Alþýðublaðið - 04.04.1995, Qupperneq 3
ALÞINGISKOSNINGAR 1995
U n
ALÞYÐUBLAÐIÐ
afnaðarmenn
Hvað kýs pabbi þinn? - Hvað kýst þú?
Hvað ræður vali ungs fólks í kosn-
ingum? Er það rétt sem stundum er
haldið fram, að ungt fólk kjósi gjam-
an sömu flokka og foreldrarnir eða
vinahópurinn - eða tekur fólk
kannski afstöðu að
athuguðu máli?
Eru flokkadrættir f
stjórnmálum
kannski í líkingu
við það sem gerist
í íþróttum? Hefur
þú tekið afstöðu
með flokki og þá á
hvaða forsendum?
Þetta era mikil-
vægar spurningar - nú örfáum dög-
um fyrir alþingiskosningar - sem all-
ir ættu að geta svarað..., eða hvað?
Við þekkjum öll týpuna, sem sam-
kjaftar ekki með söniu frösum og
flokksformennimir rétt eins og að
hann eyddi öllum sínum stundum í
að læra ræður þeirra utanað. Svo um
leið og nýja fleti bera á góma er um-
svifalaust skipt um umræðuefni.
Hinn klassíski stuttbuxnadrengur
sem les innblásinn áróður í frístund-
um í stað þess stunda sitt nám eins og
maður. Eilífðarstúdent með höfuðið
fullt af einhliða áróðri.
Hvað er það sem mótar hans skoð-
anir? Er það hlutlæg skoðun á mál-
efnum, eða sanngjam samanburður á
verkum stjómmálamanna? Nei,
pabbapólitíkusinn hugsar ekki nema
í eina átt. Hans rökhugsun fer fram á
einteinungi sem liggur í einn stóran
hring eftir hring hring eftir hring.
En þarf nokkuð að hafa áhyggjur
af slíku fólki? Er ekki einfaldast að
leiða þröngsýni og fáfræði hjá sér?
Ég er þeirrar skoðunar að ástæða sé
til að óttast pabbapólitíkina. Margt
bendir til að hún sé sprelllifandi og
sé nú sem endranær að vinna mikin
skaða á íslensku þjóðfélagi.
Fyrir Islendingum liggja erfið
verkefni og stjómmálaflokkamir
hafa nú úttalað sig um sínar lausnir.
íslenskt atvinnulíf er einhæft og því
era efnahagssveiflur dýpri og lang-
vinnari en annars staðar. Laun er
skelfilega lág vegna landlægs óhag-
ræðis í höfuðatvinnuvegunum. Is-
lendingar hafa mismikið atkvæða-
vægi og þar með
mismikil áhrif á
landsstjórnina.
Landið stendur á
tímamótum hvað
varðar alþjóða-
samskipti, þar sem
talsverð hætta er á
að við einangr-
umst hægt og ró-
lega frá okkar
helstu bræðraþjóðum í Evrópu.
Agreiningsefnin er mörg og má til
dæmis nefna stefnu í ríkisfjármálum
og skattamálum. Menn greinir á um
hvort að framkvæðið í atvinnuupp-
byggingu skuli koma frá einstakling-
um eða ríki. Sömuleiðis er ósætti um
leiðir til að stokka upp í höfuðat-
vinnuvegunum, sjávarútvegi og
landbúnaði. Ósætti er um jöfnun at-
kvæðisréttar og flokkamir keppast
við að hafa sem allra minnsta skoðun
á utanríkismálunum og þá helst aðild
að Evrópusambandinu.
Það er aðeins einn flokkur sem
vill:
• að framkvæði í atvinnuuppbygg-
ingu komi frá einstaklingunum, þar
sem hlutverk ríkisins er að skapa
vænleg skilyrði.
• stokka upp í landbúnaði og sjávar-
útvegi og koma á samkeppni í stað
miðstýringar, sem mun leiða til auk-
innar hagkvæmni og skila sér í hærri
launum í framtíðinni.
• efla menntakerfíð og styðja frekar
rannsóknir og þróunarstarfsemi auk
þess að stofna nýsköpunarsjóð at-
vinnulífsins til stuðnings þróunar-
starfs, tilraunaframleiðslu og mark-
aðssetningar.
• opna landið fyrir alþjóðaviðskipt-
um og höftum verði aflétt á öllum
sviðum, þar meðtöldum landbúnaði.
