Alþýðublaðið - 23.08.1995, Síða 1
■ Hart deilt í Framsóknarflokknum um einkavæðingu ríkisbankanna
Undra mig á orðum formannsins
- segir Guðni Ágústsson alþingismaður og segir viðskiptaráðherra fara með rangt mál.
,JÉg vil nú að menn fari gætilega í
þessu máli og það liggur ekkert fyrir
ennþá um einkavæðingu ríkisbank-
anna. Mér finnst viðskiptaráðherra
ekki fara með rétt mál og undra mig
auðvitað á orðum formanns míns.
Þeir tala báðir eins og þetta sé afgert
mál og það skuli háeffað í bönkun-
um,“ sagði Guðni Ágústsson alþing-
ismaður í samtali við Alþýðublaðið í
gær.
Guðni var þá staddur í Stykkis-
hólmi þar sem þingflokkur Framsókn-
arflokksins var að funda með lands-
stjóm flokksins. Boðuð einkavæðing
ríkisbankanna hafði ekki komið til
umræðu þegar blaðið náði tali af
Guðna. Finnur Ingólfsson viðskipta-
ráðherra hefur lýst því yfir að búið sé
að taka ákvörðun um að breyta Bún-
aðarbankanum og Landsbankanum í
hlutafélagabanka og Halldór Ás-
grímsson, utanríkisráðherra og for-
maður Framsóknarflokksins, tekur í
sama streng. Guðni, sem á sæti í
bankaráði Búnaðarbankans, segir
þetta alrangt og er harður andstæðing-
ur þess að gera umræddar breytingar.
Hann segir að fleiri þingmenn Fram-
sóknarflokksins séu sömu skoðunar.
„Mér sýnist einsýnt að ef menn
ætla að fara að háeffa ríkisbankana þá
em menn að setja þá í sölubúning. Þá
hrópa íhaldsstrákamir nú getum við
og svo verða menn að selja. Ég sé
ekki hvemig við ætlum að lifa í þessu
þjóðfélagi ef við emm alltaf að fækka
þeim sem ráða ferðinni og færa
stærstu eignir og þjónustustofnanir
landsins yfir á örfáar fjölskyldur,
svona fjórtán talsins. Þrátt fyrir að
viðskiptaráðherra og formaður minn
tali eins og þetta hafi verið ákveðið þá
liggur ekkert fyrir um það ennþá.
Ekki frekar en í fýrri ríkisstjóm. Þá
stóð skýmm stöfum að ríkisbönkum
skyldi breytt í hlutafélög og síðan
seldir. Þáverandi viðskiptaráðherra,
Jón Sigurðsson, reyndi mikið til að
koma þessu í gegn en það var hvergi í
þjóðfélaginu samstaða um að fara
þessa leið. Á endanum sagði Davíð
Oddsson af mikilli skynsemi: Málið
er ekki Iengur á dagskrá. Það er ekki
tímabært," sagði Guðni.
Finnur Ingólfsson segir að búið sé
að taka ákvörðun um að gera ríkis-
bankana að hlutafélögum.
Halldór: Það hefur
engin ákvörðun
verið tekin um að
háeffa, segir Guðni.
„Það er rangt. Sú ákvörðun hefur
ekki verið tekin og málið á eftir að
fara í gegnum Alþingi. Maðurinn
virðist ekki átta sig á leikreglunum.
Hann þarf í íyrsta lagi að koma saman
frumvarpi, hann þarf að ná samstöðu
á öllum stöðum og það liggur ekkert
fyrir um það. Hann þarf að fara með
þetta gegnum báða flokka ríkisstjóm-
arinnar og síðan þarf málið að fara í
gegnum Alþingi, nefndastörf og þar
fram eftir götunum. Ferillinn er því
flókinn og engin ákvörðun hefur verið
tekin. Það eina sem stendur í stjómar-
sáttmálanum af miklu látleysi er að
Guðni: Mér finnst
önnur verkefni
brýnni i bili en að
standa í þessu.
Finnur: Maðurinn
virðist ekki átta sig
á leikreglunum,
segir Guðni.
Davíð: Sagði af
mikilli skynsemi:
Málið er ekki á dag-
skrá, segir Guðni.
áhersla verði lögð á að breyta rekstr-
arformi rfkisbankanna. Þetta er það
eina sem þar stendur um málið og
orðið áhersla er ekki stórt orð.
