Alþýðublaðið - 15.06.1995, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ1995
m
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
S
I
að verðleggja erlendar vörur út af
markaðnum, en neytendur standa í
þeirri trú að tilgangurinn með þessum
nýja samningi með landbúnaðarvörur
sé að auka viðskipti og samkeppni.
íslensk veitingahús, sem þjóna bæði
hinum íslenska markaði svo og tæplega
200.000 erlendum ferðamönnum á ári,
búa við mjög hátt innkaupsverð land-
búnaðarvara eins og allur almenningur
í landinu. Matur er mjög stór þáttur í
verðlagningu ferða til Islands og því
erfiður samkeppnisþáttur, þar sem ís-
lensk ferðaþjónusta á í harðri sam-
keppni á alþjóðamarkaði.
Veitingahúsin áttu sér þá von að
eðlilegur innflutningur landbúnaðar-
vara myndi leiða til ijölbreyttara úrvals
vörutegunda á lægra verði svo og leiða
til þess að eðlilegt verð myndaðist á ís-
lenskum landbúnaðarafurðum. Með
samþykkt þessa frumvarps er sú von
orðin að engu.“
■ Samtök iðnaðarins
Enginn alvöru
innflutningur
Samtök iðnaðarins treysta sér ekki til
og vilja ekki gefa ítarlega umsögn um
jafn viðamikið frumvarp með svo
skömmum fyrirvara og ásldlja sér rétt
til að gera athugasemdir við þau lög
sem sett verða á gmndvelli frumvarps-
ins. I umsögn Samtakanna segir:
„Það veldur vonbrigðum að sú
stefna sem virðist tekin með þessu
frumvarpi felur ekki í sér neina tilburði
í þá átt að veita landbúnaðinum og
tengdum greinum neina raunverulega
samkeppni. Tollar eru þannig ákveðnir
að ekld verður um neinn alvöru inn-
flutning að ræða. Þeir einu sem munu
flytja inn afurðir verða aðilar sem hafa
ráðandi stöðu á smásölustiginu. Það
niunu þeir gera íyrst og fremst í aug-
lýsingaskyni og til þess að trufla mark-
aðinn. Eina varan sem sýnist geta lent í
raunverulegri samkeppni er framleiðsla
íslenskra ísgerða. Þar er krónutölutoll-
urinn settur á 110 kr. á kfló þegar toll-
urinn er kr. 430 á kfló mjólkurdufts og
623 kr. á smjörkfló, svo dæmi séu tekin
af aðföngum iðnfyrirtækja.
íslenskir framleiðendur sem fengu
fyrirheit um það við inngönguna í
EFTA að þeir skyldu fá landbúnaðar-
vörur til framleiðslu sinnar á heims-
markaðsverði eru engu betur settir með
okurtolla í stað innflutningsbanns.
Samtökin höfðu staðið í þeirri mein-
ingu að GATT-samningurinn myndi
opna fyrir innflutning á þessum vörum
til landsins og ijúfa þannig þá einokun-
arstöðu hráefnissala sem iðnaðurinn
hefiir mátt búa við.“
■ BSRB
Kröftug
tollvernd
í umsögn Bandalags starfsmanna
rflds og bæja segir að það sé rangt að
líta á verslun með landbúnaðarafurðir
eingöngu útfrá þröngum neytendasjón-
arhóli. Skoða verði samkeppnisstöðuna
í heild sinni og efnahagslegar og þjóð-
félagslegar afleiðingar sem hljótast af
þeim breytingum sem gerðar eru. Síðan
segir:
„f því ffumvarpi sem hér liggur fyrir
er gert ráð fyrir mjög kröftugri toll-
vemd og þar á verði ekki grundvallar-
breyting næstu árin. Allt bendir til þess
að með frumvarpinu eigi sér engar
merkjanlegar breytingar sér stað þótt
nú sé horfið ffá þeirri grundvallarstefhu
að leggja bann við innflutningi á bú-
vörum. Þetta er ekki frábrugðið því
sem gerist með öðrum þjóðum. Þannig
komst sérfræðinganefnd OECD að
þeirri niðurstöðu í vetur eftir að hafa
farið yfir samningstilboð helstu þjóða
sem aðild eiga að GATT-samkomulag-
inu að það muni ekki leiða til neinna
umtalsverðra breytinga á heimsvið-
skiptum með búvörur allra næstu árin
einfaldlega vegna þess að alls stáðar
verði háir tollmúrar eftir sem áður.“ ■
■ Gullkistan- listahátíð að Laugarvatni - verður sett 17. júní
myndlistar-
menn leggja undir
sig Laugarvatn
104 myndlistar-
menn opna sýningar á
Laugarvatni á þjóðhá-
tíðardaginn, laugar-
daginn 17. júní. Sýn-
ingamar em í hluti af
listadögum, sem tvær
ungar myndlistarkon-
ur, búsettar á staðnum,
Alda Sigurðardóttir
og Kristveig „Didda“
Halldórsdóttir eiga
veg að vanda að.
