Alþýðublaðið - 04.01.1995, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4, JANÚAR 1995
ALMWÐID
20847. tölublað
Níu (misfúllyndislegir) punktar
Eftir flóðið
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SiguröurTómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Þjóðvaki,
hreyfing Jóhönnu
Jóhanna Sigurðardóttir siglir á toppi vinsældaöldunnar þessa
dagana. Eins og dæmin sanna er lfklegt að þessi alda dali, þó
ólíklegt sé að vinsældir Jóhönnu sigli í dýpstu lægðir öldunnar.
Utan um sína pólitík hefur Jóhanna stofnað flokk, sem kallast
Þjóðvaki, hreyfing fólksins. Hreyfing þessi á sér þó vart aðrar
rætur en í persónulegum metnaði Jóhönnu Sigurðardóttur og
ætti því að kallast Þjóðvaki, hreyfíng Jóhönnu. Aðrir virðast
ekki skipta miklu máli á þeim bæ. Eða hvar eru aðrir málsvarar
hreyfingar fólksins?
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur Islands - bar Jó-
hönnu Sigurðardóttur á höndum sér árum saman, sýndi henni
meira traust og málum hennar meiri athygli en dæmi eru um
aðra stjómmálamenn. Hún var virt og dáð innan flokksins. Var
nema von að félagsmálaráðherrann fyrrverandi fengi nafngift-
ina heilög Jóhanna? í raun má segja að flokkurinn hafí veitt
henni allt nema eitt: Formannsstólinn.
Jóhanna lofaði því fyrir formannskjörið á flokksþingi síðastlið-
ið sumar að hún myndi ekki kljúfa flokkinn ef hún tapaði kosn-
ingunum. Þetta loforð sveik hún - og sveik þar með það fólk
sem ámm saman hafði trúað henni fyrir miklu og stutt dyggi-
lega í framgangi þeirra mála sem hún fór með í ríkisstjóm. Jó-
hanna Sigurðardóttir var auðvitað frjáls að því að yfirgefa Al-
þýðuflokkinn og stofna hreyfingu fólksins utan um sjálfa sig,
en svikin loforð við félaga sína er slæm fylgja í nýjum félags-
skap jábræðra og systra.
í stjómarandstöðu sinni ber Jóhanna kápuna á báðum öxlum.
Sterka stöðu á Jóhanna að þakka störfum sínum í ríkisstjóm.
Þessum störfum er nú óspart flaggað, líkt og hún ein og óstudd
án stuðnings félaga sinna - og jafnvel í andstöðu við þá - hafi
komið í framkvæmd ýmsum þjóðþrifamálum. Á sama tíma
þvær hún hendur sfnar af öðmm verkum ríkisstjómarinnar, sem
nauðsynleg vom vegna erfiðs efnahagsástands. Þetta gengur
auðvitað ekki. Jóhanna var ráðherra í sjö ár og ber ábyrgð á
stefnu þeirra ríkisstjóma sem hún sat í. Frá þessum tvískinn-
ungi getur Jóhanna ekki hlaupið. Hann mun elta hana uppi í
kosningabaráttunni, hún verður að svara fyrir verk sín - óvin-
sæl jafnt sem vinsæl.
í svari við spumingum Morgunblaðsins á laugardag sagðist Jó-
hanna fylgja ábyrgri stefnu í efnahagsmálum „þannig að ríkis-
fjármálin verði í jafnvægi, stöðugleiki í efnahagslífinu varð-
veittur, auk þess sem dregið verði úr erlendri skuldasöfnun".
Ríkisstjómin hefur náð umtalsverðum árangri í efnahagsmál-
um, oft með sársaukafullum aðgerðum og óvinsælum. Jóhanna
verður krafin svara um hvers vegna hún vill þvo hendur sínar af
erfiðum aðgerðum, en hafa um leið stefnu sem krefst þessara
sömu aðgerða.
Kallast það ábyrgð að sveipa sig orðaleppum eins og stöðug-
leika, minni skuldasöfnun og ný sókn í atvinnumálum, en neita
síðan að standa að aðgerðum sem óumdeilanlega hafa náð
þessu markmiði? Ríkisstjórnin hefur náð miklum árangri í
þeim málum sem mestu skipta fyrir efnahagslega framtíð okk-
ar. Það kostaði fórnir og tímabundnar óvinsældir sem Jóhanna
Sigurðardóttir ætlar nú að nota sjálfum sér til framdráttar.
Þjóðvakinn, sólóhreyfing Jóhönnu Sigurðardóttur, byggir á
óánægju fólks með kjör sín. Öllum er lofuð úrlausn. Þjóðvak-
inn er popúlísk hreyfing, byggð á einni persónu. Þegar vitlegar
úrlausnir vantar er stefna Alþýðuflokksins tekin upp nánast
eins og hún leggur sig, enda voru engin málefnaleg rök fyrir
brotthvarfi Jóhönnu úr flokknum. Fyrir vikið er grafið undan
frjálslyndri jafnaðarstefnu í landinu. Til hliðar glotta þeir Páll
Pétursson og Egill Jónsson - draumastjómin þeirra er í farvatn-
inu. Þökk sé heilagri Jóhönnu.
