Alþýðublaðið - 15.02.1995, Side 1
Miðvikudagur 15. febrúar 1995
Stofnað 1919
26. tölublað - 76. árgangur
Mjög dregur úr
atvinnuleysi
Atvinnuleysisdagar í janúar síð-
astliðnum jafngilda því að 8.630
manns hafi að meðaltali verið á at-
vinnuleysisskrá í mánuðinum. Þetta
eru um 885 færri en í janúar í fyrra.
Atvinnuleysið er nú minna en í
janúar í fyrra á öllum atvinnusvæð-
um nema á Vestfjörðum og höfuð-
borgarsvæðinu.
Tölur urn skráð atvinnuleysi í
janúar jafngilda 6,8% af áætluðúm
mannafla á vinnumarkaði. Sam-
kvæmt upplýsingum Vinnumála-
skrifstofu félagsmálaráðuneytisins
fjölgaði atvinnulausum í heild að
meðaltali um 20,4% frá desember-
mánuði en fækkar hins vegar um
9,3% frá janúar í fyrra. Undanfarin
10 ár hefur atvinnuleysi ávallt auk-
ist milli desember og janúar eða að
meðaltali um 30% rnilli þessara
mánaða.
Búast má við að atvinnuleysið
minnki talsvert nú í febrúarmánuði,
einkum á landsbyggðinni, og geti
orðið á bilinu 5% til 5,4% í mánuð-
inum.
Framhaldsskólanemendur
meðtaka boðskapinn
Alþingiskosningum fylgir vitaskuld aukinn áhugi al-
mennings á stjórnmálum. Sá þjóðfélagshópur sem
einna best tekur við sér er þó sennilega við nám í
framhaidsskólum landsins; enda mikið um nýja kjós-
endur á þeim slóðum - og stjórnmálaflokkarnir kepp-
ast við að reyna vinna hylli þeirra. Nemendafélög
framhaldsskólanna hafa verið iðin við að boða til sín
forystumenn stjórnmálaflokkanna á umræðufundi undanfarið og einn slíkur fór fram í Menntaskólanum
við Sund í gærdag. Húsfyllir var og meðtóku MS-ingar boðskap Jóns Baldvins Hannibalssonar, Friðriks
Sophussonar, Kristínar Ástgeirsdóttur, Svavars Gestssonar og Finns Ingólfssonar með forvitni. Ágætur
Langstærsti
bókamarkaðurinn
„Árlegur bókamarkaður Félags ís-
lenskra bókaútgefenda hefst á morg-
un í Framtíðarhúsinu við Faxafen.
Markaðurinn hefur mikla þýðingu
fyrir okkur útgefendur því þar er
dregið saman á einn stað allur sá
gríðarlegi fjöldi titla sem við eigum á
lager. Það er ljóst að engin ein bóka-
verslun hefur möguleika á að bjóða
uppá það sem við erum þama með.
Við erum að tala um þúsundir titla
og frábært tækifæri gefst til að eign-
ast góðar bækur á góðu verði,“ sagði
Jóhann Páll Valdimarsson, frarn-
kvæmdastjóri Forlagsins í samtali
við Alþýðublaðið í gær. Markaður-
inn stendur til 8. mars. Útgefendur
tóku í ár upp samstarf við Eymunds-
son hf. sem annast markaðinn nú.
Alþýðuflokkurinn
Framboðslistinn
á Suðurlandi
Á fundi kjördæmisráðs Al-
þýOuflokksins á Suóuriandi sem
haldinn var á Selfossi fyrir stuttu
var framboðslisti flokksins
vcgna alþingiskosniiy>annu end-
anlega ákveðinn. „Eg er mjög
ánægður með listann, og tel að
Alþýðuflokkurinn eigi góða
möguleika á að vinna þingsæti á
Suðurlandi. Undirtektir hafa
Iíka aukið mér bjartsýni,” sagði
Lúðvtk Bergviasson, oddviti
listans í gær.
Listinn cr þannig skipaður:
1. Lúðvík Bergvinsson,
Vestmannaeyjum
2. Hrafn Jiikulsson,
Eyrarbakka
3. Tryggvi Skjaldarson,
Þykkvabæ
4. Katrín Bjarnadóttir,
Selfossi
5. Jóhann Tr. Sigurðsson,
Hveragerði
Lúðvík Berg-
vinsson: Skipar
1. sæti.
Hrafn Jökuls-
son: Skipar 2.
sæti.
6. Sigþóra Guðmundsdóttir,
Vestmannaeyjum
7. Bcrgsteinn Einarsson,
Selfossi
8. Sólveig Adólfsdóttir.
Vestmannaeyjum
9. Guðlaugur Tr. Karlsson,
Reykjavík
10. Erlingur Ævar Jónsson,
Þorlákshiifn
11. Árni Gunnarsson,
Hveragerði
12. Magnús H. Magnússon,
Rcykjavík
Jónas Sen mælir
með La Traviata
„Það er synd hve húsakynni Is-
lensku ópemnnar em slæm. Hljóm-
burðurinn er
afleitur, því
endurómurinn
er nánast eng-
inn. í þokka-
bót er sviðið
allt of lítið,
sem gerir það
að verkum að
íburðarmiklar
ópemr eins og
La Traviata
eftir Verdi fá
ekki að njóta
sín sem
skyldi. Sömu-
leiðis er
hljómsveitar- Verdi: Fín sýning í
gryfjan á Óperunni.
stærð við fataskáp og þar rúmast allt
of fáir hljóðfæraleikarar.. .Ég get
ekki annað en mælt með þessari sýn-
ingu. Þegar á heildina er litið er hún
góð...Flestir virtust samt hafa
skemmt sér konunglega, fagnaðar-
lætin vom gífurleg, og stóð fólk sér-
staklega upp fyrir Sigrúnu Hjálm-
týsdóttur."
