Alþýðublaðið - 23.08.1995, Page 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995
nmiiimmiii
20972. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
Sigurður Tómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Davíð er mikið
karlmenni
Forsætisráðherra nær sér helst á flug þessa dagana þegar Evrópumál
eru annars vegar. Og skynsamleg röksemdafærsla og djúpstæð þekking
eru aðalsmerki Davíðs Oddssonar þegar kemur að umræðum um Evr-
ópumál, eins og ungir sjálfstæðismenn fengu að reyna um síðustu helgi.
Ilelst var á forsætisráðherra að skilja að stuðningsmenn aðildar íslands
að Evrópusambandinu - en þeir eru fjölmargir innan Sjálfstæðisflokks-
ins - væru haldnir einhverskonar vanmetakennd og vildu aðild til þess
eins „að vera eins og hinir“. Sérstætt innsæi forsætisráðherrans hlýtur að
vera einstakt meðal þjóðarleiðtoga á Vesturlöndum, enda er rökrétt að
draga þá ályktun af málflutningi hans að Evrópusambandið sé byggt á
þeim hrapallega misskilningi að „allir eigi að vera eins og gera bara eins
og hinir“. Mikil er snilld Davíðs Oddssonar.
Ekki tekur betra við þegar hinn mikli leiðtogi ræðir um stefnu Al-
þýðuflokksins í Evrópumálum, en sú stefna fær þá einkunn hjá Davíð
að hún sé máttlaus og aumingjaleg og aðeins ljósrit af stefnu annarra
krataflokka. Það er nú eitthvað annað en hin karlmannlega og ofurþjóð-
lega íhaldsstefna Sjálfstæðisflokksins sem ættuð er í beinan karllegg frá
Jónasi Hallgrímssyni. Þar vantar nú ekki kraftinn og þorið til að takast á
við framtíðina. Enga aumingjalega vantrú á þjóðinni er þar að frnna,
enda vita þjóðlegir íhaldsmenn að Islendingar eru einstakir: svo einstak-
ir að þeir verða að standa einir. Ljósritunarvélar duga skammt þegar
fanga þarf innsta eðli íslendingsins, hagsmuni hans og tengsl hans við
aðrar þjóðir. Þetta veit Davíð Oddsson. Hann er karlmenni.
Á 17. júní varð forsætisráðherra tíðrætt um vankanta lýðræðisins. Og
mikið var innsæi leiðtogans á þeim degi. Vankantar lýðræðisins gleym-
ast þó snöggt þegar kostir lýðræðisins birtast jafn skýrt og í ræðu Dav-
íðs Oddssonar á þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna. Upplýst um-
ræða, málefnaleg rökræða og framsýn stefnumótun eru þeir kostir lýð-
ræðisins sem ræða Davíðs bar umfram annað vitni um. Ekkert máttleysi
þar, enginn aumingjaskapur og sannarlega ekkert Ijósrit af ræðum ann-
arra: bara nóg af testósteroni.
Prófraun
landbúnaðarráðherra
Bændum mun fækka. Þetta er boðskapurinn sem landbúnaðarráðherra
og foringjar bændasamtakanna boða landslýð þessa dagana. Það hefur
verið ljóst um langt skeið að bændur eru of margir á íslandi og fram-
leiða of h'tið hver um sig til að nauðsynleg hagkvæmni náist í ffam-
leiðslunni. Tekjur bænda eru í fullu samræmi við þessa staðreynd og
því almennt lægri en hjá viðmiðunarstéttum.
Alþýðuflokkurinn hefúr um langt skeið boðað stefnu sem hefur það
meðal annars að markmiði sínu að hjálpa bændum í erfiðleikum við að
bregða búi um leið og ffamleiðsla og verðlagning á landbúnaðarvörum
yrði gefin fijáls. Landbúnaðarkerfið er klafi á því fólki sem því var ætl-
að að hjálpa, bændum í landinu, og því ber að leggja það af. Kostnaður
neytenda og skattgreiðenda af þessu kerfi hefúr um langt árabil verið
óþolandi, en talsmenn bænda hafa hingað til litið á slíkar aðfinnslur sem
árásir á bændastéttina.
Á næstu vikum mun koma í ljós hvemig stjómvöld vilja leysa vanda
sauðljárbúskapar í landinu. Lausnin verður að vera fækkun bænda og
aukið fijálsræði í ffamleiðslu og verðlagningu. Bændur verða einnig að
skilja það að á næstu áram verða framlög ríkisins til landbúnaðar að
lækka vemlega. Þjóðin hefur ekki efni á þessum fjáraustri lengur.
