Alþýðublaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 1995 Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa í 4. flokki 1992 Innlausnardagur 15. mars 1995. 4. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.987.308 kr. 1.197.462 kr. 119.746 kr. 11.975 kr. Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands Suðurlandsbraut 24. ATH. Útdregin óinnleyst húsbréf bera hvorki vexti né verðbætur frá innlausnardegi. cSd HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SlMI 69 69 00 Aðalfundur íslandsbanka h.f. Aðalfundur íslandsbanka hf. 1995 verður haldinn í Borgarleikhúsinu mánudaginn 27. mars 1995 og hefst kl. 1630. Dagskrá 1. Aðalfundarstörf í samræmi við 19. grein samþykkta bankans. 2. Tillögur til breytinga á sam- þykktum bankans. a) Vegna breytinga á lögum. b) Um innlausnarrétt hluthafa. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Hluthafar sem vilja fá ákveðin mál tekin til meðferðar á fundinum, skulu gera skriflega kröfu um það til bankaráðs, Kringlunni 7, 3. hæð, Reykjavík, í síðasta lagi föstudaginn 17. mars næstkomandi. Framboðsfrestur til bankaráðs rennur út miðvikudaginn 22. mars n.k. kl. 1000 fyrir hádegi. Framboðum skal skila til bankastjórnar. Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í íslandsbanka hf., Ármúla 7, Reykjavík, 3. hæð, 22. mars frá kl. 1015- 1600og 23. og 24. mars n.k. frá kl. 915- 1600 og á fundardegi frá kl. 915 - 1200. Ársreikningur félagsins fyrir árið 1994 sem og tillögur þær sem fyrir fundinum liggja verða hluthöfum til sýnis á sama stað frá og með mánudeginum 20. mars næstkomandi. 14. mars 1995 Bankaráð íslandsbanka hf. ISLANDSBANKI Alþýðublaðið Sjötiuo^fimm ára ogíurðufiísktfff.... ÍBV sigraði Pór í hörkuleik í úrslitakeppni 2. deildar Eyjastrákarnir komnirá beinu brautina S t a ð a n ÍBV 6 6 O O 159:138 12 Grótta 6 4 1 1 133:125 11 Fylkir 6 2 2 2 134:125 6 Fram 6 1 1 4 111:120 6 UBK 6 2 1 3 136:134 5 Þór 6 0 1 5 128:147 1 Fram tók með sér 4 stig í úrslitakeppnina, Grótta 2 stig og Breiðablik 1. Gunnar Berg Viktorsson, vígalegur að vanda, lætur vaða á markið án þess að Þórsarar komi nokkrum vörnum við. „Þetta var bara hörkuleikur. Við höfum alltaf átt í erfiðleik- um gegn Þór á Akureyri og við vorum dauðhræddir fyrir leikinn enda höfum við yfirleitt tapað á Akureyri. Við vorum efstir og þeir neðstir fyrir leikinn, svo við vissum að þeir myndu selja sig dýrt,“ sagði Sigbjöni Óskars- son aðstoðarþjálfari ÍBV í hand- bolta í samtali við Alþýðublaðið í gær. Línur eru óðum að skírast í úr- slitakeppni 2. deildar og er óhætt að segja að Eyjamenn hafi alger- lega stolið senunni. Þeir tóku ekki með sér neitt stig í úrslita- keppnina en hafa unnið sex fyrstu leikina og eru á toppnum. Framarar, sem flestir reiknuðu með í toppbaráttunni, hafa hinsvegar alls ekld náð sér á strik og eru nú nánast úr leik, þótt þeir fengju 4 stig með sér úr deildakeppninni. Leikurinn á Akureyri var jafn og spennandi lengst af. ÍBV hafði eins marks forystu í hálfleik, 13 mörk gegn 12. Þegar leið á seinni hálfleik sigu Eyjastrákamir fram úr, og gerðu nánast út um