Alþýðublaðið - 14.06.1995, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐD
3
s k o ð a n i r
Tilfinningalegar h valveiðiógöngur
íslendingar ásaka gjarnan er-
lendar þjóðir um óþarfa tilfinn-
ingasemi gagnvart hvölum og
hvalveiðum. Samkvæmt útlegging-
um þeirra Þorsteins Pálssonar og
Halldórs Ásgrímssonar er Alþjóða
hvalveiðiráðið samkoma öfgasinna
með brenglað tilfinningalíf. Á árs-
fundum ráðsins sé þannig bola-
brögðum beitt til að koma í veg
Pallborðið
t !!. "T --“
Birgir
Hermannsson
skrifar
fyrir það að ráðið sinni hlutverki
sfnu, sem er að úthluta veiðikvót-
um, en allur tíminn fari þess í stað
í umræður um friðun og vernd
hvala. Hinir háu herrar hafa í sam-
ræmi við þessar skoðanir sínar
ályktað sem svo að ísland hafi
ekkert að gera í Alþjóða hvalveiði-
ráðinu. ísland (eitt og sér og án
samfylgdar annarra hvalveiðiríkja)
sagði sig því úr ráðinu og sam-
kvæmt nýjustu fréttum kemur ekki
til greina að ganga þar inn aftur.
Ásakanir í garð útlendinga um
tilfinningasemi hafa hitt íslendinga
sjálfa fyrir í þessu máli. Fá hitamál
síðustu ára hafa komið þvflíku til-
finningalegu ölduróti á þjóðarsál-
ina og hvalveiðar. Fyrir vikið hef-
ur nær engin upplýst umræða verið
hérlendis um málið eða reynt að
skilja hvers vegna nær allar vest-
rænar þjóðir (ekki bara fáir öfga-
sinnar) eru svo mótfallnar hval-
veiðum sem raun ber vitni. Helstu
vitneskju sína í þessum efnum hef-
ur þjóðin úr kvikmyndum Magnús-
ar Guðmundssonar, sem verður að
teljast afar einhliða og veikburða
grunnur að byggja á. Erlend um-
hverfissamtök hafa verið demoní-
seruð sem vanstillt öfgasamtök
sem ekki sé þess virði að ræða við
hvað þá annað. Öllu er trúað á slíkt
pakk.
Þegar Halldór Ásgrímsson stóð í
stappi við Bandaríkjamenn út af
vísindaveiðum á hvölum hér um
árið, trúðu íslendingar því almennt
að öfgamenn í umhverfismálum
réðu ríkjum í Washington. Það
gleymdist óvart að forsetinn hét
Ronald Reagan og fyrsti umhverf-
isráðherra hans var svona viðlíka
hallur undir umhverfisvernd og
Jónas Kristjánsson ritstjóri er
fylgjandi íslenskri landbúnaðar-
stefnu. Þessi sama ríkisstjórn var
þó andsnúin hvalveiðum: svo djúpt
risti það mál. Árum saman vildi
enginn í Bandaríkjunum hlusta á
Magnús Guðmundsson nema öfga-
menn lengst til hægri, sem gáfu
skít í öll umhverfismál hvort sem
var.
Nú er okkur sagt að þingmenn
vestanhafs séu hallari undir hval-
veiðar en áður. Þetta þarf ekki að
koma á óvart. Eftir sigur Repúblik-
ana í þingkosningum á síðasta
hausti er þingið nú fjandsamlegra
umhverfisvernd en nokkru sinni
um áratuga skeið. Við þessu var
varað í leiðara stórblaðsins The
New York Times fyrir nokkru og
skorað á Clinton forseta að beita
neitunarvaldi gegn nokkrum fyrir-
huguðum spellvirkjum á umhverf-
islöggjöf Bandaríkjanna. Umhverf-
ismál verða því pólitískt deilumál í
Bandaríkjunum á næstunni og
varasamt hálmstrá að treysta á
stuðning nokkurra þingmanna á
Bandaríkjaþingi, sem vísir eru til
að skipta um skoðun á hvalveiðum
á einni nóttu samkvæmt skipun frá
kosningastjórum sínum.
