Alþýðublaðið - 28.04.1995, Page 7
HELGIN 28. APRÍL -1. MAÍ1995
ALÞÝbUBLAÐIÐ
7
ó r n m á I
Doktor Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði, er höfundur bókarinnar Frá flokksrædi til per-
sónustjórnmála - Fjórflokkarnir 1959 til 1991, sem nýverið kom út. í harðsoðnu samtali við Stefán Hrafn
Hagalín ræðir Svanur meðal annars um bókina og greinir í grófum dráttum frá helstu niðurstöðum sínum.
Einnig kemur fram að hann er að skrifa bók um nýafstaðnar alþingiskosningar sem áætlað er að komi út
síðari hluta árs..., jólabókin í ár?
DoktorSvanur Kristjánsson, pró-
fessor í stjómmálafræði við félagsvfs-
indadeild Háskóla íslands, hefur sent
frá sér bókina Frú flokksrœði til per-
sónustjómnwla - Fjórflokkamir
1959 til 1991. Útgefendur eru Félags-
vísindastofnun Háskólans og Há-
skólaútgáfan. í samtali við Stefún
Hrnfn Hagalín ræðir Svanur um bók-
ina og greinir í grófum dráttum frá
helstu niðurstöðum sínum.
„Þetta er mikil bók sem skiptist í
fjóra kafla og fjallar um fjórflokkana.
I fyrsta kaflanum em raktar fram-
boðsaðferðir flokkanna og með
hvaða hætti þingmenn hverfa af Al-
þingi og nýir koma í staðinn og
hvemig þeir hætta: livort þeir hætta
sjálfviljugir eða em píndir til að hætta
- hvort þeir féllu í prófkjömm eða
kosningum. Ennfremur fjalla ég um
bakgmnn þingmannanna: hvernig
skólagöngu og starfsferli erháttað. Eg
tek fyrir alla þingmenn sem á Alþingi
sátu á ámnum 1959 til 1991. Ef við
tökuni Sjálfstæðisflokkinn sem dæmi
þá skoða ég hvaða aðferðir hann hef-
ur notað til að velja á framboðslista í
hverju kjördæmi fyrir sig á þessu
tímabili, hvort það hefur verið með
uppstillingamefnd, prófkjöri og svo
framvegis. Annar kafli nefnist Um-
boð og vald og þar einbeiti ég mér að
því til hverra stjómmálamennimir
sækja sitt umboð. Þriðji kafli fjallar
síðan um íjórflokkakerfið í heild og
þar velti ég fyrir mér tengslum þess
við samfélagið og nkisvaldið. Þeirri
umfjöllun skipti ég niður í þijú tíma-
bil: 1959 til 1967, umrótsskeiðið
1967 til 1971 og 1971 til 1991. í
fjórða og síðasta kafla bókarinnar er
sjónarhomið svo víkkað enn frekar.
Þetta leiðir nefnilega hvert af öðm:
þingmennimir, flokkamir, flokka-
kerfið, ríkisvaldið, samfélagið og síð-
asti kaflinn þar sem einkum er fjallað
um tvennt: Annarsvegarem ísland og
Bandaríkin borin saman mjög ítarlega
- meðal annars vegna þess að Island
er eina ríkið sem notar prófkjör tíl að
velja frambjóðanda og þetta er gert í
Bandaríkjunum sem ekki er þingræð-
isríki - og ég lít þannig á stjómmála-
flokkana í þessum tveimur löndum og
ber saman. Hinsvegar fjalla ég í þess-
um kafla um kenningar um lýðræði
og hvort þessi þróun stjómmálaflokk-
anna á íslandi hefur orðið til þess að
styrkja stjómmálaflokkanna eða
ekki.“
Og brástu þér ekki yfir Atlants-
pollinn til rannsókna og þesshátt-
ar?
„Ég er náttúrlega upphaflega
skólagenginn í Bandaríkjunum. En
mestallt er þetta skrifað meðan ég var
sem gestakennari við Rockefeller-há-
skólann í Albany, höfuðborg New
York-fylkis, árin 1991 til 1992. Síðan
má nefna að ég átti rannsóknasam-
starf við menn á Norðurlöndunum."
Ef við lítum á kaflana útaf fyrir
sig og byrjum á þcim fyrsta er fjall-
ar um þingmcnnina sjálfa: hverjar
eru helstu niðurstöður þínar þar?
