Alþýðublaðið - 14.06.1995, Side 8
Miðvikudagur 14. júní 1995
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
MÞYÐUBLAÐIS
Framhaldsskólinn á Húsavík
32% stúlkna og 25% pilta
hafa hugleht sjáKsvíg
- og 90% nemenda trúa á líf eftir dauðann, segir í umfjöllun Víkurblaðsins um fon/itnilega
skoðanakönnun sem nokkrir nemendur FSH í félagssálfræði gerðu.
Á nýliðnum vetri gerðu nemendur í
félagssálfræði við Framhaldsskólann á
Húsavík (FSH) forvitnilega skoðana-
könnun meðal nemenda. Vtkurblaðið
(„blað alls mannkyns," samkvæmt
yfirtitli á forsíðu) ræddi af því tilefni
við Ingibjörgu Markúsdóttur, sál-
fræðing og kennara í FSH, og í máli
hennar kom fram, að tólf nemendur
sem voru í umræddum áfanga hafi
unnið könnunina. Úrtakið var sjötíu
nemendur eða fjörtíu prósent og ætti
það að gefa nokkuð marktæka mynd
af hugmyndum, afstöðu og reynslu
nemenda FSH. Ingibjörg lagði ríka
áherslu á að þetta væri tilraunaverk-
efiti - einskonar forkönnun - og úr því
ætti eftir að vinna betur. Nokkrar nið-
urstöður könnunarinnar voru þó birtar
í þessu sama Víkurblaði og Alþýðu-
blaðið vonar að Ingibjörg og vinur
okkar, Jóhannes Sigurjónsson rit-
stjóri, misvirði það ekki við okkur þó
við greinum hér að neðan frá nokkrum
þeirra í endursögn.
Ætla nemendur eða geta þeir
hugsað sér að búa á Húsavík
næstu árin?
Já 80% - Nei 20%
Hvaða álit hafa nemendur
á nýju ríkisstjórninni?
Anægðir 70% - Óánægðir 30%
Eru nemendur búnir
að fá sumarvinnu?
90% stúlkna - 50% pilta
Hvaða afstöðu hafa
nemendurtil Framhaldsskólans
á Húsavík (FSH)?
79% töldu FSH góðan skóla.
Hverjir nemenda búa
í heimahúsum?
90% pilta - 70% stúlkna
Trúa nemendur á líf
eftir dauöann?
Já 90% - Nei 10%
Hversu margir nemenda hafa hug-
leitt sjálfsvíg?
32% stúlkna - 25% pilta
Hafa nemendur verið
í föstu sambandi?
95% stúlkna - 85% pilta
Hvenærtelja nemendur eðlilegt
að fólk hefji sambúð; fyrir tvítugt,
20-25 ára, 26 ára eða eldri.
90% stúlkna og
77% pilta svöruðu:
20-25 ára
Hversu margir nemendur
hafa ekki haft samfarir?
15% stúlkna - 38% pilta
Hversu margir nemendur
nota smokka við skyndikynni?
72% pilta - 81% stúlkna
Hversu margir nemendur
stunda reglulegt kynlíf?
50% stúlkna - 30% pilta
Hræðast nemendur alnæmi?
Já 65% - Nei 35%
Þekkja nemendur
einhvern HlV-smitaðan?
Já 9% - Nei 91%
Hvert er álit nemenda
á fóstureyðingum?
64% stúlkna fylgjandi
74% pilta fylgjandi
Finnst nemendum
samkynhneigð ásættanleg?
Stúlkur: 70% já - Piltar: 40% já
Telja nemendur að það
eigi að leyfa samkynhneigðum
að gifta sig?
Stúlkur: 80% já - Piltar: 57% já
■ Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju
Dansað við
Sálumessu
Litanía og Sálumessa Mozarts verða flutt í Hallgríms-
kirkju í vikulokin. Það er ekki oft sem dansarartaka þátt
í slíkum flutningi en á þessum tónleikum ætlar íslenski
dansflokkurinn að frumsýna verk sem Nanna Ólafs-
dóttir hefur samið sérstaklega við Sálumessuna.
Margrét Elísabet Ólafsdóttir leit inn á æfingu í gær.