Framsóknarstefnan í landbúnaðarmálum er gjaldþrota og það er því
kannski við hæfi, að það kemur í hlut framsóknarmannsins Guðmundar
Bjamasonar að gera upp þrotabúið. Landúnaðarráðherrann stendur nú
þegar höllum fæti vegna endalausra klúðurmála við framkvæmd
GATT. Vandi sauðfjárbúskapar er hins vegar mun stærra vandamál við
að glíma. Málaflokkurinn er á hans ábyrgð. Hann getur ekki vísað
ábyrgðinni annað. Mun Guðmundur Bjamason standast prófið? ■
I barbí með
Helga Hjörvar
I„Þess vegna tek ég undir med Helga Hjörvar
og segi að fyrsta skrefið til sameiningar jafn-
aðarmanna sé að ákveða að gera það. Og við
sem tilheyrum þessari kynslóð sem er svo
praktísk, að ekkert er gert nema það sé líklegt
til að virka, höfum fullan vilja til þess að stíga
þetta skref óhikað. Ég vil nebbla einn daginn
geta leikið mér í barbí með Helga og öllum
jafnaðarmönnunum í hinum smáflokknum."
Fyrir um hálfum mánuði birtist í
Alþýðublaðinu fróðlegt og skemmti-
legt samtal Stefáns Hrafns Hagalín
við Helga Hjörvar þar sem Helgi
sagði ffá því að sér þætti skemmtilegt
að leika sér í barbí með dóttur sinni.
Auk þess ræddu þeir félagar mikið um
óhjákvæmilega sameiningu smáflokk-
anna á vinstri væng íslenskra stjóm-
mála.
Helgi hefur um árabil verið einn
ötulasti talsmaður þess að við sem til-
heyrum smáflokkunum á vinstri
vængnum eigum að sameinast um það
að starfa saman á stærri vettvangi. I
Pallborðið |
L M. Hreinn
skrifar
viðtalinu segir Helgi Hjörvar að við
eigum að sameinast um óljós og óskil-
greind markmið og láta málefni lönd
og leið til þess eins að geta sameinast
og þar er ég honum hjartanlega sam-
mála.
Við sem störfum innan þessara
smáflokka þekkjum það að umburðar-
lyndi er nauðsynlegt til þess að um-
bera alla þá sem í floklöium eru og
hafa aðrar skoðanir en við sjálf á ýms-
um málum og útfærslum á þeim. Ef
við höfum ekki umburðarlyndið end-
um við uppi sem kverúlantar sem
aldrei sætta sig við málamiðlanir; fólk
sem rýkur burt úr flokknum um leið
og nýr smáflokkur er stofnaður til
þess eins að halda áfram að vera
ósammála öllum sem þar eru.
Smæð flokkanna beinlínis veldur
því að umburðarlyndi meðlimanna
minnkar þar sem stefnan verður sífellt
þrengri og smáflokkamir þrífast á því
að finna upp mál sem greina þá að og
hægt er að benda á þegar stefnan er
kynnt hugsanlegum kjósendum. En
svo er eins og umburðarlyndið blossi
alltaf upp þegar samið er um málefna-
grunn ríkisstjóma: þá er allt í lagi að
fóma homsteinum flokkastefnunnar
til þess að geta sest að völdum. Þess
vegna veltir maður því fýrir sér hver
sé munurinn á því að sýna umburðar-
lyndi utan eða innan ríkisstjómar.
Sighvatur Björgvinsson hefur rétti-
lega bent á að núverandi stjómarand-
staða eigi það verk fyrir höndum að
beijast saman gegn þeirri fhaldsríkis-
stjóm sem nú situr.
Stjómarandstaðan þarf að sameinast
um þá málefhavinnu sem framundan
er þvf ef allir ætla að húka áffam í sínu
homi verður engum árangri náð. En
þessi vilji til samstarfs sem nú birtist
víða þarf að ná lengra en fram að
næstu kosningabaráttu því ef menn
ætla að beijast hver við annan þá er
engin ástæða til þess að styrkja tengsl-
in nú - særindin og níðið verða þá ein-
ungis meira og skilur eftir sig dýpri
sár.
Þeir sem em í forsvari fyrir smá-
flokkana núna em margir hveijir sárir
eftir áralanga blóðuga baráttu og flest-
ir eiga óuppgerðar sakir við félaga
sína í núverandi stjómarandstöðu.
Því er það, að mikilvægi þess að
sýna umburðarlyndi verður enn meira
hjá núverandi þingmönnum flókkanna
enda er það vissulega deginum ljósara
að sameining jafnaðarmanna verður
illframkvæmanleg án tilstilli þeirra
sem völdin hafa í smáflokkunum.