„Það em allskonar niðurstöður
þama að finna, en það má segja að
meginniðurstaðan sé sú, að þing-
mennskan er orðin að sérhæfðara
starfi en áður var og menn sinna varla
öðm. Árið 1959 vom alþingismenn í
öðmm störfum meðffam þing-
mennskunni því hún var ekki fullt
starf. Það sést nú tíl dæmis með því að
líta á þann fjölda sem var á þingi, en
gegndi jafnframt öðmm opinberum
embættum. Þetta þróast þannig að
1959 em 29 þingmenn - eða 26,7% -
sem vinna hjá hinu opinbera, en 1987
til 1991 kemur aðeins einn þingmað-
ur úr þeim geira. Þingmenn koma
einnig úr öðmm starfshópum en áður.
1959 vom 40% þingmanna úr ein-
ungis fjómm hópum - sjö bændur,
sex bæjar- og sveitarstjórar, sex for-
ystumenn verkalýðshreyfinga og sex
sýslumenn. Og ef maður lítur á kosn-
ingamar 1991 þá em bændur eini
hópurinn sem eftir er af þessum fjór-
um fjölmennustu 1959.1 þessum efn-
um hafa orðið gífurlega mikil um-
skipti og sú staðreynd stakk einna
mest í augun. Sýslumenn. kaupfé-
lagsstjórar, forystumenn í verkalýðs-
hreyfingunni, útgerðarmenn og bæj-
ar- og sveitarstjórar em að langmestu
leyti horfnir af Alþingi. I staðinn
komu kennarar, framkvæmdastjórar
og fjölmiðlamenn - sem til dæmis
sést ágætlega á Alþýðublaðinu þínu
þar sem ritstjórar hafa verið eða verða
þingmenn."
Rúllum yfir í annan kafla sem
fjallar um forystuna og umboð
hennar; helstu niðurstöðumar
þar?
„Það er eiginlega of flókið mál fyr-
ir svona stutt viðtal því þar er verið að
tala um þingið í heild og þróunin hef-
ur verið svo mismunandi í hverjum
flokki fyrir sig. Almennt má segja að
vald þingmanna - hvar í flokki sem
þeir em - sé miklu persónubundnara
en áður fyrr og þeir hafa miklum mun
meira svigrúm í pólitík. Þeir em
fijálsari, en um leið óömggari því
flokkamir tryggja mönnum ekki
þingsetu lengur."
Og þá er komið að þriðja kaflan-
um sem fjallar um samspil fjór-
flokkanna og ríkisvaldsins...
„Þama athugaði ég hveiju flokk-
amir ráði. í margræðiskerfi einsog á
íslandi þurfa tlokkamir að deila vald-
inu með öðmm. Það em meiri sveifl-
ur núna milli kosninga, kerfið er opn-
ara og allir geta unnið með öllum.“
Hefur valdið færst mikið frá
stjórnmálaflokkunum yfir til hins
opinbera?
, Já, já. En ekki bara þangað heldur
tíl allskonar aðila - fagfólks af ýmsu
tagi sem ræður meiru um sín mál en
áður. Einnig em stofnanir og samtök f
þjóðfélaginu mikið sjálfstæðari en áð-
ur tíðkaðist. Skólakerfið, bankamir,
heilbrigðiskerfið og fjölmiðlamir -
allt nýtur þetta meira sjálfstæðis en
áður.“
Hefur þessi þróun eitthvað með
það að gera, að nú taka heilu hags-
munahóparnir sig einfaldlega sam-
an og stoppa kerfisbreytingar; til
að mynda læknar, apótekarar og
fleiri?
„Það hefur í sjálfu sér lengi tíðkast
að vald hagsmunasamtaka sé mikið.
En það sem er nýtt í þessu er að hags-
munasamtökin hafa í dag beint vald
yfir sínum málum og það án þess að
þurfa fara með málefnin í gegnum
flokkana. Hagsmunasamtökin vinna
nú að sínum málum með beinum
hætti. Margrét S. Bjömsdóttir, fyrr-
verandi aðstoðarmaður Sighvats
Björgvinssonar, sagði frá þessari
þróun í grein í Morgunblaðinu fyrir
nokkrum dögum. Þar lýsti hún beinni
þátttöku hagsmunahópanna og mikl-
um áhrifum þeirra í nýafstaðinni
kosningabaráttu; sérfræðilæknamir
og það alltsaman.“
Og fjórði kaflinn er nokkuð sér-
stakur; þar víkkarðu sjónarhornið
og lítur yfir til Bandaríkjanna...