Sjá tónlistarskrif
á blaðsíðu 6.
Björn Bjarnason formaður utanríkismálanefndar Alþingis
Alþýðubandalagið
fast í kalda stríðinu
Vantar viðhlítandi skýringar á því afhverju skjöl um
Svavar Gestsson voru fjarlægð úr hirslum Stasi.
Björn Bjarnason: Ef það er einhver
flokkur á Alþingi sem er fastur í
fjötrum kalda stríðsins, þá er það
Alþýðubandalagið.
„Ef það er einhver llokkur á Al-
þingi sem er fastur í íjötmm kalda
stríðsins, að því er stefnu og skoðan-
ir varðar, þá er það Alþýðubandalag-
ið,“ sagði Björn Bjarnason, for-
maður utanríkismálanefndar Alþing-
is, í viðtali við Alþýðublaðið í tilefni
harkalegra deilna síðustu vikuna um
tengsl Alþýðubandalagsins við
kommúnísk einræðisríki Austur-
Evrópu og pólitíska fortíð einstakra
forystuntanna flokksins.
Bjöm vék að málinu í ræðu sinni á
Alþingi urn skýrslu utanríkisráð-
herra á Fimmtudaginn. Málflutning-
ur Bjöms vakti mjög hörð viðbrögð
„Kom mér þægilega á óvart að
Svavar hefði verið pólitiskur flótta-
maður í öll þessi ár," segir Björn
Bjarnason um Svavar Gestsson.
forystumanna Alþýðubandalagsins,
og sagði Ólafur Ragnar Grímsson
að ræðan hefði verið til marks um
„sjúklegt hugarfar". Um þetta segir
Bjöm: „Ólafur Ragnar er því marki
brenndur í svona umræðum, að hann
fer æði oft yflr strikið. Það hefur
gerst nokkmm sinnum þegar ég hef
fylgst með honum í sölum Alþingis,
að hann hefur gengið of langt. Ég tel,
að þegar menn ganga of langt í yftr-
lýsingum og óvirðingarorðum um
andstæðingana, sé það ekki lil rnarks
um góðan málstað. Það kom mér
ekki á óvart að Ólafur Ragnar færi að
hnýta í mig ónotum."
„Ólafur Ragnar er því marki brennd-
ur í svona umræðum, að hann fer
æði oft yfir strikið," segir Björn um
formann Alþýðubandalagsins.
Aðspurður hvort hann teldi að
komið hefðu fram viðhlítandi skýr-
ingar á því hversvegna skjöl um
Svavar Gestsson vom fjarlægð úr
hirslum Stasi, hinnar illræmdu aust-
ur-þýsku leyniþjónustu, sagði Bjöm:
„Nei. Sé þetta rétt, sem fram kom í
sjónvarpsþættinum, að skjölin haft
verið fjarlægð og þeim eytt sunnu-
daginn 25. júní 1989, þá er málið
þannig vaxið að mér finnst ekki
komnar fram viðhlítandi skýringar á
því.“
Sjá ítarlegt viðtal
við Björn á blaðsíðu 5.
Suðurnesjamenn yfirgefa Þjóðvaka
ff
Jóhanna er fangi sægreifans
MÆ
segir Hilmar Jónsson í Keflavík og segir mikla óánægju með „ofríki Ágústs Einarssonar.”
„Ég er búinn að alveg nóg af þessu
og get ckki séð að við þessir grasrót-
armenn sem styðjum jafnaðar-
mennsku eigum neitt erindi lengur í
Þjóðvaka. Mér finnst það mikil
harmsaga fýrir Jóhönnu Sigurðar-
dóttur að hafa lent í þessum hremm-
ingum. Jóhanna er fangi sægreif-
ans,“ sagði Hilmar Jónsson. bóka-
vörður í Keflavík, í viðtali við Al-
þýðublaðið í gær.
Hilmar hefur sagt skilið við Þjóð-
vaka ásamt Kristjáni Péturssyni og
íjölda annarra af Suðurnesjum.
Ástæðan er að sögn Hilmars einkum
óánægja með ofríki Ágústs Einars-
sonar varðandi sjávarútvegsstefnu
Þjóðvaka og framkomu hans við
ákvörðun um hverjir skipa efstu sæt-
in á framboðslista hreyfingarinnar í
Reykjaneskjördæmi.
Hilmar sagðist á sfðustu stundu
hafa fengið fregnir at' fundi sem var
að hefjast sfðasta laugardag til að
ákveða framboðslista Þjóðvaka í
kjördæminu. Hann hafi fiýtt sér á
fundinn og kom þá í ljós að Ágúst
Einarsson var fúndarstjóri og for-
maður uppstillingamefndar. Fyrir lá
tillaga urn að Ágúst skipaði efsta
sætið og í næstu sætum yrðu Lilja
Guðmundsdóttir, Guðmundur
Ólafsson og Jörundur Guðmunds-
son. Kristján Pétursson fiutti tillögu
um að listinn yrði settur í biðstöðu í
nokkra daga meðan verið væri að
ræða þessi drög að uppstillingu.
Þeirri tillögu var hafnað og Ágúst
kosinn í fyrsta sæti með 12 atkvæð-
um. Daginn eftir ákvað Hilmar að
hætta þátttöku í Þjóðvaka.
Sjá viðtal við Hilmar á baksíðu.
Hilmar: Ég er búinn að alveg nóg
af þessu og get ekki séð að við
þessir grasrótarmenn sem styðj-
um jafnaðarmennsku eigum neitt
erindi lengur í Þjóðvaka.
rómur var gerður að máli stjórnmálamannanna, tvennum sögum fór af hverjum mæltist best... A-mynd:E.ói.