Alþýðublaðið - 12.01.1995, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1995
MÞYBUBIMIB
20852. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Hinir sönnu
jafnaðarmenn
Sænskt efnahagslíf og velferðarkerfi á í mikium erfiðleikum.
Sænskir jafnaðarmenn standa nú í umtalsverðum niðurskurði á
ríkisútgjöldum. Fáu er þar hlíft, enda vandinn mikill og upp-
safnaður. Mestur verður niðurskurðurinn í heilbrigðis- og fé-
lagsmálum, en undir hnífinn fara einnig bamabætur, trygginga-
bætur og húsaleigubætur.
Þetta eru að sjálfsögðu sársaukafullar aðgerðir, en nauðsynleg-
ar að dómi allra sem til þekkja. Stjómarandstaðan í Svíþjóð
mun styðja þessar aðgerðir og ekki er vitað til þess, að klofn-
ingur hafi orðið í krataflokknum sænska vegna þessa.
Sænskir kratar hafa löngum skilið þá gmnnforsendu nútíma
jafnaðarstefnu, að öflugt efnahagslíf þarf til að standa undir vel-
ferðinni. Efnahagskreppan sænska á sér auðvitað margar orsak-
ir, meðal annars fjármagnsflótta til landa Evrópusambandsins.
Ofvöxtur velferðarkerfisins á hér einnig hlut að máli, þó deila
megi um hversu mikinn.
Á móti því verður hinsvegar ekki mælt, að við minnkandi þjóð-
artekjur, atvinnuleysi og fjámiagnsfiótta þarf að laga velferðar-
kerfið að nýjum aðstæðum. Erlend skuldasöfnun sænska ríkis-
ins er slík, að vextir og afborganir munu binda hendur ríkis-
stjóma þar í landi næsta áratuginn hið minnsta.
Hér heima á íslandi hefur langvinn efnahagskreppa og halli á
ríkissjóði leitt til þess, að íslenskir jafnaðarmenn hafa þurft að
taka til hendinni í íjármálum ríkisins. Þetta hefur tekist án þess
að skerða verulega þjónustu og á sumum sviðum hefur þjónust-
an verið stóraukin. Spamaðurinn er verulegur og kostaði mikla
baráttu.
Vegna þessara aðgerða hefur á Alþýðuflokknum dunið dylgjur
um að hann hafi svikið lit, sé ekki raunverulegur jafnaðar-
mannaflokkur, heldur hægri flokkur. Þessi er boðskapur Jó-
hönnu Sigurðardóttur. Hún vill fría sig ábyrgð á erfiðum en
nauðsynlegum aðgerðum í nafni hinnar sönnu jafnaðarstefnu.
Hinir sönnu jafnaðarmenn í Þjóðvaka ættu að líta til Svíþjóðar
og spyrja sjálfa sig nokkurra heiðarlegra spuminga. Er niður-
skurðurinn í Svíþjóð til dæmis merki um að sænski jafnaðar-
mannaflokkurinn sé hægri flokkur eða er aðhaldsstefna hans
nauðsynleg og ábyrg viðbrögð við aðstæðum?
Það segir sína sögu um sænsk stjómmál að þar í landi styður
stjómarandstaðan niðurskurðinn, en hér á landi reynir Jóhanna
Sigurðardóttir að slá sjálfa sig til riddara á kostnað fyrrum fé-
laga sinna.
Sem betur fer er ekki hefð fyrir lýðskmmumm í sænskum
stjómmálum og því geta Svíar tekið á málum af skynsemi. Það
sama verður því miður ekki sagt um stóran hluta íslenskra
stjórrtmála.
Onnur sjónarmið
„Án atbeina Jóns Baldvins við samkomu-
lag um hið evrópska efnahagssvæði væri
það mál ekki orðið að veruleika í algjörri
samstöðu allra flokka. Frammistaða hans
í utanríkismálum hefur verið til sóma. Jón
Baldvin hefur haft hátt og farið geyst -
stundum farið offari. Stíll hans er bein-
skeyttur og ögrandi,“ segir Ellert B.
Schram í forystugrein DV í gær.
Alþýðublaðið gluggar í forystu-
greinar DV og Morgunblaðsins í
gær. Morgunblaðið fjailar um ný-
kjörið Bandaríkjaþing en í DV
skrifar Ellert B. Schram ritstjóri
undir fyrirsögninni Til varnar
Jóni Baldvin.
77/ varnar
Jóni Baldvin
Leiðari DV er á þessa leið, milli-
fyrirsagnir eru Alþýðublaðsins:
„I síðustu viku gerðist það hvort
tveggja að Jón Baldvin Hannibals-
son, utanríkisráðherra og formaður
Alþýðuflokksins, var útnefndur
óvinsælasti stjómmálamaðurinn í
skoðanakönnun DV og svo hitt að
Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrver-
andi þingmaður Framsóknarflokks-
ins, skrifaði lofsamlega grein um Jón
Baldvin.
