Alþýðublaðið - 18.07.1995, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 18.07.1995, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o ð a n i r Bréf frá Munchen Ég sting upp á því að þetta fólk leggi pólitískar ástríður sínar í púkk... Og þá mun það gerast, sem Einar Benediktsson, einn fyrsti hugmynda- fræðingur íslenskra jafnaðarmanna, hugsaði fyrir hundrað árum: Ég fann það, sem að sál mín heyrði, var sigurbragur fólks, er vaknar. Það var dálítið merkilegt að dvelj- ast á íslandi í nokkrar vikur í vor, og verða vitni að því í kjölfar kosninga og stjórnarmyndunar, að umræða lifnaði á ný, jafnt í þingræðum sem blaðagreinum, um endurskoðun flokkakerfisins. Raunar minnti þessi umræða sumpart á umræðu um þetta mál, sem fór fram á árunum 1989- 90, sumpart ekki. I umræðunni 1989-90 var þannig oftlega varað við pólitísku skírlífi, atkvæðum sem féllu á flokka, sem höfnuðu mála- miðlunum og stjórnarþátttöku og hindruðu með þvf iðulega að jafnað- armannaflokkurinn gæti orðið burð- Glugginn | arafl í landstjóminni. Kjarni málsins er þessi: Breiður jafnaðarmannaflokkur hefur aldrei verið til á íslandi. Þess vegna er ekki hægt að horfa einangrað á málin, líta bara á Island; menn verða að horfa til slíkra flokka erlendis, gá að því hvað þeim hefur reynst erfitt, leita dæma úr sögu þeirra - og pólitískt skírlífi er augljóslega eitt af því, sem þeir geta ekki sóst eftir, sem um leið vilja nýjan, öflugan jafnaðarmanna- flokk. Skírlífisflokkur myndi nefni- lega reynast breiðum jafnaðar- mannaflokki afar skeinuhættur; hann myndi iðulega reyna að skilgreina sjálfan sig sem hugsjónaflokk, en jafnaðarmannaflokkinn sem bragð- lausa, pólitíska moðsuðu - og eflaust ná tímabundnum árangri í því. Vandinn við sameiningu íslenskra jafnaðarmanna er vitaskuld margvís- legur; persónuleg óvild vegur þar þungt, þras um menn en ekki mál- efni, áralöng brigsl, ör á sálum - en einnig að sjálfsögðu mismunandi af- staða til ýmissa þeirra mála sem skipta íslendinga mestu; stöðu lands- ins í veröldinni, Evrópumála, Gatt, verðlagningu lífsnauðsynja og svo framvegis. Ein meginsérstaða íslenskra stjómmála í gegnum árin hefur legið í því hversu þjóðernissinnaðir vinstrimenn hafa verið. Enn í dag ber mjög á þjóðemishyggju hjá sumum vinstrimönnum og ég verð að segja að ég tel þá, sem em þeirrar skoðun- ar, lítið sem ekkert erindi eiga í nýj- an og nútímalegan jafnaðarmanna- flokk í alþjóðlegum stfl; þeir munu alltaf verða eftir í sínum þjóðemis- flokki, sem ég tel reyndar að muni ekki verða mjög stór þegar til lengd- ar lætur. En vel að merkja, sá flokkur mun aldrei verða skírlífisflokkur, þeir sem eru líklegir til að bera hann uppi, eiga mjög mikla málefnalega sam- stöðu með til dæmis Framsóknar- flokknum, og munu kappkosta að stjóma landinu með honum. Þjóðem- isvinstrimenn eiga hins vegar lítið sameiginlegt með þeim, sem aðhyll- ast femínisma eða þeim sem hrifist hafa til dæmis af erlendum náttúru- verndarhugmyndum og gætu haft áhuga á grænum flokki á Islandi. ís- land er hins vegar einfaldlega ekki iðnaðarþjóðfélag og þar er því til- tölulega einfalt pólitískt fyrir nýjan jafnaðarmannaflokk að halda slíkum kjósendum innan sinna vébanda; hann er lítt knúinn til aðgerða, sem gæti stuðað náttúruvemdarsinna, að minnsta kosti ef miðað er við flokk- ana í Þýskalandi, Frakklandi eða Svíþjóð. Mér sýnist að stuðningsmenn Al- þýðuflokks, Þjóðvaka og margir stuðningsmenn Kvennalista og Al- þýðubandalags ættu að geta átt sam- leið með nýjum flokki í alþjóðlegum stfl; öflugum, nútímalegum jafnaðar- mannaflokki; Og ég sting upp á því að þetta fólk leggi pólitískar ástríður sínar í púkk, stofni málefnasamtök þar sem málefiii verða rædd, samtök