Alþýðublaðið - 27.01.1995, Page 1
Hörð barátta alþýðubandalagsmanna í Kópavogi og á
Suðurnesjum um 2. sæti á lista flokksins í Reykjanesi
Félagar í Kópavogi vilja
varaþingmanninn burl
Kjörnefndin klofin og formaður hennar hótar afsögn verði Sigríður Jóhannesdóttir áfram
í 2. sæti. Þá munu alþýðubandalagsmenn í Kópavogi ekki taka þátt í kosningabaráttunni.
,,Ég hef enga ústæðu til að ströggla
í nefnd ef ekki er tekið neitt tillit til
minna sjónanniða," sagði Flosi
Eiríksson, formaður kjömefndar Al-
þýðubandalagsins á Reykjanesi, í
samtali við Alþýðublaðið í gær. Kjör-
nefndin er klofin í tvennt í afstöðu
sinni til þess, hver á að skipa 2. sæti á
framboðslista flokksins. Nefndin
fundaði síðast í gærkvöldi, ásamt Ól-
afi Ragnari Grímssyni flokksfor-
manni og efsta manni á lista Alþýðu-
bandalagsins í kjördæminu. Allt útlit
er fyrir að Flosi segi sig úr nefndinni
ef Sigríður Jóhannesdóttir verður
áfram í 2. sæti. Hörð átök eru milli al-
þýðubandalagsmanna í Kópavogi og
á Suðumesjum um 2. sæti listans. Það
setur Ólaf Ragnar Grímsson í mjög
erfiða stöðu, enda unt að ræða nán-
ustu stuðningsmenn hans innan
flokksins. Alþýðubandalagsmenn í
Kópavogi leggja mikla áherslu á að 2.
sætið komi í þeirra hlut, og hafa geng-
ið svo langt að hóta því að taka alls
engin sæti á framboðslistanum verði
Sigríður Jóhannesdóttir áfram í 2.
sæti. Sigríður hefur hinsvegar dijúgan
stuðning flokksmanna á Suðumesj-
um, og lenti þannig í öðm sæti á eftir
Ólafi Ragnari í nýlegri skoðanakönn-
un alþýðubandalagsmanna i' kjör-
dæminu.
Meirihluti kjömefndar er á bandi
Sigríðar en afgreiðslu hefur verið
frestað vegna afdráttarlausra yfirlýs-
inga Kópavogsmanna um að kosn-
ingabaráttan verði þá sniðgengin. „Þá
einbeitum við okkur bara að bæjar-
pólitíkinni næstu mánuði,“ sagði al-
þýðubandalagsmaður í Kópavogi
sem blaðið ræddi við f gær: „Við vilj-
urn ekki sjá Sigríði áfram í 2. sæti.“
Siá baksíðu.
Dagsbrún samþykkir
verkfallsheimild
„Dónaskapur,
ofstæki oq fyrir-
litning hjaVSl"
- segir Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, sem var nánast
rekinn út af samningafundi hjá VSÍ.
Verkamannafélagið Dagsbrún
samþykkti á fundi sfnum í Bíóborg-
inni í gær heimild til verkfallsboðun-
ar. Það var fullt útúr dyrum hjá
Dagsbrtinarmönnum og sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson, formað-
ur Dagsbrúnar í samtali við Alþýöu-
blaðið að þetta hefði verið heitur
fundur. „Stjómin var krítíseruð fyrir
að vera ekki með nógu miklar kröf-
ur, en við fömm fram á 50 þúsund
króna lágmarkslaun. Það þýðir hins-
vegarekki að við viljum hafa menn á
því kaupi,“ sagði Guðmundur.
„Það þýðir ekki að bjóða mönnum
upp á þetta lengur. A meðan þessi
fyrirtæki segjast ckki þola nema
þriggja prósenta launahækkun, þá
keppast þau um að yfirbjóða hvert
annað norður á Akureyri. Ef ntillj-
arðurinn dugar ekki þá er bara að
bjóða 1200 milljónir, 1300 milljón-
ir,“ sagði Guðmundur og vísaði þar
til kapphlaupsins um hlut Akureyrar-
bæjar í Útgerðarfélagi Akureyrar.
Guðmundur sagði, að það hefði
verið fundur með Vinnuveitenda-
sambandinu síðastliðinn föstudag og
á honum hefði bókstaflega allt
sprungið í loft upp. Hann sagðist
aldrei fyrr hafa kynnst öðrum eins
dónaskap, ofstæki og fyrirlitningu.