Þá skal þess getið að enn ein skoð-
anakönnunin sýndi hörmulega stöðu
Alþýðuflokksins undir stjóm þessa
sama Jóns. Fréttir herma að innan-
búðar í Alþýðuflokknum sé nú rætt
um að skipta þurfi um „karlinn í
brúnni".
Allt þetta sýnir að Jón Baldvin
Hannibalsson er umdeildur stjóm-
málamaður. Óvinsældakannanir eru
að vísu þeim annmarka háðar að þar
em andstæðingar viðkomandi stjóm-
málamanna settir í dómarasæti og
þvf smærri sem flokkurinn er því
fleiri verða atkvæðin frá þeim sem
hafa ímugust á foringja litla flokks-
ins. Sjálfsagt er þó að horfast í augu
við þá staðreynd að Jón Baldvin hef-
ur ekki hænt að sér kjósendur í stór-
um stíl og virðist á sama tíma hafa
lag á því að egna aðra upp á móti sér.
Uthlaup Jóhönnu Sigurðardóttur og
fylgisleysi Alþýðuflokksins verður
auðvitað að skrifa að einhverju leyti
á reikning formannsins.
Grein Guðmundar G. Þórarins-
sonar segir um leið að þeir em til
sem kunna að meta Jón Baldvin sem
stjómmálamann og fullyrða má að
núverandi ríkisstjóm væri ekki svip-
ur hjá sjón án hans þátttöku. Hvað
sem líður óvinsældum hefúr Jón
Baldvin verið aðsópsmikill og af-
kastamikill ráðherra og formaður í
sfnum flokki.“
Breytt
ímynd Davíðs
„Hér í leiðara á mánudaginn var
fjallað um breytta ímynd Davíðs
Óddssonar og stjómunaraðferða
hans. Þar er sett fram sú skoðun að
Sjálfstæðisflokkurinn hægi stöðugt á
ferðinni og Davíð formaður líti
fyrsta og fremst á sig sem sáttasemj-
ara til málamiðlana.
Ef þessi kenning er rétt þá má
jafnframt fullyrða að Alþýðuflokk-
urinn og Jón Baldvin hafi tekið að
sér það hlutverk sem ætti öðmm
fremur að vera Sjálfstæðisflokksins.
Þá er átt við ákafa og áhuga varðandi
frjálsræðisbreytingar í peningamál-
um, verslun og viðskiptum, landbún-
aðarmálum og sjávarútvegsmálum. í
öllum þessum málum hefur það
komið í hlut Alþýðuflokksins að
knýja á um breytingar í anda þeirrar
sjálfstæðisstefnu sem lengi var ær og
kýr Sjálfstæðisfiokksins."
Vígamaður
af guðs náð
„Án atbeina Jóns Baldvins við
samkomulag um hið evrópska efna-
hagssvæði væri það mál ekki orðið
að veruleika í algjörri samstöðu allra
flokka. Frammistaða hans í utanrík-
ismálum hefur verið til sóma.
Jón Baldvin hefur haft hátt og far-
ið geyst - stundum farið offari. Stíll
hans er beinskeyttur og ögrandi.
Hann er vígamaður af guðs náð.
Vill íslenska þjóðin ekki slíka
menn? Vill hún meðalmenn og miðj-
umoð? Vilja Islendingar aftur kalla
yfir sig hægfara hagsmunagæslu-
stjóm framsóknarmanna allra
flokka? Sjálfstæðisflokkurinn þarf
að sitja áfram í ríkisstjóm en hann
þarf að hafa með sér menn og flokka
sem vilja annað og meira en „status
quo“. Sérstaklega ef Sjálfstæðis-
flokkurinn heldur áfram að vera
íhaldssamur og landsföðurlegur.
Hér er ekki verið að hvetja fólk til
að kjósa Alþýðuflokkinn. En hér er
verið að taka upp hanskann íyrir
stjómmálamann sem nýtur ekki
sannmælis. Persóna Jóns er of fyrir-
ferðarmikil til að verkin fái að tala.
Það er hans Akkilesarhæll. En það er
líka hans styrkur að því leyti að það
verður enginn stór eða umdeildur í
pólitík nema það sópi að persónu
hans.“
Nýtt
Bandaríkjaþing
í forystugrein Morgunblaðsins
er að finna athyglisverða grein-
ingu á stjórnmálaástandi í Banda-
ríkjunum, nú þegar nýr þing-
meirihluti sest að völdum. Greinin
er á þessa leið, millifyrirsögn er
Alþýðublaðsins:
„Nýr meirihluti tók við völdum á
Bandaríkjaþingi í síðustu viku. I
fyrsta skipti í fjörtíu ár ráða repúblik-
anar ríkjum jafnt í fulltrúa- og öld-
ungadeildinni.
