Alþýðublaðið - 27.01.1995, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Heimur í hnotskurn
„Enginn fer
með kjaftasögur
um leyndar
dygðir
annarra
manna
- sagði enski heimspekingurinn Bertrand Russell glottandi
um kjaftasögur; viðfangsefni Heims íhnotskurn í dag. „Til er sá
rógburður, sem jafnvel sakleysið kemur engum vörnum við“ er
haft eftir sjálfum Napóleon. „Rógur: Egg hans er hvassari en
sverðsins,1 skrifaði Williíun Shakespeare.
Nokkur orð um kjaftasögur heitir lít-
il og nett spakmælabók eftir Torfa
Jónsson sem Setberg gaf út fyrir
skömmu. Bókin er blanda útlenskt
ættaðra spakmæla sem höfð eru eftir
mönnum á borð við rómverska ljóð-
skáldið Ovid og írska snillinginn
Oscar Wilde og vísukoma af fs-
lenskri gmndu eftir kappa einsog
skáldið Káinn og Jakob Aþanas-
íusson hreppstjóra á Barðaströnd.
Hin alþjóðlega sinnaða ritstjóm Al-
þýðublaðsins fór á sínu vanabundna
hundavaði yfir útlenska hlutann og
valdi athyglisverðustu ummælin til
birtingar. Islendingadeild bókarinn-
ar bíður lesenda í ofvæni.
Ekkert virðist jafn saklaust
og lítilsháttar lausmælgi.
Oscar Wilde
Kjaftakindur og rógberar leggja
eld að öllum húsum sem þau
koma í.
Ókunnur höfundur
Orðrómur: eftirlætisvopn
rógberans.
Ambrose Bierce
Gegn kjaftasögum verður engum
vörnum við komið.
Moliére
Rógurinn á það sameiginlegt með
egginu, að þegar honum hefur
verið ungað út fær hann vængi.
Ókunnur höfundur
Ár renna í eina átt,
söguburður í aðra.
Ökunnur höfundur
Einstaklingur hefur venjulega
ckki hugmynd um hvað sagt er
um hann. Oll borgin getur borið
út slúðursögur um hann, en ef
hann á enga vini fréttir hann
aldrci neitt af þeim.
Honoré de Balzac
Það þarf sameiginlegt átak óvinar
og vinar til að hitta þig í hjarta-
stað, þess fyrrnefnda að bera út
slúðursögur um þig, þess síðar-
nefnda að færa þér fréttirnar.
Mark Twain
Vilt þú spilla orðstír einhvers?
Talaðu þá ekki illa um hann,
hrósaðu honum heldur úr
hófi fram.
André Sigfried
Suniar setningar leysa ekki
eitur sitt úr læðingi fyrr en að
mörguin árum liðnum.
Elias Canetti
Söguburður snertir ekki hina
dauðu, en getur valdið dauða
þeirra sem lifa.
Voltaire
Það er vottur af meinfýsni í fús-
leika okkar að ofmeta fólk - við
erum, að því er virðist, að búa
okkur undir þá ánægju að skera
fólk niður í eðlilega stærð.
Eric Hoffer
Illgirnin er öflugra stækkunar
gler en góðvildin.
George Savile Halifax
Þeir sem sjá aðeins mistök
leita einskis annars.
Thomas Fuller
Öllum er skylt að láta sögu ganga
áfram, betri en þeir heyrðu hana.
Huinphrey Ward
Það er aðeins eitt sem er verra en
að illa sé um mann talað, og það
er, að ekki sé um mann talað.
Oscar Wilde
Margt fólk hyllir svofellda lífs-
reglu: Getir þú ekki sagt neitt gott
um einhvern mann, þá lát oss
heyra það strax.
Ókunnur höfundur
Talaðu ekki um sjálfan þig í
samkvæmi, það verður gert
þegar þú ert farinn.
Addison Mizner
Fólk trúir hverju sem vera skal,
sé því bara hvíslað að því.
Irving Hoffmann
Hve hátt sem rógberinn kemst
vofir sannleikurinn alltaf
yfir honum.
