Alþýðublaðið - 01.11.1995, Síða 3
t
MIÐVIKUDAGUR 1. NOVEMBER 1995
ALÞYÐUBLAÐtÐ
s k o ð a n i r
List og landbúnaöur
i
\
i
i
Hér verður ekki haldið upp myndarlegu menningar og listalífi án fjár-
hagslegs stuðnings frá ríkissjóði sem í raun má líta sem landvarna-
kostnað.
Undaníamíir vikur óg mánuði hefur
mikil umræða staðið um svokallaðan
búvörusamning. Sem er stofnanaorð
yfir það fjármagn sem ríkissjóður þarf
að punga út árlega til að viðhalda úr-
eltu og ónýtu miðstýringarkerfi í land-
búnaði. Það er auðvita harmleikur
hvemig þessi atvinnuvegur sem fyrr-
um var landstólpi hefur þróast. Mi-
svitur bændaaðall og enn heimskari
stjórnmálamenn hafa í sameiningu
klambrað saman völundarhúsi, af-
urðalána, geymslugjalda, útfluttnings-
bóta og einhvena enn ótaidra furðu-
fyrirbæra. Er nú svo komið að allir em
villtir r rangölunum og flestir hafa
Pallborðið |
■NBMHBMI
gleymt hvenær lagt var upp og hvert
var erindið. Eitt er þó kristaltært að
landbúnaðar kerfið er öllum til bölv-
unar, í það rennur umtalsvert skattfé
borgaranna sem síðan þrátt fyrir niður
greiðslur mega una því að neyta dýr-
ustu landbúnaðarafurða í heimi.
Bændur em hnepptir í fjötra þrældóms
og fátæktar þar sem fmmkvæði þeirra
og hagsýni hefur visnað og dáið, því
hún skiptir engu máli hvorki til né ífá
í afkomu þeirra. Heil stétt þjóðfélags-
ins hefur verið rænd gleði sinni og
stolti yfir vel unnu verki. Ekki laust
við að læðist að manni sú hugsun að
ef til vill fari eins þegar landbúnaðar-
kerfið okkar hrynur og þegar sovéska-
systemið hmndi. Þá var landbúnaðar-
vandi þeirra fólgin í því að það vom
engir bændur eftir heldur aðeins þraut-
píndir landbúnaðarverkamenn sem
tóku til fótanna um leið og stíflan
brast. Þó verðum við að vona að ís-
lenskir bændur beri gæfu til að hrista
af sér okið áður en allt fer til helvítis.
Því verður þó ekki á móti mælt að
landbúnaður er samofinn sögu og
menningu þjóðarinnar þótt nú um
stundir eigi hann undir högg að sækja.
Ástand þessara mála í augnablikinu er
hins vegar eins og minnisvarði um
það í hvert fen forsjárhyggja og valda-
frkn stjómmálamanna geta leitt jafnvel
hin bestu málefni. Og vítin em til þess
að varast þau.
Meðan landbúaðurinn dalar er ann-
ar atvinnuvegur ört vaxandi, listsköp-
un í hinum margvrslegustu myndum. I
heimi vaxandi frístunda eykst sífellt
markaður fyrir afþreyingarefni og list,
en mörkin þar á milli er oft á tíðum
óljós og ekki nenni ég að hafa hér
mörg orð um það sígilda deiluefni.
Eitt verðum við þó að hafa á hreinu, á
tímum sálarlauss afþreyingariðnaðar
sem án ríkisfangs hvolfist yfir heims-
byggðina þeirra leiðu erinda að drepa
tímann, skiptir máli að hver menning-
arheild hugi vel að sínu. Lítil þjóð eins
og við Islendingar þarf mikið á sig að
leggja í þessu umhverfi til að halda
menningarlegu sjálfstæði sínu. Hér
verður ekki haldið upp myndarlegu
menningar og listalífi án fjárhagslegs
stuðnings frá ríkissjóði sem í raun má
líta sem landvamakostnað. En eins og
í landbúnaðarmálunum opnar leið fyr-
ir íþýngjandi áhrif stjómmálamanna.
Því er mikilvægt að þeir, listamenn og
aðrir sem við þennan atvinnuveg
starfa setjist á rökstóla og leggi línur
um það með hvaða hætti þessu málum
verði best komið í framtíðinni.
Fréttir af meintum ritstuldi
fransks rithöfundar á /s-
landsklukku Halldórs Kilj-
ans Laxness hafa vakið
mikla athygli. En við getum
sagt önnur og
ánægjulegri
tíðindi af
frönskum
bókamarkaði:
Um miðjan
seinasta mán-
uð kom Tíma-
þjófur Stein-
unnar Sigurð-
ardóttur út í
franskri þýð-
ingu Regis
Boyer. Þar
sem skammt
er liðið síðan
bókin kom út
kunnum við
ekki enn að
greina frá við-
tökum. Þess má geta að
Regis Boyer þýddi íslands-
klukkuna á frönsku fyrir
þremur árum - svo kannski
eigum við von á frönskum
Tímaþjófi innan skamms...
