Alþýðublaðið - 04.01.1995, Side 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995
Erlend hringekja ársins 1994
Sögulegt ár spillingar
1994: Ættingjar þeirra hundruða farþega sem fórust með Estoniu i september fundu litla huggun i sorg sinni.
Spilling er óbrigðulasta einkenni
stjómarskárbundins frelsis, sagði 18.
aldar sagnfræðingurinn Edward Gib-
bons eitt sinn. Ef það er virkilega til-
fellið þá var Evrópa á því herrans ári
1994 við hestaheilsu og sterk einsog
naut.
Sú t'mynd sem sennilega lýsir best
stjómmálaástandinu í Frakklandi á
síðasta ári er hið föla og tekna andlit
Alain Carignon, fyrrum samskipta-
ráðherra, sem birtist okkur í fjöl-
miðlum þegar hann var leiddur á
braut í handjámum af laganna vörð-
um. Carignon var ákærður fyrir að
afla fjármagns í kosningasjóði sína á
ólöglegan hátt.
A meðan þetta var að gerast veltu
Spánverjar fyrir sér máli leigubíl-
stjórasonarins Luis Roldán Ibanez
sem án nokkurrar augljósrar hæfni
mddi sér leið upp valdaþrep spænska
Sósíalistaflokksins og varð förstjóri
70 þúsund manna liðs herlögreglu
landsins. Roldán, sem ákærður var
fyrir að taka við illa fengnum pen-
ingum vegna verktakasamninga í
tengslum við byggingu herlögreglu-
híbýla, hvarf skömmu fyrir áætluð
réttarhöld yfir honum í apríl. Lög-
regla leitar hans ennþá þegar þessi
orð em skrifuð.
Atburðir þessir í Frakklandi og á
Spáni þættu afar hversdagslegir á
Ítalíu þar sem fyrmm forsætisráð-
herra landsins, Bettino Craxi, var í
júlí dæmdur til 8 1/2 árs fangelsis-
vistar fyrir stórfellda spillingu. Craxi
dvelur um þessar mundir í útlegð í
Afrikulandinu Túnis hvar hann seg-
ist því miður vera nauðbeygður til að
halda sig vegna veikinda sinna.
Hinn lánlausi
Silvio Berlusconi
Miklar vonir vom bundnar við
innkomu hins geðþekka fjölmiðla-
jöfurs, Silvio Berlusconi, í ítölsk
stjómmál í janúar. I honum eygðu
langþreyttir Italir loksins glætu í
myrkri pólitískrar spillingar og Berl-
usconi gaf ítrekað út loforð í anda
and-spillingarherferðarinnar Hreinar
hendur um að hrista uppí kerfinu og
kasta fyrir róða gömlu hundunum
sem staðið höfðu í vegi fyrir umbót-
um. Eftir aðeins átta vikna dvöl í
stjómmálum sem leiðtogi nýja
flokksins Forza Italia (gamalkunn-
ugt knattspymuslagorð sem þýðir
„Afram Itali'a”) varð hann sfðan for-
sætisráðherra.
Berlusconi sýndist þess albúinn,
að heilla bæði Italíu og umheiminn,
en þegar allt kom til alls gat hann
ekki staðið við stóru orðin - ekki
frekar en ítalska knattspymulands-
liðið sem tapaði fyrir Brasilíu í úr-
slitaleik heimsmeistaramótsins í Los
Angeles. Meðreiðarsveinar Forza It-
alia í ríkisstjóm, aðskilnaðarflokkur
Norðursambandsmanna Umberto
Bossi, yfirgáfu svo stjórnarsamstarf-
ið eftir miklar deilur og Berlusconi
afhenti afsagnarbréf sitt fljótlega
uppúr því frekar en þola niðurlæg-
ingu samþykktar vantrauststillögu á
þingi. í lok ársins 1994 horfðu Italir
þannig framá enn einar þingkosning-
amar.
Antonio di Pietro, forystumaður
and-spillingarherferðar rannsókna-
dómaranna sem hálfpartinn tekinn
var í guðatölu af aðdáunarfullum al-
menningi, sagði af sér á síðasta ári
og ásakaði stjómmálamenn harka-
lega fyrir ítrekaðar tilraunir til að
leggja stein í götu herferðar og reyna
hafa áhrif á umfjöllun dómaranna.
Og eitthvað reyndist hinn hreinskilni
rannsóknadómari hafa til síns máls
því hinn lánlausi Berlusconi reyndi
til dæmis að gefa út fyrirmæli sem
hindruðu dómara í starfi og hefðu
takmarkað völd þeirra til muna. En
þessar fyrirætlanir Berlusconi fóm
fyrir lítið því undir lok ársins virtist
ljóst að hann myndi sæta yftrheyrsl-
um rannsóknadómara Hreinna
handa vegna mikillar bókhalds-
óreglu og vafasamra umsvifa fjöl-
miðlasamsteypu hans, Fininvest.