sem gætu orðið hvati að nýjum, öfl- ugum flokki. Og þá mun það gerast, sem Einar Benediktsson, einn fyrsti hugmyndafræðingur íslenskra jafnaðarmanna, hugsaði fyrir hundrað árum: Égfann það, sem að sál mín heyrði, var sigurbragur fólks, er vaknar. Einar Heimisson er kvikmynda- höfundur og sagnfræðingur. Lögmenn eru margir hverjir afskaplega fjöl- hæfir menn og láta sér fátt mannlegt óviðkomandi. Sumir þeirra halda sig ekki eingöngu við lögmanns- störfin heldur grípa í alls óskyld verk ef svo ber und- ir. Raunar virðast sumir lög- menn láta sérfátt fyrir brjósti brenna þegar auka- störfin eru annars vegar ef marka má Atvinnuskrá Símaskrárinnar. Þar er að finna lista yfir starfandi lög- menn samkvæmt upplýs- ingum Lögmannafélags ís- lands. í þriðja sæti á þeim lista er að finna mann að nafni Þorstein Gíslason sem tekur við tímapöntun- um samkvæmt umtali. Um Þorstein segir síðan í skránni: Sérgrein: Þvag- færaskurðlækningar... Einsog fram kemur í for- síðufrétt okkar í dag er Halldór Jónsson, einn af oddvitum sjálfstæðismanna í Kópavogi og ritstjóri mál- gagns þeirra, Voga, ekki par ánægður með frammistöðu sinna manna í GATT-mál- inu. En Halldórtíundarfleiri ávirðingar stjórnmála- manna í grein sinni. Hann gerir jöfnun atkvæðisréttar að umtalsefni og segir: „Hver stjórnmálaforinginn af öðrum hefur svikið sam- þykktirflokka sinna um jöfnun atkvæðisréttar með því einu að vísa til þess að hinir vilji ekkert gera í mál- inu. Og geðleysi kjósenda lætur þeim líðast þessi framganga." Halldór er öld- ungis ekki búinn: hans menn fá væna dembu fyrir afgreiðslu sjávarútvegs- frumvarpsins í vor: „Sigur kvótagreifanna var nær al- ger og áframhald hinnar geigvænlegu rányrkju fiski- miðanna vartryggð um næstu framtíð... Þrátt fyrir fáránleika þessa kerfis skal því viðhaldið og þeir þing- menn sem þóttust hafa sér- skoðanir fyrir kosningar virtust hafa verið múl- bundnif og látnir játa því sem að þeim var rótt í þing- inu." Snöfurlega að orði komist- en hvað ætli Hall- dór Jónsson sé aö gera í Sjálfstæðisflokknum? Spurt er... Vegna málgleði blaða- manns og Guðmundar Árna Stefánssonar í við- tali Alþýðublaðsins síðast- liðinn föstudag þurfti að skera hluta aftan af því í umbroti. Þar kom meðal annars fram að þingmaður- inn er „að reyna skrifa eitt- hvað". Hann var því spurð- ur hvort ný bók væri vænt- anleg og svaraði: „...ekki fleiri sjálfsævisögur ef þú átt við það. Þetta kemur í Ijós. Ég hef svo gaman af því að sitja við tölvuna og skrifa..." Er þessi bók þá eitthvað í líkingu við Sjón- arrönd Svavars Gestsson- ar? „Þú meinar það. Ekki í augnablikinu. Við sjáum hvað setur," svaraði Guð- mundurÁrni glottandi... „Bölvaðir litlu aumingjarnir ykkar - það var aldeilis tími tilkominn að þið heimsæktuð mig og ömmu ykkarl Þið þarfnist rækilegrar yfirhalningar og liðamótaskellingar, þvi annars verður aldrei neitt úr ykkurll Þegar ég var á ykkar aldri þurfti ég að skríða hátt i 40 sentimetra í gegnum andskotans eld og brennistein uppá yfirborð- ið - og tilbaka!!! Á hverjum einasta djöfulsins degil!!! Ég skreið i gegnum helvítis malbik í þrumuveðri ef þvi var að skipta!!!!! Og í þá daga töluðum við kjarnyrta islensku - ekki þetta enskuskotna ógeð sem þið ælið útúr ykkur, hálfvitar og fifl!l!!!!" fimm á förnum 3SÐ Hváð finnst þér um heræfingarnar hér á landi? Margrét Kjartansdóttir, nemi: Mér er alveg sama um þær, ef hermennirnir valda engúm spjöllum á náttúru, mönnum og dýrum. Kári Kárason, altmulig- man: Ef enginrt skýtur á mig þá snertir þetta mig ekki. Mark Bradbury, fjárfestir: Sigríður Ingunn Braga- Mér líkar ekki við þær. Ég er á dóttir, afgreiðslumaður: móti hemaðarbrölti - en æfing- Þær eru fáránlegar. Við