Alþýðublaðið - 25.10.1995, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995
m e n n i n g
Skopmyndir afbarnum
Verkefni: Barpar
Höfundur: Jim Cartwright
Pýðing: Guðrún J Bachmann
Leikstjóri: Helga E. Jónsdóttir
Leikmynd og búningar: Jón Þórisson
Lýsing: Lárus Björnsson
Sýningarstaður: Barflugurnar, í sam-
vinnu við Leikfélag Reykjavíkur, Borgar-
leikhúsið - veitingabúð
Það er eitthvað við verk Jims
Cartwrights sem fellur Islendingum
vel í geð. Þannig hefur Þjóðleikhúsið
sýnt tvö verka hans við miklar vin-
sældir: Strœtið og Taktu lagið Lóa.
Leikfélag Akureyrar sýndi aftur á
móti Barpar ekki alls fyrir löngu og
ekki urðu vinsældir þess minni. Sýn-
ingarnar teygðust yfir tvö leikár og
Akureyringum var boðið að koma
með verkið suður, á Listahátíð í
Reykjavík. Þess vegna vakti það undr-
un mína að Leikfélag Reykjavíkur
ætlaði að taka þetta verk til sýningar.
Það skýrðist hins vegar með því, að
það er ekki Leikfélagið sem stendur
fyrir þessari sýningu, heldur leikhóp-
urinn Barflugur sem er einn þeirra
leikhópa sem í vetur fær skjól undir
þaki Borgarleikhússins.
Þetta verk Cartwrights er fremur
einfalt í byggingu, segir frá hjónum
sem reka lítinn pöbb og leikararnir
sem leika þau bregða sér síðan í hlut-
verk hinna ýmsu bargesta. Þar fara
oftast týpur sem flestir kannast við, þó
vissulega séu þær dregnar nokkrum
ýkjudráttum. Eins og í mörgum verk-
Leikhús
um höfúndarins er ýkjuskop áberandi,
en undir niðri má þó alltaf greina sárs-
auka sem skerpir skopið en ljær um
leið verkunum dýpri og sammannlegri
tón sem vissulega eykur gildi þeirra.
Leikstjóri þessarar sýningar er
Helga E. Jónsdóttir sem þrátt fyrir
langan leikaraferil hefur ekki fengist
við leikstjóm svo nokkm nemi. Hún
velur þá leið að hafa einfaldleikann og
látleysið að leiðarljósi og styrkur sýn-
ingarinnar felst einmitt í því að hún
reynir aldrei að vera annað en hún er:
dægileg kvöldskemmtun, þar sem
meiri áhersla er lögð á skemmtigildið
en sársaukann. Þar er þó lokaatriði
sýningarinnar undanskilið. í því brýst
lífsharmur hjónanna fram. Atriðið var
unnið af látleysi og einlægni sem léði
því verulega þyngd, snyrtileg leikhús-
vinna.
I þessu verki reynir verulega á þann
hæfileika leikarans að geta bmgðið sér
í allra kvikinda líki og skapað hinar
aðskiljanlegustu persónur án flókinna
hjálparmeðala. Það hlýtur því að vera
öllurn leikumm nokkur ögmn að fá að
takast á við þetta verkefni og skiljan-
legt að þeir sem ekki hafa fengið úr
miklu að moða undanfarið sýni fmm-
kvæði að því sjálfir að koma því á
svið.
Guðmundur Ólafsson leikur eigin-
manninn á bamum ásamt fjölda ann-
arra hlutverka. Guðmundur hefur ver-
ið starfandi hjá Leikfélagi Reykjavík-
ur mörg undanfarin ár og því miður
oft verið mislagðar hendur í sköpun
sinni. En hér fær hann tækifæri til að
spreyta sig og nýtir það vel. Bareig-
andi hans er vel unninn, kaldur, lokað-
ur, með vélræna aulafyndni barþjóns-
ins á vömm. Og í lokaatriðinu, þegar
kvika hans kemur í ljós, gerði Guð-
mundur gríðarlega vel og sýndi á
áreynslulausan hátt hyldjúpa sorg
þessa manns. Af öðrum karakterum
Guðmundar er Teiti feiti minnisstæð-
astur, en þar fór saman smekklega
unnið skop og samúð leikarans með
persónunni.