,Já, samanburðurinn á íslandi og
Bandaríkjunum. Meginniðurstaðan í
því er að pólitíska þróunin hér á Is-
landi hefur verið rnjög lík því sem
gerst hefur í Bandaríkjunum án þess
að við höfum tekið nokkuð - þannig-
lagað - upp fra Bandaríkjamönnum.
Hlutir líktog prófkjör eru gömul hefð
hér á landi og stafar það sennilega að
hluta til vegna þeirrar staðreyndar að
einsog í Bandaríkjunum þá ríkir hér
almenn vantrú á stjómmálaflokka:
hrein og bein andúð. Löndin eiga það
síðan sameiginlegt að stjómmála-
flokkamir í þeim bragðust mjög svip-
að við hræringunum sem vora í
kringum 1970: tóku upp prófkjör.
Hér var Sjálfstæðisflokkurinn fyrsmr,
síðan Framsóknarflokkurinn og
seinna Alþýðuflokkurinn. í Banda-
ríkjunum höfðu þeir ekki áður viðhaft
prófkjör til að velja forsetaframbjóð-
endur sína. Þessi þróun gengur ná-
kvæmlega þannig fyrir sig, að flokk-
amir missa valdið yfir framboðsmál-
um sínum og upp kemur sú einkenni-
lega aðstaða, að fleiri geta tekið þátt í
prófkjöram heldur en kjósa síðan
flokkinn. Þetta eykur sundurlyndi í
flokkunum og erfiðara verður fyrir þá
að móta sameiginlega stefnu. Ef
flokkamir geta ekki mótað sameigin-
lega stefnu þá móta þeir minna stjóm-
arstefnuna sem skipulagðar heildir.
Flokkamir koma ekki inní ríkisstjóm
með einhveija útfærða stefnu sem
þeir beita sér fyrir í ríkisstjóm. Þetta
tel ég að minnki lýðræðið í landinu
sökum þess, að stjómmálaflokkamir
taka ekki ábyrgð á sínum fulltrúum.
Þessi persónupólitík er meginorsök
þess að það er nánast ógemingur fyrir
kjósendur að gera stjómmálamenn
ábyrga..."
...vegna þess að kjósendur hafa
ekki græna glóru um hvað, hverja
eða hvemig ríkisstjórn þeir eru að
kjósa yfir sig...
„...akkúrat. Ef stefnan er óljós er
ómögulegt að segja tíl um hvað
stjómmálamennimir sem kjósendur
velja gera að loknum kosningum."
Hversvegna skrifaðirðu þessa
bók - hver undirrótin?
„Ég skrifaði doktorsritgerð fyrir
löngu síðan - árið 1977 - sem fjallaði
um tímabilið milli 1916 og 1944. Ég
gaf síðan út ýmislegt í tengslum við
hana og skrifaði til dæmis ritgerð um
Kommúnistaflokkinn sem birtist í
Sögu. Ég ætlaði alltaf að gera úttekt á
stjómmálaflokkunum á tímabilinu
1959 - þegar kjördæmabreytingin var
gerð - framtil dagsins í dag og draga
upp heildarmynd. Taka semsagt lyrir
persónumar sjálfar - þingmennina,
flokkana, samfélagið og síðan að bera
Island saman við önnur lönd og þá
var nærtækast að líta á Bandaríkin
vegna prófkjörshefðarinnar þar.“
Var þetta skemmtilegt verk?
,Já, alveg ofboðslega skemmti-
legt.“
Jafnvel þessi handavinna þín í
fyrsta kaflanum - hún hlýtur nú að
hafa verið leiðinleg?
