Alþýðublaðið - 07.03.1995, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Afstaða Alþýðuflokksins í Evrópumálum ræður atkvæði Hall-
dórs Hermannssonar á ísafirði í komandi kosningum, eins og
fram kemur í viðtali Sœmundar Guðvinssonar við hann
Læt ekki Davíð
kúga mig
- segir Halldór og lýsir yfir stuðningi við Alþýðuflokkinn.
Halldór: Jóhanna getur farið inn í moldarkofana og lesið (slendingasög-
urnar.
„Ég stóð upp á þessum fundi til að
lýsa yfir eindregnum stuðningi mín-
um við Alþýðuflokkinn og Sighvat
Björgvinsson. Það er vegna þess að
þetta er eini flokkurinn sem leggur
áherslu á Evrópumálin og það er
stærsta og eina málið sem kosið
verður urn í þessum kosningum. Ég
læt ekki kúga mig til þess að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn sem neitar því
að þetta mál sé á dagskrá," sagði
Halldór Hermannsson skipstjóri á
ísafirði í samtali við Alþýðublaðið \
gær.
Það var á fundi Alþýðuflokksins á
ísafirði á sunnudaginn sem Halldór
stóð upp og lýsti kröftuglega yfír
stuðningi við flokkinn við komandi
kosningar. Halldór hefur verið dygg-
ur stuðningsmaður Sjálfstæðis-
flokksins en segir útilokað að hann
styðji hann í kosningunum í apríl.
„Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að
kúga sína kjósendur í Evrópusam-
bandsmálinu með því að neita því að
málið sé á dagskrá. En ég læt ekki
kúga mig og það er ekki hægt að
bjóða upp á svona meðferð í lýðræð-
isríki. Meðan þeir haga sér svona kýs
ég ekki Sjálfstæðisflokkinn. Það er
alveg á tæru. Það ríður á að gera Al-
þýðuflokkinn sterkan í kosningunum
til þess að viðræður um þetta mál
verði teknar upp þegar í sumar. Síð-
an þegar þar að kemur eiga kjósend-
ur að fá að segja sína skoðun endan-
lega,“ sagði Halldór Hermannsson.
Kjósendur sýni ábyrgd
„Ég trúi ekki öðru en ungt fólk og
aðrirkjósendur vilji láta kanna hvaða
samningum við náum við Evrópu-
sambandið. Fólk má ekki kjósa af
einhverri gamalli hjúatryggð við
flokkana. Það verður að fara að meta
stöðu sína og gera sér grein fyrir því
að okkur bíður ekkert nema skelfing-
in ein að óbreyttu. Hvað á að gera
við 15 þúsund ungs fólks sem kemur
út á vinnumarkaðinn til aldamóta
þegar engar fjárfestingar eru í aug-
sýn. Felst útflutningsleið Alþýðu-
bandalagsins kannski í því að flytja
þetta fólk úr landi? Menn verða að
gjöra svo vel og vera ábyrgir þegar
þeir greiða atkvæði í stað þess að
kjósa sama flokkinn ár eftir ár af
gömlum vana. Menn eiga að kjósa
samkvæmt sinni sannfæringu í kosn-
ingum og málefnin verða að ráða,“
sagði Halldór.
Eina kosningamálid
„Það gengur ekki lengur að ljúga
því að fólkinu að hér sé allt í lagi.
Þótt ríkisstjórnin hafi staðið sig vel
eftir því sem hægt var þá blasir við
stöðnun og áframhaldandi skulda-
söfnun. Evrópusambandsmálið er
eina málið sem einhverju skiptir í
þessum kosningum því með aðild að
ESB er von um betri tíð. Ef þetta
gengur ekki núna dreg ég mig inn í
skel og kem ekki framar nálægt pól-
itík.
Við höfum lítið að gera með það
að ganga inn í Evrópusambandið eft-
ir aldamót með annars flokks ríkjum.
Þá færum við inn með einhverjum
austantjaldsríkjum sem eru svo fá-
tæk að þau yrðu aldrei tekin inn sem
fyrsta fiokks ríki. Við eigum að fara
inn áður á allt öðrum forsendum.
Þjóðemissinninn Davíð Oddsson
hefur gengið svo hart i'ram í að bæla
niður umræðuna um ESB að engu
tali tekur. Við gleymum ekki hvem-
ig hann hagaði sér við unga sjálf-
stæðismenn sem ætluðu að ræða
þessi mál en lögðu niður skottið eftir
að Davíð hafði snuprað þá. En ég læt
ekki Davíð kúga mig,“ sagði Halldór
Hermannsson ennfremur.
Batt Sighvat á sieda
Á fundinum á Isafirði rifjaði Hall-
dór á skemmtilegan hátt upp fyrstu
kynni sfn af Sighvati Björgvinssyni.