Það er ekki oft sem dansarar taka þátt í flutningi verka á borð við Sálumessu
Mozarts, en á tónleikum í Hallgrímskirkju í vikulokin ætlar íslenski dansflokk-
urinn að frumsýna verk sem Nanna Ólafsdóttir hefur samið sérstaklega við
messuna. Meðfylgjandi mynd var tekin á æfingu í gær. a-mynd: e.ói.
Það var ys og þys í Hallgrímskirkju
þegar Alþýðublaðið leit þar inn í gær í
þeim tilgangi að hitta Nönnu Ólafs-
dóttur dansahöfund og Hörð Áskels-
son stjómanda Mótettukórsins. Nanna
var nýkomin í hús ásamt átta dönsur-
um úr íslenska dansflokknum til æf-
ingar á dansi sem hún samdi^ við Sálu-
messu Mozarts. Jóhanna Ámadótt-
ir, fulltrúi Kirkjulistahátíðar, þurfti að
útskýra fyrir þeim skipulagið á bún-
ingsaðstöðunni og finna fyrir þá reyk-
herbergi í húsinu. Þá voru á vappi for-
vitnir ferðamenn, að skoða kirkjuna
og sýninguna á englateikningum
bama úr Myndlistaskólanum í Reykja-
vík í anddyrinu. Ekki var abbast við
þeim þótt þeir rækjust inn á æfinguna.
íslenski dansflokkurinn ætlar að
sýna verk Nönnu í Hallgrímskirkju, á
tónleikum með Mótettukómum, Sin-
fómuhljómsveit Islands og fjórum ein-
söngvumm, (Magnúsi Baldvinssyni,
Gunnarí Guðbjörnssyni, Hrafnhildi
Guðmundsdóttur og Sólrúnu
Bragadóttur), en allur þessi hópur
tekur þátt í flutningi á Sálumessu
Mozarts á tvennum tónleikum, sem
haldnir verða fimmtudags- og föstu-
dagskvöld.
Það er ekki oft sem dansað er við
Sálumessuna, en hugmyndina að því
að fá Nönnu til samstarfs við tónlistar-
fólkið átti Hörður Áskelsson. ,,Ég veit
af þekktri uppfærslu úr óperuhúsinu í
Hamborg þar sem dansað var við
Sálumessuna. Sú sýning vakti mikla
athygli þó viðtökumar hafi að sjálf-
sögðu verið misjafnar. Mér fannst eft-
irsóknarvert að geta blandað saman
túlkun þessa ólíka listafólks og er
ánægður með að Islenski dansflokkur-
inn skuli hafa samþykkt umyrðalaust
að taka þátt í flutningunum.“
Nanna neitar því ekki. „Sálumessan
er stórkostlegt verk, en fyrsta spum-
ingin sem kom upp í hugann hlaut þó
að vera sú hveiju ég hefði þama eigin-
lega við að bæta. Ég ákvað því að
byggja verkið frekar á þeim tilfinning-
um og þeirri stemmningu sem verkið
vakti upp hjá mér við hlustun. Ein-
beita mér að sjónrænni upplifun tón-
verksins."
Dansararnir verða á sviðinu allan
tímann, þó aðeins sé dansað við kyrie-
bænina og sequentuna. Nanna hefði
gjaman vilja hafa söngvara úr kómum
á sviðinu innan um dansarana, en slíkt
reyndist ómögulegt í framkvæmd, ein-
faldlega vegna þess að kórinn verður
að geta séð stjómandann.
Þegar minnst er á það við Hörð að
dans sé sjaldséður í kirkjum og hann
spurður að því hvort hann hafi ekki
þurft að beita sannfæringarkrafti til að
fá hugmyndina samþykkta, aftekur
hann það.
„Hreint ekki. Enda má segja að
þetta framtak sé í fullkomnu samræmi
við þá stefnu Listvinafélags Hall-
grímskirkju að fá fleiri listgreinar inn í
kirkjuna. Það hefur verið talað um að
kirkjan vanrækti þessa trúartjáningu,
dansinn og hreyfinguna, þótt við vit-
um auðvitað að líkamstjáning er notuð
við trúarathafnir. Það nægir að nefna
táknin sem prestar nota við helgihald,
þó það sé auðvitað allt í föstum skorð-
um.“
Ekki verður hægt að flytja tónleik-
ana oftar en tvisvar einfaldlega vegna
þess að hluti einsöngvaranna flýgur af
landi brott daginn eftir síðari tónleik-
87. tölublað - 76. árgangur
ana. Hörður útilokar þó ekki endur-
flutning á Allrasálnamessu í haust, ef
viðtökur verðar góðar nú. Síðan var
hann rokinn, en danshópurinn kom sér
fyrir við sviðið undir forvitnum aug-
um nokkurra ferðalanga á meðan
Nanna ræddi við sviðs- og búninga-
hönnuðinn Sigurjón Jóhannsson um
fyrirkomulagið á sviðinu. Þá loks var
hægt að hefja æfingar og fi'npússun
sýningarinnar fyrir væntanlega tón-
leikagesti.