Mér finnst...
að Geirlaugur Magnússon skáld á
Sauðárkróki hafi hitt naglann á höf-
uðið þegar hann sagði í samtali við
þetta virðulega blað, að íslenskir
skáldsagnahöfundar þjáðust af
„tölvuvírus". Fyrir nokkrum árum
var hag íslensku skáldsögunnar svo
komið, að hún var hreinlega að
hverfa: Flestar sögur rélt lufsuðust
upp fyrir hundrað síður, með tvö-
földu línubili og rfflegri spássíu.
Síðan hefur tölvubyltingin greini-
i e g a
t e y g
krumlur
Einsog gengur
Hrafn
Jökulsson
skrifar
sínar til
s k á l d a:
nú er
enginn
rithöf-
u n d u r
með rit-
höfund-
um nerna hann gefi út doðrant uppá
fjögur eða fimmhundruð þéttprent-
aðar síður. Þetta er semsagt tölvu-
vírusinn illræmdi. Höfundarnir virð-
ast hreinlega hafa orðið óstöðvandi
þusi að bráð; og blaðra í belg og
biðu. Ég nefni engin nöfn - en það
er óneitanlega kúnstugt að meistari
Thor Vilhjáimsson skuli allt í einu
vera orðinn agaðasta og orðvarasta
skáld Islands. Og samt á hann nú
Macintosh einsog alþjóð veit. En til-
laga mfn er: Burt með tölvumar, upp
með sjálfblekunginn...
Mér finnst...
að draga ætti um hvaða bækur
hljóta tilnefningar til íslensku bók-
menntaverðlaunanna. Það er líklega
eina leiðin til að tryggja hlut yngri
höfunda...
Mér finnst...
að efna ætti til sérstakra Ijóða-
verðlauna. Það er landlæg della að
Ljóðið sé f dauðateygjunum; enginn
nenni að lesa Ijóð lengur enda yrki
skáldin á óskiljanlegu máli. Varð-
andi þá fullyrðingu að enginn lesi
ljóð vísast til dálksins neðst á sfð-
unni hér til hliðar. Vissulega skrifa
sum skáld afar torkennilegt, og jafn-
vel alveg óskiljanlegt, mál en miklu
þyngra vegur að nú um stundir eig-
um við líklega fleiri góðskáld en
nokkru sinni. Geirlaugur Magnús-
son hefði til að mynda átt að fá
margumtöluð Islensk bókmennta-
verðlaunin fyrir snilldarverk sitt,
Þrisvar sinnum þrettán. Hann var
ekki einu sinni tilnefndur...
Mér finnst...
viðbrögðin við verðstríði á jóla-
bókamarkaðinum sérkennileg.
Bókakaupendur hafa beðið þess ár-
um saman að samtryggingarkerfi
bóksölunnar yrði rofið með alvöra
samkeppni. Afhverju má keppa á
öllum verðvígstöðvum nema þama?
Afhverju má ekki selja bækur í stór-
mörkuðum? Þrífast bækur bara í
luktum heimi?
Mér
finnst...
að bókaútgef-
endur ættu að
leggja meiri
metnað í ævi-
sagnaútgáfu en
nýhnigið flóð bar
vott um. Hörpu-
útgáfan sló að
vísu maklega í
gegn með tveim-
ur vönd-
u ð u m
ævisög-
um og
A s g e i r
Jakobs-
son færði
o k k u r
s t ó r -
skemmti-
______ lega sögu
íslands-
bersa. Ein eða
tvær bitastæður
ævisögur til við-
bótar komu út, en
það var allt og
sumt...
Mér
finnst...
að útgefendur
ættu að grafa upp
ýmsan merkis-
mann sögunnar
og láta skrifa um
hann merka sögu.
Nokkrar handa-
hófskenndar
uppástungur:
Jónas Hallgríms-
son, Björn Hall-
dórsson í Sauð-
lauksdal, Jón
biskup Arason,
Jón skáld Þor-
láksson, Bjöm
Jónsson ráðherra,
Sveinn Bjömsson
forseti, Hallgnm-
ur Helgason,
Davíð Stefáns- Það er raunaleet að hlusta á eymdarvaðal í far-
son, Matthías ,
jochumsson, sælum metsöluhötundum sem liiiiisl að gagnrýn-
Einar H. Kvaran, , i <- i i»i • *i
endur haii skyndilega etnt til meirinattar samsæris
gegn þeim - þegar raunin er einfaldlega sú að um
er að ræða mislukkaðar bækur...44
Guðrún frá
Lundi, Gunnar
Thoroddsen,
Gunnar Gunn-
arsson, Jón Leifs,
Tómas Guð-
mundsson, Vilhjálmur Þór - og
svona mætti áfram telja...
