Alþýðublaðið - 14.09.1995, Side 5
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
áleitnar spurningar
■ Hið gamalgróna kaffihús Mokka sett á
annan endann vegna myndlistasýningar
Við erum þessir ungu
upprennandi lista-
menn sem horfa
sakleysislegum
augum á framtíðina...
- segja Hekla Dögg, Hildur Jónsdóttir,
Erling Klingenberg og Valborg Salóme Ingólfsdóttir
í samtali við Guðrúnu Vilmundardóttur.
„Sýningin verður opnuð klukkan tíu
á laugardagskvöldið. Við ætlum að
breyta innréttingunum á Mokka, setja
upp skilrúm, myndir og hljóð... en
þetta er eitt verk,“ sögðu listamennim-
ir fjórir sem opna sýningu á Mokka,
Skólavörðustíg, á laugardagskvöldið.
Blaðamaður Alþýðublaðsins hitti lista-
mennina á Mokka og spurði þá hvað
þeir væru að fara.
„Við höfum unnið þetta verk sam-
an; það hefur verið heilmikið ferh, all-
ar hugmyndir eru ræddar afturá bak
og áfram og allir verða að samþykkja
hvert smáatriði. Það er varla algengt
að fjórir listamenn vinni saman að
einu verki. Við setjum upp skilrúm
inni á Mokka - svo fólk geti talað
meira prívat; baktalað... eða bara tal-
að eins og því sýnist. Svo höfum við
tekið okkar samræður upp á band;
svona dæmigerðar kaffihúsasamræður
og þær verða spilaðar af segulbandi -
sýningin gengur útá hstamenn á kaffi-
húsi... en nei, við verðum ekki héma
sjálf allan tímann sem sýningin stend-
ur.
Við viljum hvetja fólk til að tala
meira saman; um aílt miUi himins og
jarðar, en ekki síst um stöðu myndlist-
arinnar í dag. Sýningin heitir Stóri
bróðir - fjórir upprennandi á Mokka
- en það var Hannes sem bætti þessu
með fjóra upprennandi við...
TJpprennandi - hvað þýðir það...
Ætliðþið að verða heimsfrœg?
„Erling ætlar að verða heimsfrægur
- en öll ætlum við að verða alveg
rosalega góð. Upprennandi, já við er-
um að renna upp... hvað sem það nú
þýðir. Við emm náttúrlega orðin al-
vöm listamenn."
Eru til alvöru og óekta listamenn?
„Það er enginn óekta - en það em
rosalega margir listamenn, þó margir
stundi listina ekki af mikilli alvöru.
Margir listamenn em kaffihúsalista-
menn - þeir tala fjálglega en fram-
kvæmdimar em ekki stórar. Við erum
þessir ungu upprennandi listamenn
sem horfa sakleysislegum augum á
framtíðina... Æ, var kaffivélin ekki í
gangi, heyrði þetta nokkur? En við er-
urri samt að uppgötva ýmislegt. Við
höfum unnið ýmis störf til sjávar og
sveita til þess að vinna fyrir hráefni
svo við getum stundað okkar mynd-
list. Það seljast nánast engin verk -
kannski á fyrstu einkasýningu þegar
ættingjamir mæta allir og fá sér eins
og eitt verk - svo verða þeir leiðir á
þessu og þá kemur áfallið.
Öll vorum við í námi erlendis í
fyrra - fyrsti fúndurinn varðandi þessa
sýningu var á Art-Köln — ægilega artý.
Við förum öll saman til að sýna í
Dubhn á írlandi næsta sumar - Erling
verður reyndar ekki með í sýningunni
en hann ætlar að slá í gegn.“
Hvert er takmarkið hjá upprenn-
andi listamönnum?
„Ja, að breyta listheiminum á Is-
landi. Það er ekki raunhæft takmark
að ætla að reyna að sjá sér farborða
með myndhstinni einni saman - það
em draumórar. En það er þetta með
hstheiminn - okkar stefna er að ryðja
öllum leiðinlegum Súmmurum af
velli, ónefndum listgagnrýnanda og
öllum málsvörum úreltra kenninga.
Það kemur náttúrlega nýtt fólk með
nýjum tímum - en kannski er það ekki
einu sinni til bóta. Maður hélt alltaf að
það yrði einhver endumýjun, en svo
horfir maður uppá marga af yngri
kynslóðinni feta í fótspor gömlu for-
kólfanna og taka upp sömu stefnu -
það er alveg ótrúlegt. Það verður að
passa upp á róttækni og ferskleika -
það ríkir ótrúleg þröngsýni í íslenska
listheiminum. En enginn þorir að
segja neitt - nema einmitt á kaffi-
húsi.“ ■
■ Vísbendingaleikur Alþýðublaðsins
Alþýðublaðið heldur í dag áfram með laufléttan spumingaleik, þarsem reynir á hversu mannglöggir lesendur em. Spurt
er um menn úr öllum áttum, fslendinga jafnt sem útlendinga, lífs og liðna. Spumingamar em 10 og em gefnar þijár vís-
bendingar með hverri spumingu. Sá sem svarar rétt eftir fyrstu vfsbendingu fær þrjú stig, tvö stig fást fýrir rétt svar eftir
aðra vísbendingu og eitt stig ef svarið kemur eftir þriðju vísbendingu. Lesendur geta mælt þekkingu sína við svör keppend-
anna og Kristjáns Þorvaldssonar og Óla Björns Kárasonar, hér að neðan.