Hér hafa krossgötur breyst í króka-
leið, sagði einhver um málið og það
sem í fyrstu virtist li'ta út fyrir að vera
hin endanlega lausn á erfiðleikum
Ítalíu sýnist nú aðeins vera óijúfan-
legur hluti af vandamálinu.
Stóraukin fyrirlitning
almennings á stjórnmálum
Kannski em það afleiðingar
pólitísks subbuskapar að árið 1994
reyndist fyrst og fremst brennimerkt
stóraukinni fyrirlitningu og fullkom-
inni vantrú almennings á stjómmála-
mönnum og staifi þeirra. Edouard
Balladur, hinn siðfágaði forsætisráð-
herra Frakklands, byrjaði árið af-
skaplega háttskrifaður í skoðana-
könnunum en jafnvel vinsældir hans
döluðu eftir því sem leið á árið og í
ljós kom að honum gekk hörmulega
að eiga við uppreisnargjama náms-
inenn og bændur landsins.
John Smith, leiðtogi breska
Verkamannaflokksins, lést á síðasta
ári og við embætti hans tók æsku-
maöurinn kraftmikli, Tony Blair.
Ihaldsflokkurinn sem heldur um
stjómartaumana í Bretlandi undir
forystu John Major var hart leikinn á
árinu af innanflokksslagsmálum um
meðal annars Evrópusammnann og
nýtur nú minnstu vinsælda sem um
getur frá því að tekið var að gera
skoðanakannanir.
Helmut Kohl, hinn sjálfskapaði
kanslari þýskrar sameiningar, var
endurkjörinn á síðasta ári en aðeins
með minnsta hugsanlega mun. PDS,
umdeildur arftaki hins kommúníska
fyrrum stjórnarflokks Austur-Þýska-
lands, náði varanlegri fótfestu í
þýska sambandsþinginu.
Og spillingin var ekki
einskordud itid pólitík
Endurhvarf til gömlu stjórnarhátt-
anna hefur verið sífellt háværari og í
raun leiðandi krafa almennings í
austanverðri Evrópu þar sem kjós-
endur eru orðnir fullsaddir á erfið-
leikum og harðræðinu sem fylgir
umbreytingum í átt til hins frjálsa
markaðskerfis. í desembermánuði
1994 fetuðu Búlgarir í fótspor félaga
sinna í Póllandi, Ungverjalandi og
Litháen og völdu sér gamlan komm-
únista sem þjóðarleiðtoga. Harðlínu-
menn sóttu líka látlaust fram í Rúss-
landi. Vladimír Zhírinovsky - rúss-
neski æsingamaðurinn sem lýstu því
yfir að „Rússar muni ekki hvílast
fyrr en hermenn þeirra hafa fundið
öldur Indlandshafs leik um stígvél
sín“ - fleygði blómapottum að reið-
um mótmælendum í Brussel. I des-
ember hóf sovéski herinn blóðuga
innrás í kákasíska lýðveldið Tétsjen-
íu. Leiðtogi Tétsjena er Dzhokar
Dudayev, af mörgum álitinn spillt-
aslur allra spilltra stjómmálamanna.
En spillingin á síðasta ári var ekki
einskorðuð við stjómmálamennina.
Jurgen Schneider, fasteignajölur í
Frankfurt, hvarf sporlaust í apríl og
skildi eftir sig skuldahala sem nemUr
350 milljörðum íslenskra króna.
Bankastjórinn Mario Condé var
einnig sakfelldur á árinu fyrir stór-
fellt fjármálamisferli og ásakaður
um að hafa komið Banesto, einum
stærsta einkabanka Spánar, í hrika-
lega skuldasúpu svipaðri þeirri sem
Schneider svamlaði í.
Evrópuþingid og
Ermasundsgöngin
í Frakklandi var Bemard Tapie,
knattspyrnujöfurinn frá Marseille,
lýstur gjaldþrota og sviptur nýfengn-
um réttindum sínum sem þingmaður
Evrópuþingsins.
Kosið var til Evrópuþingsins í
júní. Eftir þær kosningar var þar ef til
vill að finna einn nýjan meðlim sem
var enn verr fallin en Tapie til þing-
setu; grísku söngkonuna Nana
Mouskouri. „Það er engin spurning
1994: Friður brast á með látum á Norður-lrlandi og IRA- leiðtoginn Gerry Adams sló í gegn í Bandaríkjunum.
1994: Rithöfundurinn Alexander Solzhenytsín flaug maímánuði heim til
Vladivostok eftir 20 ára útlegð.