Marokkóskt máltæki
Það er ósiðlegt að fórna orðstír
náunga síns til þess eins að vera
skemmtilegur.
Irma Gram
Það má þekkja mann betur á því
sem hann segir um aðra, en því
sem aðrir segja um hann.
Leo Aikman
Það sem fólk segir um þig á bak
er staða þín í þjóðfélaginu.
Edgar Watson Howe
Það eru til konur sem eru næstum
því jafn eins miklar kjaftakerling-
ar og karlmenn.
Ókunnur höfundur
Að reyna þagga niður í slúður-
sögu er jafn erfitt og að stöðva
hljóm bjöllunnar, þegar henni
hefur verið hringt.
Shana Alexander
Besta ráðið við rógi er að þegja
og gera skyldu sína.
George Washington
Karlmaður rægir óvini sina, kona
rægir vinkonur sínar.
Ókunnur höfundur
Þegar slúðursögur verða gamlar
breytast þær í goðsögn.
Stanislaw J. Lec
Slúður er það, þegar maður heyr-
ir eitthvað sem manni fellur vel
um einhvern sem manni fellur
ekki við.
Earl Wilson
Kjaftakerling segir aldrei ósatt -
geti sannleikurinn valdið
jafnmiklu tjóni.
Ókunnur höfundur.
Munurinn á fréttum og sögusögn-
um flest í því hvort þú segir þær
eða heyrir þær.
Ókunnur höfundur
Slúðri má líkja við broddflugu,
getir þú ekki drepið það í fyrsta
höggi er betra að berja ekki neitt.
Josh Billings
Söguburður er hefnd hugleysingj-
ans og yfirdrepsskapur vörn
hans.
Samucl Johnson
Orðrómur: fréttaþjónusta
hinna minni máttar.
C.W. Cerant
Okkur ber að afvopna baktal og
hæðni með því að ljá því ekki
eyra. Því má líkja við neista frá
stóru báii, sem kulnar sé ekki
blásið í glæðurnar.
Fontenelle
Óvægin kjaftasaga rennur á hjól-
um, og hver hönd er uppi til að
smyrja hjólin meðan þau snúast.
Ouida
Rógberinn gerir út af við heiðar-
legt fólk með hvísli.
Walter Scott
Rógburður er söluvara kjafta-
kindarinnar, að Ijá henni eyra er
að veita henni stuðning.
Ókunnur höfundur
Rógburður er undarlcgur löstur,
sé reynt að berja hann niður lifir
hann góðu lífi, en sé hann látinn
afskiptalaus deyr hann af sjálfu
sér.
Thomas Paine
Rógburður, sú ósvífna
afturganga, sest á grafir
hinna göfugustu.
Heine
Rógurinn myndi fljótlega hjaðna
veitti enginn honum húsaskjól.
Ókunnur höfundur
Sá sem flytur þér fréttir af öðrum
flytur öðrum fréttir af þér.
Ókunnur höfundur
Sá sem af trúgirni Ijær rógi eyra
er annaðhvort siðlaus maður eða
hefur ekki meiri skilning eða
vit en barn.
Menander
Sá sem reiðist söguburði um
sjálfan sig staðfestir hann á
vissan hátt.
Ben Johnson
Sumt fólk segir ýmislegt ljótt um
okkur, ekki fyrst og fremst vegna
þess sem það veit um okkur,
heldur vegna þess sem við
vitum um það.
Ókunnur höfundur
Söguburður: ég get ekki sagt
hvort satt það er/ég segi það eins
og það sagt var mér.
Walter Scott
Rógurinn er að því leyti frábrugð-
inn annarri rangsleitni, að sá sem
kemur honum af stað á þess
aldrei kost að bæta fyrir það tjón
sem hann hefur vaidið.
Samuel Johnson
Söguburður er löstur sem slær á
báða bóga, bæði þann sem veldur
honum, sem og þann sem fyrir
honum verður.
Ókunnur höfundur
Söguburður er sú list að segja
ekkert, á þann hátt að í rauninni
sé ekkert ósagt.
Walter Winchell
Söguburður er viðurkenning á
illgirni og eigin vanmætti.
J.G. Holland
Söguburður gerir manninn illan,
hann er böðull hins saklausa.
