Alþýðublaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 3
h
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐH)
3
Láttu engan segja
Hún var athyglisverð fréttin sem
birtist á forsíðu Morgunblaðsins í
gær. Hún var um það að norskir
kaupmenn óttast nú hrun í norskri
verslun vegna þess að Norðmenn
streyma þess dagana yfir landamær-
in í verslunarleiðangra til nágranna-
ríkisins Svíþjóð-
“m “ a! Pallborðið
Evrópusamband-
inu. Þar eru nú
allar lífsnauð-
synjar margfalt
ódýrari en í Nor-
egi. Eins og
kunnugt er kaus
norska þjóðin
þetta yfir sig með
því að hafna aðild að þessu sama
sambandi. Nú upplifa norskir kaup-
menn afleiðingar þess.
Þeir tímar ættu að vera liðnir þar
sem hægt er að loka þjóðir innan
landamæra og pína þær með öllum
tiltækum ráðum til að halda á floti
gæluverkefnum ráðamanna í hverju
landi fyrir sig, en því miður. Norska
þjóðin getur að vísu kennt sjálfri sér
um en ekki ráðamönnum sfnum sem
börðust með oddi og egg fyrir bættri
stöðu Noregs í samfélagi þjóða og
fyrir hagsbótum norskum ríkisborg-
urum til handa, en til einskis. Þjóð-
remban og hræðsluáróðurinn hafði
þar vinninginn.
Innan landamæranna
Annað kaldhæðnislegt atvik er för
Þorsteins Pálssonar á fund norrænna
dómsmálaráðherra í Osló á dögun-
um. Þar átti að ræða um vegabréfs-
áritanir innan Norðurlandanna, en
þær hafa sem kunnugt er verið óþarf-
ar í áratugi sökum náins samstarfs
Norðurlandanna á þessum vettvangi.
Nú er komin upp sú skondna staða
að það gengur ekki lengur. Ekki, þar
eð þrjú af fimm fullvalda Norður-
löndum eru innan Evrópusambands-
ins. Þessu vilja ríkisstjómir landanna
ekki una og munu því sækja það á
skrifar
vettvangi Evrópusambandsins að
Norðmenn og Islendingar fái að
gegna landamæragæslu á ytri landa-
mæmm þess. Það er að segja að
löndin verði bókstaflega innan
landamæra Evrópusambandsins.
Svona uppákomur munu halda
■“■■■““■“■■ áfram að verða.
Smátt og smátt
verður aukaaðild
okkar að Evrópu-
sambandinu orðin
slík og þvflfk að
við verðum þar
Magnús Árni
Magnússon
inni að öllu öðm
leiti
()á
en
formlega
og Halldór
--------------- Blöndal mun sjá
um að matarútgjöld heimilanna
lækki ekki). Það þýðir að við verðum
að taka við því sem frá sambandinu
kemur til að geta notið góðs af auka-
aðild okkar, en megum ekki sitja við
þau fundarborð þar sem allar ákvarð-
animar eru teknar.
Hér á íslandi gelum við ekki kennt
okkur sjálfum um þetta áhrifaleysi
okkar. Hér á Islandi höfum við, íbú-
ar landsins ekki fengið að koma af
stað vitrænni umræðu um hvort að
við viljum vera innan Evrópusam-
bandsins eður ei. Hér á Islandi er í
gangi samstaða allra stjómmálaafla
nema jafnaðarmanna um að láta fs-
lensku þjóðina ekki koma að þessu
máli. Það hlýtur að vera vegna þess
að þessir ráðamenn treysta því ekki
að þjóðin taki ákvörðun sem líkar
við, öfugt við norsku ríkisstjómina
sem leyfði kjósendum að taka um
þetta ákvörðun, því það em jú kjós-
endur sem sitja í súpunni ef rangar
ákvarðanir em teknar.
1999
Davíð Oddsson segir sífellt að
„málið sé ekki á dagskrá." Honum
verður einnig tfðrætt um ríkjaráð-
stefnuna 1996 og að það verði engin
lönd tekin inn í sambandið fyrir
hana. En 1996 er nú einu sinni bara á
þér annað
m jaj|jg' *
„Davíð Oddsson segir sífellt að „málið sé ekki á dagskrá.“
Honum verður einnig tíðrætt um ríkjaráðstefnuna 1996 og að
það verði engin lönd tekin inn í sambandið fyrir hana. En 1996
er nú einu sinni bara á næsta ári. Ætlar þessi maður svo ítrekað
að halda því fram að málið verði ekki á dagskrá á næsta kjör-
tímabili? Kjörtímabilið er fjögur ár, því lýkur árið 1999. Verða
Evrópumálin kannski ekki enn komin á dagskrá árið 1999? Get-
ur einhver heilvita maður haldið því fram?“
næsta ári. Ætlar þessi maður svo ít-
rekað að halda því fram að málið
verði ekki á dagskrá á næsta kjör-
tímabili? Kjörtímabilið er fjögur ár,
því lýkur árið 1999. Verða Evrópu-
málin kannski ekki enn komin á dag-
skrá árið 1999? Getur einhver heil-
vita maður haldið því ffam? Eigum
við kjósendur þá ekki heimtingu á að
þekkja afstöðu þeirra stjómmála-
flokka sem við erum að kjósa yfir
okkur til næstu fjögurra ára?
