Alþýðublaðið - 07.11.1995, Qupperneq 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NöVEMBER 1995
MM9UBIMD
21014. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
I:
Haukurinn sem
varð friðardúfa
Itzhak Rabin forsætisráðherra ísraels var mótsagnakenndur maður:
Hann komst til æðstu metorða í hemum og þótti ósveigjanlegur og
grimmur, en varð áðuren yfir lauk helstur talsmaður friðar fyrir botni
Miðjarðarhafs. Það er kaldhæðni örlaganna að þessi fyrrum herskái
yfirmaður herafla fsraels skyldi falla í valinn eftir að hafa ávarpað gríð-
arlega íjölmennan friðarfund.
Rabin fæddist í Jerúsalem fyrir 73 ámm og var þessvegna það sem
Gyðingar kalla sabra, og þykir mikið virðingarheiti. Morðingi hans er
hinsvegar ungur ofstækismaður sem kveðst hafa rekið erindi guðs, enda
hafi Rabin brotið ákvæði gamla testamentisins með því að láta af hendi
land sem tilheyrði Gyðingum. Allt bendir til þess að morðinginn hafi
starfað uppá eigin spýtur, þótt að minnsta kosti tvenn öfgasamtök lýsi
verknaðinum á hendur sér: Annarsvegar svokölluð Hefndarsamtök
Gyðinga, hinsvegar lítt kunn hreyfing heittrúaðra múslima.
Morðið á Rabin vekur vitanlega ugg um friðarþróun fyrir botni Mið-
jarðarhafs. Eindregnar yfirlýsingar forystumanna fsraels og Palestínuar-
aba gefa til kynna að áfram verði haldið eftir hinni mörkuðu braut.
Stefna Rabins naut mikils fylgis meðal fsraela enda eru þeir langþreyttir
á því óöryggi og spennu sem land þeirra hlaut í vöggugjöf. Morðið á
forsætisráðherranum er hinsvegar mikið sálrænt áfall fyrir íbúa ísrael og
mun efalaust kynda undir óróleika.
Viðbrögð nágrannaríkja eru um margt athyglisverð. Leiðtogar Egypta
hafa lýst harmi sínum og Mubarak forseti var viðstaddur útför Rabins í
gær, en ekkert bendir til að þjóð hans sé verulega brugðið. Hussein
Jórdaníukonungur hefur uppá síðkastið átt náið samstarf við Rabin,
jafnvel svo mjög að hann var ásakaður um undirlægjuhátt gagnvart ísra-
elska forsætisráðherranum. Jórdanir eru ákaflega blendnir í afstöðu
sinni til friðarsamninga við ísrael, og því hefur Hussein konungur fulla
ástæðu til að hyggja að eigin stöðu í kjölfar morðsins. Lítið hefur heyrst
frá Sýrlendingum sem eru í lykilstöðu þegar kemur að því að tryggja
frið til framtíðar. Þeir sögðu fyrir skemmsm að Rabin tefði fyrir því að
friðarsamningar kæmust á skrið, og víst er um að Rabin er ekki grátinn
af Sýrlendingum.
Þingkosningar verða í ísrael á næsta ári en þangað til mun Shimon
Peres væntanlega gegna embætti forsætisráðherra. Peres átti ekki minni
hlut en Rabin í ferðinni á vit friðar, og því þarf tæpast að kvíða stefnu-
breytingu. Likud-bandalagið, sem er í stjómarandstöðu, hefur á hinn
bóginn gagnrýnt friðarsamninga við Palestínuaraba og Jórdani í veiga-
miklum atriðum. Einsog áður sagði virðist hinsvegar þorri Israela vilja
að áfram verði haldið á þeirri braut sem þegar er mörkuð.
Itzhak Rabin deildi friðarverðlaunum Nóbels í fyrra með Shimon Per-
es og Yasser Arafat. Gömlu stríðsmennimir áttu allir sinn hlut óskiptan
í því að glæða friðarvonir, en fyrir botni Miðjarðarhafs er almennt litið
svo á, að einum manni hafi íyrst og fremst verið að þakka: Johan Jörgen
Holst. Sem utanríkisráðherra Noregs var hann óþreytandi að þoka því
hugsjónamáli sínu áleiðis að fá hina fomu íjendur að samningaborðinu.
Með frumkvæði sínu sýndi Holst heitinn á áhrifamikinn hátt þau áhrif
sem smáríki geta haft á alþjóðavettvangi.