„Hún var ekkert leiðinleg því stað-
reyndir era ekki leiðinlegar. Éf maður
hefur ekki staðreyndimar á hreinu þá
veit maður ekkert um hvað maður er
að tala. Og svo hef ég náttúrlega á að
þekkja pólitík í smáatriðum. Ég vil
vita hvaða aðferð til dæmis Fram-
sóknarflokkurinn notaði á Austur-
landi til að velja frambjóðendur sína
árið 1983. Og ég vil líka vita um alla
þingmenn og þeirra feril. Ef þú vilt
geta talað um íslensk stjómmál af
skynsemi þá verðurðu að þekkja stað-
reyndimar og smáatriðin og kort-
leggja alltsaman nákvæmlega. Síðan
er það spumingin um að setja stað-
reyndimar inm' samhengi.“
Snörum okkur yfir í annað - en
þó tengt - efni. Það var að korna út
5. og 6. árangur íslenskra félagsrita
og ég sé að þú ert titlaður ritstjóri.
Hvað er þarna á ferðinni?
„Þetta er útgáfa fyrir 1993 og 1994
og er mikið rit uppá 136 síður. Þama
er að finna sex greinar og eina athuga-
semd og hverri ritsmíð fylgir stutt
samantekt á efni hennar: Arnór Guð-
mundsson félagsfræðingur skrifar
um atvinnuþátttöku kvenna og at-
vinnuleysi á íslandi. Friðrik H. Jóns-
son sálfræðingur ritar um ímynd
stjómmálamanna - sem hefur nú ver-
ið gerð einhver skil á Rús 1 að undan-
fomu. Helgi Gunnlaugsson félags-
fræðingur fjallar um félagsfræði á
framhaldsskólastígi - skipulag náms
og kennslu. Auður Styrkársdóttir
stjómmálaffæðingur ræðir um
kvennaframboð á íslandi og erlendis
frá fyrstu áram til þessa dags og ber
þau saman, meðal annars með tilliti til
fylgis, árangurs og örlaga þeirra. Stef-
anía Júlíusdóttir bókasafnsfræðing-
ur skrifar um mannafla á bókasöfnum
á íslandi - úttekt á áætlunum um
hversu marga starfsmenn þurfi á
bókasöfn. Gunnar Helgi Kristins-
son stjómmálafræðingur ritar um lýð-
ræði og sveitarstjómir - ber til að
mynda þar saman áhrif og völd sveit-
arstjómar hér á landi og á Norður-
löndunum. Loks birtum við athuga-
semd Jóns Hnefils Aðalsteinsson
þjóðháttafræðings er ber heitið Þjóð-
frœðileg rannsókn á Islendingasög-
um og er athugasemd við ritdóm.“
Varst Jþú einn af þeim stóðu að
stofnun Islenskra félagsríta?
„Þetta er tímarit Félagsvísinda-
deildar og við hleyptum því af stokk-
unum af stað í samræmi við framboð
af efni og eftírspum eftir riti af þessu
tagi.“
IJmfjiillunarefnið er tilaðgera
nokkuð þungt og tormelL Er nokk-
ur maður sem nennir að lesa
svonalagað?
„Starfsmenn félagsvísindadeildar,
nemendur og útskrifaðir nemendur
og bókasöfhin. Það era ljölmargir
hópar sem þama koma að málum og
lesendahópurinn er býsna stór, ég
held að upplagið sé í kringum fimm
til sexhundrað eintök. Það er miklu
meiri markaður fyrir svona rit en
maður skyldi halda - ótrúlega stór
markaður reyndar. Töluvert af fólk
hefur...“
...áhuga á hversu mikinn mann-
afia þarf á íslenskum bókasöfn-
um...
„...ekki bara því, heldur einnig
áhuga á öðrum umfjöllunarefnum
ritsins: atvinnuþátttöku kvenna, sveit-
arstjómum, kvennaframboðum,
ímynd stjómmálamanna, kennslu-
fræðum og þessháttar. Þetta er breið-
ur hópur. Ein ástæðan fyrir því að við
geram ekki meira til að auglýsa ís-
lensk félagsrit er sú að þetta selst eig-
inlega bara nokkuð vel af sjálfu sér.“
Hvaða verkefni liggur síðan fyrir
hjá þér í dag?
„Um þessar mundir er ég að skrifa
um alþingiskosningamar 1995; kosn-
ingabaráttuna, framboðin, flokkana,
úrslitin, stjómarmyndunina og svo
ffamvegis. Þetta verk ætla ég að klára
fyrir lok ársins.“
Núúúúú... Er þetta jólabókin í
ár?
„Nei, nei. Ég ætla bara að klára
hana fyrir jólin.“
A-mynd: E.ÓI.