Slík breyting myndi auka hag neyt-
Pallborðið
Jón Þór
■ Sturluson
skrifar
„Við þekkjum öll
týpuna, sem sam-
kjaftar ekki með
sömu frösum og
flokksformennirnir
rétt eins og að hann
eyddi öllum sínum
stundum í að læra
ræður þeirra utan-
að. Svo um leið og
nýja fleti bera á
góma er umsvifa-
laust skipt um um-
ræðuefni. Hinn
klassíski stutt-
buxnadrengur..."
enda stórlega og lækka verð matar-
körfunnar veralega.
• jafna atkvæðavægi í landinu, með
því að sameina landið í einu kjör-
dæmi.
• að ísland sæki um aðild að Evr-
ópusambandinu og hefji aðildarvið-
ræður sem fyrst, því svör um hvað
aðild hefði í för með sér fyrir Island
fást ekki nema í samningaviðræðum.
Þetta era nokkrar af leiðum Al-
þýðuflqkksins - Jafnaðarmanna-
flokks Islands. Ég treysti því að það
ungt fólk sem er gagnrýnið í hugsun
komist að þeirri niðurstöðu að ef
hugsað er um framtíðina er Alþýðu-
flokkurinn ótvírætt besti kosturinn.
Ég spyr, hvað er það annað en
pabbapólitík sem getur útskýrt mikið
fylgi Framsóknarflokksins á meðal
ungs fólks? Með hvaða rökum er
hægt að halda því fram að stjóm með
þátttöku Framsóknarflokksins
myndi leiða til framfara í íslensku
þjóðfélagi? Það á ekki að vera hægt
að blekkja upplýst fólk nteð talna-
galdri og aulahagfræði.
Hvers vegna mælist Sjálfstæðis-
flokkurinn vinsælastur á meðal ungs
fólks, stærsti framsóknarflokkur
landsins? Jú, hann þorir ekki að taka
afstöðu nú fyrir kosningar þegar
mest ríður á að fólk sé upplýst. Að-
eins ef fólk er móttækilegt fyrir ragl-
inu geta pópúlískir pabbaflokkar náð
árangri. Þeir einir eru móttækilegir
sem nýta sér ekki þá guðsgjöf sem
gáfumar eru til að skoða málin frá
fleiri en einu sjónarhorni.
I skoðanakönnun sem gerð var
meðal stjómmálafræði- og hagfræði-
nema við Háskóla Island um síðustu
helgi kom í ljós að rúmlega 44%
þeirra sem tóku afstöðu kváðust ætla
að styðja Alþýðuflokkinn á meðan
fylgi flokksins meðal yngstu kjós-
endanna almennt mælist rúm 12%.
Þessar niðurstöður eru skýr sönn-
un þess að þeir sem einna mest
stunda gagnrýna skoðun á stjómmál-
um og efnahagsmálum treysta Al-
þýðuflokknum best til að leiða þjóð-
ina inn í framtíðina. I sömu könnun
kom þannig fram að meira en 9 af
hverjum 10 styðja, að farið verði út í
aðildarviðræður við Evrópusam-
bandið, að landbúnaðarkerfið verði
markaðsvætt og að atkvæðavægi
verði jafnað, rétt eins og Alþýðu-
flokkurinn vill að gert verði.
Það er ljóst að Alþýðuflokkurinn
er valkostur þeirra sem hugsa áður
en þeir kjósa. En það geta fleiri hugs-
að en þeir sem er í námi við Háskóla
íslands, það geta allir gert. Því hvet
ég þig til að gefa þér tfma til að skoða
valkostina uppá eigin spýtur. Ef
pabbapólitíkin verður sett til hliðar á
laugardaginn kemur, er í ekki í
nokkram vafa um að ungt fólk mun
velja rétt. Það mun segja já við fram-
tíðinni.
Höfundur er formaður Sambands
ungra jafnaðarmanna.
fegurðardrusla að trana sér
fram f stjórnmálum? Þegar
maður mætir uppí skóla
alls ófeimin með barm-
merki og þessháttar þá ská-
skýtur fólk til að mynda á
mann augunum, en ég er
bara glaðhlakkaleg...
r
Eg tel afar mikilvægt að
ungt fólk taki virkan þátt
í að láta hugsjónir sem
varða almannaheill verða
Bryndís Bjarnadóttir,
22 ára heimspekinemi
og fyrirsæta, skipar 16.
sætið á framboðslista Al-
þýðuflokksins í Reykjavík.
Hér á eftir fara gullvæg
brotabrot úr samtali henn-
ar við Alþýðublaðið fyrir
stuttu...
