Alþýðublaðið - 15.02.1995, Qupperneq 8
MÞYBUBLMS
Miðvikudagur 15. febrúar 1995
26. tölublað - 76. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Úrskurður héraðsdóms
VÍNLAND vann
Vínlandhf.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
úrskurðað að nafn fyrirtækisins Vín-
land hf. Clausen/Hrafnsson skuli af-
máð úr hlutafélagaskrá. Notkun
nafnsins brýtur í bága við einkaleyfi
Þorbjörns Magnússonar á orð-
merkinu VÍNLAND í vörumerkja-
skrá. Vínlandi hf. var gert að láta af
notkun nafnsins og greiða máls-
kostnað. Tildrög málsins eru að í
nóvember 1992 sótti Þorbjöm
Magnússon um einkaleyfi á vöru-
merkinu VÍNLAND fyrir vaxandi
umsvif sín á sviði vínumboða. Merk-
ið var síðan skráð í febrúar 1993 að
liðnum lögboðnum fresti. I október
það ár skráðu Herluf Clausen og
Birgir Hrafnsson síðan hlutafélagið
Vínland hf. hjá hlutafélagaskrá, en
þeir höfðu þá um skeið rekið um-
boðsverslun með vfn undir heitinu
Konráð Axelsson hf. Tilmælum rétt-
hafa um að þeir létu af notkun nafns-
ins Vínland var ekki sinnt og málinu
því skotið til dómstóla.
Jónas G.
Rafnar íátinn
Jónas G. Rafnar, fyrrverandi al-
þingismaður og bankastjóri Utvegs-
bankans, er látinn, 74 ára að aldri.
Hann var kjörinn á þing fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn árið 1949 og sat á
þingi til 1971 sem þingmaður Akur-
eyringa og síðar Norðurlandskjör-
dæmis eystra. Jónas G. Rafnar
gegndi auk þess fjölda annarra trún-
aðarstarfa. Éftirlifandi kona Jónasar
er Aðalheiður Bjarnadóttir Rafnar.
Dætur þehTa eru Halldóra, Ingi-
björg og Asdís.
Þjóðvaki
Lýsir furðu
á afnagi
Kjördæmisfundur Þjóðvaka
Norðurlandskjördæmis eystra lýsir
furðu yfir því afnagi sem fram hefur
komið á Alþingi vegna flutnings
embættis veiðistjóra til Akureyrar.
Fundurinn harmar að Eyjaljarðar-
svæðið, sem er eina mótvægi við
höfuðborgarsvæðið, skuli þurfa að
búa við útibú varðandi þróun og sölu
fiskafurða, þegar höfuðstöðvar voru
í boði. Ný tækifæri til atvinnu og
uppbyggingar skapist ekki meðan
ráðamenn righalda í óbreytt ástand.
ÆÆ
Flótti úr Þjóðvaka á Reykjanesi
„ Jóhanna er fangi sægreifans
- segir Hilmar Jónsson sem er í hópi 20 manna sem hafa hætt þátttöku í Þjóðvaka í Reykjaneskjördæmi.
„Við þessir jafnaðarmenn sem
fórum í Þjóðvaka til að styðja jafnað-
armennsku eigum þar ekkert erindi
lengur. Ég held að við séum um 20
sem eru famir frá Þjóðvaka í Reykja-
nesi og í þeim hópi er Kristján Pét-
ursson. Öllum tillögum um að fram
færi einhvers konar forkönnun við
val á framboðslistann í Reykjanes-
kjördæmi var hafnað. Það er harm-
saga að Jóhanna Sigurðardóttir
skuli vera orðin fangi sægreifans,"
sagði Hilniar Jónsson bókavörður í
Keflavík í samtali við Alþýðubkidið í
gær.
Hann sagðist hafa orðið fyrir
miklum vonbrigðum með þróun
mála innan Þjóðvaka og þá ekki síst
framgöngu Agústs Einarssonar í
sjávarútvegsmálum og við uppstill-
ingu framboðslistans á Reykjanesi.
Hilmar greindi frá gangi mála á eftir-
farandi hátt:
„Ég gekk til liðs við Þjóðvaka rétt
eftir áramót og var í undirbúnings-
nefnd fyrir landsfundinn þar sem ég
studdi ákveðna tillögu í sjávarút-
vegsmálum. En það varð önnur
stefna ofaná sem á ekkert skylt við
stefnu jtrasrótarhreyfingar. Það er
stefna Agústs Einarssonar sem hefur
tekið við stjóm. En það sem varð
þess valdandi að ég tók ákvörðun um
að hætta í Þjóðvaka var aðdragandi
að ákvörðun um skipan framboðs-
listans í kjördæminu.
