Alþýðublaðið - 25.10.1995, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTOBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Afram stelpur...
kvóta. Stjómendur myndu frekar gefa
konum tækifæri auk þess sem konur
myndu í auknum mæli sækja um
stjómunarstöður ef þær vissu að þær
hefðu tækifæri. Þegar frá liði gæti
hlutfallið jafnvel orðið hærra þegar
fleiri konur koma nálægt mannaráðn-
ingum og/eða mannabreytingum.
Takið eftir að fyrirtækin verða sjálf
að ráða þessu. Það er ekki hægt fyrir
stjómmálamenn að stýra því hvemig
fyrirtæki stjóma sínum mannaráðning-
um með Iagasetningum. Önnur leið er
sú að veita viðurkenningar, til dæmis
sambærilega og þegar Gæðastjómun-
arfélag Islands veitir hvatningarverð-
laun fyrir gæðastarf fyrirtækja. Það
þarf að komast í tísku að ráða kven-
fólk til ábyrgðarstarfa. Þannig verður
fjölbreytnin meiri í stjórnum fyrir-
tækja og meiri líkur á að nýjar öflugar
hugmyndir fæðist atvinnulífinu til
heilla.
Höfundur er viöskiptafræðingur
r
Ur herbúðum Daviðs
Oddssonar heyrum við
að ýmsir vinir hans telji nú
einsýnt að forsætisráðherra
gefi kost á sér í forsetakosn-
ingunum á næsta ári. Ekki er
þó talið að Davíð sé búinn
að taka endanlega ákvörðun,
en menn vænta að minnsta
kosti véfrétta á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins um
mánaðamótin...
Jafnan er mikil samkeppni
á jólamarkaðinum milli
endurminninga og ævi-
sagna, enda eftir miklu að
slægjast. Hörpuútgáfan stal
senunni í fyrra þegar forlag-
ið átti tvær ævisögur sem til-
nefndar voru til íslensku
bókmenntaverðlaunanna, og
í ár gefur Harpa út bók sem
trúlega sætir tíðindum:
Ragnar í Skaftafellieftir
Helgu Einarsdóttur. í bók-
inni er sagt frá lífi og störf-
um i einni afskekktustu sveit
landsins og þrotlausri bar-
áttu við óblíð náttúröfl.
Ragnar varfyrsti þjóðgarð-
svörðurinn og mikið er sagt
frá þessari einstöku náttúru-
perlu. Harpa gefur líka út
bók Þóris S. Guðbergsson-
ar þarsem sex viðmælendur
hans líta yfir farinn veg. Þar
getum við lesið frásagnir
Guðlaugs Þorvaldssonar
fyrrverandi ríkissáttasemj-
ara, Guðrúnar Halldórs-
dóttur skólastjóra, Úlfars
Ragnarssonar læknis,
Fanneyjar Oddgeirsdóttur
húsmóður, Daníels Ág-
ústssonar fyrrverandi bæj-
arstjóra á Akranesi og Þóru
Einarsdóttur Indlandsfara.
Forvitnir og fróðleiksfúsir
ættu því að fá eitthvað við
-sitt hæfi...
Mikið uppistand varð í
vor þegar vörpulegir
lögreglumenn voru sendir á
leiksýningu Guðrúnar
Gísladóttur i Hlaðvarpan-
um til að fylgjast með með-
ferð fslenska fánans. Möppu-
dýr í stjórnkerfinu hafði rekið
augun í Ijósmynd í dagblaði
þarsem leikkonan sveipaði
um sig fána, og klagaði um-
svifalaust í lögregluna.
Skýrsla lögreglunnar hefur
nú verið rannsökuð af emb-
ætti ríkissaksóknara, og á
þeim bæ komust menn að
þeirri niðurstöðu að ekki
væri ástæða til aðgerða. Allt
reyndist þetta semsagt dálít-
ill stormur í vatnsglasi...