leikinn þegar þeir náðu fjögurra marka forskoti. Þórsarar gáfust ekki upp og náðu minnka muninn niður í eitt mark. Lengra komust þeir ekki og þegar flautan gall gátu Eyjapeyjamir fagnað enn einum sigri. Næsti leikur ÍBV í úrslitakeppn- inni er gegn Fylki á útivelli í dag. Um helgina koma Framarar í heim- sókn til Eyja. Sigbjöm sagði að sigurinn á Akur- Þórsarar reyna að verjast atlögu Daða Pálssonar. Arnar Richards- son í baksýn. eyri mætti fyrst og fremst þakka góðri liðsheild. Zoltan Belany var markahæstur að vanda með 7 mörk. „Strákamir stóðu sig allir vel. Þetta var ekkert sérstaklega góður leikur, heldur fyrst og fremst hörkubarátta," sagði Sigbjöm. Hann segir að nú sé IBV komið á beinu brautina í úrslita- keppninni. „Við emm komnir með nokkuð stöðu, en þetta er ekki í höfn ennþá. Það em fjórir leikir eftir og við tökum hvem leik fyrir sig. En við ætlum okkur upp í fyrstu deild.“ Fjörkálfarnir í Stallah Who létu sig ekki vanta frekar en endranær og tryggðu dúndurstemmningu á leiknum. Úrslitakeppni í handknattleik kvenna Eyjastúlkur úr frammistöðu Stjarnan komin í úrslit eftir sigur á ÍBV, 21-16. Það var ljóst þegar leikurinn hófst í íþróttahöllinni í Vest- mannaeyjum að mikið var í húfi fyrir bæði liðin. ÍBV hefði með sigri tryggt sér hreinan oddaleik við Stjömuna um hvort liðið færi í úrslitaleikinn um íslandsmeist- araútilinn og mætti þá annað hvort Fram eða Vfkingi. Stjöm- unni dugði sigur þar sem þær unnur fyrri leikinn í Garðabæ. Upphafsmínútumar ein- kenndust af mistökum beggja liða og virtist sem mikil spenna og taugaveiklun hrjáði leik- menn. Jafnt var á fyrstu tölum og lítið skorað. Eftir 22ja mfnútna leik var staðan jöfn og hafði þá hvort lið einungis skorað fimm mörk. Það sem eftir lifði hálf- leiksins höfðu Stjömustúlkumar betur og var staðan f hálfleik 7-10, íyrir Stjömuna. í upphafí seinni hálfleiks má segja að Stjömustúlkur hafi náði því forskoti sem þær létu ekki af hendi það sem eftir lifði leiks og var staðan um miðjan seinni hálfleik 10-14. Mest varð forskot Stjömunnar sjö mörk í seinni hállleik, en Eyjastúlkur löguðu stöðuna í lokin og lauk leikn- um með sigri Stjömunnar 16-21. Þar með er ljóst að Stjömustúlkur fara í úrslitakeppni en Eyjastúlkur sem hafa staðið sig mjög vel í vetur sem fyrr, verða að bíta í það súra epli að missa af úrslitaleiknum að þessu sinni. Það sem hafði mikið að segja í leiknum var prýðisgóð markvarsla Sóleyjar Halldórsdóttur f marki Stjömunnar en hún varði níu skot í fyrri hálfleik og mörg þeirra úr dauðafærum. Þá misnotuðu Eyja- stúlkur mýmörg upplögð færi í leiknum, færi sem ekkert lið hefur efni á að láta fara forgörðum á móti liði eins og Stjömunni. Laufey Sig- valdadóttir var markahæst hjá leik eftir góða Landsliðskonan Andrea Atladóttir svífur inn í teiginn í leik gegn Sel- fossi fyrir nokkru. Andrea var markahæst í leiknum gegn Stjörnunni í fyrrakvöid en það dugði ekki til. Stjömunni með sjö mörk, þar af ea Atladóttir markahæst með sex íjögur úr vítum. Hjá ÍBV var Andr- mörk, þar af eitt úr víti.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.