Alþýðublaðið - 14.03.1995, Blaðsíða 8
> *
\WRE WW
4 - 8 farþega og hjólastóiabílar
5 88 55 22
% *
\WREVr/tZ/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
S &8 SS 22
CrW wÍiP áSmém
Þriðjudagur 14. mars 1995
41. tölublað - 76. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Petrína Baldursdóttir varð 1. október 1993 yngst alþingismanna og stefnir nú hraðbyri að sínu öðru
kjörtímabili á Alþingi sem 3. maður á lista Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi þar sem flokkurinn
hefur 20% fylgi. Stefán Hrafn Hagalín ræddi við Petrínu í gærkvöldi um nokkra atburði líðandi kjörtíma-
bils, stjórnarsamstarfið og hvernig Alþingi tekur á móti sínum yngsta þingmanni
þessarar þjóða
- og er sem slíkur langstærsta málið sem jafnaðarmenn komu í
gegn á kjörtímabilinu. Þessi samningur skiptir algjörum sköpum í
íslensku þjóðlífi og það er staðreynd sem ég held því miður að
margir geri sér ekki fyllilega grein fyrir, segir Petrína.
Petrína Baldursdóttir - þá 33 ára
leikskólastjóri úr Grindavík - skip-
aði 5. sæti Alþýðuflokksins á
Reykjanesi við síðustu alþingiskosn-
ingar og settist síðan nokkuð óvænt
inná Alþingi l. október 1993 eftirað
þingmennimir Jón Sigurðsson og
Karl Steinar Guðnason fóru til ann-
arra starfa. Petrína hefur verið gift
Frímanni Ólafssyni kennara í tíu ár
og eiga þau tvö böm; Sigurbaldur 9
ára og Guðrúnu Bentínu 6 ára (að
verða 7). Starf þingmannsins hófst
innan Alþýðuflokksins árið 1986
þegar hún var beðin að gefa kost á
sér í prófkjöri í Grindavík og sat síð-
an sem varabæjarfulltrúi næstu átta
árin. Nú skipar hún 3. sæti Alþýðu-
flokksins í kjördæminu við alþingis-
kosningamar - og það eftir að hafa
að hafa hlotið kosningu í sætið á af-
gerandi hátt í frekar hörðu prófkjöri.
Stefún Hrafn Hagalín ræddi við
Petrínu í gærkvöldi um stjómmálin
og hvemig Alþingi lítur út í augum
nýliðans.
Þú varst í 5. sæti fyrir síðustu
Alþingiskosningar og kemur inná
þing nokkuð óvænt. Hvernig til-
finning var það?
„Hún var dálítið skrýtin þessi til-
finning sem greip mig þegar ég sett-
ist óvænt inná Alþingi; þennan stað
sem myndi verða minn vinnustaður
að minnsta kosti næstu tvö árin.
Enda vissi ég aðeins nokkrum vikum
fyrr í hvað stefndi. Ég gældi upphaf-
lega við það sem 5. maður á lista að
fá að setjast kannski einu sinni eða
tvisvar inná þing, en endaði síðan
sem aðalmaður. Hlutimir þróuðust
þama í skemmtilega átt og mér
fannst mjög spennandi að takast á
við þetta nýja verkefni."
Hvað kom þér mest á óvart
þarna í hákarlagryfjunni á sam-
einuðu Alþingi?
„Finnst þér þetta vera hákarla-
gryíja? Ég er ekki sammála því. Ég
hafði nú fylgst grannt með störfum
Alþingis vegna þátttöku minnar í
stjómmálum um sjö ára skeið og
þannig séð kom ekki margt á óvart
fýrir utan það kannski hvað vinnu-
dagur alþingismanna er í rauninni
langur og vinnutamimar strembnar.
Það er alltaf eitthvað sem hangir yfir
manni og þingmenn em með raun og
sann alltaf í vinnunni. Fyrir utan
störfin á Alþingi felst þingmennskan
síðan í fundum hér og þar í kjördæm-
inu - á vegum flokksins og annarra -
og allskonar reddingum allan daginn
út og inn. Þetta var mikil breyting frá
því sem ég þekkti áður þegar ég
starfaði sem leikskólastjóri frá átta til
fimm og fór jafnvel heim í hádegis-
mat.“
Hvaða störfum hefurðu gegnt á
Alþingi?
„Ég hef verið aðalmaður í þremur
nefndum; varaformaður umhverfis-
nefndar, menntamálanefndar og
samgöngunefndar. Einnig hef ég set-
ið sem varamaður í utanríkismála-
nefnd og í alþjóðasamskiptunum er
ég í þingmannaráði NATÓ og undir-
nefnd NATÓ um málefni Stofnunar
um öryggi og samvinnu í Evrópu
(SÖSE). Þar liggja fyrir verkefni
sem heilla mig mjög og eru til dæm-
is afar stefnumótandi hvað varðar
opnun landamæra um víða veröld og
hvað slík opnun hefur í för með sér;
varðandi öryggismál, málefni flótta-
manna og fíeira."