"FarSide" eftir Gary Larson
Veggjakrot i víti.
eilífa stríð á milli kynjanna. Málið er
að þeir þekkja betur til karlmanna og
hafa ekki kjark eða hugmyndaflug til
að láta á það reyna hvort að kona gæti
sinnt sama starfi. Þeir gefa konunum
ekki tækifæri, varla til að koma í við-
tal og halda því jafnvel fram að hæfar
konur finnist ekki til að sinna þessum
störfum. Það undarlega er að þetta
viðhorf er til staðar þrátt fyrir að fleiri
og fleiri konur sækjast í háskólanám
og rannsóknir hafa sýnt að þær eru að
meðaltali með hærri einkunnir en karl-
menn. Þær örfáu konur sem eru við
stjórnvölinn reyna eflaust sitt til að
gefa konum tækifæri enda hlýtur að
vera leiðigjamt til lengdar að vera eina
„stelpan" í hópnum. En baráttan er
hálf vonlaus sérstaklega ef karlmenn-
imir sjá engan hag í því að breyta sínu
hegðunarmynstri.
Líkumar á að missa af hæfum ein-
stakleingi em ansi miklar ef við gemm
ráð fyrir að 30-40% þeirra sem gætu
komið til greina við ráðningar í stjóm-
unarstöðu em kvenkyns (ég geri fráð
fyrir þessari prósentutölu þar sem um
það bil 40% mannaflans á vinnumark-
aði em konur). Það er ekki bara slæmt
fyrir konur að þær fái ekki tækifæri
heldur líka fyrir atvinnulífið. Fýrirtæki
eiga að sjálfsögðu alltaf að leitast eftir
því að fá hæfasta einstaklinginn óháð
hvers kyns sá einstaklingur er. Jafn-
framt þarf að huga að því að stjóm-
endur samanstandi ekki af of einsleit-
um hóp sem gefur Utlar líkur á nýjum
og „öðruvísi" hugyndum. Fyrirtækin
mega ekki gleyma því að í flestum til-
fellum gildir það að 50% viðskipta-
vina em og verða kvenkyns.
En hvað er til ráða? Eg verð að játa
það að ég hef skipt um skoðun. Eina
ráðið er að mínu mati að setja upp
kvóta á kynin. En er þá ekki verið að
taka konur framyfir karlmenn óháð
hæfileikum? Nei, ef fyrirtæki myndu
setja sér lágan kvóta til að byija með,
til dæmis að 20-30% stjómenda ættu
að vera konur þá er ég ekki vafa um
að nógu margar hæfileikaríkar konur
myndu finnast til að fylla upp í þann
Þær örfáu konur sem eru við stjórnvölinn
reyna eflaust sitt til að gefa konum tækifæri
enda hlýtur að vera leiðigjarnt til lengdar að
vera eina „stelpan" í hópnum.
Um daginn veittist mér sá heiður að
vera fundarstjóri á fundi sem Stúd-
entaráð Háskóla fslands stóð fyrir.
Þetta var einn af mörgum fundum fé-
lagsins þá vikuna um jafnréttismál en
þessi bar yfirskriftina „jákvæð mis-
munun". Eg tel mig jafnréttissinnaða
en hef þó alltaf verið sannfærð um að
konur eigi að komast áfram á eigin
verðleikum en ekki „bara útaf því að
vera kona". Kynjakvótar og jákvæð
mismunun em því ekki þær leiðir sem
ég hafði hugsað mér að væm vænleg-
Pallborðið
Hrönn
Hrafnsdóttir
skrifar
ar til árangurs fyrir metnaðargjamar
konur. Það væri ekki notaleg tilhugs-
un að vera komin í einhverja stöðu
eða embætti eingöngu kynferðisins
vegna. En bíðum nú aðeins við, er það
ekki einmitt það sem gerist hjá karl-
mönnum? Eins og staðan er í dag em
þeir iðulega teknir fram fyrir konur
við stöðuveitingar og mannaráðningar
að mestu leyti á gmndvelli kynferðis
og ekki þykir það tiltökumál, þeir gera
sér ekki einu sinni grein fyrir þessu
sjálfir.
Hvers vegna held ég þessu fram?
Staðreyndimar tala sínu máli. Sam-
kvæmt skýrslu Hagstofu Islands, Kon-
ur og karlar (apríl 1994) þá em 5%
embættismanna og stjómenda konur.