Jeremy Taylor
Sögusmetta: atvinnuíþrótta-
maður í lausmælgi.
Aldous Huxley
Það er ekki hægt að ráða við róg-
tungur mannanna, en ef við lifum
gctum við fyrirlitið þær.
Goethe
Rógberarnir þrífast á meðan ein-
hver fæst til að ljá þeim eyra.
Ókunnur höfundur
Við erum alltaf reiðubúin að
trúa hneykslissögum.
Ovid
Það er ekki smánarlegra að
ráðast með vopnum að manni,
sem á þess engan kost að verja
sig, en að tala illa um þann sem
er ekki viðstaddur.
Ókunnur höfundur
Það sama gildir um orðróm og
ávísun, hvorugt má árita, nema
öruggt sé að innistæða sé
fyrir hendi.
Ókunnur höfundur
Þótt þú sért hreinn sem ís og hvít-
ur sem mjöll veitir rógburðurinn
þér enga undankomuleið.
Shakespeare
Ekkert er jafn fljótvirkt og rógur-
inn, engu er eins auðvclt að koma
á framfæri, engu jafn fúslega tek-
ið og engu jafn greiðlega dreift.
Cicero
Hneyksli er ávallt leiðari
gangandi dagblaðs.
Ókunnur höfundur
Talaðu um aðra og þú ert kjafta-
kind, talaðu um sjálfan þig og þú
ert öllum til ama.
Okunnur höfundur
Launmorðingi og rógberi eru
tveir angar af sömu grein, sá fyrr-
nefndi notar byssu, sá síðarnefndi
hvíslar í skúmaskotum.
Louis Nizer
Ef við slepptum hneykslum, sögu-
burði, hversdagslegum hlutum og
heimskulegri sjálfsánægju úr
samræðunni - hvílík þögn.
M. de Bachi
Munurinn á frétt og slúðursögu
felst í því hvort þú hækkar eða
lækkar röddina.
Ókunnur höfundur
Flestum blöskrar hreinskilni,
fáum yfirdrepsskapur.
Laurence Olivier
Ýkjur: starfsaðferð lygarans.
Baltasar Gracian
Ef einhver gæfi þér krónu fyrir
hvert vingjarnlegt orð, sem þú
hefur sagt um meðbræður þína,
og krefði þig um fimmtíu aura
fyrir hvert óvingjarnlegt orð,
hvort værir þú þá heldur ríkur
eða fátækur?
Ókunnur höfundur
Saga, sem einn kemur af stað,
mun aukast stórlega í meðförum
annarra.
Jonathan Swift
Ég hata þann mann sem aflar sér
frægðar með því að leggja orðstír
annars í rúst.
John Gay
Ekkert er eins hvimleitt og sannar
Gróusögur í blöðum.
Ókunnur höfundur
Enginn þykist hafa áhuga á
slúðursögum - samt virðast
allir njóta þeirra.
Joseph Conrad
Lygin er snör í snúningum, en
sannleikurinn er þrautseigur.
Ókunnur höfundur
Varaðu þig á manninum sem
segir þér sögur.
Ókunnur höfundur
Heiðarlegir menn ljá ekki róg-
burði eyra, hinir lítilmótlegu einir
trúa því sem rógberinn lætur
út úr sér.
Ókunnur höfundur
Sé rógburður í slöngulíki, þá er
hann fleygur - flýgur jafn auð-
veldlega og hann skriður.
Douglas Jerrold
Sár eftir hnífsstungu getur gróið
en sár vegna söguburðar ekki.
Tyrkneskt máltæki
Almenningur trúir hverju sem er
- nema sannleikanum.
Edith Sitwell
Syndin á sér mörg verkfæri, en
lygin er handfangið á þeim öllum.
O.W. Holmes
Sannleikurinn gerir engum mein
- nema hann eigi að gera það.
B.C. Forbes
Tortryggnin heldur að sannleik-
urinn sé lygi, trúgirnin heldur að
lygin sé sannleikur.
Ókunnur höfundur
Mesti lygari hcimsins heitir:
„Fólk segir“.
Douglas Mallock