Upphaflega hug-
myndin var að halda
myndlistarsýningu í
Héraðsskólanum en
frá því undirbúningur
hófst um áramótin
hefur sýningin undið
allverulega upp á sig
og hafa þær stöllur nú
lagt undir sig flestar
þær byggingar sem til
afnot var hægt að fá af
á staðnum. Þegar í ljós
kom hversu áhugi fyr-
ir þátttöku var mikill
tóku Alda og Didda
þann pól í hæðina að
stækka heldur sýning-
una og auka umsvifin
en vísa fólki frá.
„Við hófum undir-
búninginn um áramót-
in og sendum þá út
fréttatilkynningar til
myndlistarmanna og
létum þetta fréttast,"
sagði Alda í samtali
við Alþýðublaðið. „En
eftir því sem þátttöku-
beiðnum fjölgaði
fannst okkur réttara að
reyna heldur að fá
nieira sýningarhús-
næði en neita fólki um
þátttöku og það
tókst.“
Myndlistarmennim-
ir sem sýna á Laugar-
vatni hafa flestir ný-
lokið námið eða eru
jafnvel ennþá í skóla
og nokkrir eru sjálf-
menntaðir. Sjálfar
voru Alda og Didda í
Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands, Alda
í fjöltæknideild sem
hún kláraði fyrir tveimur árum, en
Didda útskrifaðist úr textíldeild í
fýrra.
En það verður fleira á boðstólum á
Laugarvatni en myndlist. Þrír leikhóp-
ar hafa boðað komu sína og haldnir
verða femir tónleikar. Fyrsta leiksýn-
ingin verður á sunnudaginn, í íþrótta-
húsi Héraðsskólans, þar sem Guð-
mundur Haraldsson og Magnús
Jónsson troða upp með leikgerðir sín-
ar af tveimur bamasögum pólska rit-
höfundarins Janosch. Sama dag á
sama stað ætla Petrea Óskarsdóttir
þverflautuleikari og Ingunn Hildur
Hauksdóttir píanóleikari að vera með
tónleika
Hvað varð til þess að þið fóruð af
stað með listadaga?
„Hugmyndin kviknaði þegar við
heyrðum að áform væm uppi um að
breyta Héraðsskólahúsinu í mötuneyti,
en upphaflega ætluðum aðeins að
halda sýningu þar,“ svara Alda og
Didda. „Héraðsskólinn hefur verið
formlega aflagður þótt þar séu nú 30
nemendur í grunnskóladeild er heyrir
undir Menntaskólann, en visíirnar
hafa einnig verið notaðar fyrir nem-
endur í fyrsta bekk í ML. Okkur þótti
fúll ástæða til að vekja athygli á þess-
um fyrirhuguðu breytingum, því þetta
Listahátíðin Gullkistan að Laugarvatni laðar til sín listamenn af ýmsum
stærðum og gerðum. Þannig munu til dæmis félagarnir Guðmundur Har-
aldsson (til hægri) og Magnús Jónsson troða upp með leikgerðir sínar af
tveimur barnasögum pólska rithöfundarins Janosch. A-mynd: E.ÓI.
glæsilega hús tengist sögu staðarins
og er þar að auki eigin þjóðarinnar.
Við myndum gjaman vilja sjá því val-
ið verðugra verkefni og gætum vel
ímyndað okkur að þar yrði sett á stofn
listamiðstöð. Á listadögum verða 17
myndlistarmenn með einkasýningar í
herbergjum skólans."
Þær stöllur hafa því ímynd og ffam-
tíð staðarins í huga. Laugarvatn er í
hugum margra fomt menntasetur, þótt
staðurinn muni víst þekktur fyrir flest
annað en menningarstarfsemi hin síð-
ari ár og jafnvel áratugi. I gegnum tíð-
ina hafa þó komið þangað listamenn
til dvalar og búsetu í lengri og
skemmri tíma og nægir þar að nefna
Halldór Laxness, sem í gamla daga
dvaldi við skriftir á hótelinu sem rekið
var á sumrin í Héraðsskólanum. Þar
lauk hann meðal annars við að skrifa
Sjálfstœtt fólk. Því hefur verið innrétt-
að herbergi á efstu hæð Héraðsskólans
til að minna á þennan ritsnilling og
verk hans meðan listadagar standa yf-
ir.
Á listadögum verður ekki látið hjá
líða að minnast á aðra þætti í sögu
staðarins. Sérstök sögusýning verður í
kjallara Héraðsskólans, þar sem jafn-
framt verður starfrækt kaffistofa þá
daga sem hátíðin stendur yfir, og jafti-
framt hafa dagamir hlotið yfirskriftina
Gullkistan í höfuðið á hnúknum á
fjallinu ofan við bæinn Miðdal í Laug-
ardal, skammt fyrir utan Laugarvatn.
