Alþýðublaðið - 19.12.1995, Qupperneq 1
UmVBUlIB
Þriðjudagur 19. desember 1995
Stofnað 1919
191. tölublað - 76. árgangur
■ Alþýðuflokkurinn leggurfram róttækar breytingartillögur
við fjárlagafrumvarpið
Getum náð halla-
lausum fjárlögum
-segir Gísli S. Einarsson alþingismaður.
„Við unnum mjög ítarlegar breyting-
artillögur við Qárlagafrumvarpið með
það að markmiði að ná hallalausum
fjárlögum. Það er hægt með nýjum
spamaði útgjalda og sértekjum en ég
geri mér grein fyrir að þessar tillögur
valda deilum víða í kerfmu. Það hefur
ekki gefist jafn gott tækifæri til að ná
hallalausum fjárlögum um áratuga-
skeið þar sem þjóðhagshorfúr eru mun
betri en gert var ráð fyrir á haustmán-
uðum vegna aukinna veiða og álfram-
kvæmda,“ sagði Gísli S. Einarsson al-
þingismaður í samtali við blaðið. „í
okkar tillögum er farið nákvæmlega yf-
ir fjárlagafrumvarpið og við gerum
skýra grein fýrir þeim breytingum sem
við leggjum til, bæði hvað varðar út-
gjöld og tekjur. Það hefur nú jregar ver-
ið tekið tillit til sumra af okkar tillög-
um. Við vildum til dæmis lækka út-
gjöld vegna ábyrgðarsjóðs launa úr 200
milljónum í 100 milljónir með því að
auka þátttöku atvinnulífsins í íjármögn-
un sjóðsins. Meirihluti fjárlaganefndar
tók þessa tillögu upp nær óbreytta og
vill lækka útgjöld sjóðsins um 90 millj-
ónir. Við viljum að innheimt verði sér-
stakt gjald af hverju lönduðu fiskkílói
til að standa straum af rekstri Fiskistofu
og Hafrannsóknarstofu. Þetta gjald
skilar um 900 milljóna króna tekjum
og við trúum ekki öðru en menn vilji
að stofnanir sjávarútvegsins fái tekjur á
eðlilegan máta frá útveginum sjálfum.
Nú við gerum ráð fyrir að fjármagns-
tekjuskattur verði innheimtur frá 1.
september á næsta ári og skili 420
milljónum það ár, svo eitthvað sé
nefnt,“ sagði Gísli. Samkvæmt tillög-
um þingmanna Alþýðuflokksins hækka
tekjur ríkissjóðs um 2.320 milljónir. í
tillögunum er annars vegar gert ráð fyr-
ir hækkun einstakra útgjaldaliða um
645 milljónir en jafnframt gert ráð fyrir
lækkun útgjalda á öðrum sviðum um
1.510 milljónir og sölu eigna sem nem-
ur 700 milljónum króna. Samtals munu
útgjöld lækka og tekjur hækka um
3.885 milljónir sem er sama upphæð
og áætlaður halli samkvæmt fjárlaga-
frumvarpinu. Alþýðuflokksmenn segja
tekjur ríkisins aukast um 800 milljónir
vegna álversframkvæmda og þeir vilja
fækka ívilnunum vegna hlutabréfa-
kaupa sem gefa 200 milljónir í auknar
tekjur. Þeir
vilja lækka
framlag til
Byggðastofn-
unar um 100
milljónir, setja
þak á útgjöld
samkvæmt
heimildar-
á k v æ ð u m ,
hætta stuðn-
ingi - við
Bændasamtök-
in í áföngum
og lækka
Gísli: Gerum skýra framlag í ffam-
grein fyrir okkar til- leiðnisjóð. Þá
lögum. vilja þeir að
bætur til þol-
enda afbrota verði greiddar að fullu og
tekjutenging lffeyrisgreiðslna við Ijár-
magnstekjur verði lækkuð um 190
milljónir frá fjárlagafrumvarpi. Fram-
lag til Kvikmyndasjóðs verði hækkað
um 13 milljónir, skerðing barnabóta
verði lækkuð og bamabótaauki hækki,
svo nokkur dæmi séu nefhd um tillögur
þingmanna Alþýðuflokksins.
Formaður Dagsbrúnar ætlar að láta af störfum
Tek áfram þátt í átökum
- segir Guðmundur J. Guðmundsson.
