Alþýðublaðið - 05.12.1995, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1995
s k o ð a n i r
HlÞr9UBL£DID
21030. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavik Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Simi 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuöi.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Mun Davíð Oddsson
hlusta á Ólaf Davíðsson?
Stuttu eftir að Davíð Oddsson tók við lyklavöldum í stjómar-
ráðinu var skipt um ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu. Davíð
taldi ekki rétt að bíða eftir að umsóknir bærust, heldur tók upp
símann og bauð embættið Ólafí Davíðssyni hagfræðingi og þá-
verandi framkvæmdastjóra Félags íslenskra iðnrekenda. Ólafur
var vel þekktur fyrir hæfileika sína og þekkingu á þjóðmálum og
ekki síst fyrir það að hafa kynnt sér Evrópumálin vel og vand-
lega.
Um fátt er nú rætt meira manna á meðal - ekki síst meðal Sjálf-
stæðismanna - en að forsætisráðherra þurfi aðstoð í Evrópumál-
um. Ræður Davíðs Oddssonar em til marks um vanmáttarkennd
hans í Evrópumálum. I stað vitrænnar umræðu missir forsætis-
ráðherra stjóm á skapi sínu og út úr honum vellur samansafn fúk-
yrða, rökleysu og þjóðrembu. Jafnvel fólki sem beinlínis er þjak-
að af flokkshollustu er nóg boðið. Þingmenn flokksins - eins og
til dæmis Geir Haarde - fara greinilega hjá sér þegar þeir þurfa
að verja foringja sinn. Hvaða heilvita maður líkir Evrópusam-
bandinu við Sovétríkin og ætlast svo til að hann sé tekinn alvar-
lega?
Davíð Oddsson þarf sem sagt einhvem til að halda í höndina á
sér þegar Evrópumálin em annars vegar. Sá er gallinn á þessari
hugmynd að Davíð virðist ekki þola neina umræðu um málið.
Evrópusinnum í Sjálfstæðisflokknum er hótað öllu illu ef þeir
beita sér í málinu. Davíð hefur stefnt að því bæði leynt og ljóst að
kefla allan Sjálfstæðisflokkinn þegar Evrópumálin eru annars
vegar og snúa upp á hendumar á öllum þeim sem æmta. Vil-
hjálmur Egilsson er til að mynda orðinn marklaus stjómmála-
maður eftir að Davíð tuktaði hann til, - eins og lafandi hræddur
rakki við hlið húsbónda síns.
Menn hafa því sem von er litið til hollráða Ólafs Davíðssonar í
stjórnarráðinu. Þar er einnig starfandi sérstakur ráðgjafí í utanrík-
ismálum. Sá ágæti maður virðist hafa gengið í björgin og annað
hvort er ekkert gagn af ráðum hans eða foringinn mikli hlustar
ekkert á hann. Miðað við hið dæmalausa rugl sem frá Davíð
kemur í Evrópumálum, virðast ráðgjafar hans aðeins tala þegar
Davíð segir þeim að tala og segja aðeins það sem hann vill heyra.
Það skyldu þó aldrei vera stjómunarhættimir í forsætisráðuneyt-
inu?
Áður en Ólafur Davíðsson varð ráðuneytisstjóri gat hann sér
gott orð fyrir yfirveguð blaðaskrif um Evrópumál. Arftaki hans
hjá iðnrekendum hefur haldið þessu starfí áfram og vill að Island
sæki um aðild að Evrópusambandinu. Allir vita hvaða álit forsæt-
isráðherra hefur á slíkum skoðunum. Óiafur Davíðsson skrifaði
athyglisverða grein í vorhefti Skímis 1990 undir heitinu „Sam-
eining Evrópu og framtíð þjóðríkja“. í greininni segir meðal ann-
ars:
„ Tvöfaldur glæpur"
Eftir langt hlé hefur loks náðst sá
árangur að álversframkvæmdir eru
hafnar fyrir erlent fjármagn. Þriðji
kerskálinn er að rísa t Straumsvík.