Saga Jónsdóttir hefur lítið leikið
undanfarin ár. Því er í nokkuð mikið
ráðist af henni að takast á við svo
Appollo 13:
Misheppnaða
tunglferöin
Laugarásbíó: Apollo 13
Aðalhlutverk: Tom Hanks, Kevin
____Bacon, Gary Sinise._
★★★★
Geimöld er sögð hafa hafist 4. októ-
ber 1957, þegar Rússar skutu á loft
Sputnik I, sem kringum hnöttinn fór á
96 mínútum. Viðbrögð Bandaríkja-
manna voru snörp. Af ofurkappi
bjuggu þeir sig undir geimferðir. Óg
ellefu ámm síðar, 21. desember 1968,
sendu þeir flaug, Satum V, með tvo
geimfara kringum tunglið og komu
þeir aftur til jarðar sex dögum síðar.
Hálfu ári síðar, 16. júlí 1969, sendu
Bandaríkjamenn á loft Apollo 13 með
þrjá geimfara. Og ferja flaugarinnar
■ Mál og menning
Ljóðasafn Ólafs
Jóhanns Sig-
urðssonar
Mál og
menning hefur
sent frá sér
bókina Kvœði
eftir Ólaf Jó-
hann Sigurðs-
son. Ljóð eru
mikilvægur
þáttur í höf-
undarverki ÓÍ-
afs Jóhanns
þótt hann hafi
einkum helgað
sig sagnagerð.
Mestu viðurkenningu sem honum
hlotnaðist, Bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs árið 1976, fékk hann ein-
mitt fyrir Ijóðabækumar Að laufferjum
og Að brunnum. I ljóðasafninu Kvœði
em allar ljóðabækur Ólafs Jóhanns,
allt frá bókinni Nokkrar vísur um
veðrið og fleira, sem út kom árið
1952, til síðustu bókarinnar, Að lok-
um, sem út var gefin að honum látnum
Auglýsing
Samgönguráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um
styrki til átaks við markaðssetningu á hótelum úti á landi
sem opin eru allt árið.
Til ráðstöfunar eru fjórar milljónir króna en gert er ráð
fyrir mótframlagi frá umsækjendum. Samtök hótela geta
sótt um styrk eða styrki til sameiginlegs markaðsátaks.
í umsóknum skal koma fram hvernig styrk verði varið,
áætlaður afrakstur af viðkomandi átaki, markhópar sem
átak beinist að og annað sem málið varðar.
Styrkir greiðast út eftir framvindu einstakra verkefna.
Umsóknum skal skilað til samgönguráðuneytisins fyrir
1. desember nk.
Tilboð á
hreinlætistækjum o.fl.
20% afsláttur
VATNSVIRKINN HF.
Ármúla 21, símar 533 2020 - 533 2021
í þessu verki reynir verulega á þann hæfileika
leikarans að geta brugðið sér í allra kvikinda
líki og skapað hinar aðskiljanlegustu persónur
án flókinna hjálparmeðala.
kröfuhart verkefni. En Saga sleppur
alveg þokkalega frá þessu, fær raunar
úr heldur rýrari hlutverkum að spila
írá höfundarins hendi en Guðmundur.
Eiginkonan fannst mér best unnin hjá
henni; einsemd og leiði, falin á bak
við yfirborðskennda kaldhæðni og
innantómt daður. Aukahlutverk Sögu
urðu hins vegar heldur „skúffuleg",
sem reyndar er gryfja sem auðvelt er
að falla í, í verki sem þessu.
Leikmynd Jóns Þórissonar var
raunsæisleg, breskur pöbb, þunglama-
legur og dökkur eins og vera ber.
Rýmið í vínstúku Borgarleikhússins
nýtir hann af hugkvæmni þannig að
áhorfandinn á auðvelt með að sam-
samast umhverfinu. Búningar hans
voru í stíl við uppsetninguna, talsvert
glannalega ýktir og umfram allt bresk-
ir. Það er hins vegar spuming afhveiju
aðstandendur sýningarinnar völdu þá
leið að undirstrika að verkið gerist á
Bretlandi í stað þess að heimfæra það
meira uppá fsland. En þau völdu þessa
leið og eru henni trú og svosem ekkert
meira um það að segja.