„Eg bað um að fá að skjóta nokkm
að áður en ég yftrgæfl fundinn en þá
sagði Þórarinn Viðar Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSl, sem svo:
’Nei, nei, farðu bara - það verða all-
ir fegnir þegar þú ferð.’ Við spurðum
líka hvort að formaður Vinnuveit-
endasambandsins ætlaði ekki að láta
sjá sig á fundinum, en þá var okkur
tjáð að hann hefði ekki tíma til að
sitja yfir einstökum félögum.“
Guðmundur sagði að það yrðu
gerðar kröfur á hendur ríkinu þess
efnis að lánskjaravísitalan verði end-
urskoðuð. Hann sagði vægi launa
vera alltof hátt. „Ef laun hækka, þá
hækka skuldir manna. Það að prestar
og hjúkrunarfræðingar hafi fengið
kauphækkanir, þýðir vaxtahækkun á
skuldum verkafólks, þó þeirra laun
hafi staðið í stað. Það er rosaleg heift
í mönnum. Dagsbrún, Hlíf í Hafnar-
Landsfundur Þjóðvaka um helgina. Þar verður lögð
fram stefnuskrá en framboðslistar eru hvergi tilbúnir
//
Kjörnefndin er bara Jóhanna
[Sigurðardóttir]. Við vitum voða-
lega lítið hvað fram fer í hennar
huga,“ sagði félagi í Þjóðvaka um
framboðsmál flokksins við Alþýðu-
blaðið í gær. Landsfundur er um
helgina, og athygli hefur vakið að
ekkert bólar á framboðslistum. A
stofnfundi Þjóðvaka í haust var til-
kynnt að listar yrðu lagðir fram á
landsfundi. Því hefur nú verið frest-
að um óákveðinn tíma. Annar félagi
í Þjóðvaka sagði að ekkert lægi á:
„Athyglin beinist þá bara að Jó-
mál.“
Þorlákur Heigason, einn af
frumkvöðlum Þjóðvaka og náinn
samherji Jóhönnu Sigurðardótturum
margra ára skeið, hefur sagt skilið
við hinn nýja flokk. Hann leitaði eft-
ir því við Alþýðubandalagið að fá 5.
sætið á listanum í Reykjavík. Hon-
um var hinsvegar boðið 10. sætið en
þáði það ekki. Alþýðublaðinu tókst
ekki að ná tali af Þorláki í gær, en
samkvæmt heimildamanni í Þjóð-
vaka var Þorlákur meðal annars
- 50 ár
I dag eru lið-
in fimmtíu ár frá því rússneskar hersveitir héldu innreið sína í Auschwitz.
Þar hjörðu enn um sjö þúsund fangar, mjög aðframkomnir. Heimsbyggð-
in tók ekkert sérstaklega eftir þessum atburði en smátt og smátt spurð-
ist út að þarna hefði líklega verið framið mesta voðaverk tuttugustu ald-
arinnar, kannski allrar mannkynssögunnar, atburður sem seint verður
skilinn til hlítar og aldrei má gleymast. Alþýðublaðið fjallar í dag um Au-
schwitz og þjóðarmorð nasista á gyðingum. Siá miðopnu.
Hallgrímur Helga-
son og Guðmundur
Andri Thorsson
Vikupiltar
Alþýðu-
blaðsins
Alþýðublaðinu er sérstök ánægja að
segja lrá því, að hlaðið hefur fengið til
liðs við sig tvo nýja pistlahöfunda, þá
Hullgrím Helgason og Guðmund
Andra Thorsson. Báðir eru þeir þjóð-
kunnir rithöfundar og í hópi snjöllustu
stflista. Þeir munu skiptast á að skrifa á
föstudögum undir pistlaheitinu Viku-
piltar. Hallgrímur Helgason ríður á
vaðið í dag á blaðsíðu 2
Verkfallsheimild samþykkt
með nær samhljóða handa-
uppréttingu á 800 manna
fundi Dagsbrúnar í gær. A-
mynd: E.ÓI.
firði og Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Keflavíkur halda
fast saman. Þessi félög hafa í
sameiningu lykilinn að öllum
llutningum að og frá landinu,
með flugi Iíka. Það mun draga
til tíðinda á næstu vikum ef
VSl fæst ekki til að ræða mál-
- segir félagi í Þjóðvaka. Óánægja með ólýðræðisleg vinnubrögð. Þorlákur
Helgason, einn nánasti bandamaður Jóhönnu, sagði skilið við Þjóðvaka.
„Kjörnefndin er bara Jóhanna hönnu á meðan, og það er hið besta óánægður með fyrirhugaða til-
hugun við röðun á framboðs-
lista. Fleiri rnunu vera tvístíg-
andi um þessar mundir. Við-
mælandi blaðsins sagði að
nokkur kum væri í mönnum
vegna ólýðræðislegra vinnu-
bragða. „Auðvitað er það bara
Jóhanna og örlítil klíka í kring-
um hana sem öllu ræður þegar
kemur að framboðsmálum.
Hinsvegar hafa margir komið
að stefnumótun í aðdraganda
landsfundarins.“
NYJA FARSIMAKERFIÐ
■
POSTUR
OG SÍMI