eigum amar ættu ekki að skaða neinn. ekki að vera méð neitt sem minnir á stríð. Hólmsteinn Pétursson, verktaki: Mér fmnst þetta allt í lagi. Þetta er bara æfing og leikaraskapur stráka í sand- kassaleik. v i t i m e n n Sauðfjárbúskapur er deyjandi að óbreyttu. Arnór Gunnarsson bóndi í Glaumbæ í Skaga- firði. Tíminn á laugardag. Hér á opnunni má lesa frásögn af dálftið einkennilegu fólki sem ferðast ruplandi og rænandi um landið. Leiðari MP flallaöi meöal annars um „Bonnie og Clyde" íslands. Pétur Öm Guðmundsson fer með hlutverk Jesú, titilhlutverkið. Hlutverkið er erfitt í leik og söng og því miður stendur Pétur ekki undir væntingum. Tilþrifalítill leikur hans skekkir dramatíska þungamiðju sýningarinnar og hann á ekkert í atvinnumennina i söngnum. Sveinn Haraldsson, nýr leiklistargagnrýnandi Morgunblaðsins, tætti niður uppfærslu Leikfélags Reykjavíkur á Súperstar. Undanfarna daga hefur íslenska þjóðin fylgst með skrípaleik kerflsins þegar reynt er að koma í veg fyrir löglegan innflutning landbúnaðarvara. Jónas Haraldsson í forystugrein DV ígær. Saksóknarar á Sikiley hafa farið þess á leit við dómara að kaþólskur biskup á eyjunni verði sóttur til saka fyrir að hafa svikið fé úr sjóðum Evrópusambandsins. Frétt í Mogganum á laugardag. Það seiur mjög vel að segjast vera íslensk. ~ Norsk vændiskona í Kaupmannahöfn sem í auglýsingu segist vera íslensk. Hjólabugsur... Öll Verð An VSK... í kassanum er 6 stk í lidt... 2 dozn Ljós grár... Nærbugsur Barna... í kassanum em 100 pakkar með sjö stikjum í... Takmarkaðar birðir... vonast til að getta haldið þessum verðum... Vonast til að heira frá ykkur, og þetta sje eikvað sem vegi áhuga iðar... VirðingarfylsL Gísli Jónsson vitnaði í þennan dapurlega verðlista í þætti sínum, íslenzkt mál, í Mogganum á laugardag. Vefurinn er sannkölluð paradís fyrir kvik- myndaunnendur og þarsem okkur gmnar að bíófrík á borð við Egil Helgason Fransmaníumann og Harald Jóhannsson hagfræðing hafi enn ekki uppgötvað þessar dásemdir koma hér helstu netföngin: Óskars- verðlaunin http:l/www.oscars.org/ampas/ - Buena Vista http://www.wdp.com/BVPM/ - Kvikmyndakynningarfyrirtækið Foresight http://www.foresight.co.uk/ents/ - MGM http://www.earthlink.net/MGM/ - Universal http://www.mca.com/ - New Line Cinema http://cybertimes.com /NewLine/Welcome.html - Paramount http://paramount.com/ - Sony http://www.spe.sony.com /Pictures/SonyMovieslindex.html - Hollyvefurinn htt:/lwww.ingress.com /users/spease/hw/hollyweb/html Hollywood Online http: Hwww.hollywood.com/ - Kvikmyndafram- leiðslan http://www.makingmovies.com ltalentlindex.html - Gerðu- kvikmynd- sjálfur http:llibmpcug.co.uk/~scTfinl - < Batman Forever http: //batmanforever.com/ - Hrollvekjur http://w ww.ee.pdx.edu: 80/~caseyh lhorrorlhorror.html - Költ-heimasíðan http://www.public.iastate.edu: 80 /~abormann/ - Hong Kong-bíó' http: Hwww.mstud.chahners.se/hkmovie/ - James Bond http://www.dur.ac.uk/~dcs3pjb /jb/jbhome.html - Pulp Fiction http://www.musicbase.co.uk/music/pulp/... IAK.E.IHAH veröld ísaks Wright-bræðumir Wilbur og Orville höfðu ríkan skammt af öflugri þijósku til að bera - einsog allir sannir vísinda- menn og brautryðjendur. Þegar Smith- sonian-safnið bandaríska neitaði til dæmis að viðurkenna, að þeir bræður hefðu smíðað og flogið fyrsta vélknúna farartækinu með pomp og prákt sendu þeir flugvélina umsvifalaust til Vísinda- safnsins í London. Þar var undrama- skínan síðan til sýnis í fjöldamörg ár - eða allt þartil Smithsonian-safnið viður- kenndi hin alvarlegu mistök sín, baðst íýrirgefhingar óg féllst með aúðmýkt á að hýsa flugvélina. Byggt á Isaac Asimov's Book of Facts.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.