Alþýðublaðið - 07.03.1995, Page 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 1995
ALÍVDIIIIIIÐID
20883. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
Siguröur Tómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Hvers konar
ríkisstjórn?
Komandi kosningar snúast - eins og allar kosningar - um það
hvers konar ríkisstjóm verður mynduð að kosningum loknum.
Nú er það svo að ríkisstjórnir á íslandi eru ekki kosnar beint,
heldur em þær myndaðar á gmndvelli styrkleika að kosningum
loknum. Sjaldnast gefa flokkar út afdráttarlausar yfirlýsingar
með hverjum þeir ætli að vinna að kosningum loknum, þó að
ákveðnir kostir umfram aðra séu á stundum ræddir.
Nú hefur Jóhanna Sigurðardóttir hins vegar gefið út þá ein-
dregnu yfirlýsingu að hún ætli ekki í ríkisstjóm með Sjálfstæð-
isflokknum. Kjósendur hennar hafa því hreinar línur - þótt lík-
umar á því að þetta loforð verði svikið séu ærið miklar.
Líklegast hefur yfirlýsing Jóhönnu mest áhrif á Alþýðu-
bandalagið, sem mikið talar um vinstri stjóm, en hefur undan-
farið ár eða svo verið að undirbúa stjóm með Sjálfstæðisflokkn-
um. Olafur Ragnar Grímsson verður lfklega hálf vandræðaleg-
ur fram að kosningum. Boðskapur Ólafs Ragnars er sá að Al-
þýðubandalagið sé eini valkostur vinstri manna, en hann þorir
samt ekki að útiloka stjómarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn.
Tilhleypingar Ólafs Ragnars og sjálfstæðismanna hafa síð-
ustu misserin oft og tíðum verið öllum sýnilegar. Jóhanna ætlar
með yfirlýsingu sinni að sækja djúpt í bakland Alþýðubanda-
lagsins.
Eini flokkurinn sem Ólafur Ragnar hefur nánast útilokað
samstarf við er Alþýðuflokkurinn. Ástæðan er fyrst og fremst
sú að hið fyrirheitna land Ólafs og félaga er nú austur í Singa-
púr og því em Evrópumálin ekki á dagskrá þar á bæ. Það segir
sína sögu um tækifærismennsku formanns Alþýðubandalags-
ins að hann skuli útiloka Alþýðuflokkinn, en ekki Sjálfstæðis-
flokkinn.
Væntanlega verður þetta vatn á myllu Jóhönnu Sigurðardótt-
ur, sem þrátt fyrir allt er enn svo vinstri sinnuð að hafa ekki
kokgleypt efnahagsstefnu Alþjóðabankans í Washington. Jó-
hanna og Ólafur Ragnar em að keppa um hylli kjósenda með
svipaðar skoðanir. Yfirlýsing þeirra um stjórnarmyndun hafa
því áhrif í kosningabaráttunni.
í samanburði við samdrátt Framsóknarflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins em þó yfirlýsingar Jóhönnu og Ólafs Ragnars
sem stormur í vatnsglasi. Mikill þrýstingur er innan þessara
flokka um stjómarmyndun að loknum kosningum. Slík ríkis-
stjóm væri mynduð um óbreytt ástand á öllum sviðum, ekki síst
í sjávarútvegi og landbúnaði. Stjóm þessara flokka yrði ómeng-
uð íhaldsstjóm þar sem hugmyndafræðingamir yrðu þeir Egill
Jónsson og Páll Pétursson.
Ekki þarf að fjölyrða um það hvaða afleiðingar þesskonar
stjómarmynstur hefði á þróun þjóðmála næstu árin og jafnvel
áratugina. Eins og Jónas Kristjánsson ritstjóri sagði í leiðara
DV á laugardaginn: „Mestar líkur em á því að sægreifaflokk-
amir tveir, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, hafi eftir
kosningar einir styrk til að mynda saman tveggja flokka ríkis-
stjórn. Hún mun hvar sem er og hvenær sem er taka hagsmuni
sægreifa fram yfir hagsmuni þjóðarinnar."
Framboð Jóhönnu Sigurðardóttur hefur því miður leitt til
þess að meiri líkur em á því en áður að íhaldsstjóm af þessu tagi
taki völdin. Eina vörn frjálslyndra jafnaðarmanna gegn aftur-
haldi af þessu taginu er að Alþýðuflokkurinn fái góða útkomu í
kosningunum.
Hvað varstu að gera öll þessi ár?
Handa Merði Árnasyni.
