Alþýðublaðið - 11.05.1995, Side 5

Alþýðublaðið - 11.05.1995, Side 5
FIMMTUDAGUR 11. MA11995 ALÞYÐUBLAÐIÐ Eftir breska rithöfundinn Noel Malcolm. Seinni hluti Hugsunarhátturinn að baki tilraunum til að mynda „evrópska" utanríkispólitík er ákaflega barnalegur. Menn segja sem svo: „Hugsið ykkur bara hversu sterk og öflug utanríkisráðstefna okkar verður ef við sláum öllum ríkjunum saman í eitt!" Á nákvæmlega sama hátt má segja: Hugsið ykkur hvað hlýtur að koma fallegur litur út úr því ef við blöndum saman öllum litunum f litakassanum! En niðurstaðan er, og hlýtur að verða, daufur drullubrúnn. Látum þetta duga um hinn efna- hagslega ábata af samruna Evrópu. Þegar hér er komið sögu skipta tals- menn ,JEvrópu“ venjulega um vamar- línur. Þetta er alls ekki nein penin- gamaskína í eðli sínu, segja þeir, sem aðeins er hægt að vega og meta eftir hugsanlegum ágóða. ,JEvrópa“ er pól- itísk hugsjón, andlegt ævintýri, splunkuný tilraun í bræðralagi og samvinnu. Hefur Evrópusambandið kannski ekki útrýmt styrjöldum frá Evrópu? Er samruni rikja ekki eðlilegt skref íyrir mannkynið, nú þegar hug- myndin um fullveldi þjóðríkja er á fallandi fæti? Vísar „Evrópa" ekki veginn til framtíðarinnar þar sem gamaldags þjóðemishyggju með öll- um sínum eijum, fordómum og úlfúð verður lögð á hilluna? Svarið við öllum þessum spuming- um er því miður, nei. Það er í fyrsta lagi mjög erfitt að færa rök fyrir því að ESB eigi einhvern þátt í því að stríð hafi ekki geisað í Vestur-Evrópu síðan 1945. Augljós ástæða þess er vitanlega kalda stríðið sem neyddi Vestur-Evrópu til að taka upp sameig- inlega vamarsteíhu og þróa svo öflugt fælingarkerfi að stríðið milli Austur- og Vestur-Evrópu braust aldrei út. Sú staðreynd að hópi Vestur- Evrópuríkja tókst að vinna saman í ESB er ekki or- sök friðarins, heldur miklu fremur af- leiðing hans. Frjálslynd lýðræðisöfl komust til valda víðast hvar í Vestur- Evrópu eftir 1945, og jafnvel þótt ESB hefði aldrei orðið til er erfitt að ímynda sér af hveiju Þjóðvetjar hefðu átt að vilja gera innrás í Frakkland, eða Frakkar að varpa kjarnorku- sprengju á Þýskaland. Og þótt maður vildi líta svo á að Evrópusambandið hafi tryggt friðinn undanfarinn manns- aldur, þá er ekki hægt að nota það sem röksemd fyrir samruna ríkjanna, þar- sem í því fælist að ESB hefði haft þessi góðu áhrif meðan það var enn bandalag fullvalda þjóðríkja en ekki orðið að yfirþjóðlegri stofnun. Hugmyndin um „Evrópu“ byggist hinsvegar á þeirri trú að þjóðríkin séu úrelt. Þetta er trúaratriði fyrir „Evr- ópusinna" sem engar röksemdir bíta á. Það þýðir ekkert að benda á að öll þau ríki sem standa sig best í veröldinni nú á dögum - Japan, Bandaríkin og meira að segja sjálft Þýskaland - em þjóðríki. Það hefur heldur ekki mikið upp á sig að vísa til þess að nokkur kraftmestu efnahagskerfi heimsins em nú í litlum ríkjurn - Suður-Kóreu, Tæ- van, Singapúr - sem finna ekki hjá sér nokkra þörf til þess að drekkja sér í einhveiju yfirþjóðlegu úthafi. Og það er talið ákaflega ósmekklegt að benda á að síðustu fjölþjóðlegu ríkjasam- steypurnar sem komust í fréttirnar voru Sovétríkin og sambandsríkið Júgóslavía. En þau em bara síðust í langri röð fjölþjóðlegra ríkja sem hafa hmnið til gmnna á þessari öld, allt frá austurrísk-ungverska keisaradæminu til ýmissa bandalagsríkja sem Bretar komu á fót í Mið-Afríku, Austur-Afr- íku og Vestur-Indíum þegar nýlendu- stefnan rann sitt skeið á enda. Nígeríu- menn þurftu til dæmis að brúka stríð og hungursneyð til þess að halda Bí- afra innan ríkjasambandsins; indverskt setulið kemur í veg fýrir að Nagaland og Kasmír segi sig úr lögum við Ind- land. „En Evrópa verður ekki þannig," segja sammnamenn. „Hér er hefð fyrir umburðarlyndi og siðuðu háttemi." Já, vissulega ríkja