Alþýðublaðið - 18.07.1995, Page 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ1995
s k o ð a n
MMDIIKI fBID
20952. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
R'rtstjórn, auglýsingar og drerfing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.550 mA/sk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Já - þótt fyrr hefði verið!
Jón Kristjánsson alþingismaður Framsóknar og ritstjóri Tímans
skrifaði grein í blað sitt á laugardaginn undir fyrirsögninni: „Á að af-
nema kvótakerfið í landbúnaði?“ Ekki kemur fram hvem Jón Krist-
jánsson er að spyija, þaðan af síður kemst hann að nokkurri niður-
stöðu. Það væri líka til of mikils mælst af háttprúðum framsóknar-
manni að austan, hvers vömmerki er skoðanaleysi og miðjumoð. Eigi
að síður er virðingarvert að Jón skuli spytja sjálfan sig spuminga af
þessu tagi, og ekki nema sjálfsagt að hjálpa honum í sálarsh'tandi leit
sinni að sannleikanum í landbúnaðarmálum.
Öllum er orðið ljóst að núverándi landbúnaðarkerfi er handónýtt.
Bændur, sérstaklega í hinum hefðbundnu greinum, em nánast á vonar-
völ: blómlegar sveitir landsins fóstra nýja öreigastétt sem hvorki getur
lifað né dáið af búskap. Ástandið er hroðalegt hjá sauðfjárbændum,
sem margir hveijir em langt undir fátæktarmörkum. Þeir em hnepptir í
ánauð kvóta og ffamleiðslustýringar, og grátt leiknir af flötum niður-
skurði síðustu ára. Miðstýring af þessu tagi drepur niður ffumkvæði og
dug, sem jafnan hefur verið aðalsmerki íslenskra bænda. Afleiðingam-
ar em meðal annars þær að meðalaldur bænda er kominn yfir fimm-
tugt: ungt fólk treystir sér einfaldlega ekki til þess að gefa sig á vald
hinni skipulögðu fátækt.
Fyrir kosningar lagði Alþýðuflokkurinn ffam skýra og afdráttarlausa
stefnu í þessum málum, en menn minnast þess hinsvegar ekki að Jón
Kristjánsson eða félagar hans í Framsókn hafi haft nokkum skapaðan
hlut ffam að færa. Alþýðuflokksmenn lögðu til að kvótakerfið yrði af-
numið í landbúnaði og bændum gert kleift að ffamleiða og keppa á
frjálsum markaði. Landbúnaður er eina atvinnugreinin á íslandi sem
hneppt er í sovétkerfi miðstýringar, og það er orðið tímabært að nútím-
inn nemi land í sveitunum - áðuren þær fara í eyði. Alþýðuflokks-
menn vilja líka að vemlegum upphæðum verði farið til að aðstoða þá
bændur sem vilja bregða búi. Sú hugmynd var meðal annars sett fram,
að tollar af innfluttum landbúnaðarvömm yrðu notaðir í þessu skyni.
Úrræði framsóknarmanna allra flokka hafa löngum falist í milli-
færslum og fjáraustri. Þær aðferðir em hinsvegar fullreyndar. Það heit-
ir að lengja í snömnni. Kerfið er ónýtt, það er komið að skuldadögum.
Bændur eiga betra skilið en að vera aðeins reyrðir fastar í skuldafjötra,
og gert að sæta enn nýjum afarkostum, fjárleiðslustýringu og flötum
niðurskurði.
Amór Gunnarsson bóndi í Glaumbæ í Skagafirði og formaður Bún-
aðarsambands Skagafjarðar sagði í samtali við Tímann á laugardaginn:
„Staðan í Sauðfjárræktimii hér í Skagafirði er mjög slæm og þetta er
deyjandi stétt ef ekkert verður að gert. Þetta verður aðeins ftístundabú-
skapur með sama áframhaldi. Við emm ósáttir við að bændumir sjálfir
þurfi að halda uppi þeirri byggðastefnu sem stjómmálaflokkamir
boða.“
Jón Kristjánsson ætti kannski að lesa blaðið sitt betur.
Atvinnuleysi Framsóknar
Framsóknarmenn vom örlátir á loforð í kosningabaráttunni, og
sáldmðu þeim á báðar hendur. Þeir ætluðu að lækka vexti, útrýma
halla ríkissjóðs, uppræta atvinnuleysi, efla menntakerfíð, afhema þjón-
ustugjöld í heilbrigðiskerfinu, stóriiækka og lengja húsnæðislán, bæta
lánasjóðskerfi námsmanna og svona mætti áfram telja.
Nú er flestum að verða ljóst að engin innistæða var í loforðabanka
Framsóknar. Ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hefur
setið að völdum í þijá mánuði og aðeins afrekað tvennt: Að festa í
sessi lénsveldi sægreifanna og koma í veg fyrir innflutning á landbún-
aðarvörum.