Þetta gerist einungis tveimur ámm
eftir að Bill Clinton tók við sem for-
seti, með það að markmiði að hverfa
frá hinni íhaldssömu stefnu Ronalds
Reagan og George Bush. Honum
hefúr orðið lítið ágengt í að koma
stefnumiðum sínum í framkvæmd
og nú, þegar hann getur ekki lengur
treyst á stuðning þingsins, verður
erfiðara en ella að ná fram stórvægi-
legum breytingum, til dæmis á
bandaríska heilbrigðiskerfinu.
Hinir nýju leiðtogar repúblikana á
þingi, með Georgíuþingmanninn,
Newt Gingrich, í fararbroddi, ætla
sér hins vegar stóra hluti og hafa
heitið að koma stefnuskrá sinni, sem
þeir nefna „Samning við Bandarík-
in“ í framkvæmd á nokkmm mánuð-
um.
Þessar breytingar á valdajafnvæg-
inu í Washington em ekki fyllilega
sambærilegar við þær sem áttu sér
stað er Reagan komst til valda á sín-
um tíma. A þeim tíma hafði um
nokkurt skeið átt sér stað mikil
fræðileg geijun meðal bandarískra
hægrimanna sem braust út með kjöri
hins íhaldssama Reagans."
Hugmyndafræði
Gingrich er
almennings
„Hugmyndafræðin að baki sigri
Gingrich er hins vegar ekki sprottin
upp meðal fræðimanna heldur al-
mennings. Umskiptin endurspegla
öðm fremur megna óánægju með
„valdastéttina"; stjómmálamenn og
Ijölmiðla. Bandaríkjamenn telja
vemleika stjómmálanna í Washing-
ton eiga orðið lítið sameiginlegt með
þeirra daglega lífi.
Margar þær hugmyndir sem settar
em fram í stefnuskrá repúblikana em
líka allrar athygli verðar, ekki síst
þær sem miðast að því að skera nið-
ur og einfalda stjómkerfið.
Það má hins vegar draga í efa að
þær róttæku breytingar, sem nú em
boðaðar, verði að vemleika. Marga
þingmenn repúblikana skortir pólit-
íska reynslu og leiðtogi þeirra hefur
þegar sýnt að hann á auðvelt með að
misstíga sig. Reynslan hefur að auki
sýnt að það er ávallt auðveldara að
lofa niðurskurði en að framkvæma
hana.“
Dagatal 12. janúar
Atburðir dagsins
1268 Gissur jarl safnast til feðra
sinna, ríkastur og valdamestur 13.
aldar höfðingja. 1519 Maximilian I
deyr, konungur Þýskalands og Heil-
aga rómverska keisaradæmisins síð-
an 1493.1830 Friðrik Sigurðsson og
Agnes Magnúsdóttir, sem myrtu
Natan Ketilsson og Pétur Jónsson,
tekin af lífi í Vatnsdalshólum. Þetta
var síðasta aftaka á fslandi. 1940
Einar Benediktsson, skáld ofur-
mennskunnar, deyr; 75 ára að aldri.
Afmælisbörn dagsins
Jack London bandarískur rithöf-
undur sem skrifaði merkar sögur um
átök manns og náttúm, 1876. Her-
mann Goering yfirmaður þýska
flughersins í heimsstríði númer tvö,
1893. Joe Frazier bandarískur
heimsmeistari í hnefaleikum 1970-
75, 1947.
Annálsbrot dagsins
Magnús Hemingsson hálshöggvinn
og árinu eptir heiðarlega grafinn.
Vatnsfjarðarannáll elzti, 1589.
Orð dagsins
Ég hlusta í húmi nœtur.
Ég heyri við yztu höf
skóhljóð dáinna daga,
drauma, sem huldust gröf.
Þórbergur Þórðarson.
Skammtur dagsins
Þegar ég kynntist Einari Benedikts-
syni þama (í Herdísarvík), var hann
farinn að tapa sér bæði andlega og
líkamlega, gamall maður fullur
beiskju gagnvart lífinu og samtíð
sinni, ofdrykkjumaður sem þurfti
sinn daglega skammt af áfengi.
Magnús Á. Ámason; Gamanþættir
af vinum mínum.
Málsháttur dagsins
í hvílu er skást hungur að þola.
Lokaorð dagsins
Það er búið.
Hinstu orð Einars Benediktssonar
skálds, sem dó þennan dag 1940.
Skák dagsins
Staðan í skák dagsins er spennu-
þmngin, þótt hún virðist við fyrstu
sýn harðlæst. Lima hefur hvítt og á
Ieik gegn Da Costa Junior. Lima,
sem er brasilískur alþjóðameislari,
sýnir að hann kann að reikna og bók-
staflega sprengir svörtu stöðuna í loft
upp. Hvað gerir hvítur?
1. c5!! dxc5 2. bxc5 bxc5 3. d6!!
Dxd6 4. Dd5 Hfe7 Eina rétta svarið.
5. Bg5 He6 6. Hxe5!! Dxd5 7.
Bxd5! Da Costa Junior gafst upp. Ef
1. ... Hxe5 mátar hvítur einfaldlega
með biskupi á f6. Glæsilegt!