Alþýðublaðið - 23.08.1995, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
m a n n I í f
■ Þeir sem trúa spádómum Nostradamusar, eða eru Vottar Jehóva og þar með
sannfærðir um að orðin „The End" muni birtast á himninum innan skamms ættu
að lesa þessa grein. í henni rifjar Jónas Sen upp nokkra fræga heimsendaspádóma
sem ekki rættust og sýnir fram á að ekkert er að marka þessa vitleysu
Hefdbundid
Stjörnubíó: Einkalíf
Leikstjóri: Þráinn Bertelsson
Aðalhlutverk: Gottskálk Dagur
Sigurðarson, Dóra Takefusa og
_____Ólafur Egilsson_
★★
Litlar kvikmyndatökuvélar eða
myndbandstökuvélar eru nú í all-
margra eigu. Með þeim eru kvik-
myndaðir atburðir í daglegu lífi fólks,
afmæli hjónavígslur og aðrir. Við
fyrstu sýn er þessi kvikmynd Þráins
Bertelssonar eins konar skopmynd
þeirra, - en einungis við fyrstu sýn:
Svipmyndir úr daglegu lífi, vandamál-
um uppeldis og hjóualífs, eru teknar af
þremur ungmennum, enn í mennta-
skóla, út frá þeirra sjónarhomi. Þótt
þau tönglist á glæpum og ofbeldi, eru
svipmyndir þeirra einskorðaðar við
borgarlíf millistéttar, persónuleg, en
ekki samfélagsleg, og við þröngan
sjóndeildarhring.
Kvikmyndir |
Haraldur
Jóhannsson
hagfræðingur
skrifar
Heimsendir er ekki í
f gegnum tíðina birtast af og til
fréttir af fólki sem þykist vita lengra
nefi sínu og geta séð inn í ífamtíðina.
Snemma á vorin heyrist til dæmis
gjaman í gömlum bóndum sem segj-
ast geta spáð fyrir um veðurfarið á
komanda sumri; vitneskjuna hafa þeir
fengið úr draumi eða frá því hversu
gigtin hafi verið slæm einhvem tiltek-
inn vordag. Svo er áramótaspáin líka
alltaf vinsæl; þar hefur Vikan lengi
verið í broddi fylkingar með völvuna
sína sem varð fræg fyrir að hafa spáð
gosinu í Heimaey árið 1973. Síðan þá
hefur blaðið skartað völuspá um hver
áramót, og um leið hefur líka verið
farið yfir véfrétt síðasta árs og talið
upp allt sem völvan blessaða hefur
réttilega séð fyrir. Aðrir fjölmiðlar
Qalla hka yfirleitt um það ef einhver
reynist sannspár; en ekki þykir eins
fréttnæmt ef fólki bregst bogalistin.
Vikan sleppir því venjulega að minn-
ast á þá spádóma sem ekki koma
ffam, og er hún ekki ein um það. Spá-
konan Jeane Dixon varð fræg fyrir að
hafa spáð morðinu á John F.
Kennedy, en færri muna eftir því að
hún sagði lika að risastór halastjama
myndi tortíma jörðinni í kringum árið
1985. Enda sýndu fjölmiðlar þessari
glámskyggni hennar lítinn áhuga og
hefiir það viljað brenna við í svipuð-
um tilfellum. Flestir sem farið hafa til
spákonu þekkja svona hlutdrægni.
Maður man spádómana sem koma
fram en gleymir oftar þeim sem ekki
rætast. Því ætti eftirtalin upptalning að
vera holl þeim sem trúa spádómum í
blindni. Þar em nefnilega rifjaðir upp
nokkrir frægir heimsendaspádómar
sem ekki rættust.
Á dögum postulanna
Samkvæmt Nýja Testamentinu
hefði heimsendir átt að verða áður en
síðasti postulinn lést. Eða eins og þar
stendur skrifað: „Sannlega segi ég yð-
ur, að nokkrir af þeim, er hér standa,
munu alls eigi smakka dauðann, fyrr
en þeir sjá manns-soninn koma í ríki
sínu.“(Matt. 16:28). Þessi spádómur
rætist varla úr þessu, nema þá ef ein-
hver postulanna sé enn á lífi eftir öll
þessi ár...