Að sjálfsögðu. Við jafnaðannenn
höfum tekið af skarið. Við leggjum
til að ísland sæki um aðild að Evr-
ópusambandinu hið fyrsta. Við höf-
um jafnframt tekið þá pólitísku af-
stöðu að við teljum hagsmunum
þjóðarinnar best borgið þar sem hún
getur haft áhrif á framtíð sína, á um-
hverfi sitt. Framtíð okkar 260.000
manna sem hér búum mótast stór-
kostlega af okkar nánasta umhverfi.
Engir em eins háðir viðskiptum og
góðum samskiptum við umheiminn
og fámennar þjóðir, litlir heima-
markaðir. Okkar nánasta umhverfi er
Evrópusambandið. Til þess að hafa
áhrif á það þá þurfum við að vera að-
ilar að því. Ég hef það mikla trú á
okkur Islendingum að við gælum
haft þar inni þau áhrif sem við vilj-
um. Góður Islendingur, láttu engan
úrtölumanninn segja þér annað.
Höfundur er heimspekinemi og situr
í framkvæmdastjórn Alþýðuflokksins.
Eiturnaglar
dagsins
Inná ritstjórn Alþýðublaðsins
barst fyrir stuttu pakki af sígar-
ettutegundinni „Tvöföld ham-
ingja“ -
eða
„Double
Happi-
ness“ -
sem
fram-
leidd er í
Sjang-
hæ- síg-
arettu-
verk-
smiðj-
unni í
Kína. Ávallt uppátækjasamir
tóku nokkrir syndugir ritstjórnar-
menn sig til að reyndu eitrið: það
bragðaðist ágætlega og þrátt fyr-
ir að rífa ekkert í hálsinn á niður-
leið í lungu, tók það hressilega í
góminn á leiðinni aftur útí and-
rúmsloftið - eftirbragðið var þó
aðeins rétt svo bærilegt. Á skal-
anum 1 til 10 fær Tvöföld Ham-
ingja 4...
Miklar umræður hafa
orðið um framgöngu
fjölmiðla í kjölfar harm-
leiksins í Súðavík. I nýlegu
tölublaði Vest-
firska frétta-
blaðsins kom
fram óvenju
harkaleg
gagnrýni á
fréttastofu
Ríkissjón-
varpsins. Blaðið
segir: „Tökulið frá
Ríkissjónvarpinu undir for-
ystu Sigrúnar Stefánsdótt-
ur ruddist í síðustu viku inní
bráðabirgðahúsakynni
Grunnskóla Súðavíkur, þar-
sem skólahald stóð yfir, án
þess að leita leyfis eða hafa
samráð við nokkum mann,
og tók þar til við að mynda
bömin og starfsfólkið."
Þetta var fyrsta skóladaginn
eftir slysið og Vestfirska
segir „innrásina" hafa skap-
að usla um umrót. Af þessu
tilefni hafi fræðsluyfirvöld
sent „kurteislegt kvörtunar-
bréf ‘ til Boga Ágústssonar
fréttastjóra. Blaðið bætir þvf
svo við að ýmsum hafi þótt
nóg um „aðgangshörku og
veiðigleði fjölmiðla á síð-
ustu vikum eftir hörm-
ungamar í Súðavík, en
í þeim efhum hafa þó
engir komist með
tæmar þarsem frétta-
stofa Ríkissjónvarps-
ins hefur hælana." Bogi
og Sigrún svara bæði fyr-
ir sig fullum hálsi í nýju
tölublaði Vestfirska frétta-
blaðsins, og þar kemur með-
al annars fram að kennari í
skólanum vissi af fyrirhug-
uðum myndatökum. Boga
finnst að vonum sárt að sitja
undir ásökunum um að
fréttastofa hans hafi sýnt
mesta „veiðigleði" í frá-
sögnum frá Súðavík og
krefst þess að Hlynur Þór
Magnússon ritstjóri biðjist
afsökunar. Ekkert bólar
hinsvegar á slíkri afsökunar-
beiðni...
