Alþýðublaðið - 14.03.1995, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 14.03.1995, Blaðsíða 4
4 Vinningstölur 11. mars. 1995 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING H Saf 5 0 8.923.433 0| +4af 5 7 100.710 0 4af 5 171 7.110 E| 3af5 5.494 510 Aðaltölur: 7Y™ 25 29 38 BONUSTALA: Heildarupphæð þessa viku kr. 13.646.153 UPPLÝSINGAR, SíttSVARI 91-601511 LUKKULfNA 991000-TEKTAVARP 451 Aðalfundur Olíufélagsins hf. verður haldinn miðvikudaginn 29. mars 1995 á Hótel Loftleiðum, þingsal 1-3, og hefst fundurinn kl. 14.00 Dagskrá 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv.14. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 3. Breytingar á samþykktum til samræmis við breytt ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á aðalskrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á aðalskrifstofu félagsins Suðurlandsbraut 18, 3. hæð, frá og með 27. mars, fram að hádegi fundardags. Stjóm Olíufélagsins hf. Olíufélagiðhf ALÞÝÐUBLAÐIÐ ð b u r ð ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 1995 Doktor Meinhard Hiif, prófessor við Hamborgarháskóla í Þýskalandi, heldur fyrirlestra hjá ungum jafnaðarmönnum í Kópavogi og Útflutn- ingsráði. Síðast kom hann hingað til lands árið 1966 og gekk þá yfir þvert landið og lét heillast af hrikalegri náttúrufegurðinni Hverfa smáríki eða blómstra innan Evrópusambandsins? Meinhard Hilf: Staða smáríkja í Evrópu verður til umræðu hjá Félagi ungra jafnaðarmanna í Kópavogi og hjá Útflutningsráði næstunni. Hver er staða smáríkja á borð við Lúxemborg innan Evrópu- sambandsins? Eru þau gleypt eða blómstra þau sem aldrei fyrr? Ef þú hefiir áhuga á þessu málefni þá er kominn hingað til lands sá aðili sem hefur rannsak- að þetta hvað mest, doktor Meinhard Hilf, prófessor við Hamborgarháskóla. Dagana 17. og 18. mars næstkomandi mun hann flytja fyrirlestra hér á landi er nefnast „The Role of Small States in the EC(U) e.g. Luxem- burg“. Fyrirlestramir verða haldnir hjá Útflutningsráði 17. mars og Félagi ungra jafnaðar- manna í Kópavogi 18. mars næstkomandi. Doktor Meinhard Hilf er 56 ára að aldri, forstöðumaður Evr- ópusambandsréttardeildar Ham- borgarháskóla og hefur að baki yfir tuttugu ára reynslu og þekk- ingu á Evrópusambandinu. Hann stundaði laganám í Genf, Múnchen og Hamborg. Með- fram námi starfaði hann sem að- stoðarmaður við rannsóknir hjá Max-Planck stofnuninni í Hei- delberg. Hann lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Heidelberg 1972 á sviði þjóðaréttar. Að há- skólanámi loknu gerðist hann aðstoðarmaður við þýska stjóm- arskrárdómstólinn í Karlsmhe auk þess sem hann var meðlimur í lögfræðiþjónustu fram- kvæmdastjómar Evrópusam- bandsins, samtals um fimm ára skeið. Hann var einnig rann- sóknafélagi Max-Planck stofn- unarinnar í Heidelberg fyrir er- lendan opinberan rétt og þjóða- rétt um þriggja ára skeið. Arið 1981 lauk hann „habilitatiorí‘ við Háskólann í Heidelberg á sviði Evrópusambandsréttar og þjóðaréttar og nefndist verkefni hans „The Organizational Structure ofthe European Commun- ity“ („habilitation" er einhverskonar viðbótarvísindaþjálfun manna með doktorsgráðu fyrir menn sem stefna á vísindastörf að lífsstarfi). Á ámnum 1982 til 1992 var dokt- or Hilf skipaður prófessor í Evrópu- sambandsrétti og þjóðarétti við Há- skólann í Bielefeld, Þýskalandi. Frá 1982 hefur hann verið skipað- ur prófessor á sömu réttarsviðum við Hamborgarháskóla auk þess að vera forstöðumaður Evrópusambands- deildar sama skóla. Doktor Hilf hefur verið gistipró- fessor við fjöldamarga skóla og stofnanir víða um heim og má nefna: College of Europe, Bmgge; Europa Institute, Amsterdam; Institut Uni- versitaire Intemationale, Lúxem- borg, Centre d’études intemationales et européennes, Strassborg, School of Law, University of