Alþýðublaðið - 07.11.1995, Page 4
14ÖRKIN /SÍA RR-156
ALÞYÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1995
Stemmning í Kaffileikhúsinu
Verkefni: Sápa þrjú og hálft
Höfundur: Edda Björgvinsdóttir
Leikstjóri: Sigríður M. Guð-
mundsdóttir
Sýningarstaður: Kaffileikhúsið -
Hlaðvarpanum
Kaffileikhúsið er skemmtilega sér-
stæð jurt í íslensku leikhúsflórunni. I
þessu gamla og skemmtilega umhverfi
hefur það komið sér fyrir og ifamleið-
ir grimmt ýmisskonar leiksýningar og
uppákomur, að ljúfengum veitingum
ógleymdum. Rýmið er lítið, þannig að
listamönnum sem fram koma er nokk-
uð þröngt skorinn stakkur. Og þá
reynir auðvitað ú hugkvæmni og út-
sjónarsemi þeirra ef sæmilega á til að
takast. Það er því vel til fundið hjá for-
ráðamönnum leikhússins að fá höf-
unda til að frumsemja verk með þess-
ar aðstæður í huga. Svo hefur verið
með Sápur leikhússins og þessi er
engin undantekning. Eins og nafnið
ber með sér eru þessi verk heldur í
léttari kantinum og markmiðið með
þeim fyrst og fremst að skemmta fólki
eina örskotsstund.
Leikhús
Arnór
1 Benjamínsson
"'JfÍ'Jpk skrifar um
Wí leiklist
Sápa þrjú og hálft ber sterk ein-
kenni höfundar síns, gert er grín að
ýmsum nýlegum atburðum úr þjóðlíf-
inu og orðaleikir nýttir til að auka á
grínið. Þannig er blaðakona „Helgar-
pestarinnar" kölluð Vespre þvf hún er
„þunn, þægileg og örugg.“ Sem sagt
grín að hætti Eddu.
Leikstjórinn velur þá leið í þessu
þrönga umhverfi að láta sýninguna
flæða um allan sal, þannig verða
áhorfendur meiri þátttakendur í sýn-
ingunni og tækifærið er notað til að
virkja þá með beinum hætti - innan
hófsamra marka þó. Sigríður hefur
gott vald á leikstílnum sem vissulega
er ýkjukendur, en fer þó aldrei út í
fíflalæti, þótt einstaka sinnum lendi
Helga Braga á mörkunum. Hraði og
hraðabreytingar voru í góðu lagi og
þar sem bláþræðir voru í handriti tókst
að mestu leyti að komast hjá þeim
með góðri vinnu leikara.
Sýning sem sett er upp í slíku ná-
vígi við áhorfendur stendur eða fellur
með frammistöðu leikaranna, ég tala
nú ekki um þegar handritið er kannski
fyrst og fremst hugsað sem grunnur
týrir vinnu þeirra. Og styrkur sýning-
Sýning sem sett er upp í slíku návígi við áhorfend-
ur stendur eða fellur með frammistöðu leikaranna,
ég tala nú ekki um þegar handritið er kannski fyrst
og fremst hugsað sem grunnur fyrir vinnu þeirra.
Og styrkur sýningarinnar er einmitt fólginn í því
hversu vel þeir standa sig.
Mikilvægt er að tilkynna flutning
tímanlega og fá flutningsálestur.
Flutningsálestur á réttum tíma
tryggir að hver notandi greiðir
aðeins sinn hlut. Ef þú ert að flytja
hafðu þá samband við flutn-
ingsálestur í síma 560 4630 og
tryggðu að þú borgir ekki rafmagnið
fyrir þann sem flytur inn!
Það er ekki aðeins þægilegt að
greiða rafmagnsreikninga með
sjálfvirkum, mánaðarlegum
millifærslum. Með boðgreiðslum
Visa og Eurocard og beingreiðslum
af banka- og sparisjóðsreikningum
sparar þú þér einnig peninga.
Hver boðgreiðsla veitir þér 19 kr.
*
greiðsluafslátt og hver beingreiðsla
37 kr. greiðsluafslátt. Auk þess
færð þú 623 kr. aukaafslátt í
byrjun.
Vilt þú vita meira? Hringdu í
afgreiðslusíma okkar 560 4610,
560 4620 eða 560 4630.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 108 REYKJAVÍK
SIMI 560 4600 FAX 581 4485
flutninginn valda
þér óþarfa kostnaði
og óþœgindum.
Láttu ekki
Auðveld leið til að greiða reikninginn.
arinnar er einmitt fólginn í því hversu
vel þeir standa sig. Ég minnist til
dæmis ekki að hafa séð Helgu Brögu
Jónsdóttur standa sig jafnvel. Þýska
veitingakonan hennar var geysivel
unnin, jafnt bjagaður hreimurinn sem
líkamsburður. Einbeiting hennar og
eftirfylgja voru lika til fyrirmyndar, þó
eins og fyrr segir væri krafturinn á
stöku stað í það mesta.
Ólafía Hrönn stóð sig ekki síður,
reyndar er hún sífellt að koma á óvart
og virðist eiga jafnlétt með að túlka
Soffíu frænku og gallharðan pönkara.
Sterk nærvera hennar og tilfinning
fyrir tfmasetningum nýtist henni vel í
þessari sýningu. Það eru raunar þær
stöllur sem halda sýningunni á floti og
leikur þeirra einn gerir það fullkom-
lega þess virði að sjá þessa sýningu
Kaffileikhússins.
Þau Kjartan Bjargmundsson, Þröst-
ur Leó, Sigurður Harðarson og Edda
Björgvins standa líka fullkomlega fyr-
ir sínu. Þröstur gerir vel þegar hann
bregður sér í hlutverk Elvis Presley og
Kjartan skapar kostulega týpu sem
jafnt í leik og gervi er skopstæling á
Marlon Brando í Guðföðumum. Edda
fer síðan létt með að vera, þunn þægi-
leg og örugg.
Niðurstaða: Bráðfyndin kvöld-
skemmtun sem borin er uppi af
góðri frammistöðu leikaranna.
Gunnar Dal
Tímamót
Skynsemi þín
er öngull sem aðeins þekkir
sína eigin fiska.
Fengurinn
ekki alltaf stór.
Skilningur þinn
er slitin peysa
sem ekki endist lengi.
Vit þitt
gamlar buxur
með marglitum bótum
yfir götunum