Ekkert bólar á róttækum aðgerðum Framsóknar í atvinnumálum, á
sama tíma og kolsvartar tölur birtast um metatvinnuleysi í júnímánuði.
Skammtímaminni framsóknarmanna hefur löngum verið rannsóknar-
efhi, og því þarf kannski engan að undra þótt þeir hafi á 90 dögum
steingleymt öllum stórfenglegu loforðunum sínum. Það er þessvegna
full ástæða til að rifja upp eitt helsta slagorð þeirra í kosningabarátt-
unni:
Tólf þúsund ný störf fyrir aldamót!
Alþýðublaðinu verður, hér eftir sem hingað til, ljúft og skylt, að
hressa upp á minni framsóknarmanna þegar þurfa þylrir. ■
Að viðra samviskuna íKína
I„Mannréttindabarátta er ekki dútl. Hún er
ekki saumaklúbbur þar sem konur geta hist í
nafni mannelsku og bróderað fagurlega orð-
aðar ályktanir, veifað síðan í kveðjuskyni og
svifið á næsta fund þar sem prógrammið er
endurtekið... Að halda kvennaráðstefnu í Kína
er eins og að halda kirkjuþing í Helvíti."
Ráðstefnuglaðar konur eru hissa.
Þær höfðu ætlað að arka til Kína. Á
kvennaráðstefnu. Það var áður en þær
komust að því að kínversk stjómvöld
líta ekki á konur sem mannverur. Af
þeim tíðindum frétm þær í sjónvarpi
fyrir ekki allmörgum dögum. Þær urðu
ákaflega hissa. Eg er reyndar enn að
furða mig á því hvað þær urðu gegnd-
arlaust hissa.
Háborðið I
wmmr
■ Kolbrún
1 Bergþórsdóttir
Það er merkilegt íhugunarefhi hvers
vegna hin sögulega staðreynd um við-
bjóðslega meðferð á kínverskum kon-
um hafi ekki fyrr ratað inn í vitundar-
heim þeirra kvenna sem þaulsetnastar
em á kvennaráðstefnum. Ef þau stór-
kostlegu mannréttindabrot í fjölmenn-
asta ríki heims hafa farið svo illilega
ífamhjá þessum konum, hvað hafa þær
þá verið að iðja alla sína ráðsteíhutíð?
Hin nýja vitundarvakning ráðstefhu-
kvenna hófst með breskri sjónvarps-
mynd, Herbergi dauðans, þar sem
fjallað var um grimmdarverk kín-
verskra stjómvalda gegn konum. Fyrir
sýningu myndarinnar var glæpurinn
aðeins orðrómur sem yppt var öxlum
við og samviskan mmskaði ekki svo
neinu næmi. En nú var glæpurinn
kominn inn í stofu. Um leið varð hann
að raunvemleika.
Allt er nú með öðrum svip. Þær
konur sem ólmar vildu þyrpast til Kína
íhuga nú margar hvort ekki sé rétt að
sitja heima. Aðrar hafa uppi stór orð
um að mótmæla mðingsskapnum, sem
þær vom rétt í þessu að ffétta af. Það
einkennilegasta í þessu klúðurslega
kvennaráðstefnumáli er sannarlega
ekki tilurð hinnar bresku heimildar-
myndar heldur það skeytingarleysi
sem mannréttindabrotum stjómarinnar
í Peking hefur verið sýnt í áraraðir. Þar
getur kvennahreyfmgin ekki skotið sér
undan ábyrgð. Ef til vill ætti hún að
hjala minna um eigið ágæti og taka til
við að ffamkvæma því meira.
Mannréttindabarátta er ekki dútl.
Hún er ekki saumaklúbbur þar sem
konur geta hist í nafni mannelsku og
bróderað fagurlega orðaðar ályktanir,
veifað síðan í kveðjuskyni og svifið á
næsta fund þar sem prógrammið er
endurtekið. Með öðmm orðum þá á
mannréttindabarátta kvenna ekki að
byggja á hverju ráðstefnuhaldinu á
fætur öðm þar sem menntakonur hitt-
ast til þess eins að viðra samvisku sfna.
Nú er lag fyrir þær konur sem með
reglulegu millibiU hafa dundað við að
elta uppi ráðstefnur að hætta því flan-
dri um stund og myndast við að koma
í framkvæmd þeim ályktunum sem
samþykktar hafa verið á fyrri ráðstefn-
um. Það er kannski ekki eins skemmti-
legt og að komast á styrkjum til hins
vinsæla ferðamannalands Kína, en
mun ömgglega koma íbúum heims að
meira gagni.
