Alþýðublaðið - 07.04.1995, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 07.04.1995, Blaðsíða 11
HELGIN 7.-9. APRIL 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ r.'n.L.IU!U1.ll,L.HT alltaf kostað kj ark... ...og kjark til að ná árangri á næstu árum kj ark til að horfast í augu við tækifærin Aðild að Evrópusambandinu er uppspretta nýrra tækifæra. Unga fólkið, best menntaða kynslóð íslandssögunnar, sættir sig ekki við einangrað ísland. Unga fólkið vill fjölþættara atvinnulíf, erlendar fjárfestingar, alþjóðlegt samstarf - vef launuð störf! íslendingar vilja sömu lífskjör og velferðarþjóðfélög Evrópu bjóða þegnum sínum. Með aðild að Evrópusambandinu mun íslenskt atvinnulíf öðlast sömu kjör og atvinnulíf nágranna okkar. Erlend fjárfesting mun aukast og fjölbreyttari störf skapast handa ungu og vel menntuðu fólki. Spurningin um aðild íslands að Evrópusambandinu er ekkert dægurmál. Stjórnmálaflokkum ber að móta framtíðarsýn. Alþýðuflokkurinn vill sjá Island til borðs með lýðræðisþjóðum Evrópu. Aðild íslands að ESB varðar framtíð þjóðarinnar og velferð við upþhaf 21. aldarinnar. fyrir neytandann Matarverð á íslandi er eitt hið hæsta í veröldinni. Þetta háa matarverð kemur niður á kjörum almennings - sérstaklega láglaunafólks. Aðild íslands að Evrópusambandinu myndi lækka verð á landbúnaðarafurðum og bæta kjör heimilanna í landinu. Með nýjum GATT-samningi verður innflutningur á landbúnaðarafurðum leyfður. Neytendasamtökin telja að eðlileg framkvæmd GATT-samningsins rnuni lækka matarverð um íSh. íslensk heimili þurfa á slíkri lækkun að halda! kj ark til að takast á við Matarverð í nokkrum borgum Evrópu Magn I kg. Hagkaup Fötex, Kaup- Reykjavík mannahöfn Globus Bonn Sainsbury' s London B&W, Stokkhólmur ICA Osló Carrefour París Lambalæri 796 672 703 298 752 570 698 Nautahakk 651 1 7/1 468 276 1 7Q 418 570 írr Kartöflur 63 80 64 = 67 ^ff 166; 167 Sveppir 597 449 280 268 410 371 266 Tómatar 229 173 141 205 208 332 178 Agúrkur 199 275 280 112 192 303 196 Smjör 350 359 373 317 300 322 497 Ostur 640 392 609 334 366 625 426 Jógúrt 190 91 121 212 120 209 145 4 460 3 316 R R7R 7 7 j 4 7 Q4Q 7 7SQ Ódýrara -26% -24% -so% -34% -IS% -29% en Hagkaup Öll verð eru miðuð við 14% virðisaukaskatt Við viljum að minnst einum milljarði króna á ári verði varið í að- gerðir gegn atvinnuleysi. Markmið okkar er að enginn íslendingur verði iðjulaus og óvirkur í okkar samfélagi. Til lengri tíma er hagvöxtur og uppgangur í efnahagsmálum besta vopnið gegn atvinnuleysi. Reynslan sýnir þó að sérstakra aðgerða er þörf til að sigrast á vandanum. Við leggjum áherslu á starfsmenntun og endurmenntun atvinnulausra þannig að þeir eigi þess kost að laga sig að breyttum aðstæðum. Hluti aðgerðanna verður stuðningur við nýsköpun fyrirtækja og varanlega atvinnusköpun. Þessi viðfangsefni beinast sérstaklega að þeim sem búið hafa við langvarandi atvinnuleysi, en snerta einnig atvinnuþátttöku kvenna, ungs fólks og fatlaðra. fyrir atvinnulífið Við munum halda áfram á braut aukins frjálsræðis í atvinnumálum. Aframhaldandi stöðugleiki með lágri verðbólgu, stöðugu gengi og lágum vöxturn er forsendan fyrir vexti fyrirtækja á næstu árum. Nær 70% af útflutningi okkar fer til landa Evrópusambandsíns. Fullur markaðsaðgangur og jöfn staða okkar og keppinauta okkar á þessum markaði getur haft úrslitaáhrif á þróun íslensks atvinnulífs. Tryggja þarf atvinnulífinu sambærilegt starfsumhverfi (t.d. skattakerfi og löggjöf) og evrópsku atvinnulífi. Slíkt verður ekki gert til frambúðar nema með aðila að Evrópusambandinu. Nauðsynlegt er að laða erlent áhættufjármagn til landsins. Kynna verður landið með markvissum hætti fyrir erlendum fjárfestum og skapa hagstæð skilyrði. Aðild að Evrópusambandinu mun gera Island vænlegri kost í samkeppni um fjárfestingar og auka erlenda fjárfestingu hérlendis. Hvetja þarf til nýsköpunar. Sjóðakerfi atvinnulífisins verður stokkað upp og nýsköpunarsjóður stofnaður. Hlutverk hans verður að styðja vöruþróun, tækniframfarir, alþjóðlegt samstarf og markaðssetningu. Aðstoð við smáfyrirtæki er sérstaklega mikilvæg. Að setj a ísland í A-flokk. Við viljum hækka segl sjávarútvegsins. Við höfnum alfarið séreign sægreifanna á kvótanum, og teljum brýnt að sameign þjóðarinnar á fiskimiðunum verði bundin í stjórnarskrá. Öllum ráðum verður að beita til að hindra að afla sé hent. Forgangsverkefni verður að efla bátaútgerðina, jafnt smábáta sem hefðbundna vertíðarbáta, og stuðla að því að sem mestur hluti aflans verði unninn í landi. Við viljum að viðbótarkvóti komandi ára verði í sem mestum mæli settur á bátaflotann. Þannig eflum við bátaútgerðina og fjölgum störfum í landi, án þess að ganga á hlut togaranna. > M Æks iBl /uanþ íAmtr. Alþýöuflokkurinn - Jafnaöarmannaflokkur Islands 11

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.