Sumir vilja gera lítið úr þessum fram-
kvæmdum. Það er ástæðulaust. Þess-
um eina kerskála er ætlað að fram-
leiða heldur meira ál en fyrsta álverið
gerði - það er kerskálinn, sem byggð-
Háborðið___|
ur var 1966. Þessi framkvæmd nú er
því, hvað framleitt magn varðar, sam-
bærileg við framkvæmdirnar, sem
hófust 1966 og allt ísland lék á reiði-
skjálfi vegna. Mér eru þær umræður
enn minnisstæðar. Andstæðingar
framkvæmdanna fóru mikinn. Sögðu
meðal annars, að Hafnarfjörður yrði
óbyggilegur bær vegna bráðs bama-
dauða af völdum mengunar, að álvers-
framkvæmdimar myndu gera Island
að varanlegu láglaunasvæði og að
hingaðkoma Alusuisse yrði til þess, að
eftirleiðis myndi Islandi verða stjóm-
að frá Sviss og kosningar til Alþingis
leggjast niður. Umræðurnar um er-
lenda fjárfestingu og byggingu álvera
hafa lengi verið á þessa sömu bók
lærðar af hálfu þeirra, sem tiieinkað
hafa sér hugarfar Bjarts í Sumarhúsum
eða hafa haft á hugsjón að ísland eigi
ekki að tengjast viðskiptaumhverfmu í
Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum
vegna þess hve landinu byðist miklu
betra í kompaníi við aðra. Sá hugsun-
arháttur er nú á hröðu undanhaldi sem
betur fer. En hann er samt ekki langt
undan.
Aðdragandinn að þeim fram-
kvæmdum, sem nú em hafnar, varð
fyrir fimm árum síðan. Þá vöknuðu
vonir um að takast mætti að fá erlenda
fjárfesta til þess að kaupa raforku af
Islendingum til álframleiðslu. Þáver-
andi ríkisstjórn var klofin í afstöðu
sinni og Sjálfstæðisflokkurinn í stjóm-
arandstöðu lýsti því yfir, að ekki
myndi hann greiða fyrir framgangi
málsins. Við það tækifæri gerði Sam-
band ungra framsóknarmanna sam-
þykkt, sem kynnt var í Tímanum und-
ir fyrirsögninni: .JíKKERT ÁLVER
VERÐI REIST“. Þar segir meðal ann-
ars: „Framkvæmdastjórn SUF ít-
rekar þá skoðun SUF að stóriðja
eigi ekki að rísa á suðvesturhorni
íslands vegna þeirrar gífurlegu
byggðaröskunar, sem slík staðsetn-
ing veldur.
Réttlætanlegt hefði verið að reisa
álver utan suðvesturhornsins til að
hamla gegn þeirri óæskilegu byggða-
þróun sem orðið hefur undanfarin ár,
ef slíkt bryti ekki í bága við umhverf-
issjónarmið. Nú er komið í ljós, að
umhverfisspjöll vegna álversins eru
töluverð... Glæpurinn er því tvöfaldur
verði álverið reist.“
Álversframkvæmdir á suðvestur-
horni landsins „tvöfaldur glæpur“.
Minna mátti það ekki vera. Er ekki
rétt munað, að Siv Friðleifsdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins á
Reykjanesi, hafi átt sæti í fram-
kvæmdastjórninni, sem þessa gífur-
yrtu samþykkt gerði fyrir aðeins fimm
árum?
En unga fólkið í Framsóknarflokkn-
um ályktaði meira en þetta. Áfram-
hald ályktunarinnar hljóðar svo: „Nær
væri að veita því fjármagni, sem Is-
lendingar leggja til álvers, beint eða
óbeint, til að byggja upp atvinnu-
starfsemi á landsbyggðinni og
stuðla þannig að jafnvægi í byggða-
þróun á Islandi. SUF vekur einnig
athygli á að með byggingu álvers
veikjum við hina hreinu ímynd
landsins. Sú ímynd er forsenda
uppbyggingar Islands sem ferða-
mannalands og framleiðslulands
ómengaðara afurða.“
Nú á Framsóknarflokkurinn um-
hverfisráðherrann. Hvað með „ímynd-
ina hreinu“ - þá einustu einu. Svona
mikið getur breyst á aðeins fimrn ár-
um. Hvað breytist á næstu fimm? Af-
staðan til Evrópusambandsins? Guð
láti gott á vita.
Má ég svo, rétt í lokin, óska Páli
Péturssyni hjartanlega til hamingju
með framkvæmdir, sem tengjast fram-
kvæmdunum í Straumsvík - náttúr-
lega stækkun Blöndulóns. Það er ekki
ónýtt að eiga sér shka kórónu sköpun-
arverks í héraði.
Höfundur er þingmaður Alþýðuflokksins.
INú á Framsóknarflokkurinn umhverfisráðherrann. Hvað með
„ímyndina hreinu" - þá einustu einu. Svona mikið getur breyst á
aðeins fimm árum. Hvað breytist á næstu fimm? Afstaðan til
Evrópusambandsins? Guð láti gott á vita.