31. desember 999
Ef taka á mark á hinum svonefndu
Apókrýfubókum - sem em 14 bibh'urit
varðveitt í hinni grísku þýðingu
Gamla Testamentisins, og em viður-
kennd af rómverskum kaþólikkum, en
ekki af Gyðingum né mótmæiendum
- átti hinn efsti dagur að verða eitt
þúsund ámm eftir Krists burð. Sumir
segja að margir hafi trúað þessu, og
því hafi mikil skelfmg gripið um sig
þegar meintur dómsdagur rann upp,
hinn 31. desember 999. En er hann var
að kvöldi kominn og ekkert hafði bor-
ið til hðinda báðust fræðimenn afsök-
unar og sögðu að hér væri greinilega
einhver misskilningur á ferðinni. Auð-
vitað yrði heimsendir árið 1033 en
ekki árið 999; það hefði nefnilega átt
að bæta þúsund árum við DAUÐA
Krists en ekki fæðingardag hans.
1. febrúar 1524
Breskir stjömuspekingar spáðu því í
júní árið 1523 að heimsendir myndi
hefjast í London með miklum flóðum
þann 1. febrúar árið 1524. Skömmu
fyrir endalok alls flýðu um tuttugu
þúsund manns heimili sín - og príor-
inn af St. Bartholomew lét reisa virki
og fylla það af mat. Þegar svo dagur-
inn langþráði rann upp og það rigndi
ekki einu sinni, fóm stjömuspeking-
amir aftur yfir útreikningana og kom-
ust að því að þeim hafði óvart skeikað
um hundrað ár. Heimsendir hefði átt
að verða 1624 en ekki 1524, svo nú
var spádómnum breytt í 1. febrúar
1624. En þann dag kom ekki heldur
deigur dropi úr lofti.
1874
Söfnuðurinn Vottar Jehóva var
stofnaður árið 1872. Upphafsmaður
hans hét Charles Taze Russell
(1852-1916) og spáði heimsendi
tveimur árum síðar, eða árið 1874. Til
gamans má geta þess að fyrir utan það
að lesa Biblíuna dag og nótt var þessi
forfaðir Vottanna líka á kafi í pýram-
ídafræðum. Pýraimdaffæðin ganga út
á það að rannsaka hlutfóll innan Pýr-
amídans mikla í Giza í Egyptalandi,
því þau séu táknmál sem segi sögu
mannkynsins frá upphafi vega til
endaloka alls. Þannig sé hægt að segja
til um framtíðina og sjá hvað muni
gerast, og hvenær. Þessu trúði Russell,
og finnst Vottunum það hálfvand-
ræðalegt í dag, enda pýramídafræðin
hin argasta heiðni. Þeim er illa við að
þetta sé rifjað upp, og má stríða þeim
á þessu og hafa gaman af.
1914
Þegar heimurinn var enn á sínum
stað í ársbyrjun 1875 gaf Charles
Taze Russell mannkyninu frest og
breytti spádómi sínum í árið 1914.
Reyndar skall fyrri heimsstyijöldin á
það ár, en hún varð þó ekki heimin-
um að aldurtila. Og það varð til þess
að margir gengu úr söfnuðinum fiillir
vonbrigða.
1936
Pýramídasérfræðingar spáðu því
að allt færi á annan endann árið
1936. Þetta byggðu þeir á hárná-
kvæmum, vísindalegum útreikning-
um. Allt kom þó fyrir ekki, og var
spádómnum þá breytt í 1953.
1947
Maður að naftú John Ballou New-
brough var á síðari hluta mtjándu ald-
ar talinn af mörgum einn mesti spá-
maður Bandaríkjanna. Sagt var að oft
hefði hann reynst sannspár, og vakti
það því töluverða athygli er hann til-
kynnti árið 1889 að hann sæi fyrir fall
allra ríkisstjóma og trúarbragða. Þetta
ætti að gerast árið 1947; milljónir
manna myndu þá farast, lönd eyðast
og ástand allt verða hið skelfilegasta.
