Alþýðublaðið - 31.08.1995, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1995
ALÞÝÐUBLAÐK)
3
s k o ð a n i r
Skoðanir eða vörumerki?
Þetta mál snýst ekkert um útlendinga. Það
snýst um nokkra íslenska atvinnurekendur
sem tíma ekki að borga mannsæmandi laun.
Og það, hvort við viljum hjálpa þeim að
viðhalda sultarlaunastefnu sinni með því
að flytja inn vinnuafl sem á engra kosta völ,
en verður að taka því sem að þeim er rétt.
Þegar Heidegger svarar Sartre í
Bréfi um mannhyggju er honum tíð-
rætt um mótsagnalögmálið. Segi ég til
dæmis, „Guð er dauður“, er ég um-
svifalaust flokkaður guðleysingi. En
það þarf ekki að vera svo. Eg get til
dæmis átt mína trú en talið guð fallinn
sem gildi í samfélaginu. Þannig villir
mótsagnalögmálið um íyrir okkur og
þvælist einatt fyrir samræðunni. Þó
var fjölmiðlabyltingin enn langt und-
an, en skeytastíll ljósvakans ýkir enn
þessa tilhneigingu. Skoðanir verða
meira einsog vörumerki þeirra sem
koma fram, fremur en þar sé raun-
veruleg umræða.
Gestaboð
Helgi
Hjörvar
::L# skrifar
Gott dæmi eru þær vörumerkjaaug-
lýsingar sem atvinnuleyfi útlendinga
hafa leitt til. Félagsmálaráðherra
gengur fram og sýnir sitt vörumerki.
Hann takmarkar útgáfu atvinnuleyfa
þeirra sem búa utan Evrópska efna-
hagssvæðisins. Við elskum fsland, er,
var og verður vörumerki Framsóknar-
flokksins og því er til skila haldið.
Þá rís upp framfarasinnaði Frjáls-
lyndi flokkurinn. Davíð Þór, Össur og
allir hinir. Páll greyið er hafður að at-
hlægi fyrir fordóma, heimóttarskap,
andstöðu við litasjónvarpið og guð
veit ekki hvað. Þeirra vörumerki er
þar með komið til skila: Við elskum
alla. Nema kannski Pál.
Svo skiptist þjóðin í tvo hópa, fram-
farasinnamir gegn ffamsóknarmönn-
unum, með sama hætti og svipuðum
rökum og menn halda með KR eða
drekka Pepsi. Ekkert hefur gerst ann-'
að en það að einni umferð í þessari
endalausu deildakeppni er lokið.
En mitt í auglýsingastríðinu
gleymdist efni málsins. Afhvetju þarf
atvinnuleyfi fyrir fólk utan EES í
miklum mæli? Af því að fjölmargar
fiskvinnslur í landinu vantar starfs-
fólk. Og þeir fá ekki nógu gott fólk
hér eða annars staðar í Vestur- Evr-
ópu. Af hvetju? Því þeir borga lúsar-
laun og bjóða vonda aðstöðu. Þeir
tíma ekki að hækka launin, svo þeir
vilja flytja Pólverja inn í gámum. Á
sama tíma flykkjast fslendingar til
annarra landa í fiskvinnslu, því þar em
borguð mannsæmandi laun.
Þetta mál snýst ekkert um útlend-
inga. Það snýst um nokkra íslenska at-
vinnurekendur sem tíma ekki að borga
mannsæmandi laun. Og það, hvort við
viljum hjálpa þeim að viðhalda sultar-
launastefnu sinni með því að flytja inn
vinnuafl sem á engra kosta völ, en
verður að taka því sem að þeim er rétt.
Við skulum ekki veita þessum ís-
lensku fiskverkendum veiðileyfi í lág-
launalöndunum. Rétt einsog þeir vilja
að við greiðum markaðsverð fyrir
fiskinn, skulu þeir greiða markaðsverð
fyrir vinnu okkar. Tími þeir ekki að
greiða þau laun, skatta og launatengd
gjöld sem til þarf, er enginn sem bann-
ar þeim að reka fiskvinnsluna sína í
Póllandi. En vilji þeir njóta auðlinda
landsins, hafna, samgangna, stjórn-
kerfis og velferðar skulu þeir borga
þau laun sem þarf að greiða til að
njóta alls þessa.
Þannig ynnum við í raun gegn út-
lendingahatri. Því útlendingahatur
verður ekki til hjá Páli Péturssyni. At-
vinnuleysi og láglaunastefna skapa
jarðveg þess. Því hatrið er sjaldnast
annað en innibyrgð angist manneskj-
unnar um eigin tilveru og þá angist
vekur fátækt og atvinnuleysi.
En sennilega gerist ekkert þvflíkt.
Páll gefur út atvinnuleyfin og Davfð
Þór og Össur hrósa sigri. Alvarlegri
ógn við íslenska láglaunapólitík hefur
verið afstýrt. Og í nafni alþjóðahyggj-
unar, mannúðar og frelsis kúldrast
Pólverjamir í verbúðunum í Ögurvík
við Eyðifjörð, fjarri fjölskyldu sinni.
samfélagi og menningu og þræla í
slori fýrir laun sem engum öðrum eru
bjóðandi.