Ymsum gömlum baráttu-
mönnum af vinstri væng
finnst ósvinna að Alþýðu-
húsið skuli hýsa skemmti-
staðinn Ingólfskaffi. Pétur
Pétursson
þulur og fræði-
maður er i
þessum hópi:
þegar hann sá
auglýsingu frá
Ingólfskaffi
með léttklædd-
um glanspíum
varð honum
að orði:
Eitt sinn voru
eldhúsmellur
á Ingólfskaffi
að dansa þar,
en pólitískar
fatafellur
flykkjast núna
inn á bar.
Nýtt tölublað Mannlífs er
komið út, veglegt og
efnismikið. Forsíðuna prýðir
enginn annar en Hallgrimur
Helgason rithöfundur og
vikupiltur Alþýdublaðsins og
er óhætt að segja að hann
fari á kostum í löngu og ítar-
legu viðtali við Súsönnu
Svavarsdóttur. Þá er og
skemmtilegt viðtal Jónasar
Jónassonar við séra Póri
Jökul Þorsteinsson sókn-
arprest á Selfossi. Hann er
sonur Porsteins frá Hamri
og Ástu Sigurðardóttur og
kom víða við áðuren hann
gerðist prestur...
Við getum sagt þær fréttir
af Ámunda Ámunda-
syni fyrrverandi auglýsinga-
stjóra Alþýðubladsins að í
gær var gengið frá samning-
um um að hann tæki sér
auglýsingaöflun í Menning-
arhandbókina sem byrjaði
að koma út í sumar og er
dreift i ókeypis 63 þúsund
eintökum á höfuðborgar-
svæðinu. Gísli Rúnar Jóns-
son, Edda Björgvinsdóttir
og Margrét Ákadóttir eru
aðalsprautur Menningar-
handbókarinnar en margir
listamenn koma þar að
verki...
hinumegin
"FarSide" eftir Gary Larson
Elsa Björk Kristjánsdóttir
skrifstofurnaður: Ég hef
ekki ákveðið það. Ætla að sjá
hvað er í boði.
Óli Stefán Þrastarson
nemi: Það er í athugun ef það
verður ekki dýrt.
Nanna Lind móðir: Nei, ég
reikna ekki með því.
Ólöf J. Ólafsdóttir af-
greiðslumaður: Nei. Það er
nóg að hafa eina stöð.
Jónas Garðarsson sölu-
maður: Það fer eftir verði og
gæðum.
m e n n
Rosemary West, sem er fyrir rétti í
Bretlandi, vegna fjöldamorða og
nauðgana á ungum konum, sagði í
gær að hún elskaði börn og sæktist
eftir því að vera einsog ailir aðrir.
Frétt í DV í gær.
Mér ber að halda minningu hennar
í heiðri sem minningu móður
minnar fyrst og fremst og eins að
láta ekkert það uppi um hana sem
fólk gæti útlagt á verri veg. Hún
var, einsog aðrar mæður, með kosti
mikla og galla ekki minni.
Séra Þórir Jökull Þorsteinsson um móöur sína,
Ástu Siguröardóttur rithöfund. Mannlíf.
Alþýðubiaðið... er besta blaðið hér
á Iandi... Fyrir mig er Alþýðublað-
ið stöð. Og orkuver sem hleypir
straumi út í þjóðfélagið. Það átti öll
málin í sumar.
Hallgrímur Helgason í viötali viö
Súsönnu Svavarsdóttur.
Við þurfum að höggva á hnútinn.
Við þurfum annaðhvort að ganga í
Evrópusambandið eða hætta enda-
iausri hið eftir einhverju, sem cng-
inn veit hvað er.
Jónas Kristjónsson í forystugrein DV í gær.
Margt gerist í Kínaveldi.
Morgunblaöiö í gær.
Og ósvarað er spurningunni stóru:
Hvenær stelur maður bók og hve-
nær stelur maður ekki bók?
Oddur Ólafsson í essinu sínu að velta fyrir sér
meintum ritstuldi á íslandsklukku Laxness.
fréttaskot úr fortíð
Alþýðu-fyndni
Framkvæmdastjóri nokkur var
að greiða starfsfólki sínu kaup og
galt með óhreinum peningaseðlum.
,JÉg vona að þér séuð ekki hræddur
við sóttkveikjur," segir hann, um
leið og hann fær einum bókaranum
kaup hans.
„Hreint ekki,“ svaraði bókarinn.
„Mér kæmi ekki til hugar,
að sóttkveikja gæti lifað af
kaupinu mínu.“
Alþýðublaöiö
23. ma( 1925.