, Já, það er rétt. Ég gat þess að ég
fóstraði Sighvat þegar hann var lítill
strákur og nágranni minn. Þá batt ég
hann fastan við sleða með trefli og
þeysti síðan um götumar með Sig-
hvat Björgvinsson á skíðasleða. Mér
datt þá ekki í hug að þessi patti ætti
eftir að verða ráðherra. Og ég vil
setjast á sleðann með Sighvati í
þessu máli. Alþýðuflokkurinn hefur
sýnt gífurlegt hugrekki og svona
eiga flokkar að vera. Sýna hugrekki
og standa og falla með því sem þeir
em að gera. Það standa öll spjót á
flokknum í Evrópumálunum þar sem
allir flokkar em á móti Alþýðu-
flokknum. Ég er ekki að segja að ég
sé krati en þetta er eini fiokkurinn
sem hefur ákveðna skoðun í Evrópu-
málinu.
Alþýðuflokkurinn verður aftur að
komast í ríkisstjóm til þess að geta
sett þau skilyrði að þetta verði rætt.
Nú er nauðsyn því við emm að rrússa
af síðasta tækifærinu. Við fáum eng-
ar erlendar fjárfestingar hér ef við
einangmm okkur,“ sagði Halldór.
Framsókn allra flokka.
„Framsóknarmenn allra flokka
snúast gegn Evrópusambandsmál-
inu. Ég er viss um að helmingur
Sjálfstæðisflokksins er sömu skoð-
unar og Alþýðuflokkurinn en hinn
helmingurinn eru framsóknarmenn.
Eða þá þjóðemissinnar sem halda að
þeir séu að vinna einhverja sjálfstæð-
isbaráttu upp á nýtt og fylgjast ekki
með tímanum. Ég sagði við Jó-
hönnu Sigurðardóttur að hún gæti
farið inn í moldarkofana og lesið þar
íslendingasögumar ef henni sýndist
svo. En ég nenni því ekki. Þessar
kosningar snúast um það hvort við
ætlum okkur að halda hér uppi nú-
tímaþjóðfélagi eða ekki,“ sagði Hall-
dór Hermannsson.
Vestfjarðalistinn kynnir stefnuskrá sína
Vill að hvalveiðar verði hafnar
Meðal stefnumála Vestfjarðalist-
ans þar sem Pétur Bjarnason skip-
ar 1. sæti, er að hvalveiðar í atvinnu-
skyni verði hafnar og þá fyrst með
nýtingu hrefnunnar. Ennfremur að
landbúnaður á Vestfjörðum taki
mið af þörfum svæðisins og góðar
aðstæður til sauðljárræktar verði
nýttar. Komið verði á svæðaskipt-
ingu í sauðfjárrækt og ofbeitt svæði
annars staðar á landinu verði friðuð.
Framboðslistinn var lagður fram
síðast liðinn laugardag. í 2. sæti list-
ans er Stefán Gíslason sveitarstjóri
á Hólmavík, í 3. sæti Konráð Egg-
ertsson formaður félags hrefnu-
veiðimanna og Védís Thoroddsen
fiskverkakona á Bfldudal er í 4.
sæti. Boðið verður fram undir lista-
bókstafnum M.
Vestfjarðalistinn hefur á stefnu-
skrá að standa vörð um hagsmuni
smábátaútgerðar og fiskvinnslu á
Vcstljörðum og tryggja þannig at-
vinnu í sjávarplássum. Þá vill listinn
efla skólastaif á Vestfjörðum með
það að markmiði að jöfnuður ríki til
menntunar jafnt á leikskóla- grunn-
skóla- og framhaldsskólastigi, svo
dærni séu nefnd úr stefnuskránni.
Erótíkin er allsráðandi í steinþrykksmyndaröð John Lennon, The Bag One
Portfolio. Hér gefur á að líta eiginkonu hans, Yoko Ono, í ögrandi stellingu
svo sem þeirra hjóna var von og vísa.
Kjarvalsstaðir
Lennon laðar
að lýðinn
Hægt að kaupa myndir Bítilsins fyrir 14 til 500
þúsund krónur. Allt að verða uppselt og sýningin
stefnir í metaðsókn eftir aðeins tvær vikur, segir
Anna Margrét Bjarnadóttir kynningarfulltrúi.
