarhring í Los Angeles.
Hækka álögur
Meirihluti bæjarstjornar í Hafnar-
firði hefur ákveðið að hækka álögur
á bæjarbúa um 80 milljónir króna.
Útsvarsprósentan verður hækkuð úr
8,9 í 9.,2% og lóðaleiga verður
hækkuð. Fulltrúar Alþýðuflokksins í
bæjarstjóm mótmæla þessum hækk-
unum og benda á að þær stangist á
við fyrri yfirlýsingar meirihlutans
um að álögur á bæjarbúar yrðu ekki
hækkaðar.
Aukin samneysla
Samneyslan á íslandi hefur aukist
jafnt og þétt síðast liðin 10 ár sem
hlutfall af landsframleiðslu. Á sama
tíma hefur samneysla staðið í stað í
ríkjum OECD en þar er hún að með-
altali rúm 17%. Hér er hún hins veg-
ar kominn upp í rúmlega 20% af
landsframleiðslu. Þetta kemur fram í
Fréttabréfi um verðbréfaviðskipti.
Þar segir meðal annars: Sumir segja
að þetta sé eðlilegt og benda á að Is-
land sé lítið land. Jafnframt er sam-
neyslan enn meiri í þeim löndum
sem við berum okkur oftast saman
við, það er Norðurlöndin. Þetta er
rétt svo langt sem það nær. Á þrennt
ber þó að líta. í fyrsta lagi fer stöðugt
stærri hluti af ráðstöfunarfé þjóðar-
innar til samneyslu eins og áður
sagði. I öðru lagi eru útgjöld Islend-
inga til hermála engin. Hemaðarút-
gjöld eru hins vegar talin með út-
gjöldum til samneyslu annars staðar.
I þriðja lagi em Norðurlöndin síður
en svo sjálfsögð fyrirmynd í þessum
efnum.
Myndbandastríð
Eftir að Knattspymuráð Keflavík-
ur ákvað að opna myndbandaleigu
hefur ríkt stríð á þeim markaði í
bænum. Eigendur annarra mynda-
bandaleiga hafa afhent bæjarstjóra
undirskriftarlista með nöfnum 67
fyrirtækja sem ætla ekki að styðja
neinar íþróttadeildir innan íþrótta-
og ungmennafélagsins vegna þessa
máls. Knattspymuráð hótar hörðu á
móti og ætlar að hvetja sitt fólk til að
sniðganga þessi fyrirtæki. Málið hef-
ur verið rætt í bæjarstjóm.
Slökun á snældu
Hjá SÁÁ er komin út hljóðsnælda
með slökunaræfingum. Á annarri
hlið snældunnar era slökunaræfingar
fyrir bytjendur, þar sem áreynsla er
notuð til að ná auknum áhrifúm slök-
unarinnar. Á hinni hliðinni era slök-
unaræfingar án áreynslu. 1 fréttabréfi
SÁÁ segir að tilgangurinn með þess-
ari útgáfu sé að auðvelda þeim sem
ástunda reglulega slökun að nálgast
aðstoð í þeim efnum á einfaldan og
öraggan hátt. Höfundur efnisins á
slökunarsnældunni er Georgía M.
Kristmundsdóttir sálfræðingur SÁÁ.
Snældan fæst hjá SÁÁ og kostar 950
krónur.
Sýning
alþýðumálara
Nú stendur yfir sýning á málverk-
um eftir Sigurð Einarsson í sýningar-
sal Norræna hússins. Sigurður er al-
þýðumálari sem hefur fengist við
myndlist frá 1982. Myndimar á sýn-
ingunni era flestar olíumyndir á
striga. Sigurður er búsettur á Selfossi
og vann aldarljórðung í Mjólkurbúi
Flóamanna. Hann hefur haldið
nokkrar einkasýningar á Suðurlandi
og tekið þátt í samsýningum Mynd-
listarfélags Ámessýslu. Sigurður
hélt einkasýningu árið 1991 í Lista-
mannaskálanum Hafnarstræti 4 og
tók þátt í samsýningu í Galierí Ný-
höfn. Sigurður Einarsson er nú 76
ára að aldri. Sýningunni í Norræna
húsinu lýkur á sunnudagskvöldið.