Þeirra Holst og Rabins verður áreiðanlega lengi minnst. Rabin var
haukur sem skynsemin knúði að lokum til að gerast friðardúfa, hermað-
ur sem um síðir féll fyrir málstað friðarins. Þegar Rabin tók við friðar-
verðlaununum í Osló flutti hann mjög áhrifaríka ræðu þarsem hann
sagði meðal annars: „Leiðtogar þjóðanna verða að sjá fólki sínu fyrir
þeim aðstæðum - því þjóðskipulagi ef menn vilja orða það svo - sem
gera þjóðunum kleift að njóta lífsins; að njóta þess að tjá hug sinn og
ferðast að vild sinni; að hafa nóg að bíta og brenna og þak yfir höfuðið;
og njóta þess sem mikilvægast er af öllu - að lifa. Hreinlega að lifa.
Engin manneskja getur notið réttinda sinna ef hún er ekki lengur á lífi.
Og því verður hvert ríki að vemda og varðveita fyrir alla muni sinn
helgasta gmndvallarþátt - sjálft líf þegna sinna.“
Hugsjón gamla hermannsins mun lifa áfram, en hún á hættulega
óvini: Öfgamenn munu láta einskis ófreistað að kveikja nýja ófriðar-
clda. ■
Stóru loforðin
og litlu efndirnar
Umræðan um fjárlagafrumvarp rík-
isstjómarinnar á dögunum var athygl-
isverð. Það er ekki að sjá að nokkurt
samhengi sé á milli annarsvegar þeirra
stóru orða sem Framsóknarflokkurinn
hafði uppi á Alþingi í fyrravetur og
loforðanna fyrir kosningamar í vor og
hinsvegar þeirra áforma sem birtast
okkur í þessu fyrsta ijárlagaifumvarpi
ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og
Háborðið
Rannveig
Guðmundsdóttir
skrifar
Framsóknarflokks. Ég held að það
væri ekkert úr vegi að rifja upp stóm
slagorðin framsóknarmanna frá því
fyrir kosningar um að enginn vilji
verða atvinnulaus og um endurreisn
heimilanna. Auglýsingarnar með
börnum og ungmennum á skjánum
sem eitt og eitt tilkynntu „Ég vil verða
hjúkrunarkona“, „ég vil verða flug-
maður“, „kennari" og svo framvegi,
gekk beint í hjartastað allra þeirra sem
vilja stuðla að þjóðfélagsgerð sem
byggir á framlagi allra þegna sinna.
Og Framsóknarflokkurinn hét því að
búa til tólf þúsund ný störf til alda-
móta' Hann var ekki að tala um störfrn
2500 sem urðu til á síðasta ári með
auknum hagvexti og hann var ekki að
tala um störfin sem þáverandi ríkis-
stjóm boðaði í ár vegna sama árang-
urs, það er 3% hagvaxtar annað árið í
röð, nei, þetta vom störf sem yrðu til
fyrir sérstaka tilstuðlan Framsóknar-
flokksins. Sömu sögu er að segja um
„endurreisn heimilanna", öllum í
skuldabasli var lofað úrlausn sinna
mála og lofað var þríhliða samningi
um lífskjarajöfnun sem lagðir yðru
þrír milljarðar til. En skoðum nú efnd-
imar.
Allsstaðar dregið saman í
velferðarmálum
Staðfest er að 3% hagvöxtur er ann-
að árið í röð. Tekjur hækka um 4,8%
sem þýðir 5,5 milljarða króna hækkun
tekna ríkisins en áður hækkuðu tekjur
mest 2,5% milli ára. Hvernig birtist
okkur þessi bætta afkoma? Því miður
ekki í velferðarmálunum.
• Framkvæmdasjóður fatlaðra er
skertur og í fyrsta sinn á erfðafjár-
skattur ekki að renna óskiptur í sjóð-
inn eins og lög kveða á um. Áætlað er
að erfðafjárskattur nemi 390 milljón-
um en framlag í Framkvæmdasjóð
fatlaðra nemur aðeins 237 milljónum
króna.
• Afnema á að bætur almannatrygg-
inga og Atvinnuleysistryggingasjóðs
séu tengdar kjarasamningum og telur
ASI að það muni spara ríkinu 700
milljónir króna.
• Persónuafsláttur verður óbreyttur
að krónutölu og skattleysismörk fær-
ast niður eins og verið hefði ef afnám
tvísköttunar lífeyris hefði ekki komið
til í síðustu kjarasamningum. Afnám
tvísköttunar lífeyris kostar ríkið um
600 milljónir en hinsvegar heldur rik-
ið einum milljarði eftir í tekjum vegna
þessarar skerðingar persónuafsláttar-
ins.