Nú hefurðu væntanlega mikið
lært af þessari setu þinni á þingi;
hvað telurðu dýrmætast af þeim
lærdómi?
„Ég hef setið þama inni í fimmtán
mánuði og þegar ég lít til baka finnst
mér ég hafa lært feiknin öll. Ég hef
auðvitað fengið dýrmæta reynslu og
yfirgripsþekkingu á ótal málaflokk-
um og kynnst aragrúa af hlutum sem
ég þekkti ekki eða gerði mér litla
grein fyrir áður. Menntamálin standa
sennilega mest uppúr í mínum huga:
á þeim hef ég brennandi áhuga og
þau hafa verið afgangsstærð í ís-
lenskri stjórnmálaumræðu alltof
lengi. Það vil ég sjá breytast í náinni
framtíð. Alþýðuflokkurinn ætlar nú
að gera menntamálin að forgangs-
máli og á þau er lögð þung áhersla í
kosningabaráttunni. Við erum þama
með afar framsæknar hugmyndir
sem allar eiga það sameiginlegt að
ríma við Island framtíðarinnar og
fela í sér breyttar áherslur og nýjar
hugmyndir. Stjómmálamenn hafa
þvf miður hingaðtil geymt alvöm-
gefna umræðu um menntamál fyrir
tyllidagaræður og spjallþætti. Sann-
leikurinn er sá, að í þessum mála-
flokki verða menn að fara horfast í
augu við þá staðreynd að án fjár-
magns mun þar ekki nokkur skapað-
ur hlutur gerast. Allra síst á að skera
niður þama þegar að niðurskurði
kemur því á þessum gmnni mun ís-
land framtíðarinnar byggja allt sitt
á.“
Eru einhver málefni sem þú
vildir gjarnan hafa fengið tæki-
færi til að vinna meira eða betur
að?
„Sjávarútvegsmálin heilla mig
mest og því miður hef ég ekki fengið
að koma eins mikið að þeim og ég
hefði viljað. Ég er vitaskuld sprottin
uppúr jarðvegi sjávarþorpsins, bý
þar með íjölskyldu minni og forfeð-
ur mínir em flestallir sjómenn. Þar af
leiðir að þetta er sá málaflokkur sem
mér finnst skemmtilegast að ræða og
ég þekki best ífá fomu fari. Ég gerði
kröfu um að komast í sjávarútvegs-
nefnd þegar ég settist á þing, en því
miður gekk það ekki eftir. Raunin er
sú, að konur virðast ekki eiga uppá
pallborðið í stómm nefndum sem
þessum. Ég veit ekki hvort þetta er
fyllilega meðvitað, en í öllu falli
verður að breyta þessu og ég ætla að
vona að þetta endurspegli ekki af-
stöðu karla til kvenna í stjómmál-
um.“
Alþingi hefur verið kallað Leik-
hús fáránleikans. Er það réttlátt
viðurnefni að þínu mati?
„Nei, það finnst mér ekki. Þetta
em alltof stór orð.“
En hvað með hið langdregna
málþóf stjórnarandstæðinga í um-
ræðunni um Evrópska efnahags-
svæðið?
„Annaðslagið koma upp mál þar
sem umræðan fer úr böndunum og
nokkur leikaraskapur er viðhafður,
en það em undantekningar. Alþingi
er í raun málefnalegur vinnustaður."
Nú ertu yngst alþingisþing-
manna. Hefurðu orðið var við að
það sé er komið öðruvísi fram við
þig fyrir vikið?
„Já, ég hef á stundum á tilfinning-
unni að aldur minn skipti máli. Sú af-
staða fléttast vitaskuld saman við
það sem ég geri mér fulla grein fyrir:
að ég kom þama inná Alþingi með
frekar litla reynslu af stjómmálum í
eldlínunni. En á það ekki við um allt
ungt fólk? Hvar eigum við að fá
reynsluna af fremstu víglínu ef ekki í
fremstu víglínu? Mér hefur fundist
þetta endurspeglast í viðhorfum á
borð við -Ætli stelpan hafi nokkurt
vit á þessu? og -Þýðir nokkuð að
ræða þetta við stelpuskjátuna? Og
því er ekki að leyna að ég hef meira
að segja fundið fyrir þessum aldurs-
viðhorfum í eigin flokki."
Það var metþátttaka í prófkjöri
Alþýðuflokksins á Reykjanesi og
hart tekist á. Hvernig sýnist þér að
tekist hafi til með að græða sárin
og skipa listann í' heild?
