Alþýðublaðið - 27.01.1995, Síða 2

Alþýðublaðið - 27.01.1995, Síða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995 MMUBLMIID 20861. tölublað Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566 Útgefandi Alprent Ritstjórar Hrafn Jökulsson SigurðurTómas Björgvinsson Umbrot Gagarín hf. Prentun Oddi hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing Sími 625566 Fax 629244 Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði. Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk Fjandinn og aldursforsetinn Morgunpósturinn hefur undanfamar vikur fjallað ítarlega um þá þingmenn landsbyggðarinnar sem búa í Reykjavík en hafa lögheimili í kjördæmum sínum. Með þessu móti drýgja þingmennimir tekjur sínar um ríflega hundrað þúsund krónur á mánuði. I ljósi spillingar- umræðu síðustu missera er athyglisvert að þingmennimir koma úr Sjálfstæðisflokki, Alþýðubandalagi og Framsóknarflokki - enginn þingmaður Alþýðuflokksins er sakaður um misnotkun á aðstöðu sinni með þessurn hætti. Morgunpósturinn hefur upplýst að Halldór Ásgrímsson formaður Framsóknarflokksins, Guðmundur Bjamason varaformaður Fram- sóknarflokksins, Steingrímur J. Sigfússon varaformaður Alþýðu- bandalagsins og Matthías Bjamason 1. þingmaður Vestfjarða skrá all- ir lögheimili heima í héraði þótt þeir búi í eigin húsnæði í Reykjavík. Halldór Ásgrímsson hefur þannig lögheimili hjá bróður sínum á Höfn í Homafirði og Matthías í húsnæði Vélbátaábyrgðarsjóðs ísfirðinga. í viðtölum Morgunpóstsins við þingmennina viðurkennir auðvitað enginn að þessi háttur sé hafður á til þess að auka launin um ríflega fjórar milljónir á kjörtímabilinu. Það er hinsvegar tómahljóð í öllum réttlætingum þeirra: Halldóri Ásgrímssyni er þannig í mun að geta kosið í eigin kjördæmi. Hann hefur setið á þingi í 20 ár, og því má áætla að það hafi kostað almenning um 20 milljónir að ieyfa Halldóri að kjósa sjálfan sig fyrir austan. Viðbrögð Matthíasar Bjamasonar við spumingum Morgunpóstsins í gær bera vott um talsverða vanstillingu. Hann hellir sér yfir blaðið með óbótaskömmum fyrir að vekja athygli á kerfi sem greinilega er meingallað og býður uppá umræðu um misnotkun og spillingu. Að lokum setur aldursforseti Alþingis fram þá frómu ósk til handa Morg- unpóstinum „að það fari fjandans til sem allra fyrst einsog hin sorp- blöðin.“ Matthías Bjamason hefur verið dugmikill þingmaður, og nýtur virðingar út fyrir raðir sinna flokksmanna. Viðbrögð af þessu tagi em honum ekki samboðin. Morgunpósturinn ber ekki ábyrgð á launakerfi þingmanna, og umfjöllun blaðsins hefur í alla staði verið fagleg og upplýsandi. Geðshræringakast aldursforsetans vekur nokkra furðu - og í öllu falli ætti að halda fjandanum utan við þessa umræðu. Sækir Þjóðvaki um GG? Þjóðvaki heldur landsfund nú um helgina þarsem stefna hins nýja stjómmálaflokks verður kynnt. Það er hinsvegar athyglisvert að fram- boðslistar verða ekki lagðir fram, einsog tilkynnt var á stofnfundi Þjóðvaka fyrir tveimur mánuðum. Engin skýring hefur verið gefin á því, hversvegna framboðslistar verða ekki kynntir en ýmislegt bendir til þess að Jóhönnu Sigurðardóttur og félögum hennar gangi ekki sér- lega vel að manna listana í flestum kjördæmum landsins. Það er svo athyglisvert að meirihluti frambjóðenda Jóhönnu, sem komnir em fram í dagsljósið, em fymim innanbúðarmenn í Alþýðubandalaginu. Svanfríður Jónasdóttir fyrrum varaformaður Alþýðubandalagsins leiðir lista Þjóðvaka í