Hugmyndin á bakvið
þessa X-kynslóðar-
nafngift gengur útá það, að
unga kynslóðin í dag eigi
sér engar hugsjónir og sé
almennt dofin gagnvart því
samfélagi sem hún lifir í.
Og það er bara hárrétt því
unga kynslóðin sefur vissu-
lega fast á meðan hún flýt-
ur að feigðarósi félagslegs
sinnuleysis. Það ertími til-
kominn fyrir okkur öll að
vakna og...taka afstöðu...
Það angrar mig lítið þótt
einhverjar smásálir velti
fyrir sér: Hvern andskotann
er þessi Bryndís Bjarna-
dóttir að gera þarna á list-
anum? eða Hvað er þessi
að veruleika. Ég treysti
engum betur en Alþýðu-
flokknum til að leiða okkur
(slendinga til bjartari og ör-
uggari framtíðar. Þetta er
eini flokkurinn sem hefur
mótað sér skýra stefnu um
það hvernig leysa eigi ei-
lífðarvandann...
Ungt fólk hefur því mið-
ur lengi kvartað mis-
kunnarlaust um að hér á
landi sé ekkert að fá og úr
engu sé að moða - það
hafi engin áhrif, en samt
skirrist það við að taka af-
stöðu og taka þannig þátt í
að móta eigin framtíð.
Þetta er áberandi afstaða
og unga fólkið hefur of
lengi látið sig það litlu
skipta hvernig lífskjörum
verði háttað hér á landi í
framtíðinni og hvaða
menntunar- og atvinnu-
möguleikar bjóðist. Maður
skyldi halda það af litlu áliti
þeirra hingaðtil allavega á
beinni og virkri þátttöku í
stjórnmálum...
"FarSide" eftir Gary Larson.
Á hverjum einasta laugardagsmorgni - á meðan leikfé-
lagar hans biðu þolinmóðir -tók Ólafur Ragnar sér nokkr-
ar aukamínútur í vanabundna æfingu og öskraði á „hund-
inn" sinn vegna efnahagsástandsins...
Ég vil þig!
Maður dagsins
er Baldur Stef-
ánsson sem
hefur lyft sann-
kölluðu grettis-
taki í starfi sínu
sem fram-
kvæmdastjóri
ungra jafnaðar-
manna og hafið
samtök þeirra
til stóraukinnar
vegsemdar og
virðingar í lit-
rófi íslenskra
s t j ó r n m á 1 a!
Maðurinn er
marghamur, of-
urvirkur hugmyndabanki og nýtur í þeim
efnum einna helst menningarlegs bak-
grunns (verandi KR-ingur og sonur Stef-
áns Baldurssonar leikhússtjóra og Þór-
unnar Sigurðardóttur leikritaskálds).
Ekki má hinsvegar gleyma fjölbreytilegr-
ar reynslu frá fyrri störfum (fjölhæfastur
barþjóna á Ingólfscafé, World Class
súpereinkaþjálfari og hljómsveitasprell-
ari par exellance). Ykkur sem lystir og
þyrstir í meira um unga jafnaðarmenn er
bent á að hafa samband við alhliða aðal-
manninn Baldur í síma 91-29244 eða
með símbréfi 92-629155 eða á Intemet-
fanginu baldstef@centrum.is eða í sím-
boðanúmerið 984-51451. Það er bókstaf-
lega ómögulegt að ná ekki í manninn...
S e x
f ö r n u
Afhverju ætlar þú að kjósa Alþýðuflokkinn? (Spurt í 28. sæti lista Alþýðuflokksins í Reykjavík.)
Hallgrímur Helgason, rit-
höfundur: Margir af minni
kynslóð og yngri - og þá ekki
síst listamenn - hafa verið í
lausu pólitísku lofti og verið
að kjósa hitt og þetta og jafn-
vel ekki neitt, aldrei þorðu al-
mennilega að taka afstöðu og
standa með henni. Maður á
að kjósa í kosningum.
Hallgrímur, skáld: Fátt er
ömurlegra en sitja stikkfrí hjá
og liggja svo eins og blóð-
sjúgandi ópólitísk mara á
spenum þjóðfélagsins, þiggja
bama- og örorkubætur, náms-
lán, styrki og starfslaun um
leið og segjast vera orðinn
hundleiður á þessu pólitíska
þrasi og sitja heima á kjördag
og lesa... já lesa um frönsku
byltinguna.