Gullkistan verður formlega sett við
Héraðsskólann klukkan 13:00 á þjóð-
hátíðardaginn, myndlistarsýningar
opnaðar auk þess sem Paul Lydon
flytur tónverkið Allan Tyne of Farrow
og Björk Sigurðardóttir og Þóra
Þórisdóttir verða með gjöminga. Fyr-
ir þá sem hug hafa á að leggja til at-
lögu við hina'upprunalegu Gullkistu á
listadögum skal minna á þjóðsöguna
henni tengdri, en þar segir að ekki
megi líta um öxl þegar gengið er upp
að Gullkistu gimist göngumenn gullið
sem þar er geymt. Það fylgir reyndar
sögunni að þetta eigi aðeins við, ef um
tvo bræður em að ræða er búi í Mið-
dal. Það segir þó hvergi að aðrir megi
ekki reyna að freista gæfunnar.
5
Gullkistan
í hnotskurn
Myndlistarsýningar verða opnar alla
daga frá 17. júní til 2. júlí. Þær eru í
Héraðsskólanum, Hótel Eddu í
Menntaskólanum, Hótel Eddu í Hús-
mæðraskólanum, Veitingahúsinu
Lindinni og í umhverfi Laugarvatns.
17. júní
Skrúðganga frá Barnaskólanum að
Héraðsskólanum þar sem Gullkistan
verður sett. íþróttir og leikir á vegum
Ungmennafélags Laugdæla á
íþróttavelli eða í nýja íþróttahúsinu,
allt eftir veðri.
Paul Lydon flytur tónverkið Allan
Tyne ofFarrow.
Björk Sigurðardóttir og Þóra Þór-
isdóttir verða með gjörninga.
18. júní
Barnaleikritið Komum, finnum fjár-
sjóö sýnt í íþróttasal Héraðsskólans
klukkan 13:00. Leikendurog höfund-
ar leikgerðar Guðmundur Haralds-
son og Magnús Jónsson.
Tónleikar Petreu Óskarsdóttur
þverfiautuleikara og Ingunnar Hild-
ar Hauksdóttur píanóleikara í
íþróttasal Héraðsskólans klukkan
15:00. Flutt verða verk eftir Loeillet,
Poulenc, Honegger, Roussel og
Gaubert.
Barnaleikritið Góðan daginn litla ■
svín sýnt í íþróttasal Héraðsskólans
klukkan 17:00. Leikararog höfundar
leikgerðar Guðmundur Haraldsson
og Magnús Jónsson.
21. júní
Sólstöðutónleikar dúettsins Súkkat
klukkan 21:00 í íþróttahúsi Héraðs-
skólans.
23. júní
Lagt af stað í fjallgöngu á Gullkist-
una frá Miðdal klukkan 22:00.
24. júní
Ljóðadagskrá i umsjón Pjeturs Haf-
steins Lárussonar og Jóns Özur-
ar Snorrasonar í kaffistofu Gullkist-
unnar í kjallara Héraðsskólans klukk-
an 15:00. Lesið verður úr Ijóðum
skálda er numið hafa og starfað á
Laugarvatni. Skáldin eru Kristján
Árnason, Rúnar Ármann Art-
húrsson, Jóhann S. Hannesson,
Ólafur Briem, Baldur Óskarsson,
Jón frá Pálmholti og Unnur S.
Bragadóttir. Þá flytur Björn Bergs-
son eigin lög við Ijóð eftír Rúnar
Hafdal Halldórsson og Gíslína S.
Jónatansdóttir stjórnar flutningi á
tveimur lögum við Ijóð Þórðar
Kristleifssonar.
Tónleikar Strokkvartettsins í íþrótta-
sal Héraðsskólans klukkan 17:00.
Flutt verða verk eftir Dvorak, Pucc-
ini, Gerschwin, Duke Ellington
og fleiri.
29. 30. júní og 1. júlí
Leikritið Sápa 2; Sex vid sama boró
sýnt á Hótel Eddu í Húsmæðraskól-
anum klukkan 20:30. Höfundar
verksins eru Ingibjörg Hjartardótt-
ir og Sigrún Óskarsdóttir. Leikarar
eru Bessi Bjarnason, Edda Björg-
vinsdóttir, Eggert Þorleifsson,
Margrét Ákadóttir, Margrét Guð-
mundsdóttir og Valgeir Skag-
fjörð. Leikstjóri er Sigríður Margr-
ét Guðmundsdóttir.
1 ■ júlí
Tónleikar í íþróttasal Héraðsskólans.
Svava Kristín Ingólfsdóttir mezz-
ósópran og Jórunn Viðar píanóleik-
ari flytja íslensk sönglög, Sígauna-
Ijóð eftir Dvorak, spönsk sönglög
Tonadillas eftir Granados og
óperuaríur.
2. júlí
Barnaleikritið Ástarsaga úr fjöllunum
sýnt í íþróttasal Héraðsskólans. Leik-
stjóri og höfundur leikgerðar er
Stefán Sturla Sigurjónsson. Leik-
arar eru Pétur Eggerz og Alda
Arnardóttir.