Norðurlandi eystra og Sveinn Allan Morthens fyrrnm miðstjómarmaður Alþýðubandalagsins verður oddviti á Norðurlandi vestra. Og bæði á Suðurlandi og Vesturlandi em fyrmrn stuðningsmenn Alþýðubandalagsins títtnefndir sem efstu menn, Þor- steinn Hjartarson og Runólfur Ágústsson. Þá eru fyrrum alþýðu- bandalagsmenn orðaðir við framboð í Reykjavík og Reykjanesi. Fjendur Alþýðuflokksins glöddust mjög yfir ófömm og klofningi flokksins á síðasta ári. Nú virðist hinsvegar reyndin sú, að Jóhanna Sigurðardóttir höfðar miklu sterkar til alþýðubandalagsmanna; reynd- ar svo mjög, að Þjóðvaki er að fá yfirbragð útibús frá Alþýðubanda- laginu. Það hefðu einu sinni þótt tíðindi að Jóhanna Sigurðardóttir gerðist útibússtjóri Ólafs Ragnars Grímssonar. Tvö vindstig í Kaupmannahöfn Með fimm snjóflóð að baki fjar- lægist ég landið hratt í Flugleiðasæti og fletti blöðum fullum af snjó; frá- sögnum þeirra sem af komust í Súðavík. Flugstjórinn kveður sér hljóðs á þremur tungum og kynnir leiðaráætlun og veður á viðkomu- stað: „Það em tvö vindstig í Kaup- mannahöfn.“ Manni er enn vindur í huga eftir stigahæstu viku síðustu ára. Rok í sálinni og samkennd með þeim sem allt sitt misstu; djúpt í manni er sam- íslensk meðvitund og taugar sem ná allt útá vestfirska landsenda, norðan og sunnan við Djúp. Þegar maður er Islendingur er maður allt landið. Fingur manns liggja ekki á felliborði flugvélar eins og prívat hlutir; þeir em vogskomir firðir, austur og vest- ur. Hugsanir hrannast upp í fannir á meðan hann heldur áfram að snjóa stormi fyrir vestan. Maður stamar ei- lítið þessa daga sem Múlafoss berst við „að halda sjó“ undan Hombjargi. fslendingur er ílendingur. Islendingar er Sílendingur. Hvar sem hann er staddur í heim- inum - undir tiginborinni kristals- krónu eða sólbeygðu pálmatré - er alltaf eitthvað að gerjast í honum, að gerast með honum. Innra með hon- um geysar veðrið heima. Vikupiltar Hallgrímur f!|í f Helgason gf jLJll, J skrifar Sumir fóm fyrir jól, fluttust burt úr landi. Heillum snauðir heims um ból hús þeir byggja á sandi. I útlöndum er ekkert skjól, eilífur stormbeljandi. orti Laxness í blankalogni í San Fransisco ’28. Hann var ekki að yrkja um storm- ana við Friskó-flóa heldur íslenska beljandann í sálinni sem lætur mann ekki í friði fyn' en hann hefur fengið samsvömn heima. Einhver (að lík- indum hefur það verið kollegi minn hér á síðum Alþýðublaðsins, Guð- mundur Andri Thorsson) gaukaði á dögunum að mér þeirri kenningu að íslensk böm væm svo óvær erlendis vegna þess að þau fengju enga sam- svömn við óveðrið í sálinni. Munurinn á okkur og öðmm þjóð- um er helstur sá að við emm óvæntu vanir, við eigunt alltaf von á öllu, allt getur gerst, við kunnum illa við logn og langvinnar blíður. „Það em tvö vindstig í Kaup- mannahöfn“ segir flugstjórinn og þar sem ég sit þarna í sæti 23D, og finn enn fyrir norðanstorminum í bakinu, þá setur að mér einhvem óskiljanleg- an leiða, óslökkvandi depurð. Ég sé fyrir mér þessi tvö litlu sjálensku vindstig sem danska þingið hefur ný- verið samþykkt og taka mið af evr- ópskum staðli; samræmd eigra þau Atburdir dagsins 1822 Grikkir lýsa yfir sjálfstæði í kjölfar stríðs við Tyrki. 1868 Sir Henry Morton Stanley gengur fram á doktor Livingstone djúpt í myrkv- iðum Afríku. 1891 Verslunarmanna- félag Reykjavíkur stofnað. 