Mér frnnst önnur verkefhi brýnni í
bih heldur en að standa í þessu. Menn
þurfa að ráða við skuldbreytingu
heimilanna og endurreisn þeirra og
það þarf að leysa atvinnuleysisvand-
ann. Þetta er það sem liggur á en ekki
að gefa þeim ríku tækifæri á að nota
peninga sína fyrst og fremst í það að
kaupa sterk ríkisfyrirtæki. Er ekki nær
að skikka þá til að setja peningana í
atvinnulífið?" sagði Guðni Ágústsson.
■ Bandarískur húmoristi í Loftkastalanum
„Nei sko, þú
hefur bæði brjóst
og heila..."
- segir Dorothea Coelho vera dæmigerð
viðbrögð fólks þegar það uppgötvar hæfileika hennar
til að skemmta fólki með gamanmálum.
Bandaríski húmoristinn Dorothea
Coelho skemmtir í Loftkastalanum
klukkan tíu annað kvöld og á föstu-
daginn, ásamt Radíusbræðrum, Hilmi
Snæ Guðnasyni og Benedikt
Erlingssyni. „Ég kom til að vera við
brúðkaup vina minna - en fyrst ég var
á leiðinni sendi ég á undan mér mynd-
band sem vakti lukku, svo ég verð
með tvær eða þijár sýningar. Eg hef
verið í Los Angeles í fjögur ár og vinn
að því að verða fræg... nú er ég með
eigin atriði svo það gengur þó það
gangi hægt,“ sagði Dorothea í samtali
við Alþýðublaðið.
„Ég vinn líka sem þjónustustúlka;
þegar ég get hætt því veit ég að ég er
orðin fræg. Fyrst eftir að ég kom til
L.A. fékk ég hlutverk í míníseríu; ég
var nýkomin til borgarinnar og mér
leið eins og kvikmyndastjömu. En ég
kann miklu betur við að vera með
mína eigin gamandagskrá; nú er ekki
lengur spuming um að sitja heima og
bíða eftir að umboðsmaðurinn hringi
til að segja mér að fara í áheymar-
próf,“ sagði Dorothea hlæjandi.
„Viðbrögðin em allt önnur þegar
maður skapar sitt eigið efhi - Oh, þú
hefur heila, en huggulegt... nei sko,
þú hefur bæði brjóst og heila, frábœrt!
- þetta er fáránlegt... án þess að ég
ætli útí þá sálma. Starfið er dásamlegt;
jafnvel þó enginn hlæi í salnum finnst
mér ég svo fyndin að ég veltist um af
hlátri á sviðinu... ég held ég gæti jafh-
vel skemmt þar sem enginn talaði
ensku því ég hef svo gaman af þessu.“
Dorothea Coelho: Starfið er dá-
samlegt; jafnvel þó enginn hlæi í
salnum finnst mér ég svo fyndin að
ég veltist um af hlátri á sviðinu...
A-mynd: E.ÓI.
■ Þýsk-íslenskt verslunarráð
Rúmlega 60
stofnendur
Nú hafa 32 þýsk fyrirtæki og fé-
lög og 29 íslensk skráð sig stofnend-
ur að Þýsk-íslenska verslunarráð-
inu. Það liggur því ljóst fyrir að ráð-
ið verður sett á laggimar í október
og mun fljótlcga eftir það opna
þjónustuskrifstofu hjá Verslunar-
ráði íslands með sérstöku starfsliði.
Þetta verður fyrsta gagnkvæma
verslunarráðið sem íslendingar
standa að með annarri þjóð og sem
reka mun sjálfstæða skrifstofu.
Ráðið mun einbeita sér að því að
auka upplýsingar um viðskiptakosti
á íslandi og í Þýskalandi.
■ Smábátaeigendur
Fiskimiðin
ekki fyrir
norska banka
„Stórútgerðaraðallinn hefur til
margra ára átt sér þann draum
æðstan að knésetja smábátaflotann
og er sú umræða sem skotið hefur
upp kollinum þess eðlis að eðlilegast
sé að fiskvinnslan færist á haf út
grein af þeim meiði. Slíkri þróun
mótmælir stjórn Landssambands
smábátaeigcnda harðlega og bendir
á að íslensk fiskimið eru fyrir ís-
lendinga en ekki norska banka.“
Svo segir meðal annars í ályktun
stjórnar Landssambandsins frá
fundi hennar í Stykkishólmi. Bent
er á að nýsett lög um stjórn físk-
veiða séu svo meingölluð að ekki
verði við unað. Ekki verði umflúið
að taka þau til endurskoðunar strax
á haustdögum.