„Þjóðir Evrópusambandsins viðurkenna að þær séu efnahags-
lega og viðskiptalega svo háðar hver annarri að þjóðríkið sem
sjálfstæð efnahagsleg heild með sjálfstæða efnahagsstefnu sé
hvorki raunhæft né skynsamlegt. Þess vegna ætla þær að rnynda
með sér efnahagsbandalag og taka upp eina mynt. Þær hafa
ákveðið að deila með sér sjálfsforræði á vissum sviðum. Þetta
gildir jafnt um stóru ríkin og litlu ríkin innan bandalagsins. Litlu
ríkin telja sig hafa meiri möguleika til áhrifa innan bandalagsins
en utan þess. Þetta krefst endurmats á hvað sjálfstæði eða sjálfs-
forræði þýðir í raun við núverandi aðstæður.“
Greinina endar ráðuneytisstjórinn á þessum orðum: „Við eigum
að leita að tækifærum en ekki að einblína á hættumar. Með efna-
hagslegri, viðskiptalegri og stjómmálalegri samvinnu við Evr-
ópuþjóðir þurfum við að skapa okkur forsendur til að geta búið
áfram í þessu landi sem menningarþjóð. Á þann hátt á þjóðríkið
sér langa framtíð.“
Sú veika von blundar í brjóstum margra að Olafur Davíðsson
taki nú blíðlega í hönd forsætisráðherra og komi fyrir hann vitinu
í Evrópumálum. ■
a q a t a
Atburðir dagsins
1791 Wolfgang Ainadeus
Mozart deyr í Vínarborg, 35
ára gamall. Hann samdi meira
en 600 tónverk. 1796 Leikritið
Slaður og trúgirni eftir Sigurð
Pétursson frumsýnt í Reykja-
víkurskóla. 1904 Japanir eyða
rússneska flotanum í Port Árt-
hur. 1945 Sex bandarískar her-
flugvélar og 27 flugliðar hverfa
í Bermúdaþríhyrningnum.
1968 Jarðskjálfti. sex slig á
Richtersskala, skekur Reykja-
vík.
Afmælisbörn dagsins
Björn Halldórsson 1724, rit-
höfundur og prestur í Sauð-
lauksdal. Fritz Lang 1890,
austurrískur kvikmyndaleik-
stjóri. kunnastur fyrir Metro-
polis. Otto Preminger 1906,
austurrískur kvikmyndaleik-
5 . d e s e
stjóri. Little Richard 1935,
bandarískur rokkari. Jose
Carreras 1946, spænskur stór-
söngvari.
Annáisbrot dagsins
Maður af stjúpdóttur sinni bor-
inn barneign fyrir Jökli, liann
höggvinn á alþingi, en henni
drekkt. llöggvinn og stegldur á
alþingi maður, sem skorið
hafði konu sína á háls. Maður
skorinn á hásinarnar á Langa-
nesi, stigamaður sagður og
þjófur.
Vatnsfjaröarannál! elsti 1650.
Málsháttur dagsins
Enginn veit, hver annan grefur.
Spurning dagsins
Án réttlætis, hvað eru þá ríkin
nenia stórkostleg glæpafélög?
Ágústínus kirkjufaöir, 354-430;
þýðing þorsteins Gylfasonar.
m b e r
Flótti dagsins
Vissulega er drykkjan flótti frá
lífinu, en margur maðurinn
hefur nú bjargað sér á flótta!
Árni Pálsson, 1878-1952,
prófessor.
Orð dagsins
Syngdu glaður sigurlag.
sigldu mótgangs trylltu boða.
Vertu stór i stœrstum voða,
styrkastur þinn hinzta dag.
Pétur Sigurðsson.
Skák dagsins
Breski stórmeistarinn og
mjólkurdrykkjumaðurinn Ant-
hony Miles er brokkgengur og
hefur ekki náð að standa við
þær vonir sem við hann voru
bundnar um og uppúr 1980.
Frægastur varð hann þegar
hann svaraði byrjunarleik Kar-
pov heimsmeistara, e4. með a6
- og vann skákina! En lítum á
skák frá þessu ári þegar Miles
saltaði landa sinn, alþjóða-
meistarann Howell í aðeins 20
leikjum. Við lítum á stöðuna
eftir 18. leik hvíts, b3.
Svartur leikur og vinnur.
1. ... Rxc2! 2. Dxc2 Da3 3.
Bc3 Bxb3 Howell gafst upp:
Hvíta staðari er hrunin til
grunna.
t