Alþýðublaðið - 07.04.1995, Qupperneq 10
ALÞYÐUBLAÐIÐ
i s k o s n i n
HELGIN 7. - 9. APRIL1995
+
sigur íyrir Island hefur
...kjark til að ná árangri á erfiðum tímum...
kj ark til að snúa
vörn í sókn
Ríkisstjórnin hefur skilað árangri á erfiðum tímum. Hún hefur
snúið vörn í sókn. Lengstu efnahagskreppu í sögu lýðveldisins er
lokið. Framundan er nýtt gróskuskeið - ef við stöndum vörð um
stöðugleikann.
Verðlag og vextir fara lækkandi. Gengi krónunnar er rétt skráð og
stöðugt. Islenskum fyrirtækjum vegnar nú betur í samkeppni við
innflutning. Við flytjum meira út en inn. Erlendar skuldir
þióðarinnar hafa lækkað um 30 milljarða króna. Efnahagsbatinn
skilaði sér í kjarasamningum, þar sem lægstu launin hækkuðu mest.
Ríkisútgjöla hafa lækkað og skattar einnig - um tvo milljarða króna.
Hátekjuskatturinn hefur verið framlengdur og fjármagnstekju-
skattur verður lagður á um næstu áramót.
Vaxtalækkunin skilar skuldugum heimilum og fyrirtækjum 8
milljarða króna fjárhagsbata á ári. Að loknum kjarasamningum eru
fyrirtækin að ráðast í nýjar fjárfestingar. Þannig vinnum við bug á
atvinnuleysinu. í fyrra urðu til 1900 ný störf- og spáð er 2000
nýjum störfum i áf.
Við erum á réttri leið. Sjávarútvegurinn er rekinn með hagnaði.
Iðnaður og þjónustufyrirtæki eru í sókn. Heildareignir heimilanna
eru meiri en þrefaldar á við skuldir. Eigið fé heimilanna óx um
milljarð á mánuði á sl. ári. Húsnæðisskuldir heimilanna fara
lækkandi sem hlutfall af tekjum.
kj ark til aö verj a
hagsmuni iðnaöar
Efling iðnaðar er skýrasta dæmið um góðan árangur af efnahags-
stefnu ríkisstjórnarinnar. Alger umskipd urðu í íslenskum iðnaði á
síðasta ári. Heildarvelta hans jókst um 7 2% og útflutningsverð-
mæti um 22%. íslenskur iðnaður er því kominn í stórsókn.
Hvarvetna ríkir meiri bjartsýni en áður.
Skipasmíðaiðnaði hafa verið sköpuð viðunandi rekstrarskilyrði og
vernd gegn niðurgreiddri erlendri samkeppni. Á árinu 1994 var 60
milljónum króna varið til að jafna samkeppnisstöðu hans. Án
þessarar aðstoðar hefðu verkefni fyrir hundruð milljóna króna verið
unnin erlendis og atvinnuleysi aukist að sama skapi. Starfsmenn
skipasmíðaiðnaðar og fjölskyldur þeirra geta því horft fram á
bjartari tíma en áður.
Iðnþróunarsjoður mun á næstu 15 mánuðum veita 230
milljónum króna til nýsköpunar í atvinnulífinu.
kj ark til aö
opna markaði
Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið var stærsta framfara-
mál síðasta kjörtímabils. Við erum stolt af því að Alþýðuflokkurinn
er eini stjórnmálaflokkurinn á íslandi sem frá upphan til enda stóð
heill og óskiptur að framgangi samningsins. Stjórnarandstaðan
forðast nú að rifja upp öfugmæli sín um áhrif samningsins á íslenskt
samfélag. ■_______•
EES-samningurinn hefur reynst sjávarútvegnum - og þar með
sjómönnum og fiskverkafólki á landsbyggðinni - verulegur
búhnykkur. Við vinnum nú meiri verðmæti - sem svarar 3
milljörðum króna 1994 - úr minni afla. Áhrifin hafa skilað sér í
auknum útflutningstekjum, fleiri störfum við fullvinnslu afurða,
aukinni vöruþróun og bættri samkeppnisstöðu á mikilvægustu
mörkuðum okkar.
Þjóðhagsstofnun telur að búbót EES-samningsins, þegar hann er
að fullu kominn til framkvæmda, samsvari 0,6-1,4% af
landsframleiðslu eða 2,5 til 6,0 milljörðum króna á ári. Þetta þýðir
u.þ.b. 44 þúsund krónur. í hlut hverrar fjögurra manna fjölskyldu á
ári - uppnæð sem mun tvöfaldast á næstu árum.
sigrar fyrir Island
1991 -1995:
Erlendar skuldir greiddar niður um 30 milljarða króna • 1900 ný störf 1994
• EES-samningurinn gefur meiri verðmæti fyrir minni afla: 3 milljarðar
króna 1994 • vaxtalækkun sem svarar 8 milljörðum á ári • ávinningur meðal
skuldara af vaxtalækkuninni er 86 þúsund krónur á ári • lækkun matarverðs
um 11% • 30 þúsund tonn af rússafiski sköpuðu 3-400 ársverk • 22%
aukning í útflutningverðmæti iðnaðarvara • 3% hagvöxtur • 2000 ný störf
1995 • ríkisútgjöld lækkuð og er halli rikissjóðs hlutfallslega minni hér á
landi en í nágrannalöndunum • úthafsveiðar hafa fært björg i bú sem svarar
55-60 þúsund á hverja fjögurra manna fjölskyldu • skipsmíðaiðnaði sköpuð
samkeppnisskilyrði • ferðaþjónusta í sókn • lág verðbólga og stöðugt gengi •
10 miUjarða efnahagsbati sem hefur skUað sér til kjarajöfnunar • afnám
tvísköttunar á lífeyri • húsaleigubætur • ný samkeppnislög • hjartaaðgerðir
og glasafrjóvgun framkvæmdar innanlands • jöfnun húshitunarkostnaðar •
eigið fé heimilanna óx um milljarð á mánuði 1994 • húsbréfakerfið fest í
sessi • 4.650 félagslegar íbúðir á kjörtímabilinu • 3,5 milljarðar króna í
greiðsluerfiðleikalán
það kostar kjark að fá meira fyrir þitt atkvæði.