Kvennaráðstefnan í Kína er haldin í
nafhi Sameinuðu þjóðanna, sem á und-
anfömum ámm hafa hvað eftir annað
orðið sér rækilega til skammar í væsk-
ilslegum og yfuborðslegum tilburðum
sínum við að sinna mannréttindamál-
um. Ráðstefhan er enn eitt dæmið um
niðurlægingu þeirrar stofhunar. Fram-
kvæmdaáætlun sem leggja á fyrir ráð-
stefnuna er 121 blaðsíða. Þriðjungur
hennar er innan sviga, sem þýðir ein-
faldlega að ágreiningur ríkir um stefhu
og markmið. Ráðstefnan mun því
verða haldin innan sviga, í bókstaflegri
merkingu þess orðs, markast af stór-
legu þrefi og niðurstöður hennar verða
enn einn kunnuglegur málamiðlunar-
bræðingurinn, sem væntanlega verður
tekist á um á næstu ráðstefnu, sem
vafah'tið verður haldin í Teheran innan
fjögurra ára.
Islenskar konur sem ólmar vilja á
ráðstefnu til Kína hafa tekið fram að
þær muni koma á framfæri mótmælum
við kínversk stjómvöld vegna stefnu
þeirra í mannréttindamálum. Kín-
verskir ráðamenn senda trúlega kurt-
eisan skósvein sinn til að taka við
þeirri ályktun. Sem fulltrúi kínverska
alþýðulýðveldisins mun hann bukta
sig og beygja og hverfa síðan á braut
með skjal sem lendir á öskuhaugum
Pekingborgar. Og hinar þrautþjálfuðu
ráðstefnukonur hafa friðþægt, og
kannski munu þær af sannfæringu trúa
því að þær hafi fært kínverskum al-
þýðukonum nýja von, þeim konum
sem aldrei var ætlað að sitja ráðstefn-
una og seint munu af henni ffétta.
Að halda kvennaráðstefhu í Kína er
eins og að halda kirkjuþing í Helvíti.
Staðsetninguna má rökstyðja með því
að einmitt þar sé mest þörf á hugar-
farsbreytingu. Og vissulega má vona
að hinir illu drottnarar felli iðrunartár,
breyti skipulaginu og voldugt ríki
mannkærleikans rísi af grunni. Hinn
bitri sannleikur er hins vegar sá að við
reisum ekki nýjan og betri heim með
óskhyggjunni. Væri svo, hefðu millj-
ónir kínverskra kvenna fyrir löngu
reist sér sæluríki, skapað af voninni
einni._______________________________
Höfundur er bókmennta-
gagnrýnandi og jafnaöarmaöur.
a 9 a t a 1 18. Í ú 1
Atburöir dagsíns
1610 ítalski listamaðurinn
Michelangelo deyr, 39 ára að
aldri. 1762 Pétur III Rússa-
keisari myrtur, átta dögum
eftir að hann afsalaði sér völd-
um. Katrín, 33 ára eiginkona
hans, tekur við völdum. 1817
Enski rithöfundurinn Jane
Austen deyr. 1877 Thomas A.
Edison hljóðritar mannsrödd í
fyrsta sinn. 1925 Adolf Hitler
gefur út Mein Kampf, sem
hann skrífaði í fangelsi.
Afmælisbörn dagsins
Vidkun Quisling norskur
leppur Þjóðveija á stríðsáiun-
um: nafn hans er æ síðan not-
að yfir svikara og landráða-
menn, 1887. Nelson Mandela
forseti Suður-Afríku, 1918.
John Glenn bandarfskur
geimfari, 1921.
Málsháttur dagsins
Eigi skal lengi lítils biðja.
Mismæli dagsins
Ég hef ferðast þangað sem
maðurinn hefur aldrei stigið
hendi.
Samuel Goldwyn, bandarlskur
kvikmyndajöfur.
Orð dagsins
Kaldur vetur mceðir mig,
mold og keldurfrjósa;
það er betra að bcela sig,
við brjóstin á þér, Rósa!
Siguröur Breiöfjörö (1798-1846).
Annálsbrot dagsins
Á því ári var nokkrum mönn-
um hætt til efasemdar og jafn-
vel til örvæntingar. Einn af
þeim var séra Jón Guðmunds-
son. Séra Jón hafði verið góð-
ur kennimaður.
Setbergsannáll, 1688.
Skák dagsins
Skák dagsins er frá Ólympíu-
skákmótinu í Moskvu á síð-
asta ári. ísraelski stórmeistar-
inn B. Alterman (2575 ELO-
stig) hefur hvítt og á leik
gegn pólska alþjóðameistar-
anum M. Matlak. Hvítu
mennirnir eru orðnir æði
uppáþrengjandi og nú nánast
kæfir Alterman hinn ógæfu-
sama Matlak.
Hvað gerir hvítur?
1. Hd6! Bxd6 2. De6+ Kf8 3.
Hxd6 Dc7 4. Bxg7+! Loka-
hnykkur, Matlak gafst upp.
Samanber: 4. ... Kxg7 5.
Dxh6+ Kf7 6. Dh7+ Kf8 7.
Hf6 mát. Aldeilis ágætt.