Lýsing Lámsar var vel unnin, ein-
föld og raunsæisleg og þjónaði sýn-
ingunni vel.
Niðurstaða: Samviskusamlega
unnin sýning, sem ætlar sér ekki
um of og hlýtur að teljast hin
þokkalegasta kvöidskemmtun.
lenti á mnglinu 20. júlí 1969 með tvo
geimfarana . Og var lendingu þeirra
og göngu á tunglinu daginn eftir sjón-
varpað (eins og margir muna). Önnur
tunglferð Bandaríkjamanna á Apollo
12 heppnaðist vel, og lentu aftur tveir
geimfaranna þriggja á tunglinu. Þriðja
Kvikmyndir |
tunglferð þeirra, á Apollo 13, mis-
heppnaðist hins vegar, og komust þeir
naumlega lífs aftur til jarðar. Og er sú
tunglferð söguefni þessarar kvik-
myndar.
Leikin heimildamynd er kvikmynd
þessi þó ekki, þótt á köflum stappi
nænri því. Aðalleikarinn, Tom Hanks,
hefur í blaðaviðtali minnst þess, að
sem unglingur í Bret Haate jr High
School í Oakland í Kaliforníu hafi
hann fylgst með fréttum af Apollo 13,
sem á loft var skotið 11. apríl 1970,
þar til geimfaramir náðu aftur til jarð-
ar. Leikstjórinn, Ron Howard, naut
íyrirgreiðslu NASA við töku myndar-
innar. Og mun leikbúnaður líkjast
mjög fyrirmynd sinni og að nokkru
vera til lagður af geimstöð NASA.
Handritið er samið eftir bók Lovell og
Kluger, Lost Moon. Taka myndarinn-
ar mun hafa kostað um 52 milljónir
dollara. í Bandaríkjunum hefur hún
hlotið hinar bestu viðtökur, 38,5 millj-
óna brúttó tekjur lyrstu sýningarhelg-
ina.
Har. Jóh.
árið 1988. Vésteinn Ólason prófessor
í íslensku við Háskóla Islands ritar ít-
arlegan formála um skáldaferil Ólafs
Jóhanns og stöðu hans í íslenskri
ljóðagerð. Mjög er vandað til útgáf-
unnar og er' hluti fyrsta upplags bund-
inn í rautt skinnband. Kvœði er 293
blaðsíður, unnin í Prentsmiðjunni
Odda. Verð er 3.980 krónur og í rauðu
skinnbandi kostar bókin 4.980 krónur.
■ Ný íslensk skáldsaga
Hraunfólk Björns
Th. Björnssonar
Mál og menning hefur gefið út
skáldsöguna Hraunfólkið eftir Björn
Th. Björnsson listfræðing og höfund
metsölubókarinnar Falsarinn. Þetta er
söguleg skáldsaga sem gerist í Þing-
vallasveit á fyrri hluta sxðustu aldar.
Páll Þorláksson var þá prestur í Þing-
vallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé
allt samkvæmt kristilegum skikk á
bænum Skógarkoti þarsem Kristján
Magnússon fer með húsbóndavald.
Ljóst er talið að eiginkona Kristjáns
getur ekki verið móðir allra þeirra
bama sem hann feðrar í sínum ranni.
Hefjast út af þessu nokkrar væringar
JÞr' d------fí J
milli hins knáa kotbónda og Þing-
vallaklerka og má hið geistlega vald
sín lengi vel næsta lítils í þeim við-
skiptum. Ur þessum efnivið vinnur
höfundur einstaka sögu gædda þeirri
frásagnargleði og stílsnilld sem les-
endur þekkja af fyrri bókum hans. í
HraunfóUdnu birtast Þingvellir lesend-
um á nýjan og óvæntan hátt og sagan
veitir itmsýn í fjölskrúðugt mannlíf á
þessum harðbýla stað áður en hann
sveipaðist ljóma sjálfstæðisbaráttunn-
ar. Hraunfólkið er 272 blaðsíður,
prentuð í Ödda. Gísli B. Björnsson
hannaði kápu. Verð bókarinnar er
2.380 krónur.