■ Formannskjör
Alþýðubandalags
Funda-
einvígi um
land allt
Alþýðubandalagið efnir til 20
fúnda í öllum kjördæmum landsins
með frambjóðendum til formanns-
kjörs í fíokknum, þeim Margréti
Frímannsdóttur og Steingrími J.
Sigiússyni. Fyrsti fundurinn verður
á Isafírði í kvöld og síðan verður
fundur á Patreksflrði annað kvöld.
Frambjóðendur munu kynna við-
horf sín og svara fyrirspumum.
■ Úthluta á 12 tonna innflutningskvóta á smjöri
Smurt á smjöríð
- Lagður er 32% tollur á grunntaxta.
Landbúnaðarráðuneytið hefur aug-
lýst eftir umsóknum um tollkvóta til
innflutnings á 12 tonnum af smjöri.
Einn heildsali hafði áður sótt um
kvóta til innflutnings á smjöri en þeirri
umsókn var hafnað þar sem hún var
ekki rétt útfyllt. Ekki er reiknað með
að slegist verði um þennan smjörkvóta
þar sem útsöluverð á smjöri er lágt
hérlendis eða 336 krónur hvert kíló.
Þau 12 tonn sem nú eru auglýst til-
heyra 3% lágmarksaðgangi og bera
því ekki magntoll en hins vegar er
lagður 32% tollur á þetta smjör sam-
kvæmt svokölluðum grunntaxta.
Smjör sem flutt yrði til landsins um-
ífam lágmarksaðgang bæri hins vegar
30% toll og magntoll sem nemur 623
krónum á kfló.
Guðmundur Sigþórsson, skrif-
stofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu,
sagðist í samtali við Alþýðublaðið
reikna með að smjörkvótanum verði
úthlutað í lok vikunnar en umsóknar-
frestur rennur út á hádegi á fimmtu-
dag. Guðmundur sagði að þessi smjör-
kvóti væri raunar þegar opinn en síð-
ast hefði aðeins borist ein umsókn en
hún ekki verið rétt gerð. Hann taldi
víst að sami heildsali og sótti um þá
muni sækja um aftur núna. Guðmund-
ur taldi ekki viðeigandi að gefa upp
nafn heildsalans sem vill flytja inn
smjörið.
■ Góð afkoma Póst og síma
Hagnaður nam 1,5 milljarði
Olafur Tómasson, Póst- og símamálastjóri, vill að fyrirtækið verði endurskipulagt.
Rekstrartekjur Post og síma á síð-
asta ári námu 10 milljörðum króna
sem er 7% hækkun frá árinu áður.
Hagnaður var 1.530 milljónir króna
og af þeim hagnaði greiddi fyrirtækið
850 milljónir króna í ríkissjóð.
Heildarfjárfestingar Póst og síma í
fyrra námu 2,3 milljörðum króna. Þar
af voru 730 milljónir vegna ljárfest-
inga í sæstrengjum til útlanda en á
árinu var lokið við að tengja CANT-
AT 3 við íslenska fjarskiptanetið.
Eigið fé Pósts og síma um síðustu
áramót nam 13 milljörðum. Starfs-
menn fyrirtækisins í lok síðasta árs
voru 2.394 og hafði fækkað um 31
ffá fyrra ári. Fyrir skömmu var lokið
við að koma staffænu símasambandi
á um allt land og er ísland fyrsta
landið sem nær þessum árangri.
Reikna má með að á næstu misserum
aukist verulega framboð af sérþjón-
ustu í kerfinu. Dæmi um þjónustu
sem fljótlega verður aðgengileg öll-
um er símtalapöntun sem gerir not-
enda mögulegt að panta símtal við
síma sem er á tali og er sambandinu
þá komið á þegar fyrra símtali er lok-
ið. Annað dæmi er birting A-númera
eða „Caller identification" en með
þeirri þjónustu sér notandi hvaðan er
hringt ef hann hefur til þess
gerðan síma.
Ólafur Tómasson póst- og síma-
málastjóri segir í ársskýrslu stofnun-
arinnar að samkeppni aukist stöðugt
og þá ekki eingöngu við innlend fýr-
irtæki heldur einnig alþjóðleg, bæði í
póst- og fjarskiptaþjónustu. Því þurfi
að endurskipuleggja Póst og síma og
veita fyrirtækinu meira sjálfstæði.
Stjómendur verði að fá meira svig-
rúm og frelsi til að ákveða til að
mynda fjárfestingar og launastefnu.
Ákvarðanataka verði að geta verið
hraðari ef fyrirtækið eigi ekki að
verða undir í samkeppni við erlend
stórfýrirtæki.