FYRSTA VÍSBENDING ÖNNUR VÍSBENDING ÞRIDJA VÍSBENDING
1 Hann var háskólarektor 1973-79. Hann bauð sig fram í forsetakosningunum 1980. Eftir það var hann ríkissátta- semjari um langt skeið.
2 Við spyrjum um skákmeistara sem upphaflega bar ættarnafnið Weinstein. Hann var lærisveinn Botvinniks, og var þriðji á skákmóti 1977 þegar Jón L. Árnason varð heimsmeistari sveina. Hann hefur teflt vel á annað hundrað skákir gegn Anatoly Karpov.
co Hann hætti í skóla 16 ára en hefur samt náð miklum frama í stjórnmálum í landi sínu. Eiginkona hans heitir Norma. Hann er arftaki Margrétar Thatcher.
4 Fyrsta skáldverk hans hét Músin sem keðist. Hann er afkastamikill höfundur og hefur líka þýtt mikið af bókmenntum úr spænsku. Frægasta bók hans er lQdega Tómas Jónsson, metsölubók.
5 Hann var umsjónarmaður Sunnudagsblaðs Þjóðviijans 1980- 84. Hefur skrifað tjölda sagnfræðirita, ekki síst um sögu Reykjavíkur. Hann skrifaði þriggja binda ævisögu Jónasar frá Hriflu.
CD Þegar óvinir hans höfðu ákveðið að taka hann af lífi sagði hann: Nú réðuð þér það af er mér var nær skapi. Bróðir hans var sundkappi og draugabani. : Hann var veginn ásamt bróður símun í Drangey.
7 Hann er þingmaður í stjórnarandstöðu; hefur milli- nafnið Kristinn, en notar það sjaldan eða ekki. Hann var framkvæmdastjóri Norræna félagsins um skeið og hefur líka ritstýrt Alþýðublaðinu. Hann var heilbrigðisráðherra síðustu ríkisstjómar.
00 Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1944 en starfaði lengi við annan menntaskóla. Hann þótti halda uppi ströngum aga og hlaut viðumefni í samræmi við það. Hann lét nýlega af starfi sem rektor Menntaskólans í Reykjavík.
9 Leikari, fæddur 1924, sem meðal annars hefur farið með hlutverk Napóleons, Markúsar Antoníusar og byltingarforingja í Mexíkó. Hann sló í gegn sem ungur töffari, í myndum einsog A Streetcar Named Desire, en síðustu ár hcfur heldur hallað undan fæti. Að undanförnu hefur hver fjölskylduharmleikurinn rekið annan og okkar maður hefur hlaðið utan á sig kílóum.
10 Hann er sonur Þorsteins Gíslasonar ritstjóra og skálds. Sjálfur helgaði hann sig stjórnmálum. Hann var þingmaður Alþýðuflokksins í Reykjavík 1946-78. Hann var menntamálaráðherra samfleytt 1956 til 1971.
Jöfn
keppni
ritstjóranna
í síðasta vísbendingaleik kepptu
Kristján Þorvaldsson, ritstjóri Mann-
lífs, og Jón Birgir Pétursson, blaða-
maður á Tímanum. Kristján vann með
22 stigum gegn 17, sló þar með Jón
Birgi úr leik og heldur því keppni
áfram. Mótheiji hans að þessu sinni er
Óli Björn Kárason, ritstjóri
Viðskiptablaðsins.
1. Kristján fékk 2 stig en Óli Bjöm
svaraði eftir fyrstu vísbendingu og
Óli Björn: Tapar
með eins stigs
mun.
fékk 3 stig.
2. Kristján fékk 2 stig en Óh Bjöm
gataði og fékk ekkert stig.
3. Kristján fékk 1 stig en Óh Bjöm 2.
Staðan er jöfn: 5- 5.
4. Báðir svömðu rétt eftir fýrstu vís-
bendingu og fengu 3 stig.
5. Báðir svömðu rétt eftir aðra vís-
bendingu og fengu 2 stig. Staðan er
ennjöfh: 10-10.
6. Kristján fékk 2 stig en Óli Bjöm
ekkert. Kristján hefur náð tveggja
stiga forskoti.
7. Kristján fékk 2 stig og Óh Bjöm
sömuleiðis. Staðan: 14-12.
8. Báðir höfðu svarið eftir fýrstu vís-
bendingu og fengu 3 stig.
Staðan: 17-15, Kristjáni í vil.
9. Kristján fékk 2 stig og Óli Bjöm
sömuleiðis. Staðan: 19-17.
10. Kristján fékk 2 stig en Óli Bjöm
svaraði rétt eftir fýrstu vísbendingu og
fékk 3 stig. Lokastaða: 21-20,
Kristjáni í vil.
uosb|S)3 ct glAg ot opuBjg uopB|/\j '6 uosspunujQnr) jUQnQ g uossuiA6jo[g uujjspx jnjBAi)6!S 'L uosjBpunuisv
!6nm -g uossíiuQU-) uofQns -g uossöjag jnöjaqQng v JO[bi/\| uqop ■£ AOJBdsB>| z uosspieAJoq jn6ne|Qns 't:aOAS J-LHH