• Bíialán, sem veítt voru öryrkjum
hjá Tryggingastofnun ríkisins á sér-
kjörum og skiptu oft sköpum fyrir
þennan fáglaunahóp. eru afnumin.
(Reyndar heyrist nú að þessari
ákvörðun verði ef til vill breytt.)
• Fresta á upptöku bótagreiðslna til
þolenda ofbeldisverka sem taka áttu til
áranna 1993 til 1995 og framvegis, en
lög varðandi ríkisábyrgð á þessum
greiðslum voru eitt af umbótamálum
síðustu ríkisstjómar. Ríkið sparar sér
60 milljónir króna sem renna þar með
ekki til þessa skaddaða hóps.
• Fjármagnstekjuskattur verður lagð-
ur á aldraða og bótaþega, því ákveðið
er að ijármagnstekjur skerði bætur al-
mannatrygginga, án þess að slíkur
En skoðum nánar efndir á loforðum
Framsóknar:
• I fyrra var samanlagt fjármagn til
húsnæðislána í húsbréfum og hjá
byggingasjóðunum Iiðlega 17,9 milíj-
arðar en í ár tæpir 17,4 milljarðar
króna. Minna fjármagn til húsnæðis-
mála sem nemur hátt á sjötta hundrað
milljónum.
• Lánshlutfall í húsbréfakerfi til
fyrstu kaupenda hefur hækkað í 70%.
Þá ákvörðun styðjum við Alþýðu-
flokksmenn enda með þá aðgerð í
undirbúningi í vor. Sú staðreynd ligg-
ur fyrir að þurfa tnuni 6-700 milljónir
aukalega vegna þessarar hækkunar á
lánshlutfalli.
• Ibúðum í félagslega húsnæðiskerí-
inu er fækkað úr 420 í 230 á næsta ári.
• Staðhæft er að láglaunafólk, sem að
óbreyttu hefði leitað eftir félagslegri
íbúð, muni nú kaupa íbúð í húsbréfa-
Finnur Ingólfsson á Alþingi 1994: „Þúsundir
heimila í landinu eru að verða gjaldþrota... neyðar-
ástand [blasir við] á mörgum heimilum í landinu og
það neyðarástand mun skapa margvísleg félagsleg
vandamál. Það mun leggja auknar byrðar á félags-
málastofnanir, það mun auka örvæntingu einstak-
lingana og það mun skapa sár í þjóðfélaginu sem
seint munu gróa."
Framlag ríkisstjórnarinnar 1995 í Endurreisnar- og
leiðbeiningastöð heimilanna: 12,5 milljónir.
skattur sé kominn til framkvæmda á
aðra þjóðfélagshópa.
• Innrituargjöld við innlögn á sjúkra-
hús verða tekin upp „til að samræma
starfsaðstöðu lækna innan og utan
skjúkrahúsa".
Endurreisn heimilanna?
Miðað við yfirlýsingar framsóknar-
manna varðandi fjármál heimilanna
mætti ætla að sérstakt fjármagn væri
eymamerkt til að rétta við stöðu fólks
í skuldabasli. Sérstaklega þegar litið er
til yfirlýsinga á Alþingi í umræðum
um húsnæðismál fyrir ári, en þar féllu
mörg stór orð. Þá sagði Finnur Ing-
ólfsson: „...þær staðreyndir sem blasa
við mörgum heimila í landinu, þar
sem þúsundir heimila í landinu em að
verða gjaldþrota, þá er það bara því
miður svo að það blasir við neyðar-
ástand á mörgum heimilum í landinu
og það neyðarástand mun skapa marg-
vísleg félagsleg vandamál. Það mun
leggja auknar byrðar á félagsmála-
stofnanir, það mun auka örvæntingu
einstaklingana og það mun skapa sár í
þjóðfélaginu sem seint munu gróa.“
Páll Pétursson sagði: „Ástandið í þess-
um málum er gjörsamlega óviðun-
andi, það er útilokað að ljúka þingi nú
í vetur öðmvísi en að ganga frá þessu
máli með einhverjum viðunandi
hætti.“ Og Páll sagði líka: „Ég held að
kominn sé tími til að við hugleiðum í
alvöru hvort nokkurt undanfæri sé að
bjarga litlum fyrirtækjum, það er fjöl-
skyldunum í landinu, með sértækum
aðgerðum eitthvað í stíl við það sem
stóm fyrirtækin hafa notið.“
Það þarf ekki að orðlengja það, að
blásið var á allar aðgerðir undirritaðrar
í húsnæðismálum sem gagnslausar.
kerfí vegna hækkaðs lánshlutfalls, en í
engu er gert ráð fyrir aukinni eftir-
spum eftir fjármagni vegna þessa.