1975
Þegar Vottar Jehóva rönkuðu við
sér eftir meintan heimsendi árið 1914
og voru enn með lífsmarki breyttu
þeir spádómnum eina ferðina enn, og
nú í árið 1975. Samt gerðist ekkert
það árið, en Vottamir vom þó ekki af
baki dottnir. Enn halda þeir áffam að
spá heimsendi og ganga í hús eftir hús
í von um að sem flestir gjöri iðmn og
verði hólpnir í eilífðarríkinu eftir að
öll ósköpin ganga yfir. Þeir hafa þó
lært af reynslunni og em hættir að
nefha ákveðin ártöl í þessu sambandi.
En skiljanlega hafa margir þeiira áttað
sig á því að það hlýtur að vera eitt-
hvað bogið við söfhuð sem alltaf er að
spá einhverri vitleysu. Svo margir
hafa sagt skilið við Vottana, og hefur
verið stofnaður sérstakur stuðnings-
hópur fyrir fyrrverandi safnaðarmeð-
limi. Nefnist hann „Vottar Jesúm“ og
hefur meðal annars aðsetur sitt á Inter-
netinu (sjá http://www.iclnet.org/
pub/resources/text/apl/jw/ljw-home.
htmt).
10. ágúst 1982
Einhvemtímann á áttunda áratugn-
um birtist h'til klausa í Vísi um banda-
rískan spámann sem þótti merkilegur
fyrir þær sakir að hafa séð fyrir morð-
ið á Kennedy, rétt eins og Jeane Dix-
on sem minnst var á í inngangi þessar
greinar. Hann sagði að kjamorkustyij-
öld myndi skella á þann 10 ágúst 1982
og útrýma öllu lífi á jörðinni á hálf-
tíma eða svo. Ég, höfundur þessarar
greinar, man sérstaklega vel eftir þess-
um spádómi, því þegar hann birtist var
ég aðeins lítið og saklaust bam. Er ég
las greinina var mér öllum lokið, því
ég trúði þessu eins og öðm sem full-
orðið fólk sagði. Ég lifði í ógn og
skelfingu í mörg ár á eftir, og jafhaði
mig eiginlega ekki fyrr en morguninn
eftir meintan heimsendi.
1980-1989
Áhangendur breska galdrameistar-
ans Aleister Crowley (1875-1947)
hafa einnig spáð heimsendi. Rétt eins
og Vottar Jehóva byggja alla sína út-
reikninga á Bibh'unni (og á Pýramíd-
anum mikla) eiga Crowley-áhangend-
ur líka sitt trúarrit. Þetta er Lögmáls-
nánd!
bókin svonefnda sem á að vera inn-
blásin af æðri máttarvöldum. Crowley
sagðist hafa skrifaði hana niður eftir
einhveijum engh árið 1904, og er þar
að finna vers sem sumir telja að sé
spádómur um heimsstyijöldina síðari
(.Book ofthe Law, 131:46). í sama versi
er einnig spáð miklu meiri hörmung-
um - jafnvel heimsendi - á níunda
áratugnum. Galdramenn víða um
heim höfðu af þessu miklar áhyggjur
og töldu að eina leiðin til að komast
lífs af væri að opna dyr inn í aðra vídd
og láta sig hverfa. En þegar áratugur-
inn var liðinn og ekkert sérstakt hafði
komið upp á viðurkenndu kuklaramir
að þeim hafði skjátlast; versið um-
rædda í Lögmálsbókinni fjallaði
greinilega um eitthvað allt annað og
miklu háspekilegra...
Alls vamað er kvikmynd þessari þó
ekki, fjarri því. Góð ljósmyndun,
kvikmyndun með ágætum litbrigðum,
blasir við í fyrstu senu (utan Stjömu-
bíós) og síðan hver af annarri. Um
fæmi og tækni er leikstjóra og töku-
mönnum sýnilega ekki ávant. Og inn-
felling kafla úr gömlum íslenskum
kvikmyndum er snjallræði: Allt er í
heiminum hverfult, hratt flýgur stund.
