Alþýðublaðið - 20.10.1995, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
um sem spilað er eftir, það er valdanets-
kerfmu. Slíkt hefur oft misheppnast hjá
konum, hugsanlega í ijósi reynsluleysis
kvenna i valdabaráttu karlaheimsins.
Þetta hef ég ekki síst séð og reynt í
því pólitíska starfi sem ég hef gegnt að
undanfömu. Konur styðja ekki konur á -
sömu forsendum og karlar. Þær byggja
ekki valdanet kvenna en hafa meiri
áhuga á eintaklingsbundnum völdum
sínum og stöðu. Konur skilja ekki alltaf
hvemig valdabaráttan fer ffam í þeim
heimi sem við búum. Valdabaráttan
gengur ekki út á vald einstaklingsins og
það að verjast í sínum fflabeinstumi,
heldur fyrst og ffemst að dreifa valdinu
til dyggra stuðningsmanna sem þá bæði
styrkja og veija völd og hagsmuni vel-
gjörðarmanns síns - og græða á því.
Það er því niðurstaða mín að konur
þurfi að breyta áherslum sínum í þeirri
valdabaráttu sem fram fer á vettvangi
efnahags- atvinnu- og stjómmála í næstu
ffamtíð. Þær þurfa að taka tillit tii þeirra
leikreglna sem nú rflcja og spila út ffá
þeim forsendum til vinnings, óragar en
gleyma ekki fyrir hvað þær standa sem
einstaklingar.
Karlmenn þurfa hins vegar einnig að
hlusta grannt á þeirra málflutning, til
þess að glata ekki dýrmætum hugsjón-
um og sérstökum hæfileikum kvenna
sem leiða til aukinna tækifæra og ffam-
fara. En þar sem karlar hafa enn ekki
opnað dyr vaidakerfisins upp á gátt
þurfa konur að gera það sjálfar og finna
sér leið inn í netkerfið, þannig að konur
jafnt sem karfar fái notið hæfileika sinna.
Þannig hlýst ávinningur sem allir aðilar
munu njóta góðs af.
Jón Baldvín Hannibalsson:
Valdið er ekki
bara í pólitík
Hvað getur pólitíkín gert til að jafha
aðstöðumuninn? Jöfhun aðstöðumunar
er hið yfirlýsta markmið. Það sem við
viljum. Þá þarf einfaldlega að tryggja,
eftir því sem unnt er, að konan gjaldi
ekki síns móðurhlutverks. Að samfélag-
ið, sveitafélagið og umhverfið skapi að-
stöðu til að tryggja umönnun barna,
Jón Baldvin skömmu áður en hann
lýsti reynslu sinni af Margréti
Thatcher í ham.
þannig að konan geti haldið áffam at-
vinnuþátttöku á fullkomnum jafnréttis-
grundvelli við karlinn. Við vitum hvaða
álag er á hinni ungu konu, sem á böm,
og er á vinnumarkaði að keppa við kari-
inn, jafhvel til þess að taka á sig sömu
ábyrgð við forystu í íyrirtæki, með öllu
sem þvf fylgir: óreglulegum vinnutíma,
eftirvinnu, næturvinnu, helgidagavinnu
og svo ffamvegis. Og ef þjóðfélagið tek-
ur á kerfisbundið á þessu máli, viður-
kennir vandamálið, skilgreinir það og
reynir að leysa, þá er um leið stigið eitt
stærsta skrefið sem hægt er að stíga í þá
átt að auka jafhrétti.
Mér finnst sú áhersla hafa verið of
áberandi hér í umræðunum að valdið í
þjóðfélaginu sé einungis pólitískt. Það er
alltof mikil einfóldun. Staðreyndin er sú
að mjög hefur dregið úr völdum stjóm-
málamanna. Stjómmálamenn em valda-
minni í flestum samfélögum nú en þeir
áður vom. Þetta er ein af afleiðingum
þekkingarþjóðfélagsins. Aðilar utan hins
pólitíska ferils fara með æ meiri völd.
Þeir em í atvinnulífmu, í forystu fyrir-
tækja, á alþjóðlegum vettvangi, í fjár-
málaheiminum. Ef við erum að tala um
jafnan aðgang kynjanna að völdum þá
spyr ég: Hvað með hlut konunnar í at-
vinnulífinu? Ég held að breytingin í
samskiptum kynjanna verði samhliða
þeirri breytingu sem er að verða á þjóð-
félögum Vesturlanda. Ég held að sam-
hliða þeirri breytingu muni verða bylting
hvað varðar völd og ábyrgð kvenna.
Ekki bara í stjómmálum, heldur líka í at-
vinnumálum.
Er femín-
ismi úreld
hugmynda-
fræði?
Mitt svar er nei.
Femnínismi er auðvitað ekki
úreld hugmyndafræði meðan
það eru einhverjir sem telja
að femínismi sé hugmynda-
fræði sem ástæða er til að
fjalla um. Ég er hins vegar
ekki sammála henni, en það
er allt annað mál.
Svavar
Nei, svosem ekki.
En ég segi: Reynsla hefur
sýnt að aðskilnaðarstefna
kynjanna er röng aðferð í
jafnréttisbaráttu vegna þess
að hún skilar ekki árangri.