íslenskir stjórnmálamenn - og
aðrir „ábyrgir“ aðilar eins og
verkalýðsforingjar - hafa árum
saman flutt eldheitar ræður um
hvalamálið, ályktað á fundum,
„Um tíma var það eins og táknræn yfirlýsing
um ást sína á föðurlandinu að krefjast hval-
veiða. Sannir íslendingar vilja veiða hvali -
helst hvað sem það kostar, því sannir íslend-
ingar láta ekki kúga sig! ... Er ekki kominn
tími til að skipta um gír í hvalamálinu? íslend-
ingar verða að kæla tilfinningarnar og ræði
málið af skynsemi ... Stefna stjórnvalda hefur
beðið skipbrot í þessu máli."
svarið og sárt við lagt að láta ekki
erlenda öfgamenn kúga sig, sett á
laggirnar nefndir og flutt tillögur á
Alþingi um að hefja nú þegar hval-
veiðar. Um tíma var það eins og
táknræn yfirlýsing um ást sína á
föðurlandinu að krefjast hvalveiða.
Sannir Islendingar vilja veiða hvali
- helst hvað sem það kostar, því
sannir íslendingar láta ekki kúga
sig! Heldur hefur þó dregið úr til-
finningahitanum upp á síðkastið,
en krafan um hvalveiðar er ennþá
ritúal sem reglulega heyrist. Nú
síðast á sjómannadaginn.
Er ekki kominn tími til að skipta
um gír í hvalamálinu? íslendingar
verða að kæla tilfinningarnar og
ræði málið af skynsemi (eins og
sumir hafa raunar gert, til dæmis
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra). Stefna stjórnvalda hefur
beðið skipbrot í þessu máli, eins
og sést best á því að Norðmenn
veiða hrefnu og eru þó í Alþjóða
hvalveiðiráðinu.
Til þess að móta vitræna hval-
veiðistefnu verða íslendingar að
viðurkenna nokkrar staðreyndir. í
fyrsta lagi er baráttan gegn hval-
veiðum ekki til komin að ástæðu-
lausu, heldur vegna ofveiði og rán-
yrkju áratugum saman. Baráttan
fyrir hvalveiðibanni var nátengd
umhverfisvakningu á Vesturlönd-
um og einn stærsti raunverulegi og
táknræni sigur þeirrar baráttu.
Þetta verða Islendingar að skilja,
þó að þeir sjálfir hafi ekki stundað
ofveiði. f öðru lagi verða fslend-
ingar að líta erlend umhverfis-
verndarsamtök raunsærri augum;
heimurinn er ekki jafn svart hvítur
og menn vilja vera láta. Hvernig
væri að byrja á því að viðurkenna
þá staðreynd að þessi samtök eru
og hafa alltaf verið dyggustu
stuðningsmenn íslands í baráttunni
gegn mengun hafsins. Til lengri
tíma litið er baráttan gegn mengun
stærsta öryggis- og hagsmunamál
þjóðarinnar. I þriðja lagi er rétt að
gleyma því ekki að Island sam-
þykkti hvalveiðibannið á sínum
tíma og gerði ekki fyrirvara við
það eins og til dæmis Norðmenn
gerðu. Við getum ekki látið nú
eins og þetta hafi aldrei gerst. í
fjórða lagi verður að viðurkenna
þá staðreynd að engar hvalveiðar
munu eiga sér stað án aðildar fs-
lands að Alþjóða hvalveiðiráðinu.
Það sæmir ekki smáríki sem á
allt sitt undir því að alþjóðlegar
leikreglur séu virtar, að hlaupast í
fýlu út úr alþjóðlegum samtökum
af því að mönnum líkar ekki um-
ræðan eða niðurstaðan sem þar
fæst. Þrátt fyrir úrsögn hafa engir
hvalir verið veiddir hér við land og
ólíklegt að svo verði, hvað sem
digurbarkalegum yfirlýsingum líð-
Höfundur er stjórnmálafræðingur
Mikla athygli vakti í fyrra-
kvöld að Þorsteinn
Pálsson skyldi á síðustu
stundu og án skýringa af-
boða sig í þátt á Stöð 2 með
Arthuri Boga-
syni, formanni
Landssam-
bands smábáta-
eigenda. Fyrr
um daginn
höfðu trillukarl-
arefnt til mikilla
mótmæla á
Austurvelli og
haft sig í
frammi á þingpöllum. Það
var einmitt Þorsteinn Páls-
son sem knúði sjávarútvegs-
nefnd þingsins til að breyta
um afstöðu til krókaveiða,
mjög í óþökk trillukarla. Art-
hur Bogason hefur munninn
fyrir neðan nefið, og því
telja menn einfaldlega að
Þorsteinn hafi ekki þorað að
mæta honum í beinni út-
sendingu...