Hvað söguþráð snertir, þá er myndin í
revíu-stíl. Og þótt mörg atriði myndar-
innar séu fyndin (og ekkert þeirra
beinlínis leiðinlegt), er hún af þeim
sökum staðbundin gamanmynd. Á
milli mála fer hins vegar ekki, að höf-
undar myndarinnar kunna til verka og
þeim em margir vegir færir.
Svikin lof-
orð á móti
skuldum
1985 - eða þar um bil
Eins og sagt var ffá hér fyrir ofan,
spáði Jeane Dixon því að halastjama
myndi leggja allt í rúst í kringum ár-
ið 1985. Þetta var árið 1970, ög
sagði Dixon að hún vissi nákvæm-
lega hvar halastjaman myndi rekast á
jörðina. Hún gaf það þó ekki upp og
sagðist ætla að halda því leyndu
„fyrst um sinn“. Menn em nú orðnir
nokkuð óþolinmóðir, enda hefur hún
aldrei leyst frá skjóðunni. Annars
hafa fleiri spádómar hennar heldur
ekki ræst - hún spáði því líka að
Ameríkanar myndu eignast sinn
fyrsta kvenkynsforseta á níunda ára-
tugnum. Og jafnvel dauði Kennedy
þykir ekki merkilegur spádómur, því
hann var bara gömul lumma. Er
Kennedy var uppi höfðu nefnilega
allir forsetar sem voru kosnir eða
endurkjömir með tuttugu ára milli-
bili síðan árið 1840 látist í valdatíð
sinni. Þetta var kallað forsetabölvun-
in eða forsetaálögin og byijaði með
'William Henry Harrison. Kennedy
var kjörinn til embættis árið 1960, og
vom því margir búnir að spá honum
voveiflegum örlögum. Var það loks
Ronald gamli Reagan sem leyst
málið, en hann var kosinn til forseta
árið 1980. Má þá segja að álögunum
hafi linnt; honum var að vísu sýnt til-
ræði, en hann lifði það af.
Og framtíðin?
Fyrir þá sem lifa í voninni em hér
þrír spádómar sem enn gætu ræst. Sá
fyrsti kemur frá hinum fræga
Nostradamusi, sem sagði að heims-
endir yrði í júlí árið 1999. Stjömu-
spekingar vilja heldur að öllu ljúki
þann 5. maí árið 2000, því þá verða
fimm plánetur í samstöðu - eins og
það hafi einhver áhrif. En ævaforn
Maya spádómur gefur okkur frest
fram á Þorláksmessu árið 2012. Og
eftir það... hver veit? ■
Kona sem tók íbúð á leigu síðastlið-
inn vetur hringdi og sagði fbúðina
gallaða, til dæmis væm rafmagnstengi
í ólagi og fleira sem eigandi hefði lof-
að að lagfæra er samningur var gerð-
ur, en ekki gert. Nú kvaðst hún ekki
geta greitt leiguna og spurði hvort
svikin loforð leigusala gætu komið á
móti leiguskuldinni. Svarið er nei.
Munnleg loforð geta ekki af sjálfu sér
komið á móti skuld, enda er þamá um
tvö aðskilin mál að ræða.
Leigjandi verður hvað sem öðru
líður að greiða þá leigu sem um var
samið, annars glatar hann rétti sínum.
Leigusali skal hinsvegar „halda hinu
leigða í leiguhæfu ástandi" einsog
segir í 19. grein Húsaleigulaga. Telji
leigjandi ástand íbúðarinnar ekki við-
unandi eða viðhaldi ábótavant, skal
hann skora á eiganda að bæta úr því
og gera það skriflega. Sinni eigandi
ekki kröfum um úrbætur innan
tveggja mánaða er leigjanda heimilt
að láta framkvæma viðgerðina á
kostnað leigusala og draga þann
kostnað frá leigunni. Fyrst skal þó
leigjandi leita álits úttektarmanna á
nauðsyn endurbóta eða viðhalds og
einnig samþykkis sama íyrir kostnað-
inum að verki loknu. Samanber 20.
grein Húsaleigulaga. Löggilda úttekt-
armenn í Reykjavík fá samningsaðilar
hjá viðkomandi byggingafulltrúa.
Höfundur er formaður
Leigjendasamtakanna.