• Lækka á viðmiðunarupphæð vegna
endurbóta á húsnæði, sem þýðir að
fleiri fá lán og það kallar væntanlega á
meira íjármagn.
Staðreyndir tala sínu máli, gert er
ráð fyrir breytingum sent kalla á
aukna ásókn í lán en í engu gert ráð
fyrir auknu fjármagni. Miðað við
framangreint má ætla að á annan
milljarð króna skorti í fjárveitingum til
Húsnæðisstofnunar miðað við óbreytt-
ar forsendur útlána í húsbréfakerfínu.
Það á að setja á laggir „Endurreisn-
ar- og leiðbeiningastöð“ heimilanna
samkvæmt frumvarpinu en aldeilis
ekki með milljarðasjóði til aðstoðar
fólki í neyð - nei, það em 12,5 millj-
ónir króna skráðar á þann fjárlagalið.
Við lögðum allt kapp á að
verja þessa þætti
I fjárlagaumræðunni spurði ég
hvemig framsóknarmenn gætu horft
hver ffarnan í annan eftir þessar miklu
yfirlýsingar og litlu efndir. Ekkert
svar. Nú brýni ég mína flokksfélaga
að halda því á loft að við stóðum vörð
um þá málaflokka sem nú er verið að
rústa. Ég minni á að við vomm ekki
með loforðaflaum í kosningabarátt-
unni, við bentum á staðreyndir og að
sá hagvöxtur sem var að skila ámgri
hafði kostað svita og tár. Við vomm
stefnu okkar trú í erfiðum aðgerðum á
miklum samdráttartímum. ■
Höfundur er formaður
þingflokks Alþýðuflokksins.
3. nóvember
Atburðir dagsins
1550 Jón Arason biskup og
synir hans, Bjöm og Ari, háls-
höggnir í Skálholti. 1917
Bolsevikar ná völdum í Rúss-
landi. 1921 Benito Mussolini
verður leiðtogi ítalskra fastisla.
1961 Konrad Adenauer kjörinn
kanslari Þýskalands f fjórða
sinn. 1980 Bandanski leikarinn
Steve McQueen deyr. 1987 Ól-
afur Ragnar Grímsson kjörinn
formaður Alþýðubandalagsins
í stað Svavars Gestssonar.
Afmælisbörn dagsins
Marie Curie 1867, pólskætt-
aður eðlisfræðingur, Nóbels-
verðlaunahafi í tvígang. Jó-
hannes S. Kjarval 1885, list-
málari. Herman J. Mankiew-
icz 1897, bandarískur kvik-
myndaleikstjóri. Albert Cam-
us 1913, franskur Nóbelshöf-
undur.
Annálsbrot dagsins
Varð maður bráðkvaddur við
gröf í kirkjugarðinum á
Hvammseyri, en eftir það hann
var látinn, barðist hjartað um
daginn og kvöldið lengi í
bijóstinu, hvar fyrir menn ætl-
uðu lífsanda með honum vera
og opnuðu honum nokkrar æð-
ar, sem þó ekki vildu blæða.
Ketilsstaðaannáll 1781.
Málsháttur dagsins
Mannorð fylgir manni til dyra.
Hönd dagsins
Ekki bætir það úr skák, að á
þýðingu greina þessara hefur
Guðmundur Finnbogason lagt
stna dauðu hönd. Um hann hef-
ur verið sagt, að mál hans virð-
ist bera því merki, að hann haft
aldrei hlustað á neinn tala ann-
an en sjálfan sig.
Úr ritdópii Halldórs Laxness
um þýöingu Guðmundar á verki
Aldous Huxley.
Orð dagsins
Þó mitt lijarta þryti ú ný
og þorna loksins tœki,
hvörr veit nema' ég ísland í
annað hjarta sœki.
Eggert Ólafsson.
Skák dagsins
í dag skoðum við það sem kall-
að er stiga- eða tröppumát.
Danimir H. Norman Hansen
og Erik Andersen tefldu skák-
ina í Kaupmannahöfn 1930.
Svartur mátar í tröppugangi í
fjómm leikjum. Takið eftir því
hvemig svartur tvískákar.
Svartur mútar í jjórum leikj-
um.
1.... Hg3++ 2. Kh2 Hg2++ 3.
Khl Hh2++ 4. Kgl Hhl Mát.