anum. Vinnslu blaðsins hef-
ur verið flýtt og er það nú
prentað síðdegis og dreift á
kvöldin. Þá hafa ráðherrar
Framsóknar leitað grimmt
eftir aðstoðarmönn-
um á ritstjórnarskrif-
stofum blaðsins og
því standa yfir
mannabreytingar. Inn
anbúðarmenn á blað-
inu búast við því að
Jón Kristjáns-
son ritstjóri láti af
störfum, enda hef-
ur hann tekið að
sér annasama for-
mennsku í fjárlaganefnd.
Jón sést enda ekki mikið
á blaðinu, og hefur verk-
stjórnin einkum hvílt á
Oddi Ólafssyni og
Birgi „Garra Guð-
mundssyni. Ekki er talið að
Oddur hafi áhuga á ritstjóra-
stólnum en Birgir hefur ver-
ið orðaður við þá ágætu
mublu...
N
okkrar breytingar eru að
verða á dagblaðinu Tím-
N
ýtttölublað Sjómanna-
blaðsins Víkings er kom-
ið út, sneisafullt af efni, í rit-
stjórn Sigurjóns Magnús-
ar Egilssonar. Þar er meðal
annars rætt við Þorstein
Pálsson sem fer mörgum
fögrum og hlýjum orðum
um kvótakerfið. Ofurrokkar-
inn Bubbi Morthens rifjar
upp minningar sínar úr slor-
inu, en hann varfarand-
verkamaður með meiru -
fyrr á öldinni. Þá er sagt frá
könnun á þoli
íslenskra sjó-
manna í
samanburði
við slökkvi-
liðsmenn og
er skemmst
frá því að
segja, að
hetjur hafsins
reyndust ekki
í mjög góðu formi. 43% sjó-
manna reyndust hafa mjög
lágt þol, samanborið við 1%
slökkviliðsmanna. 42% sjó-
manna voru í sæmilegu
formi en aðeins 15% náðu
meðalþoli...
„ Váááá! Sjáðu þessa frétt í Tímanum, Sæmundur. Þeir eru
enn á ný byrjaðir á þessu brjáiæði. Það er nú ekkert venju-
legt hvað þessir hestamenn eru bráðir í skapinu: STARFS-
MADUR HRADPÓSTS-HESTAÞJÓNUSTUNNAR GENGUR
AL VOPNADUR INNÁ VINNUSTAO SINN OG HEFUR SKOT-
HRÍDÁ ÖLL HROSS íAUGSÝN..."
f i m m
f ö r n u m
Fylgist þú með baráttu smábátasjómanna?
Carl A. Bergmann, úrsmiður:
Já, ég hef lesið um þessi mál og
fylgst með umræðunni. Við skul-
um láta sjávarútvegsráðherra og
þingið um að afgreiða þessi mál.
Ásdís Oddgeirsdóttir, hús
móðir: Já, og baráttu sjómanna
yFirhöfuð. Ég stend ávallt heilshug-
ar með þeim.
Árni Sverrisson, prentari: Já, Maíbritt Sundby, eldabuska:
ég fylgist með baráttu þeirra. Smá- Nei, lítið. Ég má aldrei vera að því
bátasjómenn verða að gæta sín á að vegna þess að ég er aldrei heima
halda sér innan þeirra marka sem hjá mér.
við höfum sett okkur.
Þórhallur Kristjánsson, aug-
lýsingateiknari: Já, dálítið. Ég
hef mikla samúð með smábátasjó-
mönnum.
v i t i m e n n
Pólitískt séð er þetta mál ekki síst
erfitt fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Trillukarlarnir eru persónugerv-
ingur einkaframtaksins, sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
barist fyrir aila tíð.
Leiðarahöfundur Morgunblaösins að fjalla
um deilurnar um krókaleyfisbáta.
Eg þekki ekki neinn útgerðarmann
sem gefur mönnum fyrirmæli um
að henda fiski. Við höfum þvert á
móti lýst hinu gagnstæða yfir.
Jóhann A. Jónsson útgerðarmaður á Þórshöfn.