hér ýmsar slíkar hefðir. Þær hafa þróast innan býsna stöðugra þjóðríkja, en hvort þær munu lifa af við allt aðrar kringumstæður innan ijölþjóðlegra bandalagsrikja á enn eft- ir að koma í ljós. Hvemig verður stjómmálalífi háttað í því safnbandsríki Evrópu sem Bms- sel og Bonn mæla nú fyrir? Sumt af völdum ríkisstjóma þjóðríkjanna mun flytjast upp á sameiginlegan Evrópu- grundvöll, en annað færist niður til „Evrópu landsvæðanna" - Katalómu, Bæjaralands, Wales og svo ffamvegis. Opinber útgáfa af því hvemig pólitík verði háttað í æðstu stofhunum hinnar nýju „Evrópu" á í rauninni rætur að rekja allt aftur til Jean Monnet, sem fann upp Evrópusambandið; það á að verða draumur tæknikratans, veröld þarsem framsýnir sérfræðingar og embættismenn finna stórfenglegar lausnir á stórfenglegum vandamálum. (Algengasta röksemdin fyrir afnámi þjóðríkisins er að nú á dögum séu vandamálin of risavaxin til að einstök ríki ráði við þau. En auðvitað hafa verið til mál sem ekki hafa verið leyst innan landamæra einstakra ríkja, allt frá póstþjónustu til eiturlyfjavandans og alheimsviðskipta. Þótt vandamál sé stórt er auðvitað ekkert sem segir að yfirþjóðleg stofnun muni ráða betur við það en venjuleg samvinna ríkja. Talsmenn evrópskra bandalagsríkisins eiga að minnsta kosti alveg eftir að skýra hvemig það megi vera.) Þessi „tæknikratíska“ sýn hefur í för með sér útþynningu stjómmála; og öll raunvemleg pólitík verður vandlega hreinsuð burt úr hinu nýja ríki. Vafa- laust verður framkvæmdin öll önnur. Alvöm pólitík verður áfram stunduð á hæstu stigum „Evrópu“. Hinsvegar má bóka að það verður ekki lýðræðis- leg pólitík á gmnni sambandsins alls. Til þess að svo mætti verða þyrftu að vera til „Evrópu-flokkar" sem störf- uðu um allt sambandið á sama hátt og flokkar repúblikana og demókrata gera í Bandaríkjum Ameríku. Vissulega hafa myndast á Evrópu- þinginu óljósar blokkir flokka frá mörgum löndum: Jafhaðarmannahóp- urinn, Evrópski alþýðuflokkurinn (kristilegir demókratar) og svo fram- vegis. En hér er aðeins um að ræða bandalög sem mynduð em í Strass- borg af þingmönnum á Evrópuþinginu og þeir em allir kosnir á þetta þing af flokkunum heima í þjóðlöndum sín- um. Það er enginn hægðarleikur að gera sér í hugarlund að venjulegir kjósendur í til dæmis Danmörku muni fá í hnén yfir leiðtoga síns tiltekna Evrópuflokks, ef sá leiðtogi flytur til dæmis ræður sínar á portúgölsku. Gmndvallarstaðreyndir einsog tungu- mál, menning og landfræðilegur mis- munur gera manni ókleift að ímynda sér að fjöldaflokkar sem nái yfir álf- una alla geti nokkru sinni orðið ráð- andi afl í pólitísku lífi Evrópu. Þess í stað munu stjómmálamenn einstakra ríkja áfram vinna að hagsmunum ríkja sinna innan æðstu stjómar „Evrópu". En samt verður ákveðinn munur á því kerfi og þeirri hagsmunagæslu sem þingmenn stunda nú fyrir kjördæmi sín á þjóðþingum hinna ýmsu landa. Þótt Englendingur sem kjörinn er á þing fýrir Jórvíkurskíri muni að sjálf- sögðu leggja sig allan fram um að koma málum Jórvflcurskíris áleiðis, þá mun þingmaðurinn þegar upp er stað- ið taka afstöðu til stærri mála eftir því hvað hann eða hún telur að sé Bret- landi öllu fyrir bestu. Þingmaðurinn tilheyrir stjómmálaflokki sem tekst á við mál með landið allt í huga. „Evrópsk" stjómmál munu hins- vegar snúast um það að magna upp hagsmuni einstakra ríkja og svæða þannig að þau virðist skipta gríðarlegu máli fyrir Evrópu alla. Hver einstök þjóð mun aðeins greiða hluta af fjár- lögum ,,Evrópu“ og því munu stjóm- málamenn frá hverju ríki reyna að gera sem mest úr þeim áætlunum sem koma þeirra ríki til góða. Starf „evr- ópskra" stjórnmálamanna mun því bera keim af hagsmunapoti og samn- ingamakki, og í ffamkvæmdaráði ESB er þetta þegar farið að segja til sín: Þú skalt styðja mínar tillögur, jafhvel þótt þú teljir þær slæmar, og þá skal ég í staðinn styðja þínar tillögur. Þetta er ekki aðeins uppskrift að stöðugt auk- inni eyðslusemi, heldur líka að algeru stefnuleysi í raun. Þegar stjómmál á æðstu sviðum munu ekki snúast um annað en að krækja í sem mest af pen- ingum, þá er erfitt að sjá af hverju stjómmál á hinum einstöku „svæðum" ættu að vera nokkuð öðmvísi. „Svæð- isstjómimar" munu hafa minni raun- vemleg völd en hinsvegar aukin tæki- færi til að gera hosur sínar grænar fyr- ir kjósendum með því að ausa pening- um í vinsæl verkefni. Svona stjóm- málastarfsemi hefur í för með sér tvær alvarlegar hættur. í hverju því kerfi þar sem dregið er úr lýðræðislegri ábyrgð stjórnmálamanna gagnvart kjósendum sínum en möguleikar þeirra á hinn bóginn auknir til þess að gera samninga í bakherbergjum, þar er næsta víst að afleiðingin verður aukin pólitísk spilling. Spilling er nú þegar víðtæk í ýmsum Evrópuríkjum og hef- ur til dæmis leitt til dómsmála, útlegð- ar og sjálfsmorða fýrrum forsætisráð- herra á ftalíu, Grikklandi og Frakk- landi. Bandalagsríki Evrópu mun síð- ur en svo draga úr spillingu, heldur þvert á móti gefa spillingaröflunum áður óþekkt tækifæri til að blómstra. Önnur og enn meiri hætta bíður líka stjórnmálamanna bandalagsríkisins „Evrópu“. Það er sem sé hætta á að þjóðernisrígur og þjóðremba færist aftur í aukana. Árásargjama þjóðemis- stefhu er yfirleitt að finna meðal þeiira sem orðið hafa undh, þeirra sem telja að þeir hafi verið sviptir völdum. Ut- lendingar em oft kjörinn blóraböggull þeirra sem telja áhrif sín hafa minnk- að, hver svo sem raunveruleg ástæða áhrifaleysisins kann að vera. En þegar búið er að koma á fót kerfi sem felur í sér að vald er tekið ffá ríkisstjómum þjóðríkjanna og flutt til stofnana „Evr- ópu“- sem hefur í för með sér að meirihluti þeirra sem taka ákvarðanir verða æviiflega útlendingar - þá verð- ur ekki hægt að neita því að þjóð- rembumenn hafi sitthvað til síns máls. Ef framþróun og velmegun í „Evr- ópu“ verður stöðug og meiri en nokkru sinni fyrr, þá má að sönnu halda því fram að fólk muni ekki fá neina ástæðu til óánægju og því ekkert eiga sökótt við útlendingana, en slíkri sívaxandi velmegun reiknar enginn með til lengdar. Að þessu leyti er öll áætlun um „Evrópu" prýðilegt dæmi um þá villu- trú að leiðin til þess að kveða niður óvild milli fólks, hópa eða ríkja sé að byggja upp einhvers konar stofnun til að hemja báða aðila. Alltof oft leiðir þessi aðferð til þveröfugrar niður- stöðu. Sú útgáfa þessarar röksemdar sem heyrist oft er að nauðsynlegt sé að „binda Þýskaland niður“ með auknum samruna þess við önnur Evr- ópuríki, svo Þjóðveijar freistist ekki til þess að fýlla upp á sitt eindæmi upp í tómarúmið í Mið-Evrópu. En ef Þýskaland hefur í rauninni annarra hagsmuna að gæta en afgangur ,Jivr- ópu“ getur varla verið rétt að bregðast við með því að vilja færa Þjóðveija í einhverja stofnanaspennitreyju, sem hefði það eitt í för með sér að andúð Þjóðveija á útlendingum ykist er ffam h'ða stundir. Rétta leiðin Iflýtur að vera sú að gera Þjóðveijum kleift að sinna sjálfir þeim hagsmunum sínum sem ganga ekki beinhnis gegn hagsmunum bandamanna sinna og vinaþjóða. Hingað til hefur þátttaka Þýskalands í „Evrópu" borið keim af kátum frænda sem kemur í bamaafmæli og til þess að sýna bömunum að hann sé mein- laus leyfir hann þeim að binda hendur sfnar fyrir aftan bak. En hversu kátur sem ffændi er mun hann auðvit- að ekki sætta sig við að vera með hendur bundnar fyrir aftan bak til eilífðarnóns, sérstaklega ekki þegar hann tekur eftir því að óteljandi litlir fingur eru farnir að gramsa í vösum hans. Framhald 8 nicstu »I6ii —

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.