Michigan, Ann Arbor. Síðan 1988 hefur doktor Hilf verið á skrá sem meðlimur ráðs um lausn deilumála innan GATT. Hann er meðlimur ýmissa vísindafé- laga og sambanda á sviði Evrópu- sambandsréttar og alþjóðaréttar svo- sem Member of the Intemational Committees of the Intemational Law Association on Trade Law atul on Regional Development. Hann er einnig í ritvalsnefndum nokkurra blaða svo sem Europearecht; Chahi- ers de droit européen og Columbia Journal ofEuropean Law. Doktor Hilf hefúr birt yfir 80 lærðar lögvísindaritgerðir og bækur á sviði þjóða- og Evrópusambands- réttar í flestum af virtustu lögfræði- tímaritum Evrópu og heimsins og er einn virtasti Evrópusambandssér- fræðingur samtímanns. Árið 1966 kom Hilf til íslands, og gekk þá þvert yfir landið, frá Akur- eyri til Reykjavíkur Hann hreifst mjög af náttúrufegurð landsins eink- um fjallendinu sem hann gekk um á leið sinni. Fyrirlestra sína hjá Útflutnings- ráði þann 17. mars og Félagi ungra jafnaðarmanna í Kópavogi 18. mars flytur Hilf á ensku. Fyrirlestur hans mun eins og nafn hans bendir til ijalla um stöðu smáríkja í Evrópu- sambandinu og þá frá sjónarhomi og reynslu Lúxemborgarríkis. Hann mun einnig svara almennum spum- ingum um Evrópusambandið eink- um varðandi aðildammsóknir og þróun sambandsins í austur. Nánari upplýsingar um fyrirlestur- inn hjá Útflutningsráði er unnt að fá hjá skrifstofu ráðsins sími (91) 17272 (Andrés Pétursson) en Hall- dór E. Sigurbjörnsson veitir upp- lýsingar um fyrirlestur á vegum FÚJ í Kópavogi í símum (91) 44700 og 40146. Doktor Hilf heldur opinn fýr- irlestur á Sólon Islandus laugardag- inn 18. mars klukkan 15:00. Þar mun hann ásamt fleirum ræða stöðu smá- ríkja í Evrópu. Skattframtal einstaklinga með sjálfstæðan atvinnurekstur Skilafrestur rennur út iann 15. mars Síðasti skiladagur skattframtals einstaklinga sem höfðu með höndum sjálfstæðan atvinnurekstur á árinu 1994 er 15. mars. Skattframtalinu á að skila til skattstjóra í viðkomandi umdæmi. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra Heiðraði slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli Slökkviliðið á Keflavíkur- flugvelli hefur fengið viður- kenningu frá íslenskum stjóm- völdum fyrir sérstaklega vel unnin störf. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra afhenti Haraldi Stefáns- syni slökkviliðsstjóra sérstakt viðurkenningarskjal við hátíð- lega athöfn á Keflavíkurflug- velli. „Saga slökkviliðsins ykkar sýnir að þið eruð verðir þess mikla trausts sem ykkur hefur verið sýnt. Til viðbótar við ykk- ar störf var ykkur falið árið 1975 að annast snjóruðning og hálkuvamir á flugbrautum. Ábyrgð ykkar felst í því að tryggja sumarveður á flugbraut- unum alla tólf mánuði ársins. Tveimur ámm síðar tókuð þið einnig að ykkur að ferma og af- ferma herflutningavélar á Keflavíkurflugvelli," sagði Jón Baldvin Hannibalsson meðal annars í ávarpi sínu. Við þetta tækifæri af- henti utanríkisráðherra slökkviliðinu ennfremur bréf sem undirrituð em af Rannveigu Guðmundsdóttur fé- lagsmálaráðherra og staðfesta full- gildingu réttinda slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli. í máli utanríkis- ráðherra kom fram að sú góða þjálf- un sem slökkviliðsmennimir hafa „Góð störf verða seint full- þökkuð," sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra er hann afhenti Haraldi Stefánssyni slökkviliðs- stjóra á Kefla- víkurflugvelli viðurkenningu stjórnvalda. fengið hafi leitt til þess að þeir hafi einnig hlotið viðurkenningu sem fullgildir slökkviliðsmenn í Banda- ríkjunum. Jón Baldvin Hannibalsson afhenti einnig Stanley Bryant flotaforingja og yfirmanni vamarliðsins 400 þús- und krónur til vamarliðsins sem framlag íslenskra yfirvalda til skóg- ræktar á vamarsvæðunum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.