Hallgrímur Helgason,
pistlahöfundur: Alþýðu-
flokkurinn er jafnaðarmanna-
flokkur íslands, eini flokkur-
inn sem stendur almennilega
fyrir þessa fallegu stefnu,
þessa glæsilegu evrópsku lí-
beral hefð, sem er afrakstur
2000 stritandi og blóðugra
ára sögu og hin eina sanna
pólitíska stefna.
Hallgrímur Helgason,
myndlistarmaður: Al-
þýðuflokkurinn er laus við
þetta gamla vinstra vesen,
kröfugerðarsósíalismann,
hinar ódýra lausnir, um leið
og hann er fylgjandi frjálsu
markaðskerfí, sem er eina
kerfið sem virkar eins og
austumski rithöfundurinn
Thomas Bemhard heitinn
sagði svo réttilega.
Hallgrímur Helgason,
frambjóðandi: Alþýðu-
flokkurinn fylgir raunsærri
mannúðarstefnu og er ekki
bamalegt fómarlamb útóp-
ískrar óskhyggju. Hann er
einnig eini flokkurinn sem
vinnur gegn öllum hinum
framsóknarflokkunum.
Hallgrímur Helgason,
barfluga: Á íslandi þurfum
við að efla einn flokk mátu-
lega vinstra megin við miðju,
en ekki stofna fleiri á per-
sónulegum forsendum. Við
þurfum einn stóran og nú-
tfmalegan krataflokk eins og
þeir eru til í flestum öðram
Evrópulöndum. Um þetta eru
flestir sammála en þráast við
að viðurkenna það að Al-
þýðuflokkurinn er sá flokkur.
V i t i m e n n
Halldór Blöndal sló
fundarmenn út af laginu
með því að segjast hafa misst
af ummælunum þar sem
hann hefði verið með
niðurgang um þetta leyti
Frásögn af fjörugum framboðsfundi
á Þórshöfn á fimmtudagskvöldið.
Morgunpósturinn í gær.
Kúgaður eiginmaður
fer út á lífið
Kvikmyndadómur Hilmars Karlssonar
á jákvæðu nótunum um myndina
Ein stór fjölskylda. DV i gær.
Við höfum okkar leiðir
til þess að ná okkar fram.
Meðal annars með stuðningi
stjórnmálamanna sem sitja á
þingi nú. Þeir styðja okkur
margir hverjir og nú eru þeir
fjórir eða fimm í núverandi
stjórn sem styðja okkur
Einar S. Jónsson, formaður Norræns
mannkyns. MP í gær.
Dönsk kona svaf hjá munki
Fyrirsögn athyglisverðrar stórfréttar.
MP í gær.
Við getum ekki, munum
ekki og viljum ekki - styðja þá
ríkisstjórn sem ekki breytir
þessu kvótakerfi
Einar K. Guðfinnsson, íhaldsjarl
á Vestfjörðum. DV í gær.
Alþingiskosningarnar
of snemma
Fyrirsögn um Strandasýslu,
kosningar og ófærð. DV í gær.
Frægð
oq frami
í pólitík
„Tveimur áram síðar var
haldinn annar landsfundur á Hótel
Sögu og þá var nú eitthvað farið að
styttast í lífdögum Bandalags jafn-
aðarmanna,
en ég hélt þar
[tvítugur að
aldri] samt-
sem áður ein-
hverja
þramuhvatn-
ingarræðu og
endaði með
því að vera
kosinn vara-
formaður. Þá var Guðmundur Ein-
arsson formaður og kosning mín
kom mér jafnmikið á óvart og öllum
öðrum. Þarna á landsfundinn 1986
kom síðan einhver blaðastúlka frá
DV - sem mér skilst að hafi verið í
starfskynningu - og tók við mig
viðtal. Hún spurði ntig auðvitað urn
hvernig mér liði að vera orðinn
varaformaður BJ. Ég sagði að ég
tæki þessu öllu með stillingu enda
væri ég með báða fætur á jörðinni.
Stúlkan hafði hinsvegar eftir mér
daginn eftir í DV, að ég væri fæddur
á jörðinni. Þetta var sérstaklega tek-
ið fram og vitnað beint í mig - gott
ef ekki í fyrirsögn: Ég er fæddur á
jörðinni! Maður á að lesa viðtöl
fyrir birtingu."
- sagði Vilhjálmur Þorsteinsson, 29
ára kerfisfræðingur og tölvugúrú, í
viðtali við Alþýdublaðid fyrir
skemmstu. Hann skipar 7. sætið á lista
Alþýðuflokksins í Reykjavík.