Að kvöldi föstudagsins 10. febrú-
ar gekkst ég ásamt tveimur öðmm
mönnum fyrir kynningarfundi Þjóð-
vaka hér í Keflavík. Fundinn sóttu
um 60 manns og þar vom krókaleyf-
issjómenn fjölmennir. Þar var Krist-
ján Pétursson annar ræðumanna og
mál hans fékk mikinn stuðning frá
þessum sjómönnum, en Kristján var
meðal flutningsmanna tillögu um
sjávarútvegsmál sem ekki fékkst
rædd á landsfundi Þjóðvaka. Agúst
Einarsson sat fundinn en hann sagði
mér ekki að halda ætti fund daginn
eftir og gera út um uppstillingu á
framboðslistanum. Astæðan er vafa-
laust sú að ég hef ekki farið leynt
með að ég styð hann ekki og vildi að
Jón Sæmundur Sigurjónsson
leiddi listann í kjördæminu."
Fundur um framboðslista
„Nokkm fyrir klukkan tvö á laug-
„Það er harmsaga að Jóhanna Sigurðardóttir skuli vera orðin fangi sae-
greifans," segir Hilmar Jónsson. A-mynd: E.Ól.
ardaginn hringir kunningi minn til
mín og segir að fundur sé að heljast í
Hafnarfirði þar sem eigi að gera út
um listann. Þegar ég kom á staðinn
var fundurinn byrjaður og var þarna
tæplega 20 manns. Fundarstjóri var
Agúst Einarsson sem jafnframt var
formaður uppstillingamefndar.
Nefndin lagði þarna fram nöfn í
þrettán sæti. I fyrsta sæti var Agúst
Einarsson sjálfur. Síðan var Lilja
Guðmundsdóttir kennari í Hafnar-
firði í öðm sæti en bróðir hennar var
í uppstillingamefndinni. I þriðja sæti
var Guðmundur Ólafsson hagfræð-
ingur, vinur Agústs og sat sjálfur í
uppstillingamefnd. I ljórða sæti var
Jörundur Guðmundsson, sem
flestir kannast við sem skemmti-
kraft. Hann er búsettur í Vogunum
og átti að vera fulltrúi okkar Suður-
nesjamanna. Kristján Pétursson var í
sjötta sæti. Það kom hins vegar ber-
lega í ljós að Kristján átti mikinn
stuðning í að vera ekki neðar en í
þriðja sæti. Það máttu Agúst og Guð-
mundur ekki heyra nefnt.“
Ágúst bar sjálfan sig upp
„Málin vom nokkuð rædd en sfð-
an gerði fundarstjóri hlé, aðaílega til
þess að róa sjálfs síns taugar. Hann
Athugasemd
Samúðarkveðja til Arnórs Hannibalssonar
- frá Ragnari Arnalds.
í tilefni af einkar furðulegum sam-
setningi Arnórs Hannibalssonar í Al-
þýðuhlciðimi 14. febrúar síðastliðinn
þar sem því er haldið fram, að ég hafi
farið tvisvar til Moskvu á tímabilinu
1970 til 1981 til viðræðna við þar-
lenda ráðamenn, vil ég ítreka það,
sem ég hef áður upplýst opinberlega,
að þetta er alrangt.
Þáverandi sendiherrar Sovétríkj-
anna buðu mér hvað eftir annað að
heimsækja Sovétríkin, eftir að ég
varð formaður Alþýðubandalagsins
en ég þáði ekki þessi boð.
Amór segir frá fjórum sendi-
nefndum Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna sem áttu að hafa komið úl
íslands á árunum 1970 til 1974 í
þeim erindum að ræða við forystu
Alþýðubandalagsins. Ég veit ná-
kvæmlega ekkert um ferðir þessara
manna, ef það er þá rétt, að þeir hafi
komið hingað. Enginn þeirra gerði
minnstu tilraun til að ná tali af mér.
Ég var þá formaður flokksins og átti
sæti f nefnd um alþjóðleg samskipti.
Aldrei kom það fram í neinni stofn-
un flokksins, að nokkur forystumað-
ur flokksins hefði rætt við þessa
Tilfinning um, að þettasé í lagi
„Þessar leiðréttingar mínar ættu að nægja til
að sýna, að Arnóri er ekki sérlega lagið að
umgangast staðreyndir. I grein sinni tvinnar
hann saman pólitískum óhróðri og langri
runu ósanninda á afar dólgslegan hátt.“
menn. Óneitanlega er það heldur
lygilegt, að sendimenn hafi komið
hvað eftir annað frá Moskvu til
viðræðna við Alþýðubandalagið
en aldrei óskað eftir viðtali við for-
mann flokksins.
Síðar í greininni segir, að viðræð-
um umrædds tímabils hafi lokið með
því að mér hafi verið boðið til Sovét-
ríkjanna árið 1979 „á kostnað mið-
stjómar Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna eða ýmissa sovéskra ráðu-
skipa fyrsta sætið í framboði Þjóð-
vaka á Vestíjörðum. En hann getur
ekki verið mjög kátur.
Ég hef starfað í mörgum félögum
en aldrei kynnst svona aðferðum
eins og hjá Þjóðvaka. Þessari gras-
rótarhreyfingu hefur endanlega verið
hafnað og við tekur sægreifinn með
sínar aðferðir.
Ég er búinn að fá alveg nóg af
þessu og get ekki séð að við þessir
grasrótarmenn sem styðjum jafnað-
armennsku eigum neitt erindi þarna
lengur. A sunnudaginn tók ég
ákvörðun um að hætta í Þjóðvaka.
