Alþýðublaðið - 07.04.1995, Blaðsíða 11
HELGIN 7.-9. APRIL 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
r.'n.L.IU!U1.ll,L.HT
alltaf kostað kj ark...
...og kjark til að ná árangri á næstu árum
kj ark til að horfast í
augu við tækifærin
Aðild að Evrópusambandinu er uppspretta nýrra tækifæra. Unga
fólkið, best menntaða kynslóð íslandssögunnar, sættir sig ekki við
einangrað ísland. Unga fólkið vill fjölþættara atvinnulíf, erlendar
fjárfestingar, alþjóðlegt samstarf - vef launuð störf!
íslendingar vilja sömu lífskjör og velferðarþjóðfélög Evrópu
bjóða þegnum sínum. Með aðild að Evrópusambandinu mun
íslenskt atvinnulíf öðlast sömu kjör og atvinnulíf nágranna okkar.
Erlend fjárfesting mun aukast og fjölbreyttari störf skapast handa
ungu og vel menntuðu fólki.
Spurningin um aðild íslands að Evrópusambandinu er ekkert
dægurmál. Stjórnmálaflokkum ber að móta framtíðarsýn.
Alþýðuflokkurinn vill sjá Island til borðs með lýðræðisþjóðum
Evrópu. Aðild íslands að ESB varðar framtíð þjóðarinnar og
velferð við upþhaf 21. aldarinnar.
fyrir neytandann
Matarverð á íslandi er eitt hið hæsta í veröldinni. Þetta háa
matarverð kemur niður á kjörum almennings - sérstaklega
láglaunafólks. Aðild íslands að Evrópusambandinu myndi lækka
verð á landbúnaðarafurðum og bæta kjör heimilanna í landinu.
Með nýjum GATT-samningi verður innflutningur á
landbúnaðarafurðum leyfður. Neytendasamtökin telja að eðlileg
framkvæmd GATT-samningsins rnuni lækka matarverð um íSh.
íslensk heimili þurfa á slíkri lækkun að halda!
kj ark til að takast á
við
Matarverð í nokkrum borgum Evrópu
Magn I kg. Hagkaup Fötex, Kaup- Reykjavík mannahöfn Globus Bonn Sainsbury' s London B&W, Stokkhólmur ICA Osló Carrefour París
Lambalæri 796 672 703 298 752 570 698
Nautahakk 651 1 7/1 468 276 1 7Q 418 570 írr
Kartöflur 63 80 64 = 67 ^ff 166; 167
Sveppir 597 449 280 268 410 371 266
Tómatar 229 173 141 205 208 332 178
Agúrkur 199 275 280 112 192 303 196
Smjör 350 359 373 317 300 322 497
Ostur 640 392 609 334 366 625 426
Jógúrt 190 91 121 212 120 209 145
4 460 3 316 R R7R 7 7 j 4 7 Q4Q 7 7SQ
Ódýrara -26% -24% -so% -34% -IS% -29%
en Hagkaup
Öll verð eru miðuð við 14% virðisaukaskatt
Við viljum að minnst einum milljarði króna á ári verði varið í að-
gerðir gegn atvinnuleysi. Markmið okkar er að enginn íslendingur
verði iðjulaus og óvirkur í okkar samfélagi.
Til lengri tíma er hagvöxtur og uppgangur í efnahagsmálum
besta vopnið gegn atvinnuleysi. Reynslan sýnir þó að sérstakra
aðgerða er þörf til að sigrast á vandanum. Við leggjum áherslu á
starfsmenntun og endurmenntun atvinnulausra þannig að þeir eigi
þess kost að laga sig að breyttum aðstæðum. Hluti aðgerðanna
verður stuðningur við nýsköpun fyrirtækja og varanlega
atvinnusköpun. Þessi viðfangsefni beinast sérstaklega að þeim sem
búið hafa við langvarandi atvinnuleysi, en snerta einnig
atvinnuþátttöku kvenna, ungs fólks og fatlaðra.
fyrir atvinnulífið
Við munum halda áfram á braut aukins frjálsræðis í atvinnumálum.
Aframhaldandi stöðugleiki með lágri verðbólgu, stöðugu gengi og
lágum vöxturn er forsendan fyrir vexti fyrirtækja á næstu árum.
Nær 70% af útflutningi okkar fer til landa Evrópusambandsíns. Fullur
markaðsaðgangur og jöfn staða okkar og keppinauta okkar á þessum
markaði getur haft úrslitaáhrif á þróun íslensks atvinnulífs. Tryggja þarf
atvinnulífinu sambærilegt starfsumhverfi (t.d. skattakerfi og löggjöf) og
evrópsku atvinnulífi. Slíkt verður ekki gert til frambúðar nema með
aðila að Evrópusambandinu.
Nauðsynlegt er að laða erlent áhættufjármagn til landsins. Kynna
verður landið með markvissum hætti fyrir erlendum fjárfestum og
skapa hagstæð skilyrði. Aðild að Evrópusambandinu mun gera Island
vænlegri kost í samkeppni um fjárfestingar og auka erlenda fjárfestingu
hérlendis.
Hvetja þarf til nýsköpunar. Sjóðakerfi atvinnulífisins verður stokkað
upp og nýsköpunarsjóður stofnaður. Hlutverk hans verður að styðja
vöruþróun, tækniframfarir, alþjóðlegt samstarf og markaðssetningu.
Aðstoð við smáfyrirtæki er sérstaklega mikilvæg.
Að setj a ísland í A-flokk.
Við viljum hækka segl sjávarútvegsins. Við höfnum alfarið séreign
sægreifanna á kvótanum, og teljum brýnt að sameign þjóðarinnar á
fiskimiðunum verði bundin í stjórnarskrá. Öllum ráðum verður að
beita til að hindra að afla sé hent. Forgangsverkefni verður að efla
bátaútgerðina, jafnt smábáta sem hefðbundna vertíðarbáta, og stuðla
að því að sem mestur hluti aflans verði unninn í landi. Við viljum að
viðbótarkvóti komandi ára verði í sem mestum mæli settur á
bátaflotann. Þannig eflum við bátaútgerðina og fjölgum störfum í
landi, án þess að ganga á hlut togaranna.
>
M
Æks
iBl
/uanþ íAmtr.
Alþýöuflokkurinn - Jafnaöarmannaflokkur Islands
11