„Ég ætla ekki að standa fyrir aftan ystu. Guðmundur gagnrýnir skattsvik-
eftirmann minn og halda um flibbann
á honum. Það er alveg hræðilegt þegar
fyrrverandi formaður lætur ekki af
starfi heldur áfram í praxís. En ég mun
áfram taka þátt í átökum í félaginu og
baráttunni," segir Guðmundur J.
Guðmundsson meðal annars í viðtali
vi ð Alþýðublaðið í dag.
í viðtalinu segist Guðmundur
standa uppi eignalaus og allslaus með
lélegan lífeyrissjóð eftir 42 ára setu f
stjóm Dagsbrúnar. Það sé hugsjóna-
starf að vera formaður félagsins. Guð-
mundur J. Guðmundsson segir að síð-
an Björn Jónsson féll frá árið 1978
hafi Alþýðusamband íslands ekki ver-
ið til stórræða. Hann hefur þá trú að á
næsta þingi Aiþýðusambandsins komi
fram öflugri og frískari aðilar í for-
Upplestur
á veitinga-
húsinu 22
Miðvikudagskvöldið 20. desember
klukkan 21.00 verður bókakynning á
veitingahúsinu 22. við Laugaveg. Þar
koma fram skáld sem eiga það sam-
eiginlegt að senda frá sér bækur fyrir
þessi jól. Skáldin sem lesa upp úr bók-
um sínum eru: Einar Már Guð-
mundsson er les úr ljóðabók sinni, /
auga óreiðunnar. Nína Björk Arna-
dóttir sem les úr skáldsögunni, Þriðja
ástin, Ólafur Grétar Gunnsteinsson,
les úr ljóðabókinni Þáttur, Sigurður
Pálsson, les úr Ljóölínuskipum, Stein-
ar Vilhjálmur flytur efni úr ljóðsög-
unni, Hin hljóða nóta og Þorri Jó-
hannsson fer með efni úr ljóða og
prósabók sinni, Holrœsin á ströndinni.
Dagskráin hefst stundvíslega kiukk-
an 21.00 og er aðgangur ókeypis.
in í landinu og segir að þegar Ragnar
Arnalds var fjármálaráðherra hafi
hann ekki þorað að leggja til atlögu
við skattsvikara.
Sjá baksíðu.
Mozart við kertaljós Síðustu vikuna fyrir jól held-
ur kammerhópurinn Camerarctica sina árlegu aðventutónleika þar sem leik-
in verður tónlist eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Leikið verður í kirkjum á
höfuðborgarsvæðinu. í kvöld verða tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju og annað
kvöld í Kópavogskirkju. Á myndinni eru, Ármann Helgason, klarinettuleikari,
Hallfríður Ólafsdóttir, flautuleikari. Tónleikarnir eru um klukkustundar langir
og verða kirkjurnar einungis lýstar með kertaljósum til þess að skapa fallega
og rólega stemmningu í miðri jólaösinni. A-mynd: E.ÓI.
■ Akureyri
Nýr leikhússtjóri
Leikféþag Akureyrar hefur ráðið
Trausta Ólafsson sem leikhússtjóra.
Trausti er fæddur árið 1949 og lauk á
þessu ári námi í leiklistarfræðum frá
Oslóarháskóla. Hann er einnig lærður
kennari og hefur B.A. próf í norsku
frá Háskóla íslands. Trausti var skóla-
stjóri Hvammshlíðarskóla á Akureyri
á árunum 1985-1989, hefur fengist við
ritstörf og blaðamennsku og var kynn-
ingarfulltaii íslensku óperunnar 1992-
1993.
r.\
r.\
ÞAR SEM NYTSOMU
lólagjafirnar
Travelpro®
Ferðatöskurnar á hjólum.
LJLPUHANSKARNIR
EFTIRSÓTTU
VERÐ KR.1.800.
TIL 2.500.-
FAST
UNGVERSKU
GÆÐAHANSKARNIR
Má krækja 3 töskursaman og
draga með annarri hendi.
Töskurfyrirþásem
ferðast mikið.
FRÁBÆRGÆÐI
FRÁBÆR ENDING!
Sendum
í póstkröfu.
^lábvö-rðuitújj, ^im. 55!-5814,552-9664