Nú er Eggert Ilaukdal
loksins búinn að birta
listann sinn í Suður-
landi. Þarmeð er
morgunljóst að 3.
maður á lista
Sjálfstæðis-
fiokksins, Drífa
Hjartardóttir á
Keldum, er kol-
fallin. Það hefur
vakið athygli að
Davíð Oddsson flokks-
fomiaður hefur ekkert gert
til að fá Eggert ofan af sér-
framboði - enda mun þing-
mannstapið
skrifast á
reikning
Þorsteins
Pálsson-
ar. Davíð j
er þannig
að fórna
peði til að
sauma að
Þorsteini, enda
hafa þeir verið litlir vinir
síðustu fjögur ár...
Hinumegin
"Farside” eftir
Um leið og Ágúst Guðbjartsson, verkstjóri frá Eskifirði,
kom inní rjóðrið og uppgötvaði fund Loch Ness skrýmslis-
ins, Stórfóts og Gro Harlem Brundtland gerðist það
óvænta: myndavélin stóð á sér.
Fimm á förnum vegi Hver er í1. sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík? ctóttSVar:Fmnurmgóifsson)
Stefán Jóhannsson, nemi: Ég er
búinn að gleyma því.
Sigurður Þormar, nemi: Ég bara
veit það ekki.
Bragi Ingvarsson, atvinnulaus:
Það er hann Finnur Ingólfsson.
Sigríður Jónsdóttir, nemi: Ég
man það ekki.
Pétur Guðjónsson, matreiðslu-
maður: Ekki spyija mig um pólitík.
Viti menn
Mér líður bærilega enda hef
ég nóg að gera. Skrifborðið
mitt er löðrandi. Áðuren ég
fer heim og held uppá afmælið
ætla ég að leiðrétta stflabunka
og kenna tvo tírna.
Guðni rektor Guðmundsson, sem
varð sjötugur í gær í samtali við DV.
Hæð yfir Grænlandi en
lægð yfir leiklistardeild
Ríkisútvarpsins.
Fyrirsögn greinar Halidórs
Þorsteinssonar fyrrum
leiklistargagnrýnanda þarsem
hann tekur Rikisútvarpið
í bakariið.
Er þó til dæmis Alþýðuflokk-
urinn með aðra stefnu í
Evrópumálum, sjávarútvegs-
málum og landbúnaðarmálum
en til dæmis Alþýðu-
bandalagið. Þetta hindrar
formann félags sjúkraliða
ekki í að fliuga hvort hún
eigi að velja framboð á
vegum þessa flokksins
eða hins.
Úr leiðara Jónasar Kristjánssonar
í DV í gær.
Múslimar svelta í Bihac.
Fyrirsögn í Mogganum í gær.
Sex hljóta dauðadóm vegna
strangra viðurlaga við guðlasti
í Pakistan: Unglingur
dæmdur til dauða.
Fyrirsögn í Mogganum í gær. 14 ára
kristinn piltur var dæmdur til dauða
fyrir niðrandi veggjakrot um
Múhameð spámann.
Útspil Jóns Baldvins
Hannibalssonar um aðildar-
umsókn [að ESB] er ekki út
í bláinn. Með því er hann að
reyna að vinna atkvæði frá
Sjálfstæðisflokknum. Ekki
skal neinu spáð um árangur
af því, en hinsvegar getur
einmitt þetta útspil verið sú
taug sem heldur núverandi
stjórnarsamstarfl saman eftir
kosningar.
Leiðari Tímans í gær.
Veröld ísaks
Samfélagið í hinni stórkostlegu
ítölsku borg, Feneyjum, gekk gjör-
samlega - svo effir var tekið um víða
veröld - af göflunum á átjándu öld.
Leikir af ýmsum toga - hvattir áfram
af ótrúlega háum veðmálum - voru í
gangi allan sólarliringinn og eitt fag-
urt kvöld árið 1762 lagði ábótinn
Grioni til dæntis allan sinn klæðnað
undir og sneri aftur tii klausturs síns
allsnakinn. Nunnur borgarinnar og
nálægra klaustra skreyttu sig enn-
fremur gulli og gimsteinum, styttu
kufla sína uppundir hné og stóðu í
biðröð eftir að verða ástmeyjar
klerka sent sóttu borgina í stríðum
straunú til að verða ekki af fjörinu. Á
þessunt tíma var það einnig talin hin
mesta hneysa ef virðulegar eiginkon-
ur ráðamanna áttu sér ekki elskhuga,
og frekar þá tvo eða þijá en einn. Það
var algjör skylda hjá ráðamönnun-
um...
Byggt á staöreyndasafninu „Isaac Asimov's
Book of Facts", sem ritstýrt er af samnefndum
höfundi tæplega 200 vísindaskáldsagna.