Alþýðublaðið - 29.09.1995, Side 9
FOSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
9
■ Ámi Ibsen hættir hjá Þjóðleikhúsinu til að gerast leikritahöfundur
Góðir dómar koma mér alltaf á óvart
Leikrit Áma Ibsen Himnaríki hefur
fengið einstaklega góðar viðtökur, jafiit
gagnrýnenda sem almennra leikhús-
gesta. Alþýðublaðinu þótti ástæða til að
forvitnast um framtíðaráform leikrita-
skáldsins og sló á þráðinn til hans.
Þú hefur fengið mjög góða dóma
fyrir þetta leikrit, koma viðtökumar þe'r
á óvart?
„Góðir dómar koma mér alltaf á
óvart. En það er mjög skemmtilegt
þegar alþýðan og intelligensían hafa
gaman af sama verki. Það gerist alit of
sjaldan.
Annars er ég alveg hættur að gera
mér hugmyndir um það íýrirfram hvort
verk fái góðar viðtökur eða ekki. Ég
hef nefnilega oft orðið svo hissa. En
það er skrítið að þegar nær dregur
frumsýningu þá veit maður ekkert.
Maður er gjörsamlega dómgreindar-
laus. Síðan kemur frumsýningin eins
og holskefla. Og einhvem veginn skol-
ar manni á land.“
Ertuþá aldrei kvíðinn?
„Auðvitað skipta viðbrögð mig máli,
en ég fmn ekki fýrir miklum kvíða. Það
er ffekar að ég finni fyrir eftirvæntingu.
Og eins og segir í leikritinu þá fer þetta
einhvem veginn."
Varstu lengi að skrifa Himnaríki? :
JVNei, það vannst mjög hratt, kannski
of hratt, ég veit það ekki. Kannski fór
ég ffam úr mér. Mig minnir að ég hafi
skrifað megnið af því leikriti í júlí.“
Ertu orðinn leikritahöfiuuiur að lífs-
starfi?
„Þú grípur mig einmitt á síðasta degi
í vinnunni minni. Ég er að hætta hjá
Þjóðleikhúsinu eftir sautján ár þar sem
ég hef síðustu árin starfað sem leiklist-
ar- og bókmenntaráðunautur. Á þeim
tíma hef ég sent frá mér þýðingar í
stómm stíl og sjö leikrit. Nú ætla ég að
einbeita mér að því að skrifa fýrir al-
vöm.“
Og hvenœr kemur nœsta verk?
„Þegar ég skrifaði Himnaríki ýtti ég
til hliðar verki sem ég er nú að leggja
síðustu hönd á. Það er leikrit sem Borg-
arleikhúsið er búið að kaupa og verður
væntanlega og vonandi sett upp á
næsta vetri.“
Um hvað snýstþað leikrit?
,J>að er farsi úr íslenskum veruleika,
að franskri fýrirmynd."
Og þú œtlar að einbeita þe'r að leik-
ritagerð, ekki fara út í skáldsagna-
gerð?
,JÉg veit það ekki. Ég hef sent frá
mér ljóðabækur og er einmitt með í
burðarliðnum ljóðahandrit, sem kemur
kannski út á næsta ári. En það hefur
annan takt. Ég hef ekki skrifað mikið,
fyrir utan greinar, ritgerðir og annað
slíkt. Reyndar einhveijar smásögur en
ég hef ekki birt þær. Við sjáum bara
hvað setur."
Háskóli Islands Endurmenntunarstofnun
Yið bjóðum ykkur velkomin
á síðaegis og kvöldnámskeið
Skráning og nánari upplýsingar um efni, tíma og verð í síma 525 4923, fax 525 4080.
Þrjár Borgfírðingasögur
Gunnlaugssaga Ormstungu,
Hæíisna-Þórissaga og
Bjamarsaga Hítdælakappa
í samstarfi við Tómstundaskólann
• Hænsna-Þórissaga er sakamálasaga
sem lýsir skuggahliðum mannlífs skýr-
lega, s.s. illgimi, öfiind og lygum og
telst merk heimild um lögff æði og rétt-
arfar á þjóðveldisöld.
Gunnlaugssaga er ástarsaga. Skáld-
mælt ungmenni beijast um hylli glæsi-
konu og láta báðir lífið í einvígi. Bjam-
arsaga Hítdælakappa sýnist efhislík við
skjóta sýn en greina má napurt háð í
frásögn um litríkan feril keppinauta í
víkingasamfélagi utan landsteina og
síðan í sveitum við Hítará.
• Jón Böðvarsson cand.mag.
• Þrið. 3. okt.-5.des. (lOx) eða
mið. 4. okt.-6.des. (lOx).
