Alþýðublaðið - 29.09.1995, Blaðsíða 6
ALÞYÐUBLAÐIÐ
I a b o ð
FOSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995
Hlustendur Bylgjunnar í fyrra-
dag fengu að heyra Margréti
Frímannsdóttur og Steingrím
J. Sigfússon leiða saman hesta
sína í beinni útsendingu. Meðal
umræðuefna var fundur sem
„Sellurnar", konur í Alþýðu-
bandalaginu, efndu til þá um
kvöldið þarsem ræða átti konur
og völd. Meðal frummælenda
voru Margrét og Jóhanna Sig-
urðardóttir. Engum duldist að
Steingrimur var dragfúll yfir því
að fundurinn skyldi haldinn.
Hinsvegar rak ýmsa í rogastans
þegar Steingrímur hvatti fólk til
að fara frekar í bíó en á fundinn
um kvöldið! Margrét svaraði að
bragði að þetta væri lýsandi fyrir
jafnréttisumræðuna innan Al-
þýðubandalagsins: varaformaður
flokksins vildi frekar að fólki færi
á bíó en á fund um jafnréttis-
mál...
Eitt af fjölmörgum kosningalof-
orðum framsóknarmanna
snerist um að þeir myndu af-
1. október eru 25 ár síðan
Blómaval tók til starfa.
Af því tilefni veitum við
af öllum vörum fímmtudag til sunnudags.
. . . sunnudaginn 1. október bjóðum
við viðskiptavinum okkar til mikillar
afmælisveislu.
Kl. 14 byrjum við að skera 25 metra
langa aímælistertu og bjóðum upp á
kaffi og gosdrykki.
Landsfrægir tónlistarmenn skemmta
gestum með léttri tónlist.
nema virðisaukaskatt á bækur,
kæmust þeir til valda. Það er al-
kunna að kosningaloforð hafa til-
hneigingu til að gleymast gletti-
lega fljótt, en við heyrum nú
samt að innan Framsóknar sé
talsverður vilji fyrir því að standa
við stóru orðin. Nokkrir þing-
menn flokksins eru nefndir í
þessu sambandi, meðal annars
Ólafur Örn Haraldsson, ísólfur
Gylfi Pálmason, Jón Krist-
jánsson, Valgerður Sverris-
dóttir frá Lómatjörn og Hjálmar
Árnason. Af þessum valinkunnu
þingmönnum mun Ólafur Örn
eindregnastur andstæðingur
bókaskattsins: hann ætti, sem rit-
höfundur, að þekkja risavaxin
vandamál bókaútgáfunnar. Jón
Kristjánsson ætti að verða drjúg-
ur liðsmaður, enda formaður fjár-
laganefndar. Ýmsir af þingmönn-
um Sjálfstæðisflokksins hafa og
lýst sig andvíga virðisaukaskatti á
bækur, svo ekki er öll nótt úti fyr-
ir bókavini...
Þeir Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra og Guðmundur
Bjarnason landbúnaðarráðherra
hafa keppst um að lýsa frati á Jó-
hannes Jónsson í Bónus fyrir
tilraunir hans til að flytja inn
hrátt kjöt. Ráðherrarnir segja
jafnan að hér sé aðeins um að
ræða brellu til að fá ókeypis aug-
lýsingu í fjölmiðlum. Það er hins
vegar greinilegt að Óskar Magn-
ússon Hagkaupsstjóri treystir
ekki á ókeypis auglýsingar því
hann hefur fengið styrk að upp-
hæð eina milljón króna frá Mark-
aðsráði landbúnaðarins til að
kynna slátur og ferskt lamba-
kjöt...
Blaðið Dagurá Akureyri minn-
ist þess nú að 10 ár eru liðin
frá því það var gert að dagblaði. í
viðtali við blaðið lýsir Hermann
Sveinbjörnsson, sem var rit-
stjóri Dags fyrir 10 árum, því
hvernig Dagur hætti að vera mál-
gagn Framsóknarflokksins: „Ég
tók þá ákvörðun að reyna að hafa
Dag nokkurs konar málsvara
landsbyggðarinnar. Framsóknar-
flokkurinn taldi sig auðvitað hafa
þá stefnu einnig og þannig fór
þetta saman." Svona var það nú
auðvelt fyrir Dag að verða frjálst
og óháð málgagn Framsóknar...
Nú er rétti tíminn til að spara og taka slátur. Á sláturmarkaði
GOÐA, Kirkjusandi v/Laugamesveg, færðu Borgarnesslátur og
Búðardalsslátur og einnig nýtt kjöt og innmat á góðu verði.
Sláturmarkaður GOÐA er opinn mánudaga
til föstudaga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-14.
Sími 568 1370.