Og fari kellingamar í Framtíðinni
aftur að heimta meira en 49 þúsund á
mánuði, skundar eflaust frjálslyndi
flokkurinn á vettvang og hvetur til út-
gáfu atvinnuleyfa fyrir kínverskar
konur á Hrafnistu, Sólvangi og St.
Jósefs því íslendingar vilji hvort eð er
ekki vinna þar.
Ó, þetta er indælt stríð. ■
Höfundur er framkvæmdastjóri
Blindrafélagsins.
v i t i m e n n
Fagnaðarfundir eftir langan
aðskilnað: Fannst eftir 14 mánuði.
DV skúbbaöi í aöalfrétt í gær þegar
blaöiö upplýsti að kötturinn Bangsi
væri kominn í leitirnar.
Norskar kýr til íslands.
Mogginn. Hvað ætli Höllustaða-Páli finnist um
það að einhverjar norskar beljur séu að taka
vinnuna af rammíslenskum kúm?
Þjóðarframleiðsla og útflutningur
er óvíða eins mikill og á íslandi.
En hvar lendir afraksturinn?
Spyr Oddur Ólafsson í Tímanum í gær.
Rokkarinn Tommy Lee
getur eyðilagt feril Pamelu:
Þykir afbrýðisamur,
ráðríkur og frekur.
DV bætti lesendum það upp í gær, að í
Morgunblaðinu var, aldrei þessu vant, ekki
stafkrók að finna um Pamelu Anderson.
Sjálfselskar og slappar til ásta.
Þá vitum viö hvernig fyrirsæturnar eru
í rúminu - þökk sé DV í gær.
Velta fyrirtækja jókst um
6% milli áranna 1993 og 1994:
Gróðinn fimmfaldast
Tíminn sagði launamönnum
upplífgandi fréttir í gær.
Stundum þarf að ljúga að lygurum.
Andófsmaðurinn Harry Wu um veru
sína í kínversku fangelsi.
Ég sagði [við eiginkonu mína]: Ég
hugsaði ekki mikið um þig vegna
þess að ef ég hugsaði mikið um þig
hefði ég gengið af vitinu. Ég hefði
þurft að búa mig undir að deyja.
Harry Wu um fangelsisvistina.
Þegar Serbar hafa að mestu af-
greitt Bosníumenn, munu þeir í
vaxandi mæli snúa sér að Albönum
í Kosovo og Ungverjum í
Vojvodina. Blóðbað þeirra í
Kosovo verður tæpast mildara
en það hefur verið í Bosníu, af því
að mikill meirihluti íbúa Kosovo
er albanskur að þjóðerni.
Forystugrein Jónasar Kristjánssonar í DV í gær
Hann sagði í viðtali við CBS í
gær að sum kvöld hefði hann verið
ofurölvi og gæti ekki munað eftir
ýmsu sem hann er sakaður um.
Hann sagðist hafa hætt að
drekka fyrir þremur árum.
Morgunblaðið að segja frá útskýringum
bandaríska öldungadeildarþingmanns Bobs
Packwoods, sem sakaður er um að hafa áreitt
19 konur kynferðislega síðustu 30 ár.
ViUtir á
Vefnum
■ í gær sögðum við frá heimasiðú
breska Verkamannaflokksins og nu er
komið að löndum þeirra, Frjálslynd-
um demókrötum, sem stæra sig af
því að vera mest „wired" stjórnmála-
flokkurinn. Þegar maður smellir sér
Democral Ilome Page
iritsin ‘1 moti h•ir«d politicnl purty.
inná http://www.compulink.
co.uk/libdems/ kemur hinsvegar
strax í Ijós eini gallinn við heimasíð-
una: þessi aulalegi Paddy Ashdown
er bókstaflega allsstaðar - hvort sem
það er andlitið á honum eða enda-
lausar tilvitnanir í leiðtogann („Inter-
netið er besta dæmið um lýðræðis-
legt, opið og ómiðstýrt samfélag í
heimi nútímans"). Einhvernveginn fer
maður að sakna David Owen við að
fletta þarna i gegn og geta hvergi
sloppið undan Paddanum. Saga
flokksins, stefna hans og oft og tíðum
stórsniðugir slagorðamolar ásamt it-
arlegri síma- og netfangaskrá gerir
annars heimasíðu Frjálslyndra demó-
krata vissulega að bestu heimasíðu
stjórnmálaflokka í Bretlandi, en það
segir kannski meira um hina en þá...
staffan¢rum. is
veröld ísaks
Heildaríjöldi mannkyns
fyrir tvöþúsund árum - á dögum
rómverska keisarans Júlíusar Sesars
- var ekki nema 150 milljónir.
í dag er staðan þanrúg að á hveiju
einasta ári fjölgar í röðum mannkyns
um hátt í 200 milljónir. - Þetta
hlýtur að enda með ósköpum.