Það þarf ekki mikinn spekúlant til að
sjá hveijir hafa völd til að ráða í stöð-
ur og þá hvort kynið er líklegra til að
vera ráðið. Alla vega trúi ég því að
það sé tilhneiging hjá karlmönnum að
ráða frekar karlmenn þó að jafn hæf
kona sé til staðar. Astæðan er ekki sú
að karlmenn séu svona illgjamir og ég
trúi ekki heldur á kenninguna um hið
fimm á förnum vegi
Hversu mörg ríki eiga aðild að Sameinuðu þjóðunum? Réttsvaniss
Hreinn Sigurðsson nemi:
Ekki hugmynd um það. Ætli
þau séu ekki um 50.
María Jónsdóttir húsmóð-
ir: Ég held að þau séu um 13.
Garðar Garðarsson sölu-
maður: Þau eru 30 til 40.
Sandra Laxdal nemi: Þau
em 185. Vita það ekki allir?
Sigurður Ragnarsson veg-
farandi: Ég tippa á 183.
JÓN ÓSKAR
v i t i m e n n
Þegar ég var bam óskaði ég þess að
mamma mundi deyja, en flestir
sem þekktu hana vom reyndar
sömu skoðunar.
Bandaríski rithöfundurinn Gore Vidal.
Newsweek.
Ég hvet þá sem venja komur sínar
á bari höfuðborgarinnar, til að fá
sér einn léttan fyrir svefninn, að
skella sér á Leynibarinn í Borgar-
leikhúsinu þegar tækifæri gefst
(og að sjálfsögðu alla hina líka).
Soffía Auður Birgisdóttir var himinlifandi
yfir sýningu Borgarleikhússins á Bar pari.
Mogginn í gær.
Samkvæmt auglýsingum trúa sum-
ir íslendingar því, að þeir geti
frelsazt frá ofáti og grennst með því
að kaupa nuddtæki eða ákveðnar
tegundir af aðskornum nærbuxum.
Samkvæmt vöruúrvaii nýaldar-
verzlana trúa sumir Islendingar
beinlínis á stokka og steina.
Jónas Kristjánsson í forystugrein DV í gær.
Fréttastofa Stöðvar 2 býður uppá
sérstæða skemmtidagskrá á fóstu-
dagskvöldum. Þá fá þeir Hannes
Hólmsteinn og Mörður Árnason
þriðja mann til viðræðna og talar
hinn fyrrnefndi fyrir þá alla.
Oddur Ólafsson fór á kostum í Ttmanum i gær.
Ég átti sannarlcga ekki von
á einhverri yfiriýsingu frá
iðnaðarráðherra.
Furðu lostinn Kurt Wolfensberger aðalsamn-
ingamaður svissneska fyrirtækisins Alusuisse-
Lonza að tjá sig um yfirlýsingar Finns Ingólfs-
sonar um álmál. Mogginn í gær.
Ég ætla að lesa við
rafmagnsljós - nei.
' Nei, ég ætla lesa,
liorfa á sjónvarpið og
hlusta á útvarpið.
Alma Abduzaimovic, íbúi í Sarajevo,
eftir að rafmagn var aftur sett á borgina.
Sarajevo var rafmagnslaus
i marga mánuöi.
fréttaskot úr fortíð
Mr. Laughlin og
hús Jónatans
Mr. Laughlin heitir frægur amerískur
fimleikamaður, setn nýlega sýndi fífl-
dirfsku sína uppi á þakinu á gistihús-
inu „Congress" í Chicago. Raunin
sem hann stóðst, var hvorki meiri né
minni en sú, að hann setti stól á þak-
brúnina á húsinu, sem er 200 metra
hátt, og stóð svo á höndunum á stóln-
um. Þetta varð hann að gera til þess
að fá stöðu látins félaga síns á fjöl-
leikahúsi. En sá hafði gert svipuð
hreystiverk, en drepið sig á þeim. Það
mun óhætt að segja, að ekki munu
margir geta leikið þetta eftir Laug-
hlin, og taugastyrkleik tnun við þurfa
meiri en í meðallagi. Skyldu til dæm-
is margir þora að standa á höndunum,
þó ekki væri nenia á þakbrúninni á
húsi Jónatans Þorsteinssonar?
Alþýöublaðið,
6. október 1920.