1943 Bandarískar flugvélar gera loftárásir á Þýskaland í fyrsta sinn. 1973 Víet- namstríðinu Iýkur með undirritun samnings um vopnahlé. Afmælisbörn dagsins Wolfgang Amadeus Mozart aust- urrískt tónskáld, undrabam og snill- ingur, 1756. Vilhjálmur II keisari Þýskalands, barnabam Viktoríu Englandsdrottningar, 1859. John Ogdon breskur píanóleikari af náð, geðklofi batt enda á glæsilegan feril, 1937. Annálsbrot dagsins Reiknast frá heimsins sköpun 5662 ár, frá trúarbragðanna umbreyting um Strik og Torg og reyna að blaka við hári á höfði Dana. Ég er því næstum því feginn að maðurinn á 23E er búinn með þriðja vodkann og vill því allt í einu tala við mig. Hann er utan af landi á leið til Gautaborgar að heimsækja ætlingja sem bíður eftir sænsku hjarta. (Eg kemst að því síðar að flestir landar í vélinni em á leið út eftir sænsku líf- færi, lungurn eða hjarta. Þetta vill gleymast. Víða um landið slá Volvó- hjörtun traust og ömgg.) Við ræðum snjóflóðið í Súðavík og kunninginn rifjar upp nokkrar skemmtilegar aur- skriður fyrir austan og hlær létt í lok hverrar setningar: „Bærinn hreinlega fylltist maður af dmllu og skít..., he, he, he...“ í miðri sögu réttir flugfreyjan hon- um fullan kaupfélags- plastpoka úr hillu með penum fingmm og pjött- uðu augnaráði: „Héma..., viltekki takann? Það er farið að leka úr honum...“ ,JÚ, jú..„ hann er fullur af slátri og súr, eða mysu..., það er það eina sem kallinn getur sett í sig til að ná uppjárninu í sér...“ Það leka nokkrir mysudropar úr pokanum áður en kunninginn smeygir honum niður á gólf og lítur svo á klukkuna. Gautaborgarvélin fer eftir tíu mínútur og við emm enn í loftinu. Hann stendur upp úr sæt- inu, tekur sitt slátur og sinn súr og kveður, er farinn. Hlustarekki á um- kvartanir Ilugfreyja heldur stikar áfram ákveðinn en þó nokkuð reikull í spori. Ég sé á eftir honum út gang- inn: Einhvemveginn svo ósvikinn Is- lendingur, einhvemveginn svo „frjáls og fullvalda" og með húmor fyrir náttúruhamförum. Við lendum á Kastmp í tveimur vindstigum en útum gluggann virð- ast þau þó ekki kröftugri en svo að þau blása hvort úr sinni áttinni og núlla hvort annað út á miðjum Kastr- up-velli. Ég staðfesti lognið við að lokinni lendingu: Hér er allt eins og 178 ár, er pápíska aflagðist, en lútt- erska aptur uppkom, frá vors arfa- kongs Christian 5. fæðingu 50 ár. Eyrarannáll, 1695. Söguskýring dagsins Það er kallað framför, þegar einu goði er steypt af stalli og annað sett í staðinn. Oscar Wildc. Málsháttur dagsins Hvað skal hrosshófur á hörpu- strengjum? Ord dagsins Ég held þann ríða úr hlaði bezt, sem harmar engir svæfa. Hamingjan fylgir honum á hest heldur í tauminn gæfa. Jón Arason. Leikföng dagsins Seinna var mér stundum ekki grun- laust um að fyrirtækin hans væru, í og með, á vissum augnablikum, stór- það er og var áður en ísland byggð- ist. Evrópa er gömul kelling sem síð- ast komst á séns fyrir fimmtíu ámm. Það endaði með skelfingu eins og frægt er orðið og síðan hefur ekkert gerst í hennar lífi, þó hún hafi reynd- ar nýlega farið úr járnpilsinu og það votti fyrir blæðingum í neðri og aust- ari jiörtum hennar. I transittinu á Kastmp-fiugvelli - þar sem þarlent lognið er einkum túlkað í óhagganlegum ljóshærðum túberingum Jesperanna sem vinna á bamum - bíðandi eftir vélinni til Parísar, glugga ég í Le Monde: Um- talaðasta myndlistarsýning í Frakk- landi um þessar mundir er haldin í helli: 15.000 ára gömul og „magnifique“ málverk. Þunglyndið hellist aftur yfir mig, nú úr litlu Álaborgar- staupi við Je- peraðan barinn, og ég hugsa: Auml á sú þjóð að búa við sögu sem jafn- gildir mannkynssögu. A herðurn sín- um ber hún þróun mannsins sem þó er svo lítið vitað um: Þess vegna troða franskir gáfumenn niðurlútir sínar sartraðir. (Athugið, sartröð, komið af Jean Paul Sartre, samanber martröð.): Þrátt fyrir allt er það svo lítið sem þeir vita, en þó er þekking- in yfrið ær, og þung: Þess vegna fá franskir hugsuðir á sig herðakistil með aldrinum. íslendingar eru „frjáls og fullvalda þjóð“ er sagt f hljóðkerfi á Þingvöll- um. Við emm frjálsir undan sögu mannsandans og höfum fullt vald á eigin sögu. í nýliðnum umræðuþætti í ís- lenska ríkissjónvarpinu var fjallað um hlutskipti Islendinga; hvort þeir tilheyrðu Evrópu eða Ameríku. Stjómandinn impraði á athuglis- verðri kenningu um að íslenskt þjóð- félag bæri einkenni landnemaþjóðfé- laga líkt og þeirra amerísku og áströlsku: Ungt dýnamískt fordóma- lítið og ómótað þjóðfélag einstak- lingsframtaks, áhyggjulaust gagn- kostleg leikföng sem hann hafði komið sér upp. Kristján Albertsson um Thor Jensen; Menn og málavextir. Skák dagsins Staðan f skák dagsins er býsna áhugaverð. Liðsafli er jafn og kóng- ar beggja em nánast berskjaldaðir. Stórmeistarinn M. Gurevich stýrði svörtu mönnunum gegn kollega sín- um, Lobron. Með skemmtilegum leik nær svartur í senn að klippa sundur sóknaraðgerðir hvíts og hóta öllu illu. Hvað gerir svartur? vart hefð og þar sem enn er pláss fyr- ir hið óvænta. Lára Margrét Ragnarsdóttir þing- kona var meðal þátttakenda í þættin- um og sagði frá eigin reynslu: Sjálf hafði hún búið á Norðurlöndum og fannst hún ætti að mörgu leyti vel heima þar; kúltúrinn væri sá sami. En síðan hafi hún fiust til Bandaríkj- anna og þá fundist eins og hún væri að koma heim: Þar ríkti santi dýnam- íski vinnuandinn og framtakssemin, einstaklingsfrelsið og bjartsýnin. Af eigin reynslu get ég tekið undir með frænku minni: I Ameríku er ís- lenski vinnu- og reddingarmórallinn margfaldaður með 1000 hestafla vél frá General Motors; þar á maður heima; orkuríkur Islendingur á fieygiferð f framkvæmdum en dálít- ið einfaldur í forhúðarlausri bjartsýni sinni. Möguleikamir heilla. Frelsið. Hefðarleysið. Söguleysið. En Bandaríkjamenn eru ekki þjóð. Engin heild. Þar er ekkert til sem heitir þjóðarsál. I Bandaríkjunum fær maður aldrei þessa evrópsku til- finningu fyrir þjóð. Aðeins einföld- ustu fyrirbæri ná að sameina þetta monster sem USA er: Forsetinn, fán- inn, McDonalds og sameiginlegur gjaldmiðill. Þar er ekkert til sem heitir „okkar maður“. Flóð í Kali- fomíu ná varla inn í fréttatíma í Kon- nettíkött. þar er ekki til nein „þjóð- mcnning" sem gerir evrópskar þjóð- ir að þjóðum og ntaður saknar sem íslendingur búandi í Ameríku. Að hinu leytinu hryllir okkur síð- an við hinu eilífa örófs- logni sem ríkir í Evrópu. Við munum aldrei sætta okkur við þessi tvö vindstig í Kaupmannahöfn. Þess vegna til- heymrn við hvorki Evrópu né Amer- íku. Þess vegna eigum við hvergi heima, nema þar sem fjalldrapinn grær og snjóflóðin (því miður og þrátt fyrir allt og þetta er ekki meint í háði) falla. París, miðvikudaginn 25. janúar, 1995 1. ... RÍ3! Mikið rétt: Riddarinn er friðhelgur einsog lesendur sjá þegar þeir skoða stöðuna. Lobron verður nú að forða drottningunni. 1. ... Dh6+ 2. Ke7 Og hér gafst Lobron upp. Ella hefðin skákin teflst: 3. Rxf3 Dc2+ 4. Kal Dc3+ 5. Kbl Dc3+ eða 3. Hdl Rd2+ Dagatal 27. janúar

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.