Mikil aðsókn hel'ur verið á sýn-
ingu á grafíkmyndum John Lennon
að Kjarvalsstöðum. Sýningin er far-
andsýning sem ferðast víða um Evr-
ópu. Að sögn Önnu Margrétar
Bjarnadóttur kynningarfulltrúa
safnsins hafa nú þegar um tíu þúsund
manns séð sýninguna þrátt fyrir að
einungis tvær vikur séu liðnar frá
opnun. „Það hefur vakið sérstaka at-
hygli okkar hvemig hópur sýningar-
gestanna er samsettur, þetta halá ver-
ið allt frá ungum skólabömum og
uppí fyrrverandi - og núverandi -
biómaböm; fólk sem vanalega sækir
ekki listasýningar hefur einnig fjöl-
mennt hressilega á safnið. Ég veit nú
ekki hvar þessi sýning á verkum
John Lennon er á aðsóknarlistanum,
en hún er örugglega komin á topp tíu
með Erró og erlendum myndlistar-
risum. Þetta stefnir allt í metaðsókn,"
sagði Anna Margrét í stuttu spjalli
við Alþýðublaðið í gær.
John Lennon hafði sem tónlistar-
maður mikil áhrif á menningu 20.
aldarinnar. En hann lagði ennfremur
stund á myndlist áður en hann sneri
sér að gítarnum og hljóðnemanum í
Bítlunum. Allan sinn feril hélt hann
áfram að gera myndir sem lýsa nán-
asta umhverfi hans og eru myndimar
á sýningunni að Kjarvalsstöðum
unnar á tveimur tímabilum á ámnum
1968 og 1969. Þar á meðal em ann-
arsvegar myndir sem fyrst vom
gefnar út eftir dauða Lennon og hins-
vegar steinþrykksmyndaröðin The
Bag One Portfolio, sem var brúðar-
gjöf hans til Yoko Ono. Þessi
myndaröð var fyrst sýnd opinberlega
í London árið 1979 og vakti þá gffur-
lega athygli fyrir það á hversu opin-
beran hátt hann fjallaði þar um sam-
líf þeirra hjóna. I myndaröðinni gef-
ur á að líta upphafningu Lennon á ást
sinni til konu sinnar. Á öðmm degi
sýningarinnar varhenni lokað af lög-
regluyfirvöldum og átta erótískar
myndir teknar eignamámi; þær þóttu
ósæmilegarog særðu siðferðisvitund
viðkvæmra. Uppúr þessu hófst hið
mesta fjölmiðlafár um víða veröld,
rannsókn lögreglunnar var rækilega
fylgst með og réttarhöldunum sem
fylgdu í kjölfarið. Málið var að lok-
um látið niður falla. Sýning á grafík-
myndum John Lennon er óvenjuleg
að því leyti að hún er sölusýning, það
er að allar myndimar á sýningunni
em til sölu. Myndimar kosta allt frá
fjórtán til fimmhundmð þúsund
króna. Töluvert hefur verið keypt og
einnig em bolir, sýningarskrár, pla-
köt og svo framvegis að seljast upp.
Sýningin verður opin daglega til 26.
mars, frá klukkan 10:00 til 18:00.
Kaffistofan er opin á sama tíma.
KVENFÉLAG ALÞÝÐUFLOKKSINS
í HAFNARFIRÐI
Bæjarmálin
ALÞÝÐUFLOKKURINN Á VESTURLANDI
Umhverfismál
Alþýðuflokkurinn boðartil fundar um umhverfismál í Hótel
Stykkishólmi, _þriðjudaginn 14. mars klukkan 20:30. Frum-
mælandi: Össur Skarphédinsson. Umræduefni:
Verndun Breiðafjarðar og önnur umhverfismál. Fyrirspurn-
ir og umræður. Stjórnin.
JAFNAÐARMENN Á VESTURLANDI
Góugleði
Alþýðuflokksfélag Akraness heldur sína árlegu góugleði í
félagsheimilinu Röst, laugardaginn 11. mars. Allir jafnaðar-
menn eru velkomnir. Dagskráin verður nánar auglýst síðar.
Stjórnin.
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnarfirði heldur fund mið-
vikudaginn 8. mars í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði, klukkan
20:30, um bæjarmálin í Hafnarfirði og kosningarnar fram-
undan. Gestir fundarins: Valgerður Guðmundsdóttir,
Ingvar Viktorsson, Tryggvi Harðarson og Gudmund-
ur Árni Stefánsson. Hvað er að gerast í bæjarmálum í
Hafnarfirði? Konurfjölmennið. Látum okkur málin varða.
Stjórnin.
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG PATREKSFJARÐAR
Stjórnmálafundur
Alþýðuflokksfélag Patreksfjarðar auglýsir opinn stjórn-
málafund um með Sighvati Björgvinssyni ráðherra
sunnudaginn 12. mars klukkan 20.30. Fundurinn verður
haldinn í félagsheimilinu á Patreksfirði. Formaður.
JAFNAÐARMENN Á NORÐURLANDI EYSTRA
Kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins á Norðurlandi eystra
hefur verið opnuð að Brekkugötu 7 á Akureyri. Skrifstofan
er opin alla virka daga frá klukkan 13:00 til 22:00 og um
helgarfrá klukkan 13:00 til 17:00. Heittá könnunni og „með
því" allan daginn. Kosningastjórnin.