„Það var auðvitað aðallega barist
hart um efstu tvö sætin þar sem
Rannveig Guðmundsdóttir og Guð-
mundur Ami Stefánsson tókust á. En
mér finnst aðdáunarvert hversu vel
og drengilega þau tvö tóku á málum
með á prófkjörsbaráttunni stóð og að
henni lokinni. Það er engan veginn
hægt að sjá það á milli þeirra hvers-
dags að þar fari tveir aðilar sem íyrir
örstuttu tókust á í harðri keppni. Ég
er sjálf mjög ánægð með prófkjörið,
þátttökuna og hversu afgerandi
kosningu ég hlaut í þriðja sætið.
Samstarfið á milli okkar allra er
mjög gott og ég er hæstánægð með
listann einsog hann liggur nú fyrir.
Listinn sýnir breiðfylkingu jafnaðar-
manna úr öllum stéttum og samein-
uð megnum við mikið. Það er síðan
afar mikilvægt, að listinn er þéttskip-
aður ungu fólki og hlutur kvenna þar
er í hárréttu hlutfalli við vægi þeirra
meðal þjóðarinnar."
Petrina Baldursdóttir: Alþýðuflokkurinn hefur verið að renna styrkari
stoðum undir velferðarkerfið með því að taka það til endurskoðunar,
spara þar og hagræða. Það er eins með velferðarkerfið og allt annað,
að menn verða að fylgjast þar með tímanum og bregðast við ríkjandi
aðstæðum. Alþýðuflokkurinn hefur tvímælalaust tryggt áframhald-
andi styrkleika velferðarkerfisins og verndað það í hvívetna.
Nú hefur Guðmundur Árni lítið
sést í kosningabaráttunni. Af-
hverju heldurðu að það hafi ver-
ið? '
„Það er bara tilviljun held ég og
fyrir utan það er fullkomlega eðlilegt
að Rannveig - sem einn af ráðherr-
um flokksins - sé sýnilegri starfs
síns vegna. Kosningabaráttan er lítið
farin af stað og við eigum eftir að sjá
hlut Guðmundar Áma í baráttunni
vaxa eftir því sem dagamir líða.“
Það er nýkomin skoðanakönn-
un sem sýnir Alþýðuflokkinn með
20% fylgi á Reykjanesi. Það er
svipaö og kjörfylgi flokksins í
kjördæminu síðast; hvernig líst
þér á?
„Mjög vel. Ég er reyndarþess full-
viss, að við eigum eftir að bæta við
okkur fylgi á þeim vikum sem em
eftir til kosninga. Við gemm útrás á
næstu dögum og kynnum okkar mál-
efni og stefnuskrá í kjördæminu og
þá mun stuðningur við Alþýðuflokk-
inn í kjördæminu enn vaxa. Allir
vinnustaðafundir, almennir fundir og
auglýsingar em til að mynda enn eff-
ir og við höfum öll sóknarfæri til
þess að halda þriðja sæti flokksins í
kjördæminu. Mér sýnist engu að síð-
ur að baráttan verði hörð og til dæm-
is munu öll þau atkvæði sem ég get
náð til flokksins í Grindavík ömgg-
lega skipta miklu máli.“
Alþýðuflokkurinn hefur verið í
vörn nær allt kjörtímabilið; bæði
vegna stefnumála og starfa, en
eins vegna atburða í kringum ein-
staka mcnn innan hans. Flokkur-
inn er nú með í kringum 10% í
könnunum. Sýnist þér að hann
muni halda kjörfylgi sínu frá síð-
ustu alþingiskosningum, 15,5%
,Já, ég er alveg sannfærð um það.
15,5% er lágmarkið að mínu mati.
Það eru tæpar fjórar vikur til kosn-
inga og það leikur ekki nokkur vafi á
því, að almenningur mun átta sig á
því hvaða flokkur hefur verið afger-
andi framfaraafl í íslensku þjóðfé-
lagi. Það er auðvitað Alþýðuflokkur-
inn sem verið hefur leiðandi og rót-
tækur umbótaflokkur í ríkisstjóm
undanfarin átta ár. Flokkurinn er
með skýra stefnu sem er vel rök-
studd af verkurn hans og málflutn-
ingi í ríkisstjóm. Ég tel reyndar að
jafnaðarmenn séu einir um að hafa
mótað raunsæa framtíðarsýn fyrir
hina íslensku þjóð fyrir komandi al-
þingiskosningar.“
Hvaða mál stendur uppúr í
huga þínum frá líðandi kjörtíma-
bili, tengd Alþýðuflokknum?
„Eg er nú svo jákvæð að eðlisfari,
að hugur minn dvelur ekki lengi við
þær neikvæðu hliðar sent upp hafa
komið í stjómmálunum á kjörtíma-
bilinu. Jákvæðu framfaramálin sem
Alþýðuflokkurinn hefur barist fyrir á
kjörtímabilinu eru náttúrlega ótal-
„EES-samningurinn var
risavaxinn
mörg, en þar er eitt sem er risavaxið
og ber höfuð og herðar yfir önnur.