Enda er tilgangur sameiningar ekki sá
að losna við alla sem nú starfa heldur
að sameina þá. Það hafa margar til-
raunir verið gerðar til þess að samein-
ast með því að kljúfa smáflokkana en
þær tilraunir hafa allar strandað þar
sem umburðarlyndi hefur sjaldnast
verið með í för.
Þegar sameiningu ber á góma hafa
Alþýðuflokksmenn ungir sem aldnir
sífellt lagt fram þau rök að sameining
geti einungis orðið ef allir séu tilbúnir
að sameinast um stefnu Alþýðuflokks-
ins. Vissulega þætti höfundi það
ánægjuleg þróun ef sú yrði raunin en
raunveruleikaskyn mitt segir mér þó
að eitthvað sé illa smíðað í þessari
röksemdafærslu. Er það ekki svo að ef
stefna Alþýðuflokksins og fram-
kvæmd hennar í rfldsstjóm myndi
höfða til allra jafnaðarmanna, væru
auðvitað allir jafnaðarmenn fslands í
Alþýðuflokknum - Jafnaðarmanna-
Ú S t
flokki íslands en þannig er raunveru-
leikinn einmitt ekki.
Valkostir Alþýðuflokksins eru því
að vera trúr steftiu sinni á meðan hann
starfar í stjórnarandstöðu og varpa
henni síðan fyrir róða þegar gengið er
til ríkisstjómarmyndunar. Eða að taka
heiðarlega afstöðu til þess að ganga til
sameiningar með hinum smáflokkun-
um og sýna það umburðarlyndi sem
nauðsynlegt er til þess að fólk með
ólíkar skoðanir og bakgrunn geti fund-
ið hugsjónum sínum sameiginlegan
farveg.
Þess vegna tek ég undir með Helga
Hjörvar og segi að fyrsta skreftð til
sameiningar jafnaðarmanna sé að
ákveða að gera það. Og við sem til-
heyrum þessari kynslóð sem er svo
praktísk, að ekkert er gert nema það sé
líklegt til að virka, höfum fullan vilja
til þess að stíga þetta skref óhikað.
Eg vil nebbla einn daginn geta leik-
ið mér í barbí með Helga og öllum
jafnaðarmönnunum í hinum smá-
flokkunum. ■
Höfundur er félagsráðgjafi og jafnaðarmaður.
2 3
Atburðir dagsins
1305 Sir Walter Wallace, ein
helsta þjóðhetja Skota, tekinn
af lífi á viðurstyggilegan hátt í
Lundúnum. 1926 Rudolph Va-
lentino, hinn mikli elskhugi
kvikmyndanna, deyr í New
York, 31 árs að aldri. 1939
Sovétríkin og Þyskaland gera
með sér griðasáttmála. 1940
Þýskar sprengjuflugvélar hefja
árásir á Lundúnir.
Afmælisbörn dagsins
Lúðvík XVI 1754, konungur
Frakklands. Edgar Lee Mast-
ers 1869, bandarískur rithöf-
undur. Gene Kelly 1912,
bandarískur dansari og söngv-
ari. Willy Russel 1947, enskt
leikskáld, samdi meðal annars
Educating Rita.
Annálsbrot dagsins
Varð maður bráðkvaddur við
gröft í kirkjugarðinum á
Hvammseyri, en eftir það hann
var látinn, barðist hjartað um
daginn og kvöldið lengi í
bijóstinu, hvar fyrir menn ætl-
uðu lífsanda með honum vera
og opnuðu honum æðar, sem
þó ekki vildu blæða.
Ketilsstaðaannáil 1781.
Máisháttur dagsins
Aldrei er nauminginn ástsæll.
Þjófur dagsins
„Hann sá ekki andlit hennar
fyrren það var orðið of seint.“
Ónefndur talsmaður lögreglunnar
I Bari á Ítalíu um óheppinn tösku-
þjóf sem rændi móöur sína óvart
aftanfrá - og var samstundis
handtekinn eftir að sú gamla
kæröi son sinn.
Orð dagsins
Ég hrœðist ei þagnar helkyrrð,
ne' húmið er dagurinn flýr,
því söngdjúpur, heiðskýr
. himinn
í hjarta mínu býr.
Jónas Guðlaugssón.
Skák dagsins
Við emm á söguslóðum í dag,
og skoðum falleg tafllok síðan
1950. Heintz hefur hvítt og á
leik gegn Marlov. Hvíti liðs-
aflinn hefur komið sér fyrir til
árásar, en menn Marlovs em
illa fjarri góðu gamni. Einn
snilldarleikur dugar.
Hvað gerir hvítur?
1. Dxg4!! Marlov gafst upp
enda blasir mát við: drepi hann
drottninguna kemur Rg6+.