í viðtölum Morgunblaðsins viö fjölda sjómanna
kom fram að útgerðarmenn gefa fyrirskipanir
um að fiski sé hent. Mogginn í gær.
Veiðigleðin tók völdin hjá
skipstjórum þannig að mannskap-
urinn var til skiptis í því að
veiða fisk og kasta.
Lýsing Morgunblaösins á framgöngu
íslenskra sjómanna (Smugunni.
Stundum hættir íslendingum til að
reyna að gleypa sólina, þegar þeir
sjá tækifæri opnast. Þannig sjá
margir drjúpa smjör af hverju
strái á töivuvöllum Víetnams, af
því íslensk fyrirtæki hafa verið beð-
in um að sclja þangað reynslu og
þekkingu á ýmsum tölvusviðum.
Jónas Kristjánsson í leiöara DV í gær, aö vekja
athygli á því að hlutir geti breyst hratt í einræð-
isríkjum einsog Víetnam.
Villtir &
Vefararnir
■ I skoska dagblaöinu Evening Times
er að finna ágætisdálkinn Sam on Net
sem nethausinn Sam Clarke skrifar.
Og þessi náungi er einn sá alflottasti í
bransanum (—sjá mynd)! Ef ykkur lang-
ar að reyna komast á blað þá er e- mail-
fang Sams sam-clarke
@samonnet.dem
on.co.uk. Indíánahöfð-
inginn Einar Cyberiu-
Örn ætti til dæmis að
sæta lagi og hafa sam-
band við Sam í hvelli,
segja honum allt um
litlu, sætu og skemmti-
legu kjallarabúlluna við
Klapparstíglnn og viti menn: garanter-
uð umfjöllun. ■ Aðgengilegasta,
skemmtilegasta, fallegasta, yfirgrips-
mesta og langbesta tímaritið sem gefið
er út um Internetið er .net og þar malar
hver snillingurinn um annan þveran.
Höfuð og herðar yfir
aðra ber þó cyberpönk-
arinn „Wavey" Davey
Winder (—sjá mynd) sem
hefur kannski tekið
pönkarahlutverkið full al-
varlega, en á sér það
eina takmark í lífinu að
gera Netið aðgengilegra
fyrir meðal-jóninn. Og Davey.
Wavey er náungi sem veit hvað hann
talar um. Tímaritið fæst um mestalla
borg, er kannski í dýrari kantinum - 845
krónur í Máli og menningu - en bráð-
nauðsynlegt fyrir hvern þann sem ætlar
sér eitthvað áfram á Netinu. Önnur
uppástunga fyrir Einar Örn: Hvernig
væri að bjóða Wavey til íslands til fyrir-
lestrahalds og þessháttar? E-mail-fang
öðlingsins er waveydavey@delp
hi.com og ekki úr vegi að reyna sig við
manninn - skyldi maður halda. ■ Og
loksins fær ritstjórinn eitthvað fyrir sinn
snúð: Bosníu-heimasíðan er ekki fyrir
viðkvæmar sálir þarsem gefur meðal
annars á að líta myndaseríuna „Maður
skotinn I höfuðið", Ijósmyndir af fjölda-
gröfum og fórnarlömbum leyniskyttna
Serba. Smellið inná http://www.cco.
caltech.edu/~ayhan/bosnia.html og
búið ykkur undir rússíbanaferð um hel-
vitiá jörðu... TAKE THATI
veröld ísaks
Textasmiðir eru viðkvæmar sálir -
sérstaklega þeir sem telja að enginn
maður uppistandandi sé fær um að
skrifa annan eins snilldarprósa...,
e-hem! Ofurmennið Thomas Jeffer-
son varð þannig skiljanlega illilega
sármóðgaður þegar „Meginlands-
þingið“ sá ástæðu til að ritstýra lítil-
lega upphaflegri útgáfu hans af Sjálf-
stœðisyfirlýsingunni. Jefferson varð
reyndar svo rosalega bijálaður yfir
þessu fikti þingsins í frumtextanum
að í mörg ár á eftir sendi hann eintök
af frumtextanum og lokaútgáfunni til
vina og kunningja og bað þá um að
gera samanburð: I alvöru talað, kæri
Michael, finnst þér virkilega að þeirra
texti taki mínum ff am... ?
Byggt á tsaac Asimov's
Book of Fects.
Wavey
Sam
Clarke.