Alþýðublaðið - 04.04.1995, Side 2
2
U n
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ALÞINGISKOSNINGAR 1995
MÞYBUBIMD
20899. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
Sigurður Tómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Unga fólkið,
Evrópa og Alþýðu-
flokkurinn
Stjómmál snúast um það að móta stefnu til framtíðar. Þetta er
ekki síst mikilvægt fyrir ungt fólk með lífið framundan.
Að vera rígbundinn í fortíðinni eða geta aðeins hugsað örfáa
mánuði fram í tímann er því miður einkenni á alltof mörgum ís-
lenskum stjómmálamönnum. Slíkir stjómmálamenn bregðast
skyldum sínum við kjósendur.
Alþýðuflokkurinn leggur metnað sinn í að rækja það hlutverk
sitt að móta stefnu til framtíðar. Þetta er sérstaklega mikilvægt
þegar samskipti íslands og Evrópusambandsins eiga í hlut. Al-
þýðullokkurinn hefur mótað skýra stefnu í þessu máli: ísland á
að sækja um aðild að Evrópusambandinu og sjá hvaða kjör
bjóðast við inngöngu.
Evrópustefna Alþýðuflokksins er lífskjarastefna. Fjölþættara
atvinnulíf, erlend ijárfesting og ný störf fylgja í kjölfarið.
Ungt fólk á Islandi vill búa við svipuð lífskjör og Evrópubú-
ar almennt. Ungt fólk vill ekki gera Island að tilraunastofu fyr-
ir „öðruvísi" samfélag, það víll ekki einangrað ísland. Ungt
fólk vill nútímalegt samfélag á íslandi.
Það er því engin tilviljun að fylgi við umsókn Islands að Evr-
ópusambandinu er helst að finna meðal ungs fólks. Unga fólk-
ið og Alþýðuflokkurinn eiga því samleið í komandi kosning-
um.
Jafn kosningaréttur
Jafn kosningaréttur óháð búsetu em mannréttindi. Skoðun
Alþýðuflokksins er sú, að grundvallarregla lýðræðisins sé: einn
maður - eitt atkvæði.
Besta leiðin til að leiðrétta þá mismunun sem nú ríkir í þess-
um efnum er að gera landið allt að einu kjördæmi. Samhliða
þessu þarf að sameina sveitarfélög og færa verkefni frá ríkinu
til sveitarfélaga, þannig að ákvarðanir færist nær fólkinu sjálfu.
Framsóknarmenn allra flokka hafa barist gegn sjálfsögðum
breytingum til jöfnunar atkvæða í landinu. Haldi Alþýðuflokk-
urinn ekki styrk sínum í komandi kosningum verður róðurinn
enn þyngri en áður að breyta úreltu kjördæmakerfi.
Atak gegn atvinnuleysi
í kosningastefnu Alþýðuflokksins segir að minnst einum
milljarði króna á ári verði varið í sértækar aðgerðir gegn at-
vinnuleysi. Markmiðið er að enginn verði iðjulaus og óvirkur í
okkar samfélagi.
Til lengri tíma er hagvöxtur og uppgangur í efnahagsmálum
besta vopnið gegn atvinnuleysi. Reynslan hér á landi og erlend-
is sýnir þó að sértækra aðgerða er þörf til að sigrast á vandan-
um.
Sérstaka áherslu skal leggja á starfsmenntun og endurmennt-
un atvinnulausra þannig að þeir eigi þess kost að laga sig að
breyttum aðstæðum. Hluti aðgerðanna er stuðningur við ný-
sköpun fyrirtækja og varanlega atvinnusköpun.
Þessi viðfangsefni beinast sérstaklega að þeim sem búið hafa
við langvarandi atvinnuleysi, en snerta líka atvinnuþátttöku
kvenna, ungs fólks og fatlaðra.
a f n a ð a r
e n n
■ Nemendur í stjórnmálafræði og hagfræði við Háskóla íslands gera
sér fulla grein fyrir því aö sigur kostar kjark...
Rúmlega 44%
ætla ac.I kjosci
Alþýðuflokkinn !
- og tæp 87% vilja hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Um síðustu helgi gerðu nokkrir nemendur í stjómmálafræði
við Háskóla Islands skoðanakönnun á afstöðu nemenda í stjómmálafræði
og hagfræði til fjögurra spuminga. Hringt var í alla nemendur í fögunum tveimur.
Ef litið er á hlutfall af þeim sem tóku afstöðu er útkoman eftirfarandi:
1 Ertu hlynntur eða andvígur því
að íslendingar hefji aðildarviðræður
við Evrópusambandið?
Já: 86,75% Nei: 13,25%
2 Ertu hlynntur eða andvígur því að jafna
atkvæðavægi íslendinga?
Já: 97,67% Nei: 2,33%
3 Ertu hlynntur
eða andvígur því að markaðsvæða
íslenskan landbúnað?
Já: 97,56% Nei: 2,44%
4 Hvaða stjórnmálaflokk
ætlar þú að kjósa
í komandi kosningum?
Alþýðubandalagið:
Alþýðuflokkurinn:
Framsóknarflokkurinn:
Sjálfstæðisflokkurinn:
Kvennalistinn:
Þjóðvaki:
Önnur framboð:
3,85%
44,23%
0%
40,38%
5,77%
1,92%
3,85%