Kínverskur samtími
Villtra svana
• Villtir svanir, saga þriggja kynslóða
kínverskra kvenna, eftir Jung Chang
verður höfð til hliðsjónar umfjöllun um
samtímasögu Kína, einkum tímabilið
frá valdatöku kommmúnista árið 1949
til loka menningarbyltingarinnar.
Stjómarfar, þjóðfélagshættir og mann-
líf en menningin fær sinn skerf, sér-
staklega kínverska kvikmyndavorið
sem þykir miðla ófegraðri sýn á þjóð-
félag kommúnismans.
• Hjörleifur Sveinbjömsson þýðandi
bókarinnar Villtir svanir.
• Þriðjud. 17.okt.-7.nóv. (4x).
Vöðvabúnt og veimiltítur
ímynd kvenna í kvikmyndum
• Kvenhetjur kvikmyndatjaldsins í
dag. Er ímynd kvenna einsleit eða em
fleiri en einn túlkunarmöguleiki fyrir
hendi? íslendingar sjá mest af verkum
úr bandarísku draumaverksmiðjunni,
því verður sjónum helst beint að kvik-
myndum þaðan. Skilaboð frá kvenper-
sónum þessara mynda, „góðu“ og „-
vondu“ konumar. Finnst annars konar
kvemmynd í evrópskum og svokölluð-
um listrænum kvikmyndum? ímynd
kvenna í kvikmynda-fræðilegu og
sögulegu ljósi með eldri og nýrri kvik-
myndadæmum.
• Anna Sveinbjamardóttir kvik-
myndafræðingur.
• Fim. 12.okt.-16.nóv. (6x).
Jósef, Jónas og Jesús
Biblían sem bókmenntir og biblíuleg
þemu í bókmenntum og listum sam-
tímans.
• Lesnir þekktir textar úr biblíunni og
þeim fylgt eftir í bókmenntum, mynd-
list og kvikmyndum. M.a. saga Jósefs
og bræðra hans og spádómsbók Jónas-
ar. Síðasta kvöldmáltíðin könnuð í ljósi
myndverka og kvikmynda.
• Dr. Gunnar Kristjánsson prestur á
Reynivöllum í Kjós.
• Miðvikud. 18.okt.-29.nóv. (7x).
Austur- og Suðaustur-Asía
Saga, trúarbrögð, lífsviðhorf
• Sagan, m.a. mótun samfélaganna og
samskipti við EvrópuAfesturlönd.
Helstu trúarbrögðÆiugmyndakeríi, með
hliðsjón af samtímanum, en efnahags-
þensla er nú mest í þessum heimshlut-
um. Er skýringa á þessum uppgangi að
leita í trúarbrögðunum? Áhrif trúar-
bragða á lífsviðhorf og þjóðfélagsgerð.
• Dagur Þorleifsson sagn- og trúar-
bragðafr., stundak. HÍ.
• Fim. 12. okt.-30.nóv. (8x).
Heimspeki, tilfinningar
og valdabarátta
• Gerð verður tilraun til að greina (á
heimspekilegan hátt) samband tilfinn-
inga og valds. Spurt verður hvemig
endurspegla tilfinningar valdatengsl;
em þær til marks um vanmátt eða
styrk; og mótar valdabarátta allar til-
finningar.
• Róbert H. Haraldsson heimspeking-
ur og stundakenn. HÍ
• Þrið. 17.okt.-21.nóv. (6x).
Fjölskyldulíf okkar tíma
Samskipti foreldra og bama/hjóna
• Einkum ætlað feðmm og mæðmm í
bamaijölskyldum og sambúðar-
fólki/hjónum.
• Breytingar á fjölskyldunni síðustu
áratugum og áhrif þeirra á hjónaband,
uppeldi, kynslóðasamskipti. Lífsskeið
fjölskyldunnar, tjáskipti, náin tengsl og
uppbyggilegar leiðir í gleði og sorg.
• Nanna K. Sigurðardóttir MSW og
dr. Sigrún Júlíusdóttir báðar fjölskyldu-
fræð. og félagsráðgjafar
• Mán. 16.okt.-20.nóv. (6x).
Tónar og töfrar Vínar
og Austurríkis
• Habsborgarar og stórveldistími
þeirra. Einkenni austum'ska keisara-
dæmisins sem fjölþjóðlegs ríkis. Kynn-
ing á Vínartónlist og Vínarskólanum í
málaralist.
• Gunnar Þór Bjamason sagnfræðing-
ur, Ólafur Gíslason blaðamaður, Dr.
Lisa Fischer sem kemur í boði austur-
ríska menntamálaráðuneytisins o.fl.
• Miðvikud. 18.okt.-15.nóv. (5x).