Það segir sig sjálft. Ef taka
ætti hana alvarlega fælist
markmiðið í því að
tvískipta þjóðfélaginu sam-
kvæmt apartheid reglu og
konur sameinuðust þá í
kvennaflokki gegn einhverri
óskilgreindri karlafylkingu.
Það mun ekki gerast.
Jón Baldvin
Það eru til margar
kenningar femínista og ein
þeirra er sú sem ég drap á,
frjálslyndur hægri femínismi,
sem fjallar um það að jafn-
rétti er frelsi einstaklingsins
í reynd.
Margrét Lára
Má ég nefna dæmi af þremur konum
sem eru í raunverulegum valdastöðum?
Ég hef séð Margréti Thatcher í ham taka
fulltrúa ráðherraráðs Atlantshafsbanda-
lagsins eins og bekk óþægra mennta-
skólastráka og nánast tukta með hand-
töskunni. Ég tek fram að mér þótti til-
komumikil sjón. Hún hafði alla yfir-
burði. Hann var eins og þrútinn, rauður
skólastrákur sem vissi varla hvað sneri
upp eða niður. Ég hef átt orðastað við
yfirburðakonu í stjómmálum sem heitir
Gro Harlem Brundtland. Hún er með
meiri þungavigtarköppum sem ég hef
lent í. Eg hef séð Benazir Bhutto takast á
við bandaríska vamarmálaráðherrann,
sem hún gerði af ítrasta kvenlegum
þokka, glæsilegri röksemdafærslu og
gríðarlegum sjarma. Og hafði á vissan
máta yfirburði.
Staðreyndin er einfaldlega þessi:
Stjómmálamenn em eins óhkir og þeir
em margir, burtséð ífá kynferði. Megin-
hlutinn af karlmönnum í pólitík em ótta-
leg viðrini og hafa hvorki til að bera
myndugleik, staðfestu eða stefnufestu.
Þeir em bara á atkvæðaveiðum. Það em
líka svona konur í pólitík.
Valdið er ekki bara í pólitík. Meira að
segja er það svo að allur þorri þátttak-
enda i pólitrk er ekki sækjast eftír völd-
um og kemur reyndar ekki nálægt neinu
valdi. Svavar sagði að valdið væri nei-
kvætt í hans huga sem stjómmálamanns,
og hann skýrði þá skoðun ágædega, en
ég er ósammála honum. í stjómmálum
er ég að sækjast eftir völdum. Ég vil fá
völd til þess að beita þeim, til þess að
hafa áhrif og lít ekki á það sem neikvætt
Ég lít á það sem markmið stjómmálabar-
áttunnar.
Mér finnst skorta á að konur hafi sóst
eftír völdum. Ég viðurkenni að þær em
ekki í sömu aðstöðu til að einbeita sér að
því á sama hátt og karlmenn, vegna
móðurhlutverks og jreirrar ábyrgðar sem
þær em látnar bera á heimilisrekstri.
Þjóðfélagið hefur ekki gengið nægi-
lega langt til að jafna þennan mun.
Vandinn hefur ekki verið leystur með
einni saman löggjöf, viljayfirlýsingum
og stefnumótun. Þessu þarf að fýlgja eft-
ir með breytíngum á aðstæðum og hug-
arfarsbreytingu kvenna sjálfra. Konur
munu á komandi tímum reka endahnút-
inn á þessa baráttu. Það munu engir færa
þeim völdin á silfurfati. Þær munu gera
það sjálfar. ■
ÉIÉS
AÐALRÉTTIR
hreindýrasteikur steiktar í salnum • rjúpur
pönnusteiktar gœsabringur • villiktyddað jjallalamb
villiandarsteik • svartfugl • hreindýrapottréttur
súla • hreindýrabollur í títuberjasósu • skarfur
gœsapottréttur • ogfleira
Borðhald hefst kl. 20:00
Landsfrægir tónlistarmenn munu skemmta matargestum
Dagskrá:
Föstudag 3 nóv.
Helga Möller & Magnús Kjartansson
Laugardag 4. nóv.
HelgaMöller &Magnús Kjartansson
Sunnudag 5. nóv.
Kristín EmaBlöndal &
BrynhildurÁsgeirsdóttir
Föstudag 10. nóv.
Grétar Örvarsson & BjarniAra
Laugardag 11. nóv.
Anna Pálína &Aðalsteinn Ásbeig
Sunnudag 12. nóv.
Kristín Erna Blöndal &
Brynhildur Ásgeirsdóttir
Föstudag 17. nóv.
Grétar Örvarsson & Bjami Ara
Laugardag 18. nóv.
Óákveðið
Sunnudag 19■ nóv.
Óákveðið
SCANDIC
LOFTLEIÐIR
Borðapantanir í síma 5050925 eða 562 7575
Gestir verða sjáljkrafa þátttakendur íferðaleik Flugleiða ogG&G veitinga..
Dregið í lok nóvember.
Einnig verða dregnir út tveir vinitingar á bvetju kvöldi
'Mjjswm
m
EFTIRRÉTTIR
blábetjaostaterta • ostabakki
heit eplabaka með rjóma • ogfleira
Verðkr. 3.990
Föstudag20. okt.
HélgaMöUer&Magnús Kjartansson
Laugardag21. okt.
HelgaMöller &Magnús Kjartansson
Föstudag27. okt.
Grétar Örvarsson & BjarniAra
Laugardag 28. okt.
Anna Pálína & Aðalsteinn Ásbeig