■ Samtök iðnaðarins
Kröfur sér-
hópa ógna
samkeppn-
isstöðunni
Félagsfundur Samtaka iðnaðarins
lýsir verulegum áhyggjum af þeim
hörðu átökum sem staðið hafa um
kjaramál ýmissa sérhópa að undan-
förnu. Óbilgirni í samningum og
kröfur um kauphækkanir langt um-
fram þær sem samdist um á almenna
vinnumarkaðinum stefni í voða þeim
árangri sem náðst hefur í að styrkja
samkeppnisstöðuna.
Fundurinn minnir á að í ársbytjun
axlaði verkalýðshreyfingin ábyrgð
með því að gera hófsama kjarasamn-
inga við vinnuveitendur sem sam-
ræmdust getu fyrirtækja til að greiða
hærri laun og ógnuðu ekki stöðug-
leikanum. Það sé forsenda hagvaxt-
ar, nýrra atvinnutækifæra og bættra
kjara. Nú láti ýmsir sérhópar eins og
þá varði ekkert um þjóðhagsleg
markmið og það sem aðrir hafi borið
úr býtum við samningaborðið.
Vinnustöðvanir hafi þegar valdið
verulegum skaða fyrir þjóðarbúið, til
dæmis með truflunum á samgöngum
og teflt sé í tvísýnu með stækkun ál-
versins.
Skorað er á þá sem betur mega sín
og enn eiga eftir að semja að láta af
kröfugerð sem ekki samræmist því
sem samið var um í almennum
kjarasamningum.
■ Breytingar á rekstri
Kvennaathvarfsins
„Nú er aðeins
einn aðili
ábyrgurfYrir
stariseminni"
- segir Vilborg G. Guðna-
dóttir, framkvæmdastjóri
Kvennaathvarfsins.
Breyting á skipulagi Samtaka um
kvennaathvarf var samþykkt á aðal-
fundi þeirra í Reykjavík 23. maí síð-
astliðinn. Nýr framkvæmdastjóri
Kvennaathvarfsins, Vilborg G.
Guðnadóttir, sagði í samtali við Al-
þýðublaðið að þessar breytingar hefðu
verið samtökunum nauðsynlegar.
„Það hefur verið horfið frá fram-
kvæmdanefnd og heyrir starfsemin nú
undir hefðbundið stjómskipulag eins
og það sem þekkist í flestum fyrir-
tækjum."
Hvers vegna voru þessar breytingar
nauðsyn?
„Samtökin velta 30 milljónum
króna á ári og þeirri veltu verður að
stjóma. Sem framkvæmdastjóri sé ég
nú um allan daglegan rekstur Kvenna-
athvarfsins og kem fram fyrir hönd
Samtakanna um kvennaathvarf út á
við. Nú er því aðeins einn ábyrgur að-
ili fyrir starfseminni, en áður vom allir
ábyrgir og um leið enginn. Reksturinn
var orðinn það umsvifamikill að það
fyrirkomulag gekk ekki lengur."
Hvemig hafa breytingamar tekist?
„Þær hafa tekist vel og eru að mínu
mati stór sigur fyrir samtökin."
Kom ekki fram nein mótstaða við
breytingatillögumar á aðalfundinum ?
„Það urðu engin átök við að fá þær
samþykktar og við fengum þann
meirihluta sem við þurftum og ríflega
þa§, eða 77% atkvæða."
I stjóm Samtaka um kvennaathvarf
sitja Pálína Jónsdóttir formaður,
Hrefna Jónsdóttir ritari, Guðrún H.
Túliníus gjaldkeri og Hrafnhildur
Baldursdóttir meðgjaldkeri. Ólöf
Sigurðardóttir og Ragnheiður
Margrét Guðmundsdóttir éra í vara-
stjóm.