Það er dagljóst að samningurinn um
Evrópska efnahagssvæðið var risa-
vaxinn áfangi í sögu þessarar þjóðar
og er sem slíkur langstærsta málið
sem jafnaðarmenn komu í gegn á
kjörtímabilinu. Þessi samningur
skiptir algjörum sköpum í íslensku
þjóðlífi og það er stáðreynd sem ég
held því miður að margir geri sér
ekki fyllilega grein fyrir. Ég er til
dæmis ekki viss um hvort menn í
sjávarútvegi hér í Grindavík átti sig á
því hvað samningurinn um Evrópska
efnahagssvæðið skiptir miklu máli
fyrir þá og atvinnulífið hér í bænum.
Með EES náðust til að mynda mikl-
ar tollalækkanir á sjávarafurðum,
meðal annars á saltfiski þar sem toll-
ar vom 16 til 20% en féllu niður með
EES - og við sáum þannig verðmæt-
ið aukast um 30% á árinu. Ennfrem-
ur féllu niður tollar á ferskum flök-
um sem vom 18% en féllu alveg nið-
ur með EES - og þýddi það 20%
verðmætaaukningu. Otal ný tækifæri
hafa skapast með EES og útflutning-
ur á óunnum fiski hefur dregist sam-
an. Það þýðir aukna fullvinnslu fyrir
markað og verður að teljast mikið
skref framávið. Ég tel að fyrirtæki í
sjávarútvegi - sem og á öllum öðmm
sviðum íslensks atvinnulífs - eigi
enn frekar eftir að nýta sér áhrifin af
EES-samningnum. Árangur hans á
eftir að koma enn glögglegar í ljós á
næstu árum.“
Það hefur verið sagt um Al-
þýðuflokkinn, að hann hafi lagt ís-
lenska velferðarkerfið í rúsL
Hverju viltu svara þessum ásök-
unum?
„Þetta er auðvitað alrangur mál-
flutningur því Alþýðuflokkurinn
hefur einmitt verið að renna styrkari
stoðum undir velferðarkerfið með
því að taka það til endurskoðunar,
spara þar og hagræða. Við höfum nú
sætt harðastri gagnrýni í heilbrigðis-
og tryggingamálum og þar hafa
menn í ákafanum stundum gleymt
því að í þessa málaflokka fer bróður-
parturinn af útgjöldum íslenska rík-
isins. Ef við ætlum að halda velferð-
arkerfinu við og ekki láta það vaxa
okkur yfir höfuð með sjálfvirkri út-
gjaldaaukningu þá verður að koma
til endurskoðun og hagræðing á sem
flestum sviðunt þess. Almenningur
helúr að mínu viti fyrir Iöngu gert sér
grein fyrir þessum staðreyndum þrátt
fyrir að einstaka stjórnmálamenn
þráist kannski enn við. Það er eins
með velferðarkeríið og allt annað, að
menn verða að fylgjast þar með tím-
anum og bregðast við ríkjandi að-
stæðum. Alþýðuflokkurinn hefur
tvímælalaust tryggt áframhaldandi
styrkleika velferðarkerfisins og
vemdað það í hvívetna."
Að lokum þetta: Hvernig ríkis-
stjórnarmynstur vilt þú sjá að
loknum kosningum?
„Mér hefur á margan hátt fallið
mjög vel við samstarfið með Sjálf-
stæðisflokknum. Vitaskuld er það
þannig í samsteypustjórn að menn
þurfa að miðla málum og leita sam-
komulags. Það vinnulag ber að við-
hafa og annað væri óeðlilegt. Ég
hefði sjálf viljað sjá fleiri af málum
okkar jafnaðarmanna ganga fram og
verða að veruleika, en ég hef sætt
mig við þær niðurstöður sem náðst
hafa og get ekki annað en verið
ánægð með störf flokkanna í ríkis-
stjóm. Sérstaklega finnst mér að Al-
þýðuflokkurinn hafi komið þar vel út
sem flokkur er hafði stóra og erfiða
málaflokka á sinni könnu og skilaði
þeim að vonum vel af sér. Sam-
komulagið á stjómarheimilinu hefur
yfir heildina litið verið ágætt á kjör-
tímabilinu og ég tel því að Alþýðu-
flokkurinn muni líta jákvæðum aug-
um til stjómarmyndunarviðræðna
með Sjálfstæðisflokknum að lokn-
um kosningum. En þetta verður allt
að koma í Ijós, við höldum öllum
leiðum opnum - ýmsir möguleikar
em inní myndinni. Við jafnaðar-
menn emm í stjórnmálum til að ná
árangri."