Mér finnst...
að rithöfundar ættu að hætta að
kvarta og kveina yfir bókagagnrýn-
endum blaðanna. Ritdóma á ekki að
skrifa fyrir taugaveiklaða höfunda
(þótt því miður séu dæmi þar um)
heldur er blaðagagnrýni einfaldlega
þjónusta við lesendur. Það er rauna-
legt að hlusta á eymdarvaðal í far-
sælum metsöluhöfundum sem finnst
að gagnrýnendur hafi skyndilega
efnt til meiriháttar samsæris gegn
þeim - þegar raunin er einfaldlega
sú að um er að ræða mislukkaðaf
bækur...
Mér finnst...
að menn eigi að hætta að bölsótast
útí jólabókaflóðið. Hver kannasl
ekki við nöldur sumra bókamanna
sem finnst jólaflóðið andmenningar-
legt og beinlínis „bókfjandsamlegt".
Það er vitaskuld argasta firra, einsog
skáldið sagði. Rithöfundar og útgef-
endur og bókavinir ættu að prísa sig
sæla yfir því að blessuð Bókin fái að
vera í aðalhlutverki í heilan mánuð.
Ætli fólk í öðram atvinnugreinum
færi að kvarta undan slíkum áhuga?
Varla...
Mér finnst...
að stjórnmálamenn eigi helst ekki
að vitna í Ijóð í jólaboðskap sínum,
áramótagreinum eða á öðrum vett-
vangi. Ljóðið er í eðli sínu heiðar-
legasta form skáldskaparins, og á
illa heima í vondum félagsskap pól-
itíkusa...
Dagatal 4.janúar
Atburðir dagsins
1891 Málfræðingurinn og Fjölnis-
ntaðurinn Konráð Gíslason deyr í
Kaupmannahöfn. 1944 Nasista-
stjómin í Berlín gefur út tilskipun
um herskyldu bama, 10 ára og eldri.
1960 Franski Nóbelshöfundur Al-
bert Camus deyr í bílslysi. 1965 T.S.
Eliot, höfundur Eyðilafidsins, deyr í
Lundúnum.
Afmælisbörn dagsins
Isaac Newton vísindamaðurinn sem
uppgötvaði þyngdaraflið, 1643. Jak-
ob Grimm annar bræðranna sem
skrifuðu Grimmsævintýri, 1785.
Grace Bumbry bandarísk ópera-
söngkona, fyrsti þeldökki söngvar-
inn sem steig á svið í Bayreuth.
Annálsbrot dagsins
í Vestmannaeyjum hröpuðu nokkrir
menn til dauðs, og einn deyddi bam
sitt í brennivíni, getið í meinum.
Hrafnagilsannáll, 1728.
Lexía dagsins
Einu sinni orti ég kvæði á bláan
pappír til yndislegrar stúlku í Vestur-
bænum. En þá varð hún vond. Sagð-
ist vera búin að sjá þetta kvæði hjá
vinstúlku sinni í Austurbænum. En
raunar hafði ég bara lánað kunningja
mínum afrit af kvæðinu á gulum
pappfr handa hans stúlku. Sfðan hef
ég alltaf gætt þess að senda ekki
tveim stúlkum sama ástarkvæðið.
Tómas Guðmundsson skáld; Þau
gerðu garðinn frægan eftir Valtý Stefánsson.
Ord dagsins
Kisafór ífötin sín;
fá vill hún um jólin
kafji brauð og brennivín
og bót á gamla kjóliim.
Gömul vísa.
Málsháttur dagsins
Ósamheldni er eyntda móðir.
Lokaord dagsins
Dauðinn er ekkert svo slæmur útaf
fyrir sig, en þetta virðist ansi kauða-
leg byrjun á ævintýrinu.
Hinstu orð glæpamannsins og
morðingjans Geralds Chapmans.
Hann var hengdur árið 1926.
Skák dagsins
Skákdeildin var grátl leikin í gær,
þegar bandvitlaus stöðumynd birtist.
Við biðjumst afsökunar og reynum
aftur: við voram að skoða endatafl
tveggja valinkunnra meistara,
Moskalenkos, sem hefur hvítt og á
leik, og Miljanic. Peð beggja eru al-
búin að rísa til mannvirðinga, en
hvítur er einu skrefi á undan. Staðan
er hinsvegar viðkvæm og hvítur þarf
að feta einstigið af mikilli nákvæmni
til að hafa sigur. Eini rétti leikur hvíts
liggur enganveginn í augum uppi.
Og því er spurt: Hvað gerir hvftur?
1. Ke4! Moskalenko bregst ekki
bogalistin. 1.... Bf5+ 2. Ke5 Bh7 3.
Rh2+! Miljanic gafst upp: 3.... Kg3
4. Rfl+ Kf2 5. Kf4! og sigurinn er í
höfn.