Mér finnst það mikil harmsaga fyrir
Jóhönnu Sigurðardóttur að hafa lent
í þessum hremmingum. Hún er fangi
sægreifans. Það er óskaplegt að enda
svona,“ sagði Hilniar Jónsson.
setti svo fund aftur og sagðist ganga
til dagskrár um að ganga ffá fyrsta
og öðm sæti. Kristján flutti þá strax
breytingartillögu þess efnis að listinn
yrði allur settur í biðstöðu í nokkra
daga meðan menn ræddu þessi drög
að uppstillingu. Við höfðum skilið
þetta sem drög að lista og menn
hefðu einhvem tillögurétt. Tillaga
Kristjáns var felld með 12 atkvæðum
gegn sex. Þama sést nú fámenni
fundarins og við vomm bara fulltrú-
ar sjálfra okkar. Sfðan ber Agúst
sjálfan sig upp og var kjörinn í fyrsta
sæti með 12 atkvæðum. Svo dettur
honum í hug að þessi listi geti fengið
tvo til þrjá þingmenn. Ég stakk upp á
Jóni Sæmundi og ég fullyrði að ef
það fólk sem skráð var í Þjóðvaka
hefði fengið að greiða atkvæði um
þetta hefði Jón Sæmundur unnið
með miklum mun.“
Harmsaga Jóhönnu
„I framhaldi af þessu emm við um
20 sem emm famir ffá Þjóðvaka.
Margir þeirra vom búnir að vera þar
lengur en ég. Ætli það séu ekki allir
famir sem stóðu að breytingartillög-
unni um sjávarútvegsmál á lands-
fundinum. Sigurður Pétursson lafir
að vísu enn í Þjóðvaka og á víst að
Gáð til veðurs
Skíðamenn þurfa lítið að gráta færið
í Hlíðafjalli við Akureyri þessa dagana þrátt fyrir að vegfarendum
niðrí byggð blöskri vafalaust ófærðin. Og svo virðast þeir norðan-
menn gjarnan njóta stærri skammts sólar en við hinir... A-mynd:e.ói.
neyta að fyrirskipan miðstjómarinn-
ar.“ Það ár var ég reyndar ekki leng-
ur formaður Alþýðubandalagsins en
gengdi hins vegar stöðu mennta-
málaráðherra. Ég hygg, að sovéski
sendiherrann hafi þá enn boðið mér
til Sovétríkjanna eins og ýmsum öðr-
um ráðamönnum allra flokka, en ég
fór ekki.
Þessar leiðréttingar mínar ættu að
nægja til að sýna, að Amóri er ekki
sérlega lagið að umgangast stað-
reyndir. I grein sinni tvinnar hann
saman pólitískum óhróðri og langri
mnu ósanninda á afar dólgslegan
hátt. Hann segir til dæmis í grein
sinni, að það hafi verið markmið Al-
þýðbandalagsins að afnema lýðræði
og þingræði og útrýma öllum and-
stæðingum „annað hvort með því að
drepa þá eða halda þeim í fangabúð-
um.“
Ég veit, að skynsamir lesendur
blaðsins fyrirgefa mér, þótt ég telji
það neðan við virðingu mína að rök-
ræða frekar við mann sem opinberar
slíkt hugarfar. Ég læt því nægja að
senda Amóri samúðarkveðjurmínar.
Ragnar Arnalds.
Framboðslisti Alþýðuflokksins
á Vestfjörðum
Bjartsýnn á gott
gengi listans
- segir Gísli Hjartarson kosningastjóri.
„Við emm búin að opna kosn-
ingaskrifstofu á ísafirði á baráttan
að komast í fullan gang. Sighvatur
Björgvinsson leiðir listann og það
er maður sem stendur fyrir sínu.
Eftir að Vestljarðagoðinn Matthí-
as Bjarnason hættir er Sighvatur
aiftakinn og ég er bjartsýnn á gott
gengi listans," sagði Gísli Hjartar-
son kosningastjóri Alþýðuflokks-
ins á Vestljörðum í samiali við
blaðið.
Gísli sagði að sérframboð Pét-
urs Bjarnasonar hefði ekki áhrif á
fylgi Alþýðuflokksins í kjördæm-
inu. Það bitnaði á Framsóknar-
flokknum.
Framboðslisti Alþýðuflokksins á
Vestljörðum er þannig skipaður:
1. Sighvatur Björgvinsson
ráðherra
2. Ægir Hafberg
sparisjóðsstjóri
3. Kristín Jóhanna Bjömsdóttir
sjúkraliði
4. Guðjón Brjánsson
framkvæmdastjóri
5. Ólafur Benediktsson
slökkviliðsstjóri
6. Gróa Stefánsdóttir húsmóðir
7. Benedikt Bjarnason
sjómaður
8. Jón Guðmundsson
trésmíðameistari
9. Hansína Einarsdóttir
húsmóðir
10. Karvel Pálmason
fyrrverandi þingmaður