Byggt á Isaac Asimov's
Book of Facts.
h i n u m e g i n
Kosningabarátta Stein-
gríms J. Sigfússonar í
Alþýðubandalaginu virðist að
ýmsu byggð á fyrirmyndum úr
Sjálfstæðisflokknum. Hann
hefur nú opnað kosningamið-
stöð í Skipholti, þarsem að-
gerðir í lokasókninni verða
skipulagðar. Miðstöð
Steingrims verður opin alla
daga vikunnar, og fylgir sögu
að þangað geti óðfúsir
sjálfboðaliðar komið og
skráö sig til starfa...
Vesturbæingar eru að von-
um kampakátir þessa dag-
ana eftir sigurinn á Fram í bik-
arúrslitum og hafa fullan hug
á því að velgja Skagamönnum
undir uggum þegar þeir koma
í heimsókn í Vesturbæinn í
kvöld. Sigri Skagamenn hafa
þeir tryggt sér Islandsmeist-
aratitilinn, þótt fjórar umferðir
séu eftir á Islandsmótinu. Það
sló dálitlum skugga á úrslita-
leikinn að Izudin Daða
Dervic var vikið af leikvelli af
Guðmundi Stefóni Marías-
syni dómara. Þetta var fyrsta
rauða spjaldið sem Daði fær
hérlendis en áður hafði hann
fengið gula spjaldið sex sinn-
um. KR-ingar fullyrða að Guð-
"FarSide” eftir Gary Larson
mundur Stefán hafi veitt Daða
öll spjöldin - aðrir dómarar
hafi aldrei séð neitt athugavert
við framgöngu leikmannsins...
Yfirlýsingar Jóns Baldvins
Hannibalssonar um að
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
sé tilvalin að leiða sameiningu
á vinstrivæng hafa vakið mikla
athygli og umtal. Ur herbúð-
um Kvennalistans heyrum við
af almennri ánægju: þar er
jafnvel farið hlýlegum orðum
um formann Alþýðuflokksins
fyrir pólitíska framsýni. Kvenn-
alistakonur eru annars ekki
þekktar fyrir mikla ást á for-
manninum - en allir hafa nú
leyfi til að skipta um skoðun...
Fundur Svavars Gestsson-
ar og Jóns Baldvins
Hannibalssonar á Korn-
hlöðuloftinu var athyglisverð-
urfyrir margra hluta sakir. Jón
Baldvin hafði ekki komið á
fund hjá Alþýðubandalaginu í
Reykjavík í 28 ár - síðan á hin-
um fræga Tónabíósfundi 1967.
Meðal fundarmanna á Korn-
hlöðunni voru Kristfn Ást-
geirsdóttir Kvennalista,
Oskar Guðmundsson, Ásta
Ragnheiður Jóhannesdótt-
ir, Kjartan Valgarðsson og
Svanfríður Jónasdóttir
Þjóðvaka, Jón Sæmundur
Sigurjónsson fyrrum þing-
maður, sem sagði skilið við
Alþýðuflokkinn í vetur, Ingi R.
Helgason einn valdamesti
baktjaldamaður Sósíalista-
flokks og Alþýðubandalags,
Össur Skarphéðinsson.
Hlín Daníelsdóttir, Bolli
Valgarðsson, Magnús Árni
Magnússon, Jón Þór Sturlu-
son, Kolbrún
Bergþórsdóttir, Hallgrímur
Helgason - og Steingrímur
J. Sigfússon...
Það vakti mikla athygli
þegar Svavar Gestsson
sakaði Alþýðuflokkinn um að
vera sérstaklega menningar-
fjandsamlegur, jafnframt
því sem hann lét í veðri vaka
að einhver ónefnd öfl vildu
„leggja niður íslenska
menningu". Kolbrún
Bergþórsdóttir brást
ókvæða við þessum yfirlýsing-
um og kannaðist ekki við að
Alþýðuflokkurinn væri á móti
menningunni - þvert á móti.
Fór svo að lokum að Svavar
Gestsson sá sitt óvænna
og baðst afsökunar...
„Já, en þú hefur eitthvad misskilið þetta, Stanley minnl Þú
þarft greinilega að panta þér tíma hjá galdralaekninum og
ég er bara ekki hann. Ég er bifvélavirkinn...
fimm á förnum vegi
Að Vigdísi undanskilinni, hver er þá best fallin(n) til að vera forseti íslands?
Ólafur Már Svavarsson, Unnar Vilhjálmsson, Sveinn Rúnar Benedikts- Páll Hannesson, sölumað-
nemi: Án vafa er það séra íþróttakennari: Ég get nú son, nemi: Jakob Bjarnar ur: Jón Baldvin Hannibalsson.
Pálmi Matthíasson. tæplega hugsað mér annan for- Grétarsson, „Górillan11 á Aðal- Engin samkeppni.
seta en Vigdísi. stöðinni.
Garðar Guðjónsson, kynn-
ingarfulltrúi: Ég hef ekki
hugleitt þetta, en það verður
erfitt að finna verðugan arftaka
Vigdísar sem sátt getur orðið