RAÐAUGLYSINGAR
Laust lyfsölu-
leyfi, sem forseti
íslands veitir
iNNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Útboð
Laust er til umsóknar lyfsöluleyfi á Patreksfirði (Pat- F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboð-
reks Apótek). um í jarðvinnu vegna viðbyggingar Breiðholtsskóla.
Fráfarandi lyfsali gerir kröfu til þess, í samræmi við 11.
gr. laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982 og bráðabirgða-
lög nr. 112/1994 um breytingu á lyfjalögum nr.
93/1994, að viðtakandi lyfsöluleyfishafi kaupi vöru-
birgðir, búnað og innréttingar lyfjabúðarinnar. Enn-
fremur kaupi viðtakandi leyfishafi húseign þá er lyfja-
búðin ásamt íbúð fráfarandi lyfsala er í.
Væntanlegur lyfsali skal hefja rekstur frá og með 1.
mars 1995.
Umsóknir ásamt ítarlegum uppiýsingum um lyfja-
fræðimenntun og lyfjafræðistörf, skal senda ráðu-
neytinu fyrir 1. janúar 1994.
Heilbrigðis-, og tryggingamála-
ráðuneytið, 6. desember 1994.
PÓSTUR OG SÍMI
Útboð
Tilboð óskast í byggingu tveggja útstöðva (sím-
stöðva). Önnur byggingin verður reist á lóð við Star-
engi í Reykjavík, en hin á lóð við Smárann í Kópavogi.
Verkið nær til fullnaðarfrágangs tveggja húsa. Hvort
húsið verður 71 m2/255 m3 að stærð.
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum
13. desember 1994, hjá fasteignadeild Pósts og síma,
Pósthússtræti 5, gegn 10.000,- króna skiiatryggingu.
Tilboð verða opnuð fimmtudaginn 5. janúar 1995 kl.
11.00.
Helstu magntölur eru:
Uppgröftur: 3.000 m3
Fylling: 700 m3
Girðing: 145 m
Verkinu á að vera lokið 6. febrúar 1995.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 28. desem-
ber 1994, kl. 11.00 fh.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Alþýðuflokkurinn í Reykjavík:
Borgarfulltrúar
í jóla-Kratakaff i
Borgarfulltrúar
jafnaðarmanna á
Reykjavíkurlistan-
um, þeir Pétur
Jónsson og Gunn-
ar Levy Gissurar-
son, verða gestir í
jóla- Kratakaffi mið-
vikudaginn 14. des-
ember.
Að vanda er húsið
opnað klukkan
20:30 og á boðstól- Hressir . bragð.: Petur og Gunnar Levy.
um verða kökur, kaffi, kakó og aðrar veitingar.
Reykjavík, 8. desember 1994, Jafnaðarmenn í stjórnum, nefndum og ráðum innan borgar-
Póst- og símamálastofnunin. kerfisins eru sérstaklega hvattirtil að fjölmenna.
PÓSTUR OG SÍMI
Útboð
Tilboð óskast í breytingar á póst- og símahúsinu,
Austurvegi 24-26 á Selfossi.
í verkinu felst að endurnýja hluta hússins að innan,
reisa veggi, klæða loft, koma fyrir raf- og hitalögnum,
leggja gólfefni, mála húsið að innan, koma fyrir nýjum
gluggum, stiga o.fl.
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum
13. desember 1994, hjá fasteignadeild Pósts og síma,
Pósthússtræti 5,101 Reykjavík og á skrifstofu stöðvar-
stjóra Pósts og síma á Selfossi, gegn 20.000,- króna
skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu fast-
eignadeildar þann 5. janúar 1995, kl. 14.00.
Reykjavík, 8. desember 1994,
Póst- og símamálastofnunin.
Eftir einn - ei aki neinn!
- Stjórnin.
Húsbréfadeild
Við minnum á að
gjalddagi fasteignaveðbréfa
er 15. desember
Við viljum vekja athygli á því að gjalddagi
fasteignaveðbréfa húsbréfadeildar
er 15. þessa mánaðar.
Það borgar sig að láta greiðslu afborgana af
fasteignaveðbréfum hafa forgang.
Forðist dráttarvexti!
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SlMI 69 69 00
OPIÐ KL. 8-16 VIRKA DAGA