Mörður stórvinur minn Árnason
var Þriðji maðurinn á sunnudaginn
hjá Arna Þórarinssyni og Ingólfi
Margeirssyni. Það fór vel á því enda
er Mörður líka þriðji maður Þjóðvaka
í Reykjavík. Að ^——
vísu sögðu Ámi og
Ingó að þeir hefðu
mikið reynt að fá
heilaga Jóhönnu í
þáttinn en það
hefði því miður
reynst útilokað.
(Fréttamenn og
fjölmiðlungar
kunna orðið þul-
una utan að: „Þetta er 68 88 08, eftir
að hljóðmerki heyrist er þér velkom-
ið að skilja eftir skilaboð, takk fyrir.“)
Margt spaklegt bar á góma í spjalli
Marðar einsog hans var von og vísa:
sá innisetumaður sem nú lemur
lyklaborð gat ekki annað en hrífist af
frásögnum af skíðaferðum vinar síns
í bítið á sunnudagsmorgnum.
En þegar talinu var beint frá útivist
og að pólitík var einsog hann Mörður
minn færi rakleitt útaf brautinni og
endaði á kafi í fúkyrðaskafli. Þegar
Ingó og Ámi gerðu tilraunir til að
spyrja um óeiningu, sundmngu og
ólýðræðisleg vinnubrögð í Þjóðvaka,
þá var allt slíkt tal svindill og prettur
- úr Alþýðublaðinu!
Alþýðublaðið er ekki fréttablað!
urraði þessi varaformaður siðanefnd-
ar Blaðamannafélagsins, þegar hann
var spurður um fréttir af Þjóðvaka
sem birtust á sfðum þessa litia blaðs.
Af því Tíminn og Alþýðublaðið
sögðu frá því að Sólveig Olafsdóttir
hefði verið svikin um 2. sætið í
Reykjavík, á kostnað Ástu R. Jó-
hannesdóttur, þá var það barasta allt
í plati, af því um var að ræða „fréttir
tilorðnar í Tímanum, sem er flokks-
málgagn Framsóknarflokksins...og
Alþýðublaðinu, sem að telur Þjóð-
vaka höfuðandstæðing sinn í kosn-
ingabaráttunni."
Og Mörður var ekki búinn: Hann
sá ástæðu til að kvarta sérstaklega yf-
ir því að lesið er uppúr „flokksblöð-
unum“ í morgunútvarpi.
Einhvemtíma hefði orðið að segja
mér þrisvar að Mörður Ámason
gerðist talsmaður ritskoðunar sem
felur í sér að fólk fái einungis að
heyra stórasannleik Morgunblaðsins
og DV. Ég óska Styrmi og Matthíasi
til hamingju.
ítrúnaði
Áður en lengra er haldið: Er það ef
til vill öldungis rétt hjá mínum góða
vini að Alþýðublaðið sé ekki frétta-
blað? Hefur þetta semsagt verið tóm-
ur misskilningur í 76 ár?
Hvað er frétt? Fregn, tíðindi, frá-
sögn, segir Orðabókin. Getur verið
að glæpur Alþýðublaðsins felist í því
að hafa flutt fregnir, tíðindi og frá-
sagnir sem em einfaldlega Merði
Ámasyni ekki að skapi? Þá er hann
hérmeð boðinn velkominn f hóp með
ýmsum valinkunnum máttarstólpum
þjóðfélagsins. Við höfum sagt fréttir
af Alþýðubandalagi, Sjálfstæðis-
flokki, Kvennalista, Framsókn og
Einsog gengur
Hrafn
Jökulsson
skrifar
Þjóðvaka - meðal annars fréttir sem
ekki em forystumönnum þessara
flokka að skapi. Og við höfum líka
sagt fréttir af Alþýðuflokknum sem
ekki vöktu mikla lukku hjá sumum
—^„m kratahöfðingjum.
Við sögðum sam-
viskusamlega frá
því f vetur þegar
ýmsir liðsmenn
Alþýðuflokksins
gengu til liðs við
Jóhönnu. Aðal-
fréttir blaðsins, dag
éftir dag, snerust
um úrsagnir úr AT
HÚIIIIIilflHII
[ormaður Neytendasamtakanna gekk út af landsfundi Þjóðvaka
g tek ekki þátt í
svona skrípaleik
segir Jóhannes Gunnarsson og telur öll eðlileg fundarsköp ■
tfa verið brotln á fundlnura.
þýðuflokknum. Alþýðublaðið sló því
líka upp þegar fylgi ílokksins náði
sögulegu lágmarki í könnunum. Ég
get sagt Merði í fullum trúnaði, að
forsíða Alþýðublaðsins þann dag
fékk margt kratahjartað til að slá örar.
Hinsvegar man ég ekki til þess að
siðanefndarmaðurinn hafi klagað yfir
fréttum okkar af ófömm Alþýðu-
flokksins eða beðið útvarpið að þegja
yfir þeim.
ífréttum er þetta helst
En við voram einfaldlega að
segja fréttir. Og nú vill svo til að
Þjóðvaki hefur síðustu vikur ver-
ið endalaus uppspretta fregna,
tíðinda og frásagna. Þótt Alþýðu-
blaðið sé valdamikið, þá em frétt-
imar af ófömm Þjóðvaka ekki
búnar til hér á ritstjóminni. Reynd-
ar hefur Þjóðvaki ekki þurft neina
hjálp í hinni raunalegu sjálfstortím-
ingarherferð sinni. Við skulum líta á
nokkrar beinar tilvitnanir í fréttavið-
töl sem snerta Þjóðvaka.
,Lg tek ekki þátt í svona skrípaleik
og þar af leiðandi ákvað ég að taka
ekki frekari þátt f þessum landsfundi
og fór heim til mín.“
Jóhannes Gunnarsson
formaður Neytendasamtak-
anna, 31. janúar.
„Það á ekki að fá merði úr öðmm
flokkum til að stjóma vinnubrögð-
um. Ef þetta á að vera hreyfing fólks-
ins verða sjónarmið fólksins að koma
fram.“
Jón Kjartansson
frá Páhnholti, 31. janúar.
, J>etta snerist ekki um mikinn mál-
efhaágreining. Hinsvegar vom allar
lýðræðisreglur þverbrotnar við
stjómarkjör og Ágúst Einarsson kom
í veg fyrir að breytingatillögur sem
við vomm með við sjávarútvegs-
stefnuna væm ræddar.“
Njáll Harðarson, 31. janúar.
„Lýðræðisleg vinnubrögð vom
ekki viðhöfð á þessum landsfundi...
Ágúst [Einarsson] valtar yfir allt sem
heitir siðferði og lýðræði.“
Guðbjörn Jónsson, 31. janúar.
„Ég nenni ekki að eyða tíma í að
vinna með Þjóðvaka; stjómmálaafli
sem ástundar þessi vinnubrögð."
Jóhannes Gunnarsson,
3. febrúar.
■ "V «1 Ivn*-. M
>> )>V ujl .Ipnt, -U>1
Kk clk, N* • >UI(9lC'L 't
•I InðviJi Avid tt uk> eUi
mdsfundur ÞJóðvaka endaði I illdeilutn
<refjumstaf-
iagnarAgústs
zinarssonar
icgij Njáll Harðarson. scm gekk af (undl á*aml
irum til að mótm.xla „ólýðiæðislegum vtnnu-
ðgðum"
• l>«) v'Mik, .
«• tnV(W(«ui. II w> «0*&K haU
Jón Kjartansson í
Pálmholtl formaðt
Lelgjendasamtak-
anna seglr skilið v
Þjóðvalca
Osátturvið
merði úr öði
um flokkum
Mll'l* tlrðkqia f>rir Jútwiiau:
■rtard«lur. Oc dmuc i«i
fWtrt lum É»DdKU->™ir >« h
fcrtj-IViB*. hwxoiu rru a
U uuairtc* *1 Ml' htfUr tUI'
____...» KJurtaiwiMi Irl
tluttl. f'TWUOur ludcJnxlnui
u»iu. t uibuI rt.)
’ wua« >.,
f gæricvöldi
e ^
boði Þjóðvaka á Suðurlandi
vegna
ríahugsjónirum sið-
neioarleg vinnubröqð"
•aa.'sy ‘•'•■V- gsrjraas-t !»£:
■2)|( f|“kin á 'ondsfundl Þjóðvaka
'Pvermóðska og
fSpiííing Agústs
ÆSÍKSSKiKaj*
jrm« 5*‘u
„Getur verið að glæpur Alþýðublaðsins
felist í því að hafa flutt fregnir, tíðindi og
frásagnir sem eru einfaldlega Merði Árna-
syni ekki að skapi? Þá er hann hérmeð
boðinn velkominn í hóp með ýmsum val-
inkunnum máttarstólpum þjóðfélagsins.“
„Ég held að þetta sé nægileg
ástæða til að yfirgefa Þjóðvaka þótt
ég eigi eftir að ganga frá því form-
lega.“
Þórunn Sveinbjörnsdóttir,
3. febrúar.
„Ég hef aldrei hafið neina þátttöku
í Þjóðvaka, svo það var engu að
hætta. Ég er í pólitísku orlofi en fór á
kynningarfund Þjóðvaka á sínum
tíma fyrir forvitnisakir."
Helgi Pétursson, 8. febrúar.
, Jig er búinn að fá nóg af þessu og
get ekki séð að við þessir grasrótar-
menn sem styðjum jafnaðarmennsku
eigum neitt erindi lengur í Þjóðvaka.
Mér finnst það mikil harmsaga fyrir
Jóhönnu Sigurðardóttur að hafa lent í
þessum hremmingum. Jóhanna er
fangi sægreifans."
Hilmar Jónsson, 15. febrúar.
„Þjóðvaki boðaði siðvæðingu og
heiðarleg og opin vinnubrögð. Þetta
gengur auðvitað þvert á allar þær
hugsjónir. Vitaskuld veldur öllum
mínum fylgismönnum og sjálfsagt
flestum þjóðvakamönnum á Suður-
landi vemlegum vonbrigðum."
Þorkell St. EHertsson,
28. febrúar.
Þótt þú langförul legðir
Þetta em fréttimar sem Mörður vill
ekki láta lesa í morgunútvarpinu. Og
skyldi svosem engan undra. Ég, sem
er ritstjóri á litlu og grandvöm blaði,
get bara prísað mig sælan yfir því að
minn gamli vinur skuli ekki enn vera
kominn til þeirra metorða í mannfé-
laginu að ákveða hvað má segja opin-
berlega og hvað ekki.
En svona er hann Mörður minn nú
kominn langan veg frá ritstjórastóln-
um á Þjóðviljanum sáluga. Misminni
mig ekki því herfilegar, þá var Þjóð-
viljinn í eigu ákveðins stjómmála-
flokks. Og nú er hann Mörður sem-
sagt að upplýsa okkur um að flokks-
blöð geti ekki sagt fréttir.
Minn kæri - hvað varstu að gera
öll þessi ár?
DðQðtðl 7» mars
Atburdir dagsins
1931 70 símastaurar milli Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar brotnuðu í
fárviðri. 1971 Svissneskir karlar
samþykkja að veita konum kosn-
ingarétt. 1971 Enska skáldið Stevie
Smith fremur sjálfsmorð. 1981 Lag-
ið Af litlum neista hlaut flest atkvæði
í fyrstu söngvakeppni Sjónvarpsins.
1988 Bandaríski klæðskiptingurinn,
leikarinn og skemmtikrafturinn Di-
vine (Harris Glen Milstead) deyr.
Afmælisbörn dagsins
Maurice Ravel franskur tónsmiður,
1875. Snowdon lávarður breskur
Ijósmyndari og fyrrverandi eigin-
maður Margrétar Bretaprinsessu,
1930.1van Lendl tékkneskur tennis-
meistari, 1960.
Annálsbrot dagsins
Rán, þjófnaður, lygar og ýmislegar
ódáðir um landið gjörvallt. Betlara
umferð í mesta máta, þótt ótalmargir
af þess háttar fólki dæi á undanföm-
um harðindaámm, því fjöldi manna
var, sem ekki skeytti um að koma sér
svo, að þeir gætu ærlega framdregið
sitt líf með þjónustu hjá góðum
mönnum.
Ölfusvatnsannáll, 1758.
Málsháttur dagsins
Engum flýgur sofanda steikt gæs í
munn.
Módgun dagsins
Ég er stundum að raula lög tímunum
saman, sem vella upp úr mér eins og
leirburðurinn upp úr Símoni Dala-
skáldi og jafningjum hans.
Ólafur Davíðsson, dagbók 19. maí 1882.
Lokaord dagsins
Ég hafði nú ekki hugsað mér að
deyja í dag.
Hinstu orð franska hermannsins Vicomte de
Turenne. Féll í orustunni við Salzbach 1675.
Ord dagsins
Hvað skal stærri starfsemd hér
stuttrar ævi að sakna?
Letingjanum of stutt er
eilífð til að vakna.
Stephan G. Stephansson.
Skák dagsins
Sú tíð er liðin að fsland sé helsta stór-
veldi Norðurlanda í skák. Norð-
menn, Svíar og Danir hafa á síðustu
árum eignast marga sterka meistara,
og breiddin er sífellt að aukast hjá
þessum þjóðum. Við lítum nú á skák
tveggja norskra meistara. Djurhuus
hefur hvítt og á leik gegn Tisdall.
Báðir em í hörkusókn en hvítur verð-
ur fyrri til.
1. De7! Ba8 2. Hxh5+! gxh5 3. Hgl